Morgunblaðið - 17.05.1988, Síða 1
96 SIÐUR B
110. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 17 MAI 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Sýrlenskur her í viðbragðsstöðu
HERSVEITIR Sýrlendinga umkringdu úthverfi í
suðurhluta Beirút í gær og biðu skipana um frek-
ari aðgerðir til að binda enda á bardaga milli
Amal-sveita shíta og Hizbollah (Flokks Guðs), sem
nýtur stuðnings íransstjómar. Vélbyssuskothríð
ómaði um hverfið þrátt fyrir viðvaranir Sýrlend-
inga um að þeir hygðust grípa til aðgerða að
beiðni ieiðtoga líbanskra múslima. Barist hefur
verið í úthverfum Beirút síðastliðna tólf daga og
hafa 250 manns fallið f átökunum.
Ingvar Carlsson í Brussel:
Aðild Svía að
EB óhugsandi
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
INGVAR Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar kom í gær í opinbera
heimsókn til höfuðstöðva Evrópubandalagsins í Brussel. Þar átti
hann viðræður við framkvæmdastjórn bandalagsins um samskipti
Svía við bandalagið í nútið og framtíð. Ingvar Carlsson sagði við
blaðamenn eftir viðræðurnar að aðild Svía að bandalaginu væri
óhugsandi vegna þess að hún væri ósamrýmanleg hlutleysisstefnu
þeirra.
Á blaðamannafundi kom jafn-
framt fram að Svíar vilja eiga náið
samstarf við EB á öllum sviðum
nema þeim sem snerta stjómmála-
samvinnu innan þess, þ.e. mótun
sameiginlegrar utanríkisstefnu, og
öryggis- og vamarmál. Carlsson
taldi að miklir sameiginlegir hags-
munir væm í húfi og að sænskt
atvinnulíf gæti lagt ýmislegt af
mörkum til að efla evrópska sam-
vinnu. Jacques Delors, aðalfram-
kvæmdastjóri EB, sagði að vildu
Svíar sækja um aðild að bandalag-
inu þá væri hlutleysisstefna þeirra
ekki hindmn. Bent var á að írar,
Pakistan:
Skæruliðar flytja bækistöðv-
ar sínar heim til Afganistans
Sljórnarherinn hörfar undan sveitum skæruliða í Paghman-héraði
Islamabad, Peshawar. Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar eru
sagðir hafa náð á sitt vald hluta
af Paghman-héraði vestur af
Kabúl, en stjórnarherinn varpar
sprengjum á svæðið sem skæru-
liðar hafa á valdi sínu. Afgansk-
ir skæruliðar sem haldið hafa til
í Pakistan hafa ákveðið að flytja
bækistöðvar sínar yfir landa-
mærin til Afganistans.
Her Kabúl-stjómarinnar, sem
nýtur stuðnings Sovétríkjanna,
hörfaði frá Paghman í gær og lögðu
hermennirnir jarðsprengjur á und-
Sendiherra Júgósiavíu 1 Svíþjóð:
Ognaði börnum
með skammbyssu
Stokkhólmi, frá Erik Liden fréttaritara
SENDIHERRA Júgóslavíu í
Stokkhólmi, Zlatan Kikic, beindi
á sunnudag skammbyssu að
bömum að leik. Sænsk stjórn-
völd segja að skýring hafi verið
gefin á atvikinu og málið sé úr
sögunni.
Á sunnudaginn gerði starfsfólk
júgóslavneska sendiráðsins í
Stokkhólmi sér glaðan dag. Var
haldið út í náttúmna, til Tyresö
skammt sunnan Stokkhólms. Mæð-
ur sem vom að skemmta sér í ná-
grenni við Júgóslavana sáu allt í
einu sér til skelfingar, að maður
sem sveipað hafði um sig teppi
beindi skammbyssu að bömum
þeirra þar sem þau vom að leik.
Lögreglumenn í skotheldum
vestum komu á vettvang og eftir
nokkrar stympingar náðu þeir að
afvopna manninn. Kom í ljós að
Morgunblaðsins.
þama var á ferðinni nýskipaður
sendiherra Júgóslavíu í Stokk-
hólmi, Zlatan Kikic. Sendiherrann
var handtekinn en fékk að sögn
lögreglu að snúa aftur til sendiráðs-
ins vegna sérréttinda erlendra
sendimanna.
Talsmaður sænska utanríkis-
ráðuneytisins, Ulf Hákánsson,
sagði að samkvæmt lögregluskýrsl-
um hefði engum staðið ógn af at-
ferli sendiherrans. „Viðunandi
skýring hefur fengist á atvikinu
og málið er úr sögunni," sagði
Hákánsson án þess að geta nánar
um hveijar skýringar sendiherrans
væm.
Óttast er að atvik þetta eigi eft-
ir að magna deilur milli júgóslavn-
eskra innflytjenda í Svíþjóð sem
hafa oft verið hatrammar. Fyrir
nokkmm ámm var sendiherra
Júgóslavíu myrtur í Stokkhólmi.
anhaldinu. Mikil átök vom í grennd
við borgina Kandahar, sem er
stærsta borg í Suður-Afganistan.
Stjómarherinn hefur tekið við störf-
um sovéskra hermanna á flugvelli
borgarinnar. Er talið að sovéski
herinn verði á brott þaðan fyrir
mitt sumar. Barist var á götum í
Kandahar og vegurinn til Kabúl
hefur verið sprengdur sundur að
sögn erlendra sendimanna í Kabúl.
Brottflutningur sovéska hersins
frá Afganistan hófst í fyrradag.
Skæmliðar hafa hótað því að beij-
ast þar til allir sovéskir hermenn
em famir og stjóm Najibullah hef-
ur verið hrakin frá völdum. Skæm-
liðar hafa sagt að Kandahar sé
fyrsta stóra borgin sem þeir muni
ná á sitt vald eftir brottför sovéska
hersins úr landinu.
Talsmaður afganska skæmliða-
hópsins Ittehad-i-lslami tilkynnti á
sunnudag að hópurinn hygðist
flytja bækistöðvar sínar frá Pak-
istan til Afganistans á ný við brott-
för sovéska herliðsins. Abdurrab
Rasul Sayyaf, talsmaður skæmliða-
hópsins, fordæmdi samninginn um
brottflutning sovéska hersins sem
undirritaður var í Genf 14. apríl
síðastliðinn. Einnig sagði hann að
Pakistanar hefðu ekki á neinn hátt
haft áhrif á ákvörðunina um að
skæruliðamir flyttu aftur til Afgan-
istans. Sex aðrir skæmliðahópar
Afgana hafast við í Pakistan en
ekkert bendir til þess að þeir ætli
að flytja bækistöðvar sínar yfir
landamærin.
Sjá fréttir af brottflutningi
sovéska herliðsins á síðu 34.
Danmörk:
Jakobsen skilaði stjóm-
armyndunarumboði
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
SVEND Jakobsen, formaöur
danska þjóðþingsins, skilaði i
gær umboði, sem hann hafði til
að mynda nýja stjórn í Dan-
mörku. Sagði hann að útilokað
hefði verið að ná samstöðu um
stefnuskrá eða starfsáætlun
nýrrar stjórnar.
Leiðtogar stjómmálaflokkanna
ganga í dag á fund Margrétar
sem em hlutlaus þjóð, væm aðilar
að bandalaginu og ekki yrði séð að
aðildin spillti þeirri stefnu þeirra. I
viðræðunum mun sænski forsætis-
ráðherrann hafa lýst áhuga á nán-
ari þátttöku Svía í vísinda- og rann-
sóknasamstarfí EB-ríkjanna og
sömuleiðis aðild að Erasmus-áætl-
uninni um nemendaskipti á háskóla-
stigi. Ingvar Carlsson lagði á það
áherslu að Svíar hygðust auka
tengsl sín við Evrópubandalagið í
gegnum EFTA, Norðurlandaráð og
með tvíhliða samningum.
Um hlutleysisstefnu Svía sagði
hann að vafamál væri að stórveldin
kærðu sig um að Svíar féllu frá
henni. Það hlutlausa belti sem Sviar
tryggðu á milli austurs og vesturs
væri öllum aðilum mjög mikilvægt.
Svíar væm hins vegar Evrópuþjóð
að uppmna og menningu og vildu
halda áfram að vera það; þeir vildu
þess vegna eins náið samstarf og
frekast væri unnt við hinar Evrópu-
þjóðimar.
fréttaritara Morgunblaðsins i Danmörku.
drottningar og bera þeir fram til-
lögu um hveijum hún ætti að fela
stjómarmyndun.
Skýrt hefur verið frá því að leið-
togi jafnaðarmanna muni leggja til
við drottningu að Niels Helveg Pet-
erson, leiðtoga Radikale Venstre,
verði falin stjórnarmyndun.
Sjá ennfremur „Breytinga að
vænta á ...“ á bls. 36.
Reuter
Ákall um uppgjöf
Kona biður félaga sína úr hópi
aðskilnaðarsinnaðra síka, sem
hafst hafa við í Gullna hofinu í
Amritsar á Indlandi í rúma viku,
að gefast upp fyrir lögreglunni
án frekari blóðsúthellinga. Kon-
an yfirgaf hofið á sunnudag
ásamt nokkmm félaga sinna.
Lögregla, sem situr um hofið,
gaf síkunum, sem enn hafast
þar við, lokafrest í gær til að
yfirgefa það.
Sjá einnig „Aðskilnaðar-
sinnar fá lokaf rest“ á síðu 35.