Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 21 Bylting í viðhorfi til fiskviimslunnar verður að koma til eftirSigurð Jónsson Fundaherferð Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi að undanfömu hefur vakið verð- skuldaða athygli, enda hefur funda- sókn verið með ágætum og málefni Sunnlendinga rædd af snerpu og framsýni. Það er eðlilegt að Sjálfstæðisfólk á Suðurlandi komi saman og ræði stöðu landsbyggðarinnar. Hvar stöndum við, hvert stefnir? Þróun síðustu ára hefur verið okkur lands- byggðarfólki mjög í óhag. Fólki fækkar á landsbyggðinni á meðan Reykjavíkursvæðið þenst út og þar verður fjölgunin. Er þetta eðlileg þróun? hljóta menn að spyija. Er þetta heppilegt með tilliti til hagsmuna þjóðarinnar allrar? Getum við sjálfstæðismenn eitthvað gert til að hægja á þessari þróun eða snúa henni við? Um það þurfum við að ræða og móta stefnu okkar. Kjör fiskvinnslufólks — kvöl landsbyggðarinnar Það var sláandi að heyra það nú á dögunum að aukning í verslun hafi orðið að raungildi um 20% á landsbyggðinni, en á sama tíma varð hún rúm 40% á Reykjavíkur- svæðinu. Þetta segir mikla sögu um það mál sem við erum nú að ræða. Ég kem frá bæjarfélagi þar sem atvinnuástand hefur verið nokkuð gott, samt sem áður verður engin fjölgun. Frekar er um fækkun að ræða síðustu ár. Ég tel að ein aðalástæðan fyrir því hvemig komið er sé afkoma fiskvinnslunnar. í beinu framhaldi af því er hægt að tala um kjör fisk- vinnslufólks.'Allir sem vilja, sjá að þeirra kjör eru léleg. Raunar svo léleg að til skammar er. Eigi fólk sem vinnur í fiski að ná sæmilegum kjörum verður það að þræla sér út í bónus langan vinnudag og hálf drepa sig á þrældómi. Ég vil sérstaklega koma inná eitt atriði. Þetta atriði skiptir ör- ugglega miklu fyrir alla byggðaþró- un í sjávarplássum. Nánast engum dettur í hug að mennta sig eitthvað varðandi fiskvinnslu. Það er í sjálfu sér ósköp eðlilegt, þar sem slíkt er ekki metið til launa. Að afmennta í átt frá at- vinnulífinu Aftur á móti fara flestir sem feta menntaveginn í nám sem snertir viðskipti og þjónustu og koma fæst- ir til sinnar heimabyggðar að námi loknu. Þessu þarf að breyta. Við verðum að mennta fólk til starfa í fiskvinnslunni og meta það til launa. Við verðum að hætta að líta niður á það fólk sem vinnur í fiski, því miður er það gert í dag. Samt er það þetta fólk ásamt sjómönnum sem skapar fyrst og fremst verð- mætin í okkar þjóðfélagi. Það hlýt- ur að vera stór spurning, hvort við séum á réttri leið með fastgengis- stefnuna. Erum við ekki að blekkja okkur sjálf? Erum við ekki að halda uppi fölskum kaupmætti, sem fjár- magnaður er með erlendum lántök- um? Alla vega kemur þessi stefna niður á okkur á landsbyggðinni. Með því að skrá gengið rétt væri örugglega hægt að tryggja fisk- vinnslunni betri afkomu og því fólki sem þar vinnur, en auðvitað myndi þrengja að í innflutningnum. 300 þús. kr. aukabiti á embættismann Við úti á landsbyggðinni viljum gjaman reyna að halda uppi góðri þjónustu. Við viljum t.d. hafa skóla- málin í góðu lagi. Kennarar eru ríkisstarfsmenn eins og allir vita. Samt þurfa sveitarfélögin að borga stórar fúlgur úr sínum sjóðum til að fá kennara til starfa. Greiða verður flutningskostnað, greiða verður niður húsnæði, skaffa verður bamaheimilispláss. Allt kostar þetta fjármuni. Þannig kostar um 300 þúsund krónur úr bæjarsjóði að fá einn kennara til starfa. Þetta samsvarar því að útsvar heillar áhafnar á bát fer í það að fá einn kennara til starfa. Svipaða sögu er að segja um fólk í heilsugæslunni. Þama taka sveitarfélögin á sig kostnað vegna ríkisstarfsmanna. Afleiðingin verður sú að sveitarfé- lög á landsbyggðinni eiga sífellt minna og minna til að setja í fram- kvæmdir. Aftur á móti virðast sveit- arfélögin á Reykjavíkursvæðinu hafa nægjanlegt fjármagn í alls konar framkvæmdir. Nú skyldi maður ætla að Jöfnun- arsjóður sveitarfélaga myndi laga Sigurður Jónsson „Aftur á móti fara flestir sem feta menntaveginn í nám sem snertir viðskipti og þjónustu og koma fæst- ir til sinnar heima- byggðar að námi loknu. Þessu þarf að breyta“ þetta dæmi fyrir landsbyggðina. Því miður er raunin önnur. Ríkis- valdið hefur sífellt ráðist á þennan sjóð og skert framlög til sveitarfé- laga. Fjármagnsflutningar í heilu þorpin innan Reykjavikur Heildarframlag til sveitarfélaga árið 1986 var kr. 826 milljónir. Það ár voru 93 milljónir nýttar til raun- verulegrar jöfnunar, 65 milljónir til aukaframlaga, 28 milljónir í fólks- fækkunarframlög. Þá voru 743 milljónir til almennra framlaga. Þar kemur jöfn upphæð á íbúa allra sveitarfélaga. Auðvitað spyr maður: Stendur þessi sjóður undir nafni? Væri ekki rétt að láta þennan sjóð virkilega vinna í þá átt að jafna muninn á við Reykjavíkursvæðið? Húsnæðismálin hafa oft verið til umræðu. Það hefur verið mjög slá- andi að heyra tölur um flutning á fjármagni frá landsbyggðinni til Reykjavíkursvæðisins í gegnum lífeyrissjóðina til húsnæðiskerfisins. Flutningurinn á fjármagni svarar til uppbyggingar á heilu þorpunum. Gallinn er bara sá að þau rísa á Reykjavíkursvæðinu. Hér verða menn að snúa við. Það fjármagn sem myndast í lífeyrissjóðunum þarf að vera kyrrt í sínu sveitarfé- lagi og notast þar til uppbyggingar. Fyrir stuttu hélt Birgir ísleifur Gunnarsson fund með okkur í Eyj- um. Þessi fundur var einn af fund- unum í fundaröð Kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélaganna í Suðurlandi. Þar kom menntamálaráðherra inn á mjög merkan þátt að mínu viti, þ.e. að dreifa menntastofnunum í auknum mæli um landið. Héma tel ég að um verulega stórt hagsmuna- mál sé að ræða, sem virkilega gæti orðið landsbyggðinni að gagni í að stöðva flóttann til Reykjavíkur. Okkur í Eyjum dreymir t.d. um að fá öflugan skóla útvegsins til okkar. Þar gætum við menntað fólk í sjómennsku og í auknum mæli einnig til fiskvinnslu. Fólk annars staðar af landinu myndi sækja skól- ann. Auðvitað er hægt að færa t.d. fóstrumenntun út um landið og einnig kennaramenntun, tækni- menntun og svo mætti áfram Upp telja. Hér er um stórt mál að ræða. Við Sjálfstæðismenn treystum á að menntamálaráðherra fylgi þessu máli eftir og komi því í fram- kvæmd. Við verðum að vinna þann- ig að Sjálfstæðisflokkurinn skapi sér enn sterkari málefnastöðu gagnvart landsbyggðinni, því vissu- lega er hann Iqolfestan þar. Það er ekki nægjanlegt að Sjálfstæðis- flokkurinn sé sterkur á Reykjavík- ursvæðinu. Við á landsbyggðinni viljum að staða Sjálfstæðisflokksins sé einnig sterk þar. Höfundur er kaupmaður í Vest- mannaeyjum ogbæjarfulltrúi. HÉR ER LAUSNIN HP LaserJet II gengur nú beint við IBM 36/38 Fyrirfer arlítill ★ Gott verð ★ Aukin afköst ★ Fleiri leturgerðir ★ Gengur jáfnframt við PC tölvur ★ Lausnin sem IBM 36/38 notendur hafa beðið eftir Söluaðilar: GÍSLI J. JOHNSEN SF. n i é- SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. NÝBÝLAVEGI 16 • PO. BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SÍMI 641222 % r<%- Hverfisgötu 33, simi:62-37-37 Akureyri: Tölvutæki - Bókval VWt Kaupvangsstræti 4, simi: 26100 Okkar þekking í þína þágu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.