Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 Fundur utanríkisráðherra Evrópuráðsins: Utanríkisráðherra minnti á hlutverk smærri ríkja FUNDUR utanríkisráðherra Evrópuráðsins var haldinn í Strasbourg 5. og 6. mai síðastliðinn, og lagði Steingrímur Hermannsson, utanrík- isráðherra, áherslu á það á fundinum, að gagnkvæmt traust á milli Austurs og Vesturs byggði á jákvæðu hugarfari, og minnti á hlut- verk smærri ríkja í því sambandi. Utanríkisráðherra lýsti jafnframt þeirri skoðun sinni, að Vestur-Evrópuríkin hefðu hag af þvi að umbótastefna Sovétríkjanna yrði sem árangursrikust. Á fundinum sem haldinn var Genfarsamkomulagsins um Afg- undir forsæti Jacques F. Poos, ut- anríkisráðherra Luxembourg, ræddu utanríkisráðherramir sam- skipti Austurs og Vesturs í ljósi síðustu þróunar alþjóðamála, svo sem afvopnunarviðræðna stórveld- anna, væntanlegs leiðtogafundar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og hanistan. Jafnframt ræddu ráð- herramir framvindu mála á Ráð- stefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. Samskipti Evrópuráðsins og nokkurra Austur-Evrópuríkja vom einnig til umræðu svo og möguleikar á nánari samvinnu þar á milli. Starfsfólk veitmgahúsa samþykkti sammngiim ALMENNUR fundur Félags starfsfólks í veitingahúsum sam- þykkti nýgerðan kjarasamning félagsins með 40 atkvæðum gegn 1 sfðastliðinn miðvikudag. í félag- inu eru um 1.100 manns. Kjarasamningur milli félagsins og viðsemjenda þess var undirritaður á þriðjudag. Hann er í flestum greinum hliðstæður þeim samningi, sem gerð- ur var við verslunarmenn fyrir stuttu og gildir frá 1. maí til 10. apríl á næsta ári. Ástand mála fyrir botni Miðjarð- arhafsins og við Persaflóa var einn- ig rætt. Utanríkisráðherramir minntu á umræður sínar á 80. ráð- herrafundinum í maí 1987, þar sem hvatt var til alþjóðlegrar friðarráð- stefnu allra aðila til lausnar ágrein- ingsmála við botn Miðjarðarhafsins. ísraelsk stjómvöld vom hvött til að hafa í huga hvaða áhrif framferði þeirra á hemumdu svæðunum hefði, meðal annars með tilliti til samningaumleitana um varanlegan frið í þessum heimshluta. Samskipti iðnvæddra rílq'a og þróunarlanda voru einnig ítarlega rædd á fundinum, en nú stendur jrfír svonefnt Norður-Suður átak Evrópuráðsins, sem ætlað er að vekja athygli á samstöðu og gagn- kvæmum tengslum þróaðra ríkja og þróunarríkja. Kalevi Sorsa, utanríkisráðherra Finnlands, sat hluta fundarins. Er þetta í fyrsta skipti sem fínnskur utanríkisráðherra situr ráðherra- fund Evrópuráðsins, og fögnuðu utanríkisráðherramir því að finnsk stjómvöld hefðu ákveðið að hefja viðræður um mögulega aðild Finn- lands að Evrópuráðinu. 120 umsóknir um hús- næði í Sunnuhlíð komnar MIKIL eftirspum er eftir vemduðum þjónustuibúðum fyrir aldraða hjá samtökunum Sunnuhlíð i Kópavogi. Stjóm samtakanna stendur nú í viðræðum við Kópavogsbæ um lóðir undir nýjar íbúðir. Sunnuhlíð, sem er byggð upp af samtökum tíu klúbba og félaga, byggði hjúkrunarheimili fyrir 42 einstaklinga á árunum 1980-82, og 40 þjónustuíbúðir fyrir aldraða sem teknar vora í notkunárið 1987. Að sögn Ásgeirs Jóhannessonar, sem stýrir framkvæmdum á vegum Sunnuhlíðar, þá hefur orðið stöðvun á framkvæmdum þar sem lóðir undir nýjan áfanga vantar, en verið væri að ræða við Kópavogsbæ og einnig Rikisspítalana varðandi þau mál. Liggja nú þegar fyrir 120 umsóknir um íbúðir án þess að nokkuð hafí verið auglýst. Sagði Ásgeir að þetta gæfi glögga mynd af því hve gífurleg þörf væri fyrir húsnæði fyrir aldr- aða af því tagi sem sem Sunnuhlíð stendur að uppbyggingu á, en þar væri um að raeða fyrirkomulag sem ekki hefði þekkst áður. Eldri borg- aramir þurfa ekki að stofna til neinna skuldbindinga, og enginn einstaklingur væri eigandi að sinni íbúð, heldur fengi hann samning um fbúðarrétt til æviloka, og í stað afsals fengi hann bankatryggingu fyrir andvirði íbúðarinnar. Ef við- komandi einstaklingur vildi síðan flytja úr íbúðinni, þá fengi hann peninga sína greidda til baka. Kvaðst Ásgeir álíta að þetta væri það fyrirkomulag sem koma skyldi, enda styddi hin gífurlega eftirspum þá skoðun. Eigendur og Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir góðum skuldabréfum í umboðssölu. Ný spariskírteini 7,2-8,5% ávöxtun umfram vcrðbólgu Eldri spariskírteini 8,5-8,8% ávöxtun umfram verðbólgu Veðdeild Samvinnubankans 10.0% ávöxtun umfram verðbólgu Samvinnusjóður íslands hf.* 10,5% ávöxtun umfram vcrðbólgu Lind hf.* 11.0% ávöxtun umfram verðbólgu Glitnir hf. 11,1% ávöxtun umfram verðbólgu Önnur örugg skuldabrcf 9,5-12,0% ávöxtun umfram verðbólgu Fasteignatryggð skuldabréf 12-15,0% ávöxtun umfram verðbólgu * Með endursöluábyrgð Samvinnubanka íslands hf. • Við innleysum spariskírteini ríkissjóðs fyrir viðskiptavini okkar Nánari upplýsingar í Bankastræti 7, Reykjavík, 3. hæð, @ 91 - 20700 Morgunblaðið/Silli Kaupfélagsstjóri KÞ, Hreiðar Karlsson, í ræðustól, meirihluti stjóm- ar við háborðið. Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga Bókfært tap 55,2 mill]ónir króna Húsavfk. AÐALFUNDUR Kaupfélags Þingeyinga var haldinn á Húsavík síðastliðinn sunnudag og sátu hann 127 kosnir fulltrú- ar. Rekstur félagsins gekk erfið- lega á árinu eins og hjá flestum kaupfélögum. Bókfært tap 55,2 miljj. en neikvæð fjármagns- myndun til rekstrar 35,2 mil\j. króna. í skýrslum formanns Baldvins Baldurssonar og kaupfélagsstjóra Hreiðars Karlssonar komu fram ýmsar skýringar á orsökum þessara afkomu. Kaufélagsstjórinn taldi að þar væri stærsti gerandinn afkoma verslunarinnar, sem orsakaðist meðal annars af verulegu launa- skriði, ásamt gífurlegri hækkun fjármagnskostnaðar. Vandi verzl- unar í dreifbýli væri nú mjög til umræðu, enda almennir. Verslunar- hættir fólks hefðu breyst hratt síðustu árin. Batnandi samgöngur og vaxandi ferðalög innanlands sem utan, ættu þátt í þessu öllu. Þessum breytingum yrði verzlun dreifbýlis- ins að mæta, hvort sem líkaði betur eða verr. Afkoma sláturhúsareksturs hefði verið sýnu lakari á síðasta ári en því næsta á undan og væri þar við mikinn vanda að fást. „Þótt áföll nýgenginna missera hefði orðið kaupfélaginu þungt í skauti," sagði kaupfélagsstjórinn, „má ekki leggja árar í bát. Með markvissum og ákveðnum aðgerð- um getum við fært marga hluti til betri vegar. Við verðum til dæmis að ná spamaði í rekstrinum, minnka birgðahald og þá fjárbindingu, sem því fylgir, samhliða ýmsu öðru að- haldi í rekstri. En ráðstafanimar yrðu ekki þrautalausar í fram- kvæmd, en þær em óhjákvæmileg- ar, til að viðhalda þeirri kjölfestu, sem samvinnustarfið er í byggð okkar og mannlífi." Rætt var á fundinum að leggja niður rekstrareiningar, sem ekki tækist að endurskipuleggja þannig, að þær bæru sig. Til að draga úr þeirri vaxtabyrði sem hvílir á félag- inu, er til athugunar að selja ýmsar eignir, bæði fasteignir, sem félagið leigir öðmm og eignarhluti í ann- arri atvinnustarfsemi. Fram kom að nokkur árangur hefði náðst í bættum rekstri félags- ins á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, afkoma upp í fjármagnskostnað væri betri en á síðasta ári, en vaxta- kostnaður væri enn óviðráðandi. Fjárfesting félagsins á síðast- liðnu ári nam 26,4 millj. króna. Starfsmenn voru að meðaltali 222 á síðastliðnu ári. Úr stjóm félagsins áttu að ganga formaður stjómar Baldvin Baldurs- son Rangá og var hann endurkos- inn, en í stað Guðmundar Sigurðs- sonar, Fagranesi, sem baðst undan endurkosningu, var kosinn Ari Teitsson, Hrísum og í varastjóm var kosin Halldóra Jónsdóttir, Grímshúsum. - Fréttaritari Samtalstónleikar með verkum eftir Atla Heimi Sveinsson — á tónlistarhátíð Utvarpsins í Bremen SAMTALSTÓNLEIKAR verða haldnir í Menningarmiðstöðinni Schauburg i Bremen á miðviku- daginn, þar sem flutt verða verk eftir Atla Heimi Sveinsson og verður hann staddurá sviðinu á meðan, til skrafs við áheyrendur. Flutt verða fimm verk og era flytjendur bæði íslenskir og þý- skir. Atli Heimir sagði tónlistarhátíð þessa, Pro Musica Nova, eina virt- ustu hátíð nútímatónlistar í Þýska- landi og að í ár væri áhersla lögð á tónlist frá Rúmeníu og Norður- löndunum. Atli Heimir er eina tón- skáldið á hátíðinni sem fær heila tónleika helgaða verkum sínum. Hann sagði mikið hafa verið að gerast í sínum málum í Þýskalandi að undanförnu, en vildi ekki að svo stöddu tjá sig um hvað væri í bígerð. „Ég vil ekki útblása mig um stóra samninginn, sem kannski verður ekkert úr, einsog sumir" sagði Atli Heimir. Verkin sem flutt verða á tónleik- unum eru; “Aldarmót“, sem Buch- berger-Kvartettinn frá Frankfurt flytur, en það verk var samið í til- efni af 100 ára afmæli Listasafns íslands, “21 tónmínúta", einleiks- verk fyrir flautu, sem flutt var á World Music Base í Köln og vakti mikla hrifningu," Fremur hvítt en himinblátt", klarinetttrío sem flutt hefur verið víða, nú síðast í Tokyo á“Scandinavia Today“, “Hrífandi hringdansar", verk fyrir klarinett, selló, básúnu og píanó, og loks nýtt verk; “Til dæmis...“,sem verður frumflutt á tónleikunum. íslensku tónlistarmennimir sem flytja verk Atla Heimis eru Sigurð- ur I. Snorrason, Oddur Bjömsson, Amþór Jónsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Bandarískur flautuleikari búsett í Köln, Carin Levine, flytur “21 tónmínútu.“ Auk Atla Heimis og tónlistar- mannanna mun framkvæmdastjóri íslensku tónverkamiðstöðvarinnar, Bergljót Jónsdóttir, verða með í förinni og freista þess að koma verkum íslenskra tónskálda á fram- færi. Og ætti þessi árangur Atla Heimis að liðka fyrir öðrumíslensk- um tónskáldum á erlendum vett- vangi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.