Morgunblaðið - 11.05.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988
Breyttur opnunartími
Á tímabilinu 16. maí - 19. september
verðurskrifstofa BSRB opin
frá kl. 8-16 alla virka daga.
BSRB.
Jörð til sölu
Eyjarhólar í Mýrdal eru til sölu nú þegar. Einnig
Grimma L650 upptökuvél og Zetor 7011 með
ámoksturstæki.
Upplýsingar í síma 99-7315 frá kl. 19.00-20.00.
SJÓNVARPSBINGÓ Á STÖÐ 2
Sjónvarpsbingó á Stöð 2
mánudagskvöldið 9. maí 1988.
Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var
um eina lárétta línu.
Spilað var um 10 aukavinninga, hver að
verðmæti kr. 50.000,00., frá HUÓMBÆ,
TEGUNDXZ1:
90, 69, 24, 40, 2, 63, 44, 79, 54, 33, 14,
50, 68, 4, 53, 42.
SPJÖLDNR. 19106.
Þegar talan 42 kom upp var HÆTT að
spila á aukavinningana.
Þegar spilað var um BÍLINN komu eftirfar-
andi tölur upp.
Spilað var um þrjár láréttar línur,
(eitt spjald):
89, 57, 62, 88, 26, 74, 1 5, 31,82, 71,
29, 28, 45, 1 9, 43, 60, 34, 76, 61,16,
48, 20, 35, 5, 87, 12, 83, 3, 66, 70, 51,
17,46,8.
SPJOLD NR. 12389,
15166,21885.
ki
OGUR
styrkta r felag
SÍMAR 673560 OG 673561
rITVÉLAR
REíKNlVÉLAR
prentarar
tölvuhúsgogn
Kalevala — Kaielía
— Gallén Kallela
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í kjallarasölum Norræna hússins
stendur yfír kynning á hinum nafn-
kennda kvæðabálki Kalevala,
uppruna hans í Karelíu, austur-
hluta Finnlands, svo og hluta
myndlýsinga þjóðarlistamanns
Finna Akseli Gallén-Kallela.
Hins vegar er það rangt, sem
margur álítur, er stormar á sýning-
una til að kynnast list þessa ágæta
og fjölhæfa málara, að hér sé á
ferð sérstök kynning á list hans.
Rétt er, að hér er einungis um að
ræða myndlýsingar og skreytingar,
sem hann gerði á síðustu árum
ævi sinnar. Hugðist hann þá
skreyta öll kvæðin 50 að tölu, en
entist aldrei aldur til að byija á
fyrstu fímm kvæðunum, þar sem
segir frá sköpun heimsins og hetj-
unni Váinámöinen. Þá er margt
ljósmynda á sýningunni frá
Finnska ljósmyndasafninu, sem
nafnkenndir ljósmyndarar tóku í
þorpum karelískra kvæðamanna.
Einn af brautryðjendum fínnskrar
ijósmyndunar og ljósmyndalistar,
I.K. Ihna, og jafnaldri Gallén-
Kallela tók mikið af myndum á
ferð sinni til Austur-Karelíu 1894,
og er hluti þeirra á sýningunni.
En prófessor Váino Kaukonen (f.
1911) og ljósmyndarinn Vilho
Uomala (1910—1970) áttu kost á
því árið 1943 að ferðast um Aust-
ur-Karelíu með myndavélar, sem
þeir gátu tekið á svarthvitar mynd-
ir og litmyndir, en litfílmur voru
þá nýlunda.
Þetta eru yfírmáta merkar heim-
ildir fýrir fínnsku þjóðina, vegna
þess að h'ér eru hetjukvæðin upp-
runnin, sem héldu lífi í og hleyptu
af stað þeirri þjóðarvakningu, sem
telja má að hafí fætt af sér Finn-
land nútímans.
Eftir seinni heimsstyijöldina
lenti landsvæðið (Austur-Karelía)
innan landamæra Rússlands og all-
Akseli Gallén-Kallela á vinnupalli undir freskum sínum í Finnska
þjóðminjasafninu 1928.
ir íbúarnir, afkomendur kvæða-
fólksins, er gaf Finnlandi vitund
sína og hjarta, flutt í burt.
Þannig eru þetta þjóðargersem-
ar, sem verið er að sýna í kjallara-
sölum Norræna hússins, mikil og
góð sending frá norrænum frænd-
um vorum lengst í austri.
Finnskir listamenn sóttu sér yrk-
isefni í þessi goðsagnakenndu
kvæði, einkum eftir að Elias Lönn-
rot gaf í fyrsta sinn út heildarverk
af fomkvæðum fínnsku þjóðarinn-
ar, sem hann hafði safnað og gefið
Um fjölmiðlamál — eða
Hættuástand skapast varðandi vaxandi
fjölda aðila í hryðjuverkasamtökum
Undan
skllningstrénu
Egill Egilsson
Aukafyrirsögnin er ekki veru-
lega ýkt dæmi fjölmiðlamáls. Það
sem eitt sinn hét hætta skal heita
hættuástand. Því sem lét sér eitt
sinn nægja að gerast, koma upp
eða verða, dugar ekki minna en
skapast nú orðið. Það sem hét eitt
sinn og heitir vafalaust þvi hlut-
lausa en virðulega nafni „um“
skal nú heita varðandi. „Þeir aðil-
ar sem enn eiga eftir að
greiða ...“ hef ég margheyrt.
Þetta var látið nægja að kalla
„þeir sem ...“ áður en hljóp verð-
bólga í orðin. Ég tel að þeir aðilar
sem fást við málefni varðandi fjðl-
miðla — og fjöldi þeirra hefur
farið nýög vaxandi — kunni vel
með rétt mál að fara heima hjá
sér, en forðist að beita því þegar
mest þarf á að halda, af ótta við
að hið rétta mál þeirra sé rangt
mál — og öfugt.
Hin nýja stétt
Vér lifum nú öld fjölmiðla sem er
engri annarri lík. Upp hefur sprottið
kynslóð fjölmiðlunga sem er svo
hraðmælt og hraðskrifandi, að heili
vor hefur ei undan áð meðtaka það
sem á oss dynur. Stjaman skín á
þig. Bylgjan bylur á þér. Gufan
hjakkar og hjarir. Blöð fjölmiðla. Því
miður hefur einungis Ljósvakinn lagt
upp laupana. Stöð tvö starir á þig.
Á rás eitt er gerð árás á rás tvö.
Hinar bíða þess sem verða vill. Jón
Óttar hefur tekið að sér bamapössun
fyrir streituhijáða foreldra alla laug-
ardags- og sunnudagsmorgna, hóf
það fyrir einum tíu mánuðum ef ég
man rétt. En þetta var eini tíminn
sem foreldramir áttu aflögu. Fæð-
ingum fjölgar ... afsakið. Ég reyni
aftur: Fjöldi fæðinga hefur vaxið á
Landspítalanum undanfarið. Segið
svo að fjölmiðlun beri ekki ávöxt.
Mér er sagt að jafnvel Frakkar og
Svíar, sem vom alltaf að fækka sér,
þegar ég var lítill, séu nú sýknt og
heilagt að fjölga sér. Svo að fjöl-
miðlafárið virðist hafa gripið um sig
í öðrum löndum einnig.
Hvaðerþáað?
„Það er allt í lagi alls staðar. Það
hlýtur eitthvað að vera farið úr lagi,“
sagði herra Barlómur í Herramönn-
unum. Og ég held áfram í anda hans:
Það er ekkert að, nema, innihaldið
er ekkert. Það er öllu heldur ekkert
að nema allt. {loftinu, við tölvuborð-
in og ritvélamar þarf að vinna svo
hratt að frétt þarf ekki að vera búin
að fá tima til að vera sönn, svo ný
skal hún vera. Síbyljan krefst hrað-
mæltari tungu en svo að nokkur
heili hafí undan að fóðra hana á
upplýsingum, því síður að annar hafí
tíma til að taka við. Það er alls stað-
ar. Úti á götum, í fjósum, hænsna-
húsum, vandlega byrgt inni í afhýsi
leynibruggarans, þar sem syndin er
jafnt sem þeir syndlausu, í bílnum,
þar sem talandi bflstjórans í farsí-
mann keppir um desíbelin við stere-
ógræjur tryllitækisins. Aðeins eitt
vantar á til fullkomnunar í bflnum.
En það er sjónvarpsskermur yfír
bflstjóraglugganum, japanskur, 10
sm x 10 sm, sem er nýkominn í fram-
leiðslu frá fyrirtækinu Kýraðskíta.
Bflstjórinn gæti vel náð góðum kafla
úr vídeómynd á löngum beinum kafla
ef umferð væri ekki mikil. Til dæmis
mætti reyna þetta á Sandskeiðum.
The Air
Loftið (nútímaíslenska: The air)
er alls staðar. Fyrir utan það smáat-
riði að innihaldið sé ekki neitt er það
eitt til vansa að málfarið er eins og
harðlífíð sé hlaupið alla leið upp í
heilabúið. Fjölmiðlungsmönnum til
afsökunar er stundum nefnt að þeir
„vinna svo hratt, greyin". „Þetta er
jú atvinna þeiira að gera þetta
svona.“ Sjálfiir hafði ég haldið að
einmitt mætti gera kröfu til málfars
fyrir það að atvinna þeirra sé að
beita málinu. Að sláttumaður yrði
betri sláttumaður ef hann slægi mik-
ið. Að tónlistarmaður yrði góður af
því að fást við list sína. En fjölmiðl-
ungar eru sem sé eina stéttin sem
fer aftur með æfíngunni.
Til fróðleiks og nokkurs gamans