Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
%
mn
pTedsion
hjörulids-
krossar
pEI<K^
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
I^^SÍMI 84670
V/INSÆLI HUGBÚNAÐURINN
HUGBÚNAÐUR - TÖLVUR - HÖNNUN
KENNSLA - ÞJÖNUSTA - RAöGJÖF
SKERFISÞRÚUN HF.
Armúli 38. 108 Reykjavík
Simar: 688055 - 687466
eðaheilar
samstæour
Leitið upplýsinga
UMBODS OG HEILDVFRSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍMI 6724 44
Stjórn Félags ráðgjafarverkfrœðinga. Frá vinstri, fremri röð: Rúnar G. Sigmarsson, Pétur Stefánsson
formaður og Ólafur Erlingsson varaformaður. Aftari röð: Sigurbjörn Guðmundsson framkvæmda-
stjóri, Karl Ömar Jónsson og Gunnar Torfason.
HAMLAR GEGN EÐLI-
LEGRITÆKNIÞRÓUN
Frá aðalfundi Félags ráðgj af arverkfr æðinga
Félag ráðgjafarverkfræðinga
hélt aðalfund sinn í húsi Verk-
fræðingafélags íslands föstudaginn
6. maí 1988. Gestur fundarins var
Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra.
Formaður félagsins, Pétur Stef-
ánsson, flutti ræðu og ræddi mál-
efni byggingariðnaðarins. Hann
gerði tíða byggingargalla að sér-
stöku umræðuefni og taldi þá að
frátöldum alkalískemmdum einkum
afleiðingu skorts á byggingarstöðl-
um, skorts á hönnunareftirliti og
ófullnægjandi og tíðast engu gæða-
eftirliti á vinnustað.
Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra ávarpaði síðan fundinn og
lagði í ræðu sinni áherslu á íslenskt
hugvit sem útflutningsverðmæti. í
því samhengi greindi hann frá því
að Orkint hf., útflutningsfyrirtæki
Orkustofnunar, hefði nú gerst
eignaraðili að Virki hf. með það í
huga að sameina krafta einkafram-
taksins og hins opinbera við að
koma íslenskri tækniþekkingu á
framfæri erlendis.
Það mál sem helst brennur á
ráðgjafarverkfræðingum í dag er
hin breytta samkeppnisstaða gagn-
vart opinberum stofnunum og fleir-
um eftir að sérstakur söluskattur
var lagður á þjónustu verkfræð-
inga. Sú staða mun enn versna með
tilkomu virðisaukaskattsins og
hækkaðri skattprósentu. Fram kom
á fundinum að Finnar undanþiggja
þessa þjónustu alfarið veltuskatti
og Svíar reikna aðeins fimmtung
andvirðis þjónustunnar til skatt-
stofns og ná með því fram að inn-
skattur og útskattur vega nokkurn
veginn salt, þ.e. þjónustan er nán-
ast skattfijáls. Jafnvel hinir
skattaglöðu Danir hafa sett lög og
reglugerðir til að draga úr óeðli-
legri samkeppnisröskun á þessu
sviði. Fundurinn samþykkti með-
fylgjandi ályktun um virðisauka-
skattinn:
„Aðalfundur Félags ráðgjafar-
verkfræðinga haldinn 6. maí 1988
ályktar eftirfarandi um frumvarp
til laga um virðisaukaskatt sem nú
liggur fyrir Alþingi til afgreiðslu.
— Fundurinn telur að virðis-
aukaskattur með þeim hætti sem
frumvarpið gerir ráð fyrir leiði til
verulegs samdráttar í starfsemi
ráðgjafarverkfræðistofa jafnvel svo
að óháðum verkfræðiráðgjöfum og
fyrirtækjum þeirra fækki verulega.
— Með ákvæðum frumvarpsins
óbreyttum verður að mati fundarins
grundvelli kippt undan samkeppnis-
stöðu verkfræðistofa gagnvart eig-
in verkfræðiþjónustu ríkisstofnana
og sveitarfélaga.
— Fundurinn telur að óbreytt
ákvæði frumvarpsins um skatt-
skyldu opinbera stofnana þegar um
samkeppni við atvinnufyrirtæki er
að ræða, sbr. 4. lið 3. greinar, og
heimildarákvæði til ijármálaráð-
herra um að leggja virðisaukaskatt
á eiginþjónustu, sbr. lok 3. greinar,
séu gagnslaus eða gagnslítil vegna
þess að erfítt eða ómögulegt verður
að framfylgja þeim þannig að eðli-
Ieg samkeppnisstaða verði tryggð.
Þetta sjónarmið hefur reyndar kom-
ið fram í bréfí fjármálaráðuneytis-
ins til Félags ráðgjafarverkfræð-
inga í sambandi við söluskatt á
verkfræðiþjónustu.
— Fundurinn varar því mjög ein-
dregið við að frumvarpið verði sam-
þykkt í óbreyttri mynd og telur að
ef svo fari sé hætta á að starfsemi
sjálfstæðra verkfræðiráðgjafa og
verkfræðistofa sem í dag hafa
300—400 starfsmenn í sinni þjón-
ustu flytjist að verulegum hluta inn
í opinberar stofnanir.
— Fundurinn telur ennfremur að
samþykkt frumvarpsins óbreytts
muni hamla gegn eðlilegri tækni-
þróun á íslandi."
Stjóm félagsins var endurkjörin
en hana skipa: Pétur Stefánsson,
formaður, Gunnar Torfason, Karl
Ómar Jónsson, Ólafur Erlingsson
og Rúnar G. Sigmarsson.
(Frá Félagi ráðgjafarverkfræðinga)
HONDA
eigendur
Auglýsing vegna blýfrís bensíns.
Eftirtaldir bilar skulu nota Super 98
octan en alls ekki blýfrítt bensín.
1) Honda Prelude árg. 1983-1988.
2) Allar gerðir með beinni innspýtingu
(PGMFI).
Allar aðrar Honda bifreiðir frá árg.
1974-1988 geta notað blýfrítt bensín
án nokkurrar breytingar á vélarstill-
ingu eða öðru.
Mótorhjól og rafstödvar/dælur
mega nota blýfrítt bensín að vild.
Vinningsnúmer 1
umferðarhappdrætti
ÁRLEGA vinna saman lög-
reglumenn og Umferðarráð i
miklu átaki í umferðarvakn-
ingu.
í því sambandi hefur verið gef-
ið út landsritið Ferðafélaginn
sem á í ár 5 ára afmæli. Það er
því vel við hæfí að útgáfan í ár
verði endurskoðuð og bætt með
tilliti til þjóðarátaks um öryggi í
umferðinni.
í fyrra dreifði lögreglan happ-
drættismiðum til bama sem voru
spennt f bílbeltin í aftursæti bif-
reiðar auk landsritsins Ferðafé-
lagans, þá gaf einig tannvemd-
umarráð harðfisk í bílana. Tvö
fyrirtæki gáfu vinninga í bama-
happdrættið, það var Reiðhjóla-
verslunin Öminn, sem gaf tvö hjól
og Kristjánsson hf., sem gaf mik-
inn fjölda af leikföngum. Ósóttir
eru nokkrir vinningar og því birt-
um við í síðasta sinn öll númerin
sem komu upp í fyrra.
Reiðhjól frá Erninum: 4917,
3014.
Leikföng frá Kristjánsson hf.:
7367, 3014, 7367, 630, 7126,
1032, 2382, 3376, 2513, 6999,
11098, 8381, 5042, 9774, 10685,
879, 8767, 9947, 3127, 11675.
Vinningsnúmer birt án ábyrgð-
ar.
(Fréttatilkynning)