Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
49
SMEKKLEYSA s/m
Dragt
í Hótel
Islandi
Skemmtanir
Árni Matthíasson
Ljósmynd/BS
Guðmundur, kynnir kvöldsins, í
g-erfi hinu síðara.
Ljósmynd/BS
Sigtryggur syngur Þú ert minn
súkkulaðiís.
Askemmtikvöldi Smekkleysu
B/m í Hótel íslandi fyrir
skemmstu var bryddað upp á
nýjung í skemmtanalífi Islend-
inga, svokallaðri dragt, sem á
ensku kallast „drag-show“. Felst
skemmtanin í því að karmenn
gerast ldæðskiptingar, þ.e. klæð-
ast kvenfatnaði, og reyna að sýna
sem kvenlegast látbragð og fas.
Kynnir kvöldsins, sem haldið var
til að minnast andláts hins kunna
bandaríska klæðskiptings Divine og
bar yfirskriftina Dýrðin kvödd, var
Guðmundur Friðjónsson og var
hann skartbúinn; í satínbláum kjól
og háhæluðum skóm með dökka
hárkollu. Reyndar tók hann stakka-
skiptum um miðbik kvöldsins og
breytti þá um háralit og skipti um
kjól.
Hápunktur kvöldsins að flestra
mati var þó er Sigtryggur Baldurs-
son, trommuleikari Sykurmolanna,
kom á svið glæsilegur mjög og
flutti lag sem Svanhildur Jakobs-
dóttir gerði ódauðlegt, lagið Þú ert
minn súkkulaðiís, við mikla hrifn-
ingu áhorfenda.
Ljósmynd/BS
Einn gesta hafði á því orð að karlmenn væru kvenlegri en nokkur kona þá er þeir klæddust kvenmanns-
fotum.
Heiðraðir fyrir hörku og
ósérhlíftii
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
hefur hin síðustu ár veitt
verðlaun til þess félagsmanns
sem ár hvert hefur þótt sýna
venju fremur mikla ósérhlífiii og
hörku til þess að getað stundað
eftirlætisiðju *sína, stangaveið-
ina. Þessi verðlaun hafa verið
nefiid „footloose" verðlaunin og
eru gríðarstór og skrautleg
veiðifluga í ranuna, en Jónas
Jónasson hnýtti umrædda flugu.
Verðlaunin voru veitt í fjórða
sinn á skemmtikvöldi SVFR fyrir
skömmu og þau hlutu að þessu
sinni Jón B. Þórðarson, en fyrri
sigurvegarar hafa verið Ólafur
H.Ólafsson sem skrölti niður að
á í göngugifsi, Steingrímur Her-
mannsson sem veiddi og veiddi
þrátt fyrir umbúðir á hendi eftir
að hafa sagað framan af fingrum
á smíðaverkstæði sínu sem frægt
var og loks Ingvi Hrafn Jónsson
sem drattaðist í fyrsta veiðitúr
sumarsins meira af kappi en for-
sjá eftir firnalanga og erfiða
sjúkdómslegu.
Jón B.Þórðarson fór í Laxá í
Kjós í göngugifsi og hugðist styðja
sig við hækju, en svo þegar 22
punda hængur hámaði maðkinn í
sig og æddi af stað, varð veiði-
manni svo um að hann tók á rás á
eftir, en gleymdi hækjunni. Háði
það honum þó lítið uns hann mundi
eftir því, en þá hófst erfíð glíma
sem þó lauk með sigri veiðimanns.
Hængurinn hafði ekki gæfu bróður
síns til að bera, Jón hafði nefnilega
sett í annan álíka stóran skömmu
áður, en misst það tröll. Þess má
geta, að það ríkti stórlaxastemming
á umræddu skemmtikvöldi hjá
SVFR, því Þröstur Elliðason hélt
þar fyrirlestur um Nes- og Ámes-
svæðin í Laxá í Aðaldal. Sýndi með
skyggnur teknar í júníveiðiferð á
síðasta ári. Þá veiddust á tveimur
dögum 20 laxar, að meðalþyngd
17 pund.
Rómantík, stuð, sorgoggleði.
Ein sýning með öllu
Með söngvurunum Björgvini Halldórssyni,
Eiríki Haukssyni, Siggu Beinteins og Felix
Bergssyni í fararbroddi
STÓRSVEITSÆNSKA PÍANISTANS
GUGGE
HEDRENIUS
leikur fyrir dansi
Verð með mat kr. 3.200.-
Rúllugjald eftlrkl. 23.30kr. 700.-
STÓRSÝNING
FRÁ
GULLÁRUM
NÆTURLÍFSINS
Saga i tónunt ogta/ium uppruna oghffrægustu
hljómsveitar íslands K.K. sextettsins
50 listamanna stórsýning með þeim Bessa Bjarnasyni,
EHý Vilhjálms og Ragga Bjarna i aðalhlutverkum.
Hljómsveitarstjóri Ólafur Gaukur.
Verö meö mat kr. 3.500
- Rúllugjald eftir kl. 23.30 kr. 700.-
NY DANSHLJÓMSVEIT
HÓTEL ÍSLANDS
Stefán Stefánsson - saxófónn
Björn Thoroddsen - gitar
Ellen Kristjánsdóttir - söngur
Jeff Davis - trompet
Kjartan Valdimarsson - hljómborð
Jóhann Ásmundsson - bassi
Porsteinn Gunnarsson - trommur
Haukur Hauksson - söngur