Morgunblaðið - 11.05.1988, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
106. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 11. MAI 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Donald Regan:
Stjörnu-
spá réð
Reykja-
víkurferð
Washington, frá ívari Guðmunds-
syni, fréttaritara Morgunblaðsins.
STJÖRNUSPÁ, sem Nancy
Reagan forsetafrú Banda-
ríkjanna taldi óheillavæn-
lega fyrir sig, varð til þess
að hún fór ekki með manni
sínum til íslands á
Reykjavíkurfundinn í októ-
ber 1986. Segir Donald Reg-
an fyrrum framkvæmda-
stjóri starfsliðs Hvita hússins
frá þessu í nýrri bók sinni.
Þar kemur jafnframt fram,
að Regan þótti ánægjulegt að
koma til Reykjavíkur og rifja
upp kynni sín af íslendingum.
Þá segir Regan að tillit hafi
verið tekið til þess, að stjömu-
spámaður forsetafrúarinnar
taldi að fimmtudagurinn 9.
október væri heppilegasti
brottfarardagurinn frá. Wash-
ington til Reykjavíkur.
Sjá einnig frétt á síðu 29.
Reuter
Perestrojka:
Gorbatsjov
kvartar yf ir
undirtektum
Moskvu, Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétrikjanna, sagði í ræðu sem
birt var í gær að hugmyndir hans
um félagslegar og efnahagslegar
umbætur hefðu valdið almennu
uppnámi, jafnvel meðal valda-
mestu manna.
í raeðunni segir að margir félagar
í Kommúnistaflokknum séu ekki fús-
ir að koma á umbótum. Hann sagði
að hugmyndir hans um umbætur
hefðu valdið miklu uppnámi meðal
allra þjóðfélagshópa og þar væri for-
ysta kommúnistaflokka ekki undan-
skilin. Hann lagði þó áherslu á að
uppnámið væri vegna þess að menn
væru ráðvilltir, ekki vegna þess að
þeir væru á móti hugmyndum hans.
Stofnandi Framfaraflokksins, Mogens Glistrup, og Pia Kjaersgaard, einn forystumanna Framfaraflokks-
ins, fagna sigri í dönsku þingkosningunum í gær.
Framfaraflokkurinn vinnur stóran sigur í þingkosningunum í Danmörku:
Schliiter hyggst reyna að
mynda stjóm með Glistrup
Kaupmannahöfn, frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Framfaraflokkurinn var sig-
urvegari þingkosninganna í Dan-
Pólland:
Verkfallinuí
Lenín-skipa-
smiðjunni lokið
Verkföll verða ekki bönnuð
Varsjá, Reuter.
STARFSMENN Lenín-skipasmiðjunnar í Gdansk, sem verið höfðu i
setuverkfalli i níu daga, gengu út úr smiðjunni síðdegis í gær þótt
ekki hefði verið gengið að kröfum þeirra. Þeir sögðust þó ætla að
halda baráttunni áfram. Fyrr um daginn hafði talsmaður þólsku
stjórnarinnar, Jerzy Urban, sagt að stjórnin hygðist hætta við að
banna verkföll. Hann sagði hins vegar að hvers konar mótmæli við
fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir stjórnarinnar væru bönnuð.
Hundruð verkfallsmanna gengu
út úr Lenín-skipasmiðjunni í
Gdansk í gær og hrópuðu slagorð
þegar þeir bundu enda á verkfallið.
Lögreglan fylgdist með starfs-
mönnum smiðjunnar, sem fóru í
kirkju heilagrar Birgittu, eitt af
höfuðvígjum Samstöðu. Kirkju-
klukkum var hringt og fólk sem
safnast hafði saman við kirkjuna
klappaði starfsmönnunum lof í lófa
og hrópaði hvatningarofð.
í yfirlýsingu sem talsmaður Sam-
stöðu las í kirkjunni segir að verk-
fallsmennimir hafi ákveðið að yfir-
gefa skipasmiðjuna sjálfviljugir þótt
ekki hafí verið gengið að kröfum
þeirra. „Þótt verkfallinu sé lokið
höfum við ekki sagt skilið við mál-
staðinn. Við ætlum að halda barátt-
unni áfram. Það er ekkert frelsi án
Samstöðu."
Fyrr um daginn hafði talsmaður
pólsku stjómarinnar, Jerzy Urban,
tilkynnt að fmmvarp um „sérstakt
umboð ráðherranefndarinnar," sem
gerir ráð fyrir að verkföll verði
bönnuð út þetta ár, hefði verið
breytt eftir mikil mótmæli löglegra
verkalýðsfélaga. „Stjómin hefur
hætt við að takmarka starfsemi
löglegra verkalýðsfélaga eins og
gert var ráð fyrir í frumvarpinu."
Ekki var ljóst í gær hvort stjórn-
in áskildi sér enn rétt til að refsa
fyrir „öll önnur mótmæli" með allt
að eins árs fangelsi eins og gert
var ráð fyrir í upprunalegu fmm-
varpinu. Löglegu verkalýðsfélögun-
um er ekki heimilt að mótmæla
efnahagsaðgerðum, sem stjómin
getur gripið til samkvæmt fmm-
varpinu.
mörku í gær. Flokkurinn sem
hefur lýst yfir andstöðu við
flóttamenn og innflytjendur og
vill Iækka skatta hlaut 16 þing-
sæti, en hafði 9 áður. Úrslitin eru
nokkurt áfall fyrir stjórnar-
flokkana. Þó treystu vinstri
flokkamir ekki stöðu sína og er
talið að Poul SchlUter verði
áfram forsætisráðherra og veiti
stjóm borgaraflokka forystu.
SchlUter lýsti yfir í gærkvöldi
að hann hygðist reyna að mynda
borgaralega stjórn með Radikale
venstre og Framfaraflokknum.
Staða stjómarflokkanna er þessi:
íhaldsflokkurinn tapaði þremur
þingsætum og Miðdemókratar einu,
en Venstre bætti við sig tveimur
og Kristilegi þjóðarflokkurinn
komst yfír 2%-þröskuldinn og hélt
§órum þingsætum.
Úrslitin þýða að Poul Schluter
verður að ganga til samstarfs við
Radikale venstre og Framfaraflokk-
inn til að tryggja sér meirihluta á
þinginu. Radíkalir vom í lykilað-
stöðu á þingi fyrir kosningamar og
hingað til hefur enginn viljað starfa
með Framfaraflokknum í stjórn.
Poul Schlúter sagðist í sjónvarps-
viðtali í gærkvöldi búast við að
hann myndi ganga til viðræðna við
þessa flokka um myndun borgara-
legrar stjómar. Mogens Glistmp,
leiðtogi Framfaraflokksins, sagði í
gærkvöldi að hann væri því hlynnt-
ur að flokkur sinn færi í stjómina.
Flokkur
Ihaldsflokkurinn
Miðdemókratar
Kristilegi þjóðarfl.
Frjálslyndir
Jafnaðarmenn
Sósíalíski þjóðarfl.
Fælles kurs
Radikale venstre
Framfaraflokkurinri
Færeyjar og
Grænland
Þingsæti Þingsæti
'87
(38)
(9)
(4)
(19)
(54)
(27)
(4)
(H)
(9)
(4)
Jafnaðarmenn hlutu 54 þingsæti
eins og í síðustu kosningum, Sósíal-
íski þjóðarflokkurinn tapaði fjórum
þingsætum, og Fælles kurs hlaut
fjögur þingsæti eins og í síðustu
kosningum. Leiðtogi Jafnaðar-
manna, Svend Auken, sagði i gær-
kvöldi að nú væri mikilvægt að
koma í veg fyrir að Framfaraflokk-
urinn, með sína kynþáttaafstöðu,
kæmist til áhrifa í dönskum stjóm-
málum.
Reuter
Michael Rocard, sem tilnefndur hefur verið forsætisráðherra Frakk-
lands, ásamt Jacques Chirac fráfarandi forsætisráðherra i forsætis-
ráðuneytinu i gær.
Frakkland:
Rocard tUnefndur
forsælisráðherra
París, Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, sem var
endurkjörinn forseti Frakklands
á sunnudag, veitti i gær sósialist-
anum Michel Rocard umboð til
stjórnarmyndunar. Rocard sagð-
ist ætla að leggja áherslu á að
bæta kjör unga fólksins og
minnka atvinnuleysi.
Um leið og talsmaður Frakklands-
forseta, Jeán-Louis Bianco, hafði til-
kynnt ákvörðun forsetans tók Rocard
við stjómartaumunum af Jacques
Chirac, sem beið ósigur í forseta-
kosningunum á sunnudag. „Forseti
lýðveldisins hefur falið mér erfitt
verkefni," sagði Rocard í gær. „Ég
ætla að hafa alla þá í huga sem
hafa áhyggjur - áhyggjur af framtíð-
inni, vinnunni, starfsþjálfuninni eða
öryggi sínu.“
Rocard er fyrrum landbúnaðarráð-
herra. Talið er að Rocard myndi
stjóm miðju- og vinstrimanna á
fimmtudag og að í henni verði nokkr-
ir ráðherrar sem ekki em í flokki
sósfalista.
Sjá nánar frétt á bls. 29.