Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAI 1988 15 G LÆS/ UEG S PA R /FÖT /Á GÓÐU VERÐI (Ath. verslun okkar í Glæsibæ hefur verið breytt - verið velkomin) tjjSl KARNABÆR llíSi KARNABÆR ® Austurstræti 22 " Laugavegi 66 Glæsibæ Þorlákshöfn Kirkjan opin ferðamönnnm umhelgar SÓKNARNEFND Þorláks- hafnarkirkju hefur ákveðið að hafa kirkjuna opna ferðamönn- um um helgar í sumar og hafa þar leiðsögumenn sem veita gest- um upplýsingar um kirkjuna og byggðina í Þorlákshöfn. Kirkjan verður opin á laugardög- um og sunnudögum í júní, júlí og ágúst og verða leiðsögumenn þar viðstaddir frá kl. 15.00 til 19.00 báða dagana. Ef sá tími hentar ekki má hringja í símanúmer sem fest verður upp við kirkjudymar. Vilji hópar hins vegar koma í miðri viku þarf að láta vita með fyrirvara. (Fréttatilkynning) HORFT TIL HEIMAHAGA Bókmenntir Erlendur Jónsson HÚNVETNINGUR. Ársrit Húnvetningaf. í Reykjavík. 12. árg. 158 bls. 1988. Atthagafélög eru mörg starfandi í Reykjavík og setja raunar tals- verðan svip á félagslíf höfuðstaðar- ins. Baldur Pálmason, sem rekur hér fimmtíu ára sögu Húnvetninga- félagsins, segir að sýslungar sínir hafi ekki orðið fyrstir til að stofna hér átthagafélag. Eigi að síður má af samantekt hans ráða að líf hefur jafnan verið í félaginu og verkefni fjölbreytt. Stefna þess hefur verið að halda tengslum við heimahaga, ekki aðeins í orði heldur einnig í verki. Til að mynda hafa félagar unnið að skógrækt í héraði; stóðu einnig fyrir lagfæringu eða endur- byggingu Borgarvirkis. Þá var byggðasafnið á Reykjum í Hrúta- firði framarlega á verkefnalistanum en því komu Húnvetningar á fót í félagi við Strandamenn. Þar að auki hefur Húnvetningafélagið ver- ið skemmtifélag öðrum þræði, eins og reyndar önnur slík; klúbbur þar sem fólk hefur komið saman á góð- um stundum til að gleðjast og ylja sér við sameiginlegar minningar. Þótt Húnavatnssýsla sé með fá- mennari byggðarlögum má heita að félagið sé tiltölulega fjölmennt. Minnir það á hversu margir hafa flust úr héraði til höfuðborgarinnar. Pálmi Jónsson upplýsir í afmælis- kveðju til félagsins að fbúar í Húna- vatnssýslu séu nú rúm fjögur þús- und en »ef Húnvetningar hefðu haldið sínum hlut ættu þeir að hafa verið 7300 á árinu 1986.« Ennfrem- ur getur Pálmi þess að fólki hafí »fjölgað í þorpum en fækkað í sveit- um«. Mun sú þróun samstíga því sem annars staðar hefur orðið. Auk efnis, sem tengist aftnæli félagsins, eru að venju fáeinir frá- sögu- og minningaþættir í árbók þessari. Furðu margt geymist þótt fennt hafi í spor nefnist t.d. þáttur sem Þórhildur Sveinsdóttir ritar um gullbrúðkaup á Eyvindarstöðum í Blöndudal 1893. Og Viðburðarík ævi heitir þáttur sem Dýrmundur Ólafsson ritar eftir Margréti Karls- dóttur frá Bjargi í Miðfirði. Mar- grét segir frá því er hún hleypti heimdraganum 13 ára, hélt þá til Akureyrar til að læra á orgel. Síðar lá leiðin til Vesturheims þar sem lífið var »bæði súrt og sætt« að sögn Margrétar; en þaðan aftur heim á Frón þar sem Margrét kaus að eyða ævidögunum. Ekki urðu þó allir Húnvetningar svo fljótir til að sjá sig um í veröldinni því Páll Guðmundsson frá Höfða var kom- inn um áttrætt, og þar að auki heilsutæpur í meira lagi, þegar hann lagði upp í sína fyrstu reisu til framandi landa sem segir frá í þættinum Fyrsta utanlandsferðin sem Herdís Sturludóttir hefur skráð. Leið Páls lá til sólarstranda Spánar. Út af fyrir sig kann slík ferð að þykja hæpið efni í frásögu nú á dögum. Eigi að síður er fróð- legt að hafa spurnir af hvemig fjar- lægt land kemur öldruðum bónda fyrir sjónir. Og ekki varð þessi fyrsta ferð Páls hans síðasta, ekki aldeilis. Skemmtilegur er líka þátturinn Starfsstúlka á Hótel Nordpolen eft- ir Elínu Guðmundsdóttur Snæhólm. Hótel Nordpolen var á ísafírði. Margan bar þar að garði. Og mikið var unnið; starf eins og Elínar mátti heita samfellt strit, myrkr- anna á milli. Eitt sinn er Elín var að líða út af vegna þreytu segir forstöðukonan við hana: »Stúlka mín! Á ég að segja yður heimuleg- heit?« Og hver vaknar ekki ef hann á von á að upp verði ljóstrað leynd- armáli? Eins og fyrr er tekið fram er Baldur Pálmason þetta 12. árbók Húnvetningafélags- ins. Framan af kom ritið út nokkuð slitrótt en hefur síðustu árin komið út reglulega. Vonandi verður svo eftirleiðis því rit sem þetta hefur hlutverki að gegna, allt eins og fé- lag það sem að baki því stendur. Þótt alþýðleg fræðimennska láti lítið yfir sér og sé að fáu getið þessi árin stendur hún vissulega fyrir sínu. Sagnfræðingar framtíð- arinnar munu geta sótt ærinn fróð- leik til héraðaritanna. Ljóðasöngur TónlSst Jón Ásgeirsson Marianne Eklöf mezzo-sópran og Stefán Bojsten píanóleikari fluttu „lieder" söngva eftir Brahms, Sibelíus, Rakhmanínov og Granados á sjöundu tónleikum Tónlistarfélagsins, sem haldnir voru í íslensku óperunni sl. laug- ardag. Marianne Eklöf er góð söngkona og söng mjög vel t.d. Dein blaues Auge eftir Brahms, Sáv, sáv susa og Flickan kom ifrán sin álsklings möte eftir Si- belíus og E1 tra la y el punteado eftir Granados. Önnur lög voru ágætlega sungin en henni tókst best upp í áðurnefndum lögum. Píanóleikarinn Stefan Bojsten lék af miklu listfengi. Sjaldan getur að heyra samtvinnaðan svo vandaðan og útspekúleraðan und- írleik en um leið fluttan af slíku listfengi og sterkri tilfinningu fyr- ir söng, eins og hjá Bojsten. Hann bókstaflega talað lék sig inn í sönglögin. Hinn prentaða efnisskrá tón- leikanna var með óvandaðra móti að þessu sinni og fyrir utan skemmtilega misprentun, sem ekki er tiltökumál, er harla undar- legt að lesa nöfnin á lögum Rakh- manínovs á ensku, sem söng- konan söng svo á rússnesku. Það hefur næstum verið ófrávíkjanleg venja undanfarið á söngtónleik- um, að hafa textana í efnis- skránni og því eru tónleikagestir orðnir góðu vanir. Víst liggur þar að baki mikil vinna en vonandi er hér aðeins um sérstakt tilfelli að ræað. Ljóðatónlist er að því leyti til sérstæð, að þar er tónlistin ekki endilega lagbundin, heldur nær ávallt tónræn og tilfinningaleg túlkun á innihaldi textans. Þess vegna getur það verið nauðsyn- legt, þegar erlendir „lieder" söngvar eru fluttir, að þýða, þó ekki væri nema lauslega, innihald texans. P.S. Þrátt fyrir að undirritaður sé ekki vanur að fjalla um auka- lög, þá er rétt að þessu sinni að geta þess, að síðasta aukalagið, sem er breskt þjóðlag, var meist- aralega flutt af Marianna Eklöf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.