Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
7
MORGUNBLAÐIÐ/KGA
Hressir krakkar frá Gamanleikhúsinu. F.v. Sigurveig M. Stefáns-
dóttir, Magnús Geir Þórðarson, leikstjóri og Sigríður Hagalín Björns-
dóttir.
Gamanleíkhúsið tíl Hol-
lands og Austurríkis
—Tekur þátt í alþjóðlegri leiklistarhátíð barna
KRAKKARNIR i Gamanleikhús-
inu munu fara til Almelo í Holl-
andi um mánaðamótin Júni/júlí
og sýna leikritið Kötturinn sem
fór sínar eigin leiðir, eftir Ólaf
Hauk Símonarson, á alþjóðlegri
leiklistarhátíð barna. Þaðan fara
þau til Austurríkis og dvelja í
Vín i 14 daga á leiklistarnámske-
iði fyrir 12 — 14 ára börn.
Að sögn Magnúsar Geirs Þórðar-
sonar, leikstjóra, tóku þau þátt í
hátíðinni í Almelo í fyrra og voru
þá eini hópurinn þar sem böm sáu
um alla vinnu í sambandi við leik-
sýninguna; leikstjóm, leikmynd,
búninga, sminkun o.s.frv. Sagði
Magnús að sýning þeirra í fyrra
hefði hlotið góðar viðtökur og hann
verið útnefndur yngsti leikstjóri f
heimi.
Það verða 10 krakkar sem taka
þátt í förinni og með þeim fara
tveir fararstjórar. Þáttakendur á
námskeiðinu í Vín verða frá tuttugu
og einu landi, tíu frá hveiju.
Gamanleikhúsið var stofnað
1985 og hefur sett upp margar leik-
sýningar, síðast Gúmmí-Tarsan,
eftir Ole Lund Kirkegaard, s.l. vet-
ur. Meðlimir eru 43 og eins og áður
sagði sjá þau sjálf um alla vinnu,
frá leikstjóm niður í sminkun.
Magnús sagði það hafa verið mjög
lærdómsríkt að taka þátt í hátíðinni
í Almelo í fyrra og að hann teldi
að þátttaka Gamanleikhússins í
slíkum hátíðum væri góð land-
kynning.
Skoðanakönnun Hagvangs:
Kvennalistinn hef-
ur þrefaldað fylgið
KVENNALISTINN festir sig enn í sessi sem stærstu stjórnmálasam-
tök landsins ef marka má nýja skoðanakönnun sem Hagvangur hf.
hefur gert á fylgi stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt könnuninni hlaut
Kvennalistinn 31,3% fylgi þeirra sem afstöðu tóku, Sjálfstæðisflokk-
ur var með 30,8% fylgi, Framsóknarflokkur með 18,3%, Alþýðuflokk-
ur með 9,7%, Alþýðubandalag með 6,4% og Borgaraflokkur með
2,3%. Samkvæmt þessari könnun hefur Kvennalistinn þrefaldað fylgi
sitt frá því í alþingiskosningunum í apríl 1987, Sjálfstæðisflokkur
hefur bætt lítillega við sig, en aðrir flokkar hafa tapað fylgi miðað
við síðustu alþingiskosningar.
Ef litið er á samsetningu núver-
andi fylgis Kvennalistans eru 42,9%
stuðningsmanna fiokksins hinir
sömu og í síðustu kosningum, 16,3%
af stuðningsfólki Kvennalistans nú
kaus Alþýðubandalagið í síðustu
kosningum, 14,3% koma frá Al-
þýðuflokki, 11,6% frá Framsóknar-
flokki, 8,2% frá Sjálfstæðisflokki
og 5,4% frá Borgaraflokki. Um
20,3% af stuðningsmönnum
Kvennalistans eru karlmenn sam-
kvæmt könnuninni.
Ef miðað er við síðustu könnun
Hagvangs, sem gerð var í janúar
síðastliðnum, hefur Framsóknar-
flokkurinn tapað talsverðu fylgi, fer
úr rúmlega 24% í 18,3%. Hinir
stjómarflokkamir tveir, Sjálfstæð-
isflokkur og Alþýðuflokkur, bæta
lítillega við sig frá því í síðustu
könnun. Alþýðubandalag og Borg-
araflokkur tapa báðir talsverðu
fylgi miðað við könnunina í janúar
sl.
Af þeim sem afstöðu tóku í könn-
uninni nú éru 50,2% andvígir ríkis-
stjóminni, en 49,8% fylgjandi og
hefur andstaðan við ríkisstjómina
heldur minnkað frá því í janúar-
könnun Hagvangs. Þá voru 52,2%
andvígir stjóminni en 47,9% fylgj-
andi. I könnuninni kemur fram að
um 25% af þeim, sem fylgja stjóm-
arflokkunum að málum, eru óán-
ægðir með núverandi stjómarsam-
starf, en 15% af þeim sem styðja
stjómarandstöðuflokkana em fylgj-
andi stjómarsamstarfinu.
í könnuninni var spurt um eftir-
farandi: „Ef efnt yrði til alþingis-
kosninga á næstu dögum, hvaða
stjómmálaflokki eða samtökum
myndir þú greiða atkvæði?". Ef við-
komandi var óákveðin(n) var jafn-
framt spurt: „Hvaða stjórnmála-
flokki eða samtökum er líklegast
að þú myndir greiða atkvæði?"
Samanlagðar niðurstöður úr þess-
um spurningum vom eftirfarandi:
Alþýðubandalag: 4,3%, Alþýðu-
flokkur 6,5%, Framsóknarflokkur
12,1%, Samtök um kvennalista
20,8%, Sjálfstæðisflokkur 20,5%,
Flokkur mannsins 0,6%, Þjóðar-
flokkur0,2%, Borgaraflokkur 1,5%,
ætla að skila auðu 3,8%, mun ekki
greiða atkvæði 5,0%, óákveðin
13,4%, neituðu að svara 11,3%.
Skoðanakönnun Hagvangs var
gerð dagana 5. til 12. maí og fram-
kvæmd þannig að hringt var í 1.100
manna úrtak um allt land á aldrin-
um 18 til 79 ára.
\
fisittti Ruismiim
FRÁ PHIUPS ap
. .UM TÆKNILEGA FULLKOMNUN
I ap-farsímatólinu er: 16 stafa láróttur skjár og 20 stórir hnappar með innbyggðri
lýsingu. 100 númera minni sem getur samanstaðið af allt að 22 tölustöfum.
Langlínutæsing sem eingöngu er opnanleg með 4 stafa leyninúmeri. - Rafhlaða
ap-farsimans endist í allt að 2 daga miðað við eðlilega notkun.
. .UM TÍMASPARNAÐ
Sem viðbót á farsímann frá PHILIPS-ap er símsvari sem geymir allt að 9 númer sem
hringt var úr. Með einum hnappi kallarðu síðan upp númerin.
. .UM AUKIÐ ÖRTGGI
I þessu bráðfallega og sterka símtóli er hátalari og hljóðnemi. Það gerir þér kleift að
tala og hlusta akandi MEÐ BÁÐAR HENDUR Á STÝRI, sem stóreykur öryggi þitt og
annarra I umferðinni. Símtólið liggur í láréttri stöðu sem gerir aflestur af skjánum
auðveldari og greinilegri.
..UM HAGKVÆMNIOG PÆGINDI
Á gjaldmælinum á skjánum má sjá skref yfirstandandi símtals og heildamotkun.
Blikkandi Ijós sýnir ef hringt hefur verið í símann án þess að svarað hafi verið. Innbyggt
„minnisblað" gerir þér kleift að skrá hjá þér símanúmer meðan á símtali stendur og
kalla það siðan upp.
Fislétti ffarsíminn ffrá PHILIPS-ap er aSeins 4,3 kg.
og svarar kröffum nútímaþjóSffélags á loffti, láði sem iegi.
Söluaðilar utan Reykjavíkur:
• Raftxjrg, Grindavík • Aðalrás, Akranesi • Kaupfólag Borg-
firðinga, Borgamesi • Ðókav. P. Stefánssonar, Húsavik
• Nesvideo, Neskaupstað • Akurvík, Akureyri
• Rafmagnsverkst. Ragnars Ólafssonar, Suðureyri • Rás sf.
Þorlákshöfn • Póllinn hf., (safirði.
TÆKNIDEILD
‘"s”æTÚNI8-SÍMI-.(91)69'I5M
BtfHHR