Morgunblaðið - 11.05.1988, Page 37

Morgunblaðið - 11.05.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988 37 1987 5 ^ \. f' A8456 \K % Iwmw Breyting á umferðarlögum; Bifreiðaeftirliti verð- ur breytt í hlutafélag Svona munu nýju bílnúmerin líta út. í FRUMVARPI til breytinga á umferðarlögum sem samþykkt var sem lög á Alþingi í gær felst m.a. að breytt verður um skrán- ingarkerfi ökutækja og stofnað hlutafélag sem taki við hlutverki Viðskiptabann á Suður-Afr- íku o g Namibíu samþykkt ALÞINGI samþykkti aðfaranótt þriðjudags að setja viðskiptabann á Suður-Afriku og Namibíu. Efri deild breytti lögunum þannig að þeim verður ekki beitt vegna inn- flutnings eða útflutnings sem á sér stað fyrir 1. janúar 1989 enda hafi verið samið um slik viðskipti fyrir gildistöku laganna. Sam- kvæmt upphaflega frumvarpinu átti að stöðva öll viðskipti innan fjögurra mánaða frá gildistöku. Brot gegn ákvæðum laganna varða sektum eða allt að þriggja mánaða fangelsi þegar sakir eru miklar. Meirihluti íj'árhags- og viðskipta- nefndar efri deildar mælti með sam- þykkt frumvarpsins með þeirri breyt- ingu að lögunum yrði ekki beitt vegna innflutnings eða útflutnings sem ætti sér stað fyrir 1. janúar 1989. Þeir Jón Magnússon (S/Rvk) og Júlíus Sólnes (B/Rn) skiluðu inn séráliti og lögðu til að frumvarpið yrði fellt. Jón Magnússon mælti fyr- ir nefndaráliti minnihlutans og sagði hann m.a. að samkvæmt upplýsing- um mannréttindastofnunarinnar „Freedom House“ brjóti rúmlega 100 ríki mikilvæg ákvæði Mannréttinda- sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Sum þeirra væru meðal mikilvægustu við- skiptalanda íslendinga og engum dytti í hug að beita þau viðskipta- þvingunum. Jón benti einnig á að eitt ríki, Grænhöfðaeyjar, sem ís- lendingar hefðu tekið sérstaklega undir vemdarvæng sinn, væri sett í sömu skúffu af Freedom House og Suður-Afríka hvað mannréttindabrot varðar. Fannst þingmanninum það skjóta skökku við að veita öðru ríkinu sérstaka fjárhagsaðstoð en banna viðskipti við hitt. í nefndarálitinu segir m.a.: „í Evrópu á okkar tímum höfum við tvö dæmi um einræðisríki sem tekið hafa upp lýðræðislegt stjómarfar. Þetta eru Portúgal og Spánn. Meðan ein- ræðisstjóm ríkti í þessum rílq'um vom sífellt bomar fram kröfur, m.a. hér á landi, þess efnis að þessi ríki yrðu beitt viðskiptaþvingunum. Þeim kröfum var jafnan hafnað. Þess í stað áttu þjóðir Vestur-Evrópu, þar á meðal við íslendingar, blómleg við- skipti við Portúgal og Spán. Fáir efast um það nú að það hafi verið rétt stefna að hafa sem víðtækust samskipti við Portúgal og Spán á þessum tfma. Menn em almennt sammála um að einmitt öflug sam- skipti við þessi ríki hafi stuðlað að lýðræðisþróun í þeim og orðið til þess að lýðræði var komið á í þessum löndum með jafnfriðsamlegum hætti og raun ber vitni. Dettur einhveijum í hug að einhver önnur. lögmál gildi fyrir Suður-Afríku og Namibíu í þessu efni en Portúgal og Spán á sínum tíma?“ Minnihlutinn segir afstöðu sína fyrst og fremst byggjast á andstöðu við beitingu viðskiptabanns sem úr- ræðis til að ná fram pólitískum mark- miðum. Fmmvarpið sé „órökrétt og ástæðulaust og til þess fallið að stuðla að tvískinnungshætti í við- skiptum íslendinga við aðrar þjóðir." Bifreiðaeftirlits ríkisins. Einnig verður tekið upp fastnúmera- kerfi og mun því sama bifreiða- númer fylgja ökutæki frá nýskráningu til afskráningar. Skiptar skoðanir voru meðal stjórnarliða jafnt sem sljórnar- andstæðinga um þessar tvær breytingar og riðluðust hinar hefðbundnu fylkingar nokkuð við atkvæðagreiðslu. Sú grein fmmvarpsins sem fjallar um að tekið verði upp fastnúmera- kerfi var samþykkt með 20 atkvæð- um gegn 15. 2 þingmenn sátuhjá og fímm vom fjarverandi. Átta stjómarliðar greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, þeir Alexander Stef- ánsson (F/Vl), Eggert Haukdal (S/Sl), Valdimar Indriðason (S/Vl), Matthías Á. Mathiesen, samgöngu- ráðherra, Páll Pétursson (F/Nv), Pálmi Jónsson (S/Nv), Sólveig Pét- ursdóttir (S/Rvk) og Sverrir Her- mannsson (S/Al). Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Fimm stjómarliðar greiddu svo atkvæði gegn greininni um að hlutafélag taki við hlutverki Bif- reiðaeftirlits ríkisins, þeir Friðjón Þórðarson (S/Vl), Eggert Haukdal (S/Sl), Páll Pétursson (F/Nv), Pálmi Jónsson (S/Nv) og Sverrir Hermannsson (S/Al). Fmmvarpið í heild sinni var sam- þykkt með 19 atkvæðum gegn 10. Reiknað er með því að hlutafé Bifreiðaskoðunar íslands hf., sem verður nafn hins nýja hlutafélags, verði 80 milljónir króna og að eign- arhlutur ríkissjóðs verði annaðhvort 41 eða 39 milljónir króna. Stefnt er að því að fyrirtækið taki að fullu til starfa í byijun næsta árs. Númerskilti í samræmi við fast- númerakerfið verða hins vegar tek- in upp í áföngum næstu misserin en þó haldast þau númeraskilti sem nú em á ökutækjum meðan þau em á ökutækjaskrá, nema eigandi óski eftir að einkenna þau með nýjum skiltum í samræmi við fastnúmer ökutækis. Áætlað er að árlegur spamaður af því að taka upp þetta nýja kerfí nemi tæplega 100 millj- ónum króna. Virðisaukaskatturinn samþykktur sem lög: Milliþinganefnd kanni bóka- og blaðaútgáfu Fjórir stjórnarliðar sátu hjá við aðra umræðu Virðisaukaskatturinn var sam- þykktur sem lög í neðri deild í gær. Meirihluti fjárhags- og við- skiptanefndar bætti átta atriðum við þann lista sem milliþinganefnd Frumvarpi Sólveigar Pétursdóttur um breytingu á hegningarlögunum vísað til ríkisstjómarinnar: Hefði orðið mikil réttar- bót til verndar börnum - segir Sólveig Pétursdóttir EFRI deild Alþingis ákvað siðastliðið mánudagskvöld að visa frum- varpi Sólveigar Pétursdóttur (S/Rvk) um breytingu á almennum hegningarlögum til ríkisstjórnarinnar. í frumvarpinu var lagt til að ef kynferðisbrot væri „sérstaklega stórfellt“ yrði refsiramminn víkkaður i 1-16 ár og að sömu reglur gildi um nauðgun persónu af sama kyni og af gagnstæðu kyni. Sólveig Pétursdóttir sagði þetta frumvarp vera mikla réttarbót, sérstaklega hvað snerti kyn- ferðisbrot gagnvart börnum, og gæti haft talsverð varnaðaráhrif, og værí ekki vanþörf á ef hægt værí að fækka þessum tegundum afbrota. Þingmanninum fannst það furðulegt að þetta frumvarp væri ekki afgreitt sem lög þar sem samstaða virtist hafa verið um afgreiðslu þess meðal allra flokka. í nefndaráliti allsheijamefíidar þá meðferð legði nefndin til að segir að nefndinni hafí verið til- kynnt um að starfandi væri nefnd á vegum dómsmálaráðuneytisins sem skipuð hefði verið í samræmi við ályktun Alþingis frá 22. maí 1984 og væri ætlað að fjalla um rannsókn og meðferð nauðgunar- mála og koma með tillögur um úrbætur á því sviði. Væri búist við niðurstöðum nefndarinnar á þessu sumri. Allsheijamefnd teldi eðlilegt að frumvarpið væri skoðað í ljósi nið- urstaðna fyrrgreindrar nefndar þannig að samræmis væri gætt í tillögum um breytingar á almenn- um hegningarlögum hvað ákvæði núgildandi 194.-203. gr. snerti. í trausti þess að frumvarpið fengi málinu yrði vísað til ríkisstjómar- innar. „Þetta fmmvarp var flutt í byij- un nóvember og tóku þrír nefndar- menn í allsheijamefnd til máls, þau Salome Þorkelsdóttir, Guðrún Agn- arsdóttir og Stefán Guðmundsson, og vom þau öll mjög jákvæð. Jón Sigurðsson, dómsmálaráðherra, sagðist þá ætla að láta endurskoða þessi ákvæði en það hefur ekkert komið út úr því ennþá," sagði Sól- veig Pétursdóttir f samtali við Morgunblaðið. „Ég tel þetta fyrst og fremst vera réttlætismál til þess að allir þjóðfélagsþegnar séu jafnir gagnvart lögunum. Ef við tökum sem dæmi að karlmaður nauðgar ungum dreng og smitar hann Sólveig Pétursdóttir vísvitandi með eyðni þá er sam- kvæmt núgildandi lögum einungis hægt að dæma hann í hámark sex ára fangelsi. Ef maður hinsvegar nauðgar stúlku þá er hægt að dæma hann í sextán ára upp í ævilangt fangelsi. Það er nauðsynleg réttarbót sem felst í þessari leiðréttingu á hegn- ingarlögunum og kostar ríkisvaldið þar að auki ekki krónu í fram- kvæmd. Mér fínnst það því skjóta skökku við að frumvarpið sé ekki afgreitt sem lög á þessu þingi.“ á að skoða f sumar, m.a. upp- gjörstfmabil f landbúnaði og bóka-, blaða- og tímaritaútgáfu. Nefndin mun gera tillögur um lagabreytingar ef þurfa þykir og koma þær til kasta Alþingis á hausti komanda. Minnihlutinn flutti nokkrar breytingartillögur við frumvarpið, flestar þess efnis að matvæli eða menningarstarf- semi verði undanþegin skattinum, en þær voru felldar. Þegar greidd voru atkvæði um frumvarpið sátu fjórir stjórnarliðar hjá, þeir Alex- ander Stefánsson, Eggert Hauk- dal, Sverrir Hermannsson og Ólaf- ur Þ. Þórðarson. Þeir skýrðu af- stöðu sina á þann veg að það værí sérkennileg meðferð að vfsa ný- samþykktum lögum í milliþinga- nefnd. Frumvarpið var sfðan tekið til þríðju og sfðustu umræðu seint f gærkvöldi og samþykkt sem lög. Meirihluti fjárhags- og viðskipta- nefndar neðri deildar, sem Páll Pét- ursson mælti fyrir, telur ekki ráðrúm við núverandi aðstæður að flytja breytingartillögur við frumvarpið, enda sé þegar ákveðið að nefnd verði skipuð til þess að taka frumvarpið til sérstakrar athugunar og móta til- lögur um lagabreytingar eftir því sem þurfa þykir. Slíkar lagabreyting- ar myndu koma til kasta Alþingis á næsta hausti. Meirihlutinn leggur til að nefndin kanni sérstaklega möguleika á að fækka undanþágum frá skattskyldu þannig að aðhaldseiginleikar kerfís- breytingarinnar með skattskilum nýtist sem best, jafnframt því sem betra svigrúm fáist til að vera með sem lægst skatthlutfall. Nefndin er samþykk þeim atriðum sem efri deild samþykkti að láta athuga en telur að því til viðbótar sé rétt að bæta við eftirtöldum atriðum: Bóka-, blaða- og tímaritaútgáfu, Banka- og lánastarfsemi, vátryggingarstarf- semi, hlunnindum og landnytjum, sölu á þjónustu, m.a. með tilliti til eftirlits og skattskila, uppgjörstíma- bilum í landbúnaði og íþróttastarf- semi. Nefndin ræddi einnig um lista- og menningarstarfsemi og telur meiri- hlutinn einboðið að haga kerfísbreyt- ingunum á þann veg að fjárhags- grundvöllur þeirrar starfsemi verði ekki rýrður. Loks leggur nefndin áherslu á að kerfisbreytingin verði vel kynnt meðal almennings, fyrir- tækja og stofnana með öflugu upp- lýsingaátaki. Steingrímur J. Sigfússon (Abl/Ne) mælti fyrir nefndaráliti fjárhags- og viðskiptanefndar. Þórhildur Þorleifs- dóttir (Kvl/Rvk) sat fundi nefndar- innar og er samþykk áliti minnihlut- ans. Steingrímur sagði að með þvi að leggja virðisaukaskattinn, VA- SKinn, á í einu þrepi væri sá mögu- leiki útilokaður að flokka vörur og þjónustu með tilliti til mikilvægis fýrir almenning. Upptaka skattsins hefði einnig í för með sér aukið skri- fræði og tilkostnað. Þau Steingrímur og Þórhildur gagnrýndu sérstaklega að ætlunin væri að leggja 22% skatt á ýmsa menningarstarfsemi sem áður hefði verið undanþegin söluskatti. Einnig ætti að skattleggja bókaútgáfu áfram á fullu á meðan tímarit og blöð væru að öllu leyti undanskilin, svo ekki væri nú minnst á starfsemi hljóðvarps og sjónvarps sem skyldi vera með öllu undanþegin hvort sem þar heyrðist íslenskt orð eða ekki. Minnihlutinn teldi að þó núverandi söluskattskerfi væri gallað þá væru það ekki nægileg rök fyrir því að ráðast í upptöku virðisaukaskatts og alls ekki í þessari mynd. Frumvarpið væri gallað og illa undirbúið. Það yrði stóráfall fyrir (slenska menningu og islenskan landbúnað og myndi reynast þungt í skauti hinum íslenska launamanni. Þess vegna legði minni- hlutinn til að frumvarpið yrði fellt. Stefán Valgeirsson (Sjf/Ne) sagði að frumvarpinu yrði líklega gjör- breytt f haust þegar tillögur milli- þinganefndarinnar kæmu fram. Sagði hann að það væri ekki hægt að benda á nokkur dæmi um svona vinnubrögð í þingsögunni. Albert Guðmundsson (B/Rvk) taldi réttara að Alþingi gengi endan- lega frá frumvarpinu þegar milli- þinganefnd hefði lokið störfum. Eins og frumvarpið væri nú væri það ein- ungis rammi fyrir fjármálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.