Morgunblaðið - 15.04.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
I
Tíu íslenskum myndlistarmönnum boðið að sýna í Danmörku:
Sérkennileg list
oggottfólk
- segir Erik Andreassen formaður Listafélags Lyngby
„SÉRKENNILEG list og gott fólk,“ segir danski líffæra-
fræðiprófessorinn og listunnandinn Erik Andreassen, er
hann er spurður hvað hafi einkennt dvöl hans í Reykjavík
undanfarna daga. Andreassen er formaður Listafélagsins
í Kongens Lyngby, smábæ rétt utan við Kaupmannahöfn.
Þar er lítil höll, Sofienholm, þar sem listin hefur fengið
athvarf. Andreassen er nú hér á landi að leita að islenskum
myndlistarmönnum til að sýna verk sín í Sofienholm í sept-
embermánuði næstkomandi.
Hvers vegna leita Lyngbybúar
til íslands eftir verkum til að
prýða höllina sína í einn mánuð?
„Hugmyndin að baki þessari
sýningu fæddist eiginlega í fyrra,
þegar komu til okkar nokkrir ung-
ir íslenskir textíllistamenn," sagði
Andreassen. „Við kynntumst
þessu fólki og list þess og urðum
mjög hrifin. Bæði var þetta gott
fólk, sem gaman var að tala við
og svo hugsuðum við líka með
okkur, að fyrst svona falleg og
sönn textfllist fyrirfyndist á ís-
landi, þá væri þar áreiðanlega að
finna málverk, sem væru sömu
eiginleikum gædd. Við þekkjum
líka íslenska málara, sjálfiir þekki
ég Svavar Guðnason persónulega
og allir þekkja Kjarval."
„Annars er Halldór Laxness
satt að segja aðaláhrifavaldurinn
að þaki þessari fyrstu för minni
til íslands," sagði Andreassen og
brosti. „Venjulegir Danir hafa
ákveðnar hugmyndir um ísland,
þessa ævintýraeyju, þar sem býr
stolt fólk sem okkur fellur vel við.
Við sjáum ísland með augum
Laxness, af því að við lesum bæk-
umar hans. Þess vegna finnst
okkur við þekkja bæði fólkið og
landslagið, og okkur fannst að
hér myndum við finna góða lista-
menn.“
„Við vitum að íslendingar eiga
merkilegan menningararf, bæði í
bókmenntum og myndlist, en líka
framúrskarandi unga listamenn,"
sagði Andreassen. „Danskur
myndlistarmaður, Jensen að
nafni, hefur dvalist hér í
Reykjavík og kynnst mörgu ungu
listafólki. Hann segir mér að hann
sé alveg heillaður af fjölbreytni
listarinnar í þessari litlu borg. Því
er nefnilega svo háttað, að yfír
alla veröldina ganga sömu al-
þjóðlegu bylgjumar, og verkum
ungra listamanna í Japan, Banda-
ríkjunum og Evrópu svipar öllum
saman á einn eða annan hátt. Hér
á íslandi höfum við hins vegar séð
raunverulega tjáningu mannlífs-
ins í verkum ungs listafólks, sem
við höfum skoðað."
Andreassen sagði aðstæður í
Sofienholm allar hinar bestu.
Bæjarfélagið í Lyngby eignaðist
höllina fyrir nokkrum ámm og
þáverandi bæjarstjóri, sem er
fyrrum formaður Listafélagsins,
beitti sér fyrir því að innréttaðir
voru sex sýningarsalir í þessari
Morgunblaðið/Bjami
Erik Andreassen ásamt konu sinni Áse.
gömlu, nýklassísku byggingu. Þar
em listaverkasýningar allan árs-
ins hring. „Listafélagið hefur
fengið frjálsar hendur með það
hveija það fær til þess að sýna,“
sagði Andreassen. „Stefnan hefur
verið sú að fá unga listamenn, en
þetta er í fyrsta sinn sem við
höldum sýningu á verkum ann-
arra en ungra Dana. Sýningin
verður kölluð „Om islandsk
kunst.“
Við vonumst til að geta boðið átta
til tíu listamönnum. Við höfum
skoðað mikið af myndum, og no-
tið þar dyggrar aðstoðar Sveins
Bjömssonar vinar okkar, sem hef-
ur margoft sýnt verk sín í Dan-
mörku. Þau, sem við höfum þegar
ákveðið að muni sýna hjá okkur,
em Jóhanna Kristín Yngvadóttir,
Hulda Hákonardóttir, Helgi Gísla-
son, Tolli, Magnús Kjartansson
og Grétar Reynisson. Það er auð-
vitað ekki auðvelt að ætla að velja
úr tíu bestu listamennina á Is-
landi, enda getum við ekki skoðað
verk þeirra allra, en við munum
ömgglega finna tíu góða, og ger-
um okkur miklar vonir um þessa
sýningu. Hún verður glæsileg,"
sagði Andreassen að lokum.
íþróttamót
og sýningar í
Reiðhöllinni
________Hestar_____________
Sigurður Sigmundsson
FYRSTA opinbera hestaíþrótta-
mótið fór fram um síðustu helgi
í Reiðhöllinni í Viðidal. Mótið var
haldið af íþróttaráði LH og
hestamannafélögunum fimm á
Reykjavíkursvæðinu. Þá fór
fram sölusýning á hrossum úr
Húnavatnssýslum og Borgar-
firði. Einnig voru sýnd kynbóta-
hross, stóðhestar og hryssur.
í íþróttakeppninni tók þátt fjöldi
fólks og var keppt í flestum greinum
hestaíþrótta. Var árangur athyglis-
verður hjá mörgum knöpum og
ekki hvað síst hjá bömum og ungl-
ingum sem tóku myndarlegan þátt
í mótinu og eru þar greinilega á
ferðinni margir efnilegir knapar. Á
kvöldin fóru fram úrslit en þá voru
einnig sýnd fyrrgreind söluhross
svo og kynbótahrossin. Mikill fyöldi
áhorfenda fylgdist með á laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
I íþróttagreinunum var stiga-
hæsti knapi fullorðinna svo sem oft
áður Sigurbjöm Bárðarson og hlaut
hann 257,2 stig. Sigurbjöm sigraði
í fjórgangi á hestinum Fálka frá
Gilsá og hlaut þar 47,6 stig, í tölti
á sama hesti og hlaut þar 77,6 stig,
íslenska tvíkeppni fullorðinna með
125,20 stig. Olympíska tvíkeppni
sigraði Barbara Mayer með 73 stig.
í fimmgangi fullorðinna sigraði
Tómas Ragnarsson á hestinum
Snúð. í hlýðnikeppni varð efstur
Benedikt Þorbjömsson á Spora.
Hindmnarstökk sigraði Þórður
Þorgilsson á hestinum Elg. í fjór-
gangi unglinga sigraði Haraldur
Viktorsson á hestinum Herði og
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sigurbjöm Bárðarson varð stiga-
hæstur fullorðinna knapa á
fyrsta íþróttamótinu f Reiðhöll-
inni. Hér situr hann hestinn
Fálka frá Gilsá í Eyjafirði.
einnig í tölti. Hlýðnikeppni unglinga
sigraði Edda Sólveig^ Gísladóttir á
hestinum Janúar. í bamaflokki
sigraði Edda Rún Ragnarsdóttir í
tölti og fjórum gangtegundum.
Róbert Petersen sigraði hlýðni-
keppni í bamaflokki. Stigahæstur
unglinga í eldri flokki varð Halldór
Viktorsson með 118,30 stig en hann
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Efst f tölti barna urðu (frá vinstri): Edda Rún Ragnarsdóttir og Kríi, Sigurður Matthíasson og Bróðir,
Ragnar E. Ágústsson og Njáll, Jón Steindórsson og Sörli, Gísli Geir Gylfason situr Dropa.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Haraldur Viktorsson úr Kópavogi var sigursæll f eldri flokki ungl-
inga. Hann sigraði f fjórgangi og töltí á hestínum Herði.
varð einnig stigahæstur í íslenskri
tvíkeppni með 116,85 stig. Stiga-
hæstur í yngri flokki varð Gísli
Geir Gylfason með 101,45 stig en
íslenskra tvíkeppni í yngri flokki
sigraði Edda Rún Ragnarsdóttir
með 98,40 stig.
Á milli 20 og 30 hross vom sýnd
á sölusýningunni á vegum Félags
hrossabænda og vom þau sem fyrr
sagði úr Borgarifrði og Húnavatns-
sýslum. Þau vom allt frá því að
vera nær ótamin og upp í fullmót-
aða góðhesta. Aðeins fá hross munu
hafa selst af þessum hrossum og
em raddir uppi um að framvegis
verði haldnar sérstakar sölusýning-
ar á hrossum í Reiðhöllinni.
Sex stóðhestar í eigu einstakl-
inga vom kynntir svo og níu kyn-
bótahryssur.
íþróttamótið fór vel fram og má
Morgunblaflið/Sigurður Sigmunds8on
Náttfarasonurinn Krákustígur
frá Dallandi var kjörinn glæsi-
legastí hestur mótsins. Knapi er
Sigurður Marínusson.
telja víst að í framtíðinni verði hald-
in fleiri slfk mót í Reiðhöllinni.