Morgunblaðið - 11.05.1988, Síða 58

Morgunblaðið - 11.05.1988, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988 „Víljifc tryna. oá láta sem pig ókcmmtih ykkor... Eg ec á& l-eyna. c& lifa- cL jpeseu." HÖGNI HREKKVÍSI Útrýmum bæði ref og mink Til Velvakanda. Ég má til með að gera athuga- semd viðvíkjandi grein sem kom í Velvakanda miðvikudaginn 4. maí sem maður nokkur skrifaði sem kallar sig „Veiðimann". Hann er sammál um að ekki beri að friða minkinn en hann segir að þó ætti að draga úr hinni kostnaðarsömu útrýmingarherferð. Ekki er ég sam- mála þessum veiðimanni, því þetta er skaðræðis dýr sem drepur silung í ám og vötnum og alla þá fugla sem hann nær í. Minkurinn eyði- leggur líka æðarvarp þar sem hann kemst að. Veiðimaðurinn segir að marhnúturinn sé uppáhaldsfæða minksins, hann segist geta tekið undir með líffræðingum að þetta sé hans besta fæða. En ég segi að minkurinn veiðir marhnút þegar hann nær ekki í annað. Svo eru dæmi til þess að minkur- inn komist inn í hænsnabú. Þá drep- ur hann ekki eina hænu heldur bunkar hann þær niður. Svona dýr- um á að útrýma alveg. Svo segir veiðimaðurinn: „Ég tel að hætta ætti alveg grenjavinnslu nema sannað sé að um dýrbít sé að ræða. Grenjavinnsla átti rétt á sér áðru fýrr, en í dag er hún til skammar. Og heldur þykir mér kaldhæðnisleg röksemd fyrir yrð- lingadrápi að þeir gætu orðið skeinuhættir sauðfé er þeir eltust, eins og rollan er nú verðmætur bústofn í dag eða hitt þó heldur. Ekki er vafí á því að sauðfé er meiri skaðvaldur í náttúrunni en refurinn." Þetta segir „Veiðimaður- inn“, ég er á því að hann hafí lítið vit á þessu máli eftir þessu skrifí að dæma. Því ekki drepur sauðkind- in neitt dýr sér til matar, hún lifír á grasi. Ég held að þessi „veiðimað- ur“ leggi sér frekar til munns kinda- kjöt en refakjöt. Ég ætla að láta hann vita það að ég hef séð kindur bruddar uppað augum eftir ref en þó með lífsmarki. Heldur þú að þessar skepnur taki ekki mikið út á meðan þeim er að blæða út. Refur- inn hefur drepið margar kindur, þó enn fleiri vorlömb og fullorðnar kindur. Það á að reyna'að útrýpia refnum og minknum alveg, því þetta eru skaðræðis dýr og valda miklu tjóni. Vona ég að þeir menn, sem með þessi mál hafa að gera, haldi þessum málum til streitu og reyni að útrýma þessum dýrúm. Ingimundur Sæmundsson Þessir hringdu .. Illa farið með láglaunafólk Ellilífeyrsþegi hringdi: „Mér ofbýður hverr.ig farið hef- ur verið með láglaunafólk síðan núverandi ríkisstjóm tók við. Þar ber matarskattinn hæst, hann kemur verst niður á þeim sem síst skyldi. Allt hefur hækkað nema eliilífeyririnn og kaupið. Það er sama þó láglaunafólk leggi nótt við dag, það nær varla endum saman". Lítil umferðarfræðsla Ottó hringdi: „Fyrir nokkru voru sýndar myndir af umferðarslysum á Stöð 2 og er ég viss um að þær hafa orðið mörgum víti til vamaðar. Hvers vegna eru svona myndir ekki sýndar í skólunum? Það er mjög takmörkuð umferðarfræðsla í grunnskólum en sýningar á svona myndum myndu áreyðan- lega koma að miklu gagni.“ Aðgöngumiðarnir of dýrir G.S. hringdi: „Fyrir nokkru var umræðuþátt- ur í sjónvarpinu um veitingahúsin og hvers vegna aðsókn að þeim hefur minnkað. Það eru einkum tvær ástæður til þess. í fýrsta lagi eru aðgöngumiðamir alltof dýrir, það hljóta allir að hugsa sig um tvisvar áður en þeir kasta 600 krónum í það eitt að komast inn á veitingahús. Þá eru það skemmtikraftamir sem stóru veit- ingahúsin hafa. Þetta hefur verið sama fólkið síðastliðin 20 ár og margt af því er orðið þrautleiðin- legt. Veitingahúsin þyrftu að breyta til og fá yngri skemmti- krafta. Það er ekki furða þó fólk fari til útlanda til að skemmta sér því þar fær það miklu meira fýrir peningana." Víkverji skrifar Vetur konungur hefur kvatt. Vorið er komið. Víkveiji sér víða og heyrir votta vorsins. Vorboðar - farfuglar - gleðja augu og eyru. Gróður gægist úr moldu. Veturinn, sem er að baki, var hógvær og snjóléttur fram yfír ára- mót hér syðra. Hinsvegar blés hann köldu frá upphafí árs og fram á vorið. Og hafísinn, landsins fomi ijandi, var skammt undan. Sendi á stundum kaldar kveðjur, jaka- hröngl, upp að norðurströndum. í veðraham vetrar erum við minnt á það, hver hnattstaða lands- ins er. Þá getur sambúð okkar við umhverfíð, hvort heldur er haf eða hálendi, orðið erfíð; bilið milli lífs og dauða skammt. Okkur hefur hinsvegar samið betur við veturinn í seinni tíð. Hann hefur sínar jákvæðu hliðar, herðir og agar. Það em ekki sízt vetrar- íþróttir - og tilheyrandi útivist - sem heilla landsmenn. Þeir þyrpast þús- undum saman í fannir fjalla, hve- nær sem færi gefst, fljúga jafnvel til fjarlægra landa þeirra erinda einna. Okkur hefur og lærzt að nýta jarðvarmann til að gera skammdeg- ið bærilegra: til húshitunar, raf- orku, snjóbræðslu, ylræktar, fisk- eldis og fleiri hluta. Það er hluti af betri sambúð við veturinn. Vetr- arborg, eins og Reykjavík, getur búið bömum sínum enn hlýrra umhverfí, með yfírbyggð stræti og torg, ylrækt og gróðri. Það er eng- in draumsýn. Spumingin er ekki hvort, heldur hvenær. að er sumar í sinni. Fólk er farið að huga að görðum og spá í gróður. Trén era að vakna af vetrarsvefni. Þau stóðu að vísnu í snjóblóma þegar bezt lét í vetur, en nú er sjálft ævintýrið framund- an. Þau laufgast næstu vikur. Græn svæði borgarinnar gefa henni nýj- an, ferskan og ljúfan svip. Ekki sakar að benzínið verður blýlaust í sumar. Það verður jafnvel hægt að fýlla lungun fersku lofti, eða allt að því, á bökkum bfla-fljóta borgar- innar. Þrátt fyrir sitthvað, sem til bóta stendur, er Reykjavík fögur borg. Að vísu er byggð víða of þétt, að dómi Víkverja. Veggur í vegg. Engu að síður era hin grænu svæðin all- nokkur og víða tijálundir. Þessar vinjar má ekki skerða. Þær gera umhverfíð, sem er rammi um mannlífið, fegurra og dagana ánægjulegri. Þeir borgarstarfs- menn, sem sinna gróðri, vinna gott verk. Víkvetji vill gjaman sjá meiri gróður innan borgarmarkanna. XXX Víkveiji gengur á stundum með- fram Tjöminni á góðviðris- dögum og hefur gert mörg undan- farin ár. Rangt væri að segja að Tjömin hafí verið eða sé kristaltær. Og oft hafa bakkar hennar verið lúnir og lasnir. Samt hefur verið fátt um mótmælendur, þótt kvakað hafí verið út á „skolpbrúnum" öld- um hennar. En gott er að ganga á vit fugla Tjarnarinnar í góðviðri sumarsins. Kvak þeirra er jákvætt og ljúft eins og vera ber í grennd Hljómskálans og fagurra tijálunda. Ekki fer fram hjá neinum, sem gengur Tjarnarhringinn, að verið er að bæta umhverfí Tjamarinnar, hlaða bakka hennar og fegra . Víkveiji sniðgengur „hitamálið", borgarráðhús við borgartjömina, sem fær bezta fólk til að standa á öndinni, lfld og þegar Lækjargatan var breikkuð héma um árið. Víkveiji setur þó fegran umhverfis Tjamarinnar, sem að er unnið, í samband við staðsetningu væntan- legs ráðhúss. Getur verið að borgar- ráðhús á þessum stað þýði það að næsta nágrenni þess, þar með talin Tjömin og Tjamarsvæðið allt, fái betra útlit og betri umhirðu hér eftir en hingað til? XXX að heita þinglausnir þá Alþingi er slitið. Þinglausnadagur þeg- ar alþingismenn heija þinghlé að vori. Þessi dagur er nú upp rann- inn. Fyrsta þingi nýs kjörtímabils er lokið. Eftir situr ríkisstjómin með viðfangsefnin og vandamálin, sem sjaldnast láta sig vanta í mann- legt samfélag. Það er lenzka, því miður, að hnýta í þingmenn. Þeim era að vísu mislagðar hendur, ekkert síður hin- um, sem koma þeim á þing. En sitt- hvað hafa þeir vel gert, ef grannt er gáð — og stundum má líka taka viljann fyrir verkið. Mergurinn málsins er þó sá, að dómi Víkveija, að þingmenn tala það illa hver um annan, að ekki er á bætandi. Hann lætur við það sitja að óska þeim gleðilegs sumars. Megi þeir mæta heilir til leiks á haustdögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.