Morgunblaðið - 11.05.1988, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988
Moskva:
Ritstjóri Glas-
nost fangelsaður
fyrir að styðja
stofnun stjórnar-
andstöðuflokks
Moskvu. Reuter.
SERGEI Grígoijants, ritstjórí
óháðs tímarits í Sovétríkjunum,
var handtekinn í fyrradag og
dæmdur í sjö daga fangelsi fyrír
að styðja stofnun stjórnarand-
stöðuflokks.
Tamara, eiginkona Sergeis
Grígoijants, stefndi fréttamönnum
til sín í íbúð þeirra hjóna í Moskvu
og sagði, að maður sinn hefði verið
handtekinn árla morguns á mánu-
dag. Hafði lögreglan þá áður ráðist
inn í sumarhús, sem Grígoijants
hefur notað sem ritstjómarskrif-
stofur. Fimm samstarfsmenn hans
við tímaritið voru einnig handtekn-
ir, þrír dæmdir í fimm daga fang-
elsi en tveimur sleppt aftur.
Grígoijants, sem stofnaði í fyrra
óháða tímaritið Glasnost, tók um
síðustu helgi þátt í stofnfundi nýs
stjómmálaflokks, Lýðræðisbanda-
lagsins, og var fundurinn haldinn í
sumarhúsinu hans fyrir utan
Moskvu. Þegar fundarmenn, 70
talsins, komu að húsinu hafði lög-
reglan umkringt það og lagt hald
á síðustu útgáfu tímaritsins.
Reuter
Hvalahjúkrun
Hvalir geta orðið veikir rétt eins og menn en óvíst er um aðhlynningu. Dverghvalurinn á mynd-
inni hafði heppnina með sér því hann rak sjúkan á land þar sem hann fannst og var fluttur í
Taronga-dýragarðinn í Sydney í Ástralíu. Cathy Horvat sjávarspendýrafræðingur hefur hlúð að
honum, en þurft hefur að vakta sjúldinginn allan sólarhrínginn þar sem jafnvægisskyn hans trufl-
ast við veikindin og hætta er á að hvalurinn verði afvelta og drukkni. Dverghvalurinn er nú á
batavegi.
Breska þingið:
ERLENT
Sergei Grígoijants, ritstjóri
Glasnost.
Fólkið varð því frá að hverfa en
tókst að komast inn í menningar-
miðstöð skammt frá þar sem það
ræddist við í hálftíma eða þar til
lögreglan skipaði því á brott.
Stjómmálaskýrendur segja litlar
líkur á, að Lýðræðisbandalagið
muni koma til með að kemba hær-
umar. Þrátt fyrir aukið fijálsræði
sé fjölflokkalýðræði ekki á dagskrá
í Sovétríkjunum, allra síst þegar
andstæðingar Míkhaíls Gor-
batsjovs, leiðtoga Sovétríkjanna,
eru að herða róðurinn gegn honum.
Tillaga um breytingar á fóst-
ureyðingarlögnm fallin
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ANDSTÆÐINGUM breytinga á fóstureyðingalögum tókst að koma
í veg fyrir, að tillaga um styttingu leyfilegs tíma til fóstureyðinga
kæmi til atkvæða. Talið er, að tillagan sé þar með fallin. David
Alton, flutningsmaður tillögunnar, segist ætla að berjast fyrír því
að fá meirí tíma í þinginu.
Tillaga Altons kvað á um, að
allar fóstureyðingar eftir 18. viku
meðgöngu væru bannaðar. Hún var
samþykkt eftir aðra umræðu með
Alþjóðleg ráðstefna jarð-
skjálftafræðinga í Kína
Kínveijar búast við öflugum skjálftum á næstu árum
Peklng, Reuter.
Jarðskjálftafræðingar hvað- kvarða. Fari skjálftar yfír 6 stig
anæva að úr heiminum hittast á Richter-kvarða verður tjón af
í Kína í þessarí viku. Búist er völdum þeirra töluvert. í dreifíriti
við að jarðskjálftavirkni í Kína sem kynnt verður á ráðstefnu
eigi eftir að aukast á næstu
árum eftir tíu ára hlé, veldur
þetta ráðamönnum og almenn-
ingi miklum áhyggjum.
„Við gerum ráð fyrir því að
næsta jarðskjálftahrina gangi yfir
í Kína eftir árið 1990,“ segir próf-
essor Chen Yong, yfirmaður
kínversku jarðskjálftafræðistofn-
unarinnar í samtali við kínverskt
dagblað. Miklir jarðskjálftar urðu
í Kína á árunum 1966-1976. Jarð-
skorpuhreyfíngar voru litlar
næstu tíu árin eða þar til árið
1985 þegar stór skjálfti varð í
Xinjing-héraði. Að sögn Chens
telja sérfræðingar ólíklegt að
skjálftar sem búist er við á næstu
árum verði eins sterkir og stóri
skjálftinn árið 1976 sem lagði
borgina Tangshan í eyði og varð
240.000 mannns að bana. „Ekk-
ert bendir til þess að ég muni lifa
til að sjá annan slíkan skjálfta,"
sagði Chen, sem er á besta aldri,
í samtalinu.
Stærstu skjálftar
aldarinnar í Kína
Tangshan-skjálftinn, sem einn-
ig fannst í Peking í 160 kflómetra
fjarlægð, mældist 7.8 á Richter-
jarðskjálftafræðinga sem hófst í
Peking í gær greinir Chen frá því
að stærstu skjálftar sem orðið
hafa á þessari öld hafí átt upptök
sín í Kína. Hinn fyrri varð árið
1920 í Norður-Kína og hinn síðari
1950 í Tíbet. Báðir mældust þess-
ir skjálftar 8.6 stig á Richter-
kvarða.
Kínversk yfírvöld hafa miklar
áhyggjur af hættunni á jarð-
skjálftum og lögð hefur verið sér-
stök símalína frá kínverska ríkis-
ráðinu inn á skrifstofu Chens. „Li
Peng forsætisráðherra hafði sam-
band við mig fyrir skömmu eftir
að fólk í Peking hafði fundið smá-
skjálfta," upplýsti Chen. Prófess-
orinn fullvissaði forsætisráðherr-
ann um að ekkert væri að óttast,
þetta væri aðeins einn af mörgum
smáskjálftum sem árlega eiga
upptök sín skammt frá höfuð-
borginni. „Jarðskjálftafræðingar
telja Peking vera öruggasta stað
landsins," sagði Chen við Li Peng.
Almenningur í Kína hefur einn-
ig áhyggjur af jarðskjálftum og
hefur verið bent á að nú séu 12
ár liðin frá skjálftanum í Tangs-
han. Samkvæmt gamalli
kínverskri stjömuspeki verða end-
urtekningar atburða á 12 ára
fresti. Chen biður kínversku þjóð-
ina að halda ró sinni og segir að
hingað til hafí ekki fundist tengsl
milli jarðskjálftavirkni og árs
Drekans.
970jarðskjálftaritar
í Kína
Ráðstefna jarðskjálftafræð-
inga, sem hófst í gær, stendur í
fjóra daga. Hana sækja 400
fræðimenn frá 17 þjóðlöndum auk
Kínveija. Að sögn Chens eiga
Kínveijar náið samstarf við jarð-
skjálftafræðinga víða að en sam-
starfíð við Bandaríkjamenn er
hvað mest. Hafa þeir aðstoðað við
uppsetningu 970 jarðskjálfta-
mælistöðva víðsvegar um Kína.
„Við erum betur búnir undir stóra
jarðskjálfta nú en við vorum árið
1976,“ sagði Chen. Samkvæmt
skipun stjómarinnar em allar ný-
byggingar byggðar til þess að
standast skjálfta minni en 8 stig
(af 12) á Mercalli-kvarða. Stórar
byggingar í Peking eru hannaðar
til að þola enn meira en reglugerð-
in kveður á um. Þeirra á meðal
er grafhýsi Maós formanns, flug-
stöðin, sjónvarpsstöð ríkissjón-
varpsins og höfuðstöðvar jarð-
skjálftafræðistofnunarinnar þar
sem tölvubúnaður, sem fylgist
með mælistöðvum um gjörvallt
land, er til húsa.
45 atkvæða meirihluta. Tillagan
þurfti að koma til atkvæða síðastlið-
inn föstudag til að hljóta fullnaðar-
afgreiðslu frá neðri málstofunni og
fanga síðan til lávarðadeildarinnar.
nefnd höfðu verið gerðar tvær
breytingar á fóstureyðingarheimild
eftir 18. viku — ef fóstur var alvar-
lega vanskapað — en tímamörkiln-
um var ekki breytt, eins og búist
hafði verið við.
Ef tillagan átti að ná fram að
ganga, var ljóst, að atkvæða-
greiðsla um breytingatillögur við
tillögu Altons þurfti að hefjast um
tvöleytið á föstudag. Andstæðingar
fmmvarpsins höfðu tafið upphaf
umræðnanna með ræðuhöldum um
þingsköp. Þeir sáu til þess, að stöð-
ugt var einhver á mælendaskrá.
Um klukkan tvö lagði Alton til, að
borið yrði undir atkvæði, hvort
umræðunni skyldi lokið, en þingfor-
seti neitaði því. Þingfundi lauk
klukkan hálfþijú án atkvæða-
greiðslu.
Til að frumvarpið nái fram þarf
stjómin að gefa því tíma í þinginu,
en ljóst er, að það gerir hún ekki.
Næsta föstudag gæti það komið til
umræðu, en er þó mjög ólíklegt,
því að tvö önnur fmmvörp em á
undan. Alton þarf því að fínna ein-
hver afbrigði í þingsköpum til að
koma fmmvarpinu aftur til um-
ræðu, en hver þau ættu að vera
veit enginn.
David Alton hefur sakað and-
stæðinga sína um beita óheiðarleg-
um aðferðum, og lævísleg brögð
með þingsköp þýði ekki ósigur fyrir
sig. Hann lýsti því yfír nú um helg-
ina, að hann muni gera allt, sem í
sínu valdi standi, til að fá tíma í
þinginu og hefur heitið því að betj-
ast áfram fyrir styttingu leyfilegs
tíma til fóstureyðinga.
Kína:
21 f erst í hagléli
Þurrkar valda vatnsskorti
Peking, Reuter.
21 fórst og þúsundir manna misstu heimili sín í Kína vegna gífur-
legs hagéls sem reið yfir í síðustu viku á sama tíma og verstu þurrk-
ar sem veríð hafa í Kína í eina öld ollu miklum vatnsskorti i héraði
þar sem um 1,3 milljónir manna búa, að því er kínversk dagblöð
skýrðu frá á sunnudag.
Dagblað alþýðunnar greindi frá
því að linnulaust haglél hefði verið
í Jiangsu-hérað í Austur-Kína frá
mánudegi til fímmtudags í síðustu
viku. Á miðvikudag hefðu 17 farist
og 170 slasast, auk þess sem 15.000
heimili hefðu eyðilagst og 75.000
skemmst. Þá hefðu 780 verksmiðjur
þurft að hætta framleiðslu og vél-
ar, hráefni og byggingar hefðu orð-
ið fyrir alvarlegum skemmdum í
um hundrað þeirra. Blaðið skýrði
einnig frá því að einn hefði farist
og 150 slasast í hríðinni á mánudag
í Henan-héraði í Mið-Kína. Dagblað
bænda greindi frá því að þrír hefðu
farist, 105 slasast og 300.000 heim-
ili eyðilagst eða skemmst í haglélj-
um og úrhelli á mánudag í Anhui-
héraði í Mið-Kína.
Fréttastofan Nýja Kína skýrði
frá því að 1,3 milljónir íbúa Hubai-
héraðs hefðu orðið fyrir barðinu á
verstu þurrkum sem orðið hefðu í
Kína í eina öld. Margar ár og tjam-
ir hefðu þurrkast upp og Tangtze-
fljót væri of vatnslítið til áveitu.
Dagblað alþýðunnar skýrði frá
því að í Heilongjiang, nyrsta héraði
Kína við landamæri Sovétríkjanna,
væri mesti vatnselgur síðan árið
1949. Af þeim sökum væri ekki
hægt að planta þar á einum þriðja
akurlandsins.