Morgunblaðið - 11.05.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988
23
Samtök ungra öku-
manna verða stofnuð
ið um það atriði eitt öðru fremur
að viðhalda ofstjórnun á gengis-
málum.
Þegar öllu fólki er talin trú um
það að þetta verði að vera svona,
og ekkert sé til ráða.
Og þegar þetta er svona, og
almenningur trúir þessu í raun og
veru og menn vilja ekki út úr
ógöngunum, stefnum við í átt til
örbirgðar.
Meiri kjaraskerðing
Það skiptir ekki öllu máli hvaða
dæmi eru tekin, hvort við tölum
um skattlagningu á ferðamanna-
þjónustuna, bóndann í samkeppni
við cheerios, bakarann og dalíkök-
una, að ekki sé nú minnst á þá
fáránlegu hugmynd að flytja út
vörur frá landinu, allt þetta virðist
algjört aukaatriði í núinu, í formi
gengisstýringar. Svo flytja nátt-
úrulega allir skynsamir menn suð-
ur á bóginn eftir því sem reikning-
urinn hækkar, með millilendingu
og viðdvöl í Reykjavík.
Tillaga
I framhaldi af þessu kem ég
með beinharða tillögu:
Sala á erlendum gjaldeyri verði
gefín frjáls og hlúð verði að út-
flutningsatvinnugreinum þjóðar-
innar.
Hliðarráðstafanir
Þar sem aðal hagstjómartækið
fellur í valinn, legg ég til eftirfar-
andi sem umræðugrundvöll:
Erlendur gjaldeyrir verði skatt-
lagður og þau verðmæti sem við
það fást verði notuð í öfluga sam-
félagshjálp og hlúð að fólki hér
innanlands. Þá væri hægt að ráð-
stafa þessum peningum (án gæp-
salappa) að hluta til þess að greiða
til baka þeim atvinnufyrirtækjum
sem þættu þjóðhagslega hagkvæm
og þyldu ekki viðkomandi skatt-
lagningu í augnablikinu. Einnig
væri hægt að hugsa sér vissa pen-
ingauppsöfnun sem tæki við sveifl-
um frá degi til dags viku til viku,
eða mánuði til mánaðar, allt eftir
því hvemig menn upphugsuðu sér
framkvæmdina á uppboðinu á pen-
ingunum. Það yrði jafnvel ekki til
þess að æra óstöðugann þótt tekið
yrði nokkurra milljarða lán til þess
að lina sveiflumar í byijun. Þótt
eignir okkar íslendinga séu skuld-
um vafnar verðum við að halda
velli. Ef þjóðin heldur ekki velli
er það erfítt mál og við höfum
fengið jarðteikn.
Föstudagurínn langi
Þessa blaðagrein ritaði ég á
föstudaginn langa. Svo týndist
greinin, en ég hafði verið svo
ánægður með hana að ég fór í
glósur sem ekki var búið að henda
og er búinn að skrifa greinina upp
á nýtt, allt öðruvísi og eitthvað
vantar, en meiningin er sú sama.
Ein heillegasta glósan sem ég fann
var svona:
Þegar ég er núna að rita þessa
grein, á föstudaginn langa, er ég
að velta því fyrir mér hver titillinn
eigi að vera. Hann gæti t.d. verið
me, og niðurlagið hefði þá hljómað
eitthvað svona: Einu sinni voru
tvær kindur að bíta gras, og önn-
ur sagði — me, þá sagði hin, ah,
þetta var einmitt það sem ég ætl-
aði að fara að segja.
Niðurlagið skiptir kannski ekki
öllu máli, en það er öiyggisatriði
og skiptir miklu máli fyrir skógar-
höggsmanninn að vita það, að
þegar trén haf verið höggvin, kem-
ur: Timbur...
Jólin
Auðvitað átti titillinn að vera
Timbur. í millitíðinni heyrði ég
einn góðan sem passar mikið betur
við en hann er svona: Tvö svín
tóku tal saman og annað sagði,
heyrðu, trúir þú á líf eftir jólin?
eftírSigvrð
Helgason
Miklar umræður hafa farið fram
í fjölmiðlum að undanfömu um
hraðakstur á götum höfuðborgar-
innar. í flestum tilfellum koma þar
við sögu ungir ökumenn, með tak-
markaða reynslu. í allri þessari
umijöllun er beðið um hugmyndir
um leiðir til úrbóta. Laugardaginn
30. apríl síðastliðinn birtist í Morg-
unblaðinu grein eftir Ásgeir Pét-
ursson bæjarfógeta í Kópavogi um
þetta efni. Þar kemur hann á
framfæri athyglisverðum hug-
myndum.
Hann leggur til að ungmennun-
um sjálfum verði falið að leita leiða
til að draga úr þeim alvarlega
vanda sem við er að stríða. Hann
leggur til að stofnuð verði samtök
ungra ökumanna og bifreiðaeig-
enda. Sérstök áhersla verði lögð á
„Það sem skiptir mestu
máli á næstu mánuðum
er að tryggja, að ungt
fólk sem tekst á við
akstur bifreiðar geri
sér fulla grein fyrir
þeirri ábyrgð sem hon-
um fylgir.“
frumkvæði þeirra í öllu þessu
starfí.
Sambærileg hugmynd Valgarðs
Briem formanns Umferðarráðs
hefur verið til umfjöllunar á vett-
vangi Umferðarráðs á undanföm-
um mánuðum. Á síðasta fundi
ráðsins var ákveðið að stofna sam-
tök eða klúbb ungs fólks í umferð.
Umfjöllun fleiri aðila gefur þessum
hugmyndum byr undir báða vængi
og mun væntanlega ekki líða lang-
ur tími þar til efnt verður til stofn-
fundar slíkra samtaka.
En hvað geta þessi samtök gert?
Hveiju fá þau breytt? Það er er-
fítt að svara þeirri spumingu. En
eitt er víst, að tilkoma þeirra skap-
ar umræður meðal ungs fólks um
mikilvægi þjálfunar og góðrar
framkomu í umferðinni. Og hver
veit nema að á þessum vettvangi
þyki það kostur að komast leiðar
sinnar í umferðinni án þess að
lenda í slysum eða óhöppum.
Áróður og umfjöllun um um-
ferðarmál hefur löngum haft þá
eðlilegu eiginleika að hinir eldri
em að reyna að hafa vit fyrir
unga fólkinu. Það er góðra gjalda
vert. En það sem skiptir mestu
máli á næstu mánuðum er að
tryggja, að ungt fólk sem tekst á
við akstur bifreiðar geri sér fulla
grein fyrir þeirri ábyrgð sem hon-
um fylgir. Það sem vantar uppá
núna er að svo virðist sem nýliðar
í akstri viti ekki hveijar afleiðing-
ar t.d. hraðakstur og kappakstur
getur haft í för með sér. Sú vitn-
eskja verður að ná til þeirra. Við
megum ekki láta sára reynslu eina
leiðbeina þeim í því sambandi.
Án efa er áhrifaríkt til að ná
árangri í þessum málum að skapa
einhvers konar hvatningu. Hvatn-
ingu sem ieiði til aukinnar að-
gæslu og ábyrgðartilfinningar.
Fámenn þjóð eins og við íslending-
ar getum aldrei sætt okkur við þær
miklu fómir sem færðar em í
umferðinni. Við getum síst af öllu
sætt okkur við að lífí og heilsu
ungs fólks sé ógnað með ógætilegu
framferði í umferðinni.
í leiðara Morgunblaðsins föstu-
daginn 6. maí sl. er vitnað í fyrr-
nefnda grein Ásgeirs Péturssonar
og áhersla lögð á að þeir sem
stjóma umferðarmálum gefí þeim
gaum og tiyggja að fjárskortur
megi ekki standa í veginum fyrir
slíkri starfsemi. Undir það er
ástæða til að taka nú í upphafí
sumars. Umferðarráð hvetur alla
til þess að hugleiða á hvem hátt
megi ná til ungra ökumanna. Ekki
síst viljum við hugmyndir frá unga
fólkinu sjálfu. Síminn á skrifstofu
Umferðarráðs er 91-27666.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Umferðarráðs.
HÉR ER LAUSNIN
HP LaserJet II gengur nú beint við IBM 36/38
=u<
Fyrirferáarlítill
, „ / Hentar fyrir Ritvang 36
Smækkuö útskrift Öll útprentun j / ^
IBM 5219 prentara \ Hágæðjaletur
samháefður
Auðveldur í
uppsetningu
Margar leturgerði
★ Gott verð ★ Aukin afköst ★ Fleiri leturgerðir ★ Gengur jafnframt við PC tölvur
★ Lausnin sem IBM 36/38 notendur hafa beðið eftir
Söluaðilar:
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
n
%
NYBVLAVEGI 16 • P.O BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SIMI 641222
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverlisgölu 33, sími: 62-37-37
AkureyriiTölvutæki-Bókval
Kaupvangsstræti 4, simi: 26100
Höfundur er loðdýraræktandi að
Böggvistöðum og Ytra Holti við
Dalvík.
Okkar þekking í þína þágu