Morgunblaðið - 17.05.1988, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
Morgunblaðið/Albert Kemp
Nemendur Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar í maraþondönskunámi.
Fáskrúðsfj örður:
Maraþondönskunám
Fáskrúðsfirði.
NEMENDUR 8. bekkjar Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar efndu til
maraþonkennslu/-náms í dönsku
fyrir skömmu er stóð frá föstu-
dagsmorgni til laugardagsmorg-
uns.
Maraþonið var háð til að afla fjár
í ferðasjóð nemenda. Alls söfnuðust
80.000 krónur í áheit.
- Albert
©
NETtÁíCttn-AR
OGLÉTTAR
UÓSRITUNARVÉLAR
- og þær gera altt sem gera þarf
á minni skrtfstofum
D-10 _
Lítil, einföld og þvl traust Fyriitak á skriftxxðið!
Verö kr. 25.025.- stgr.
D-100
I
5 líta prentun ef viH, innsetning einstakra arka,
innbyggður aikabakki til að spara pláss;
hágæðaprentun og hagkvæmni í rekstri.
Verð kr. 54.200.- stgr.
lKJARAN
AflMÚLA 22. SiM (91) B » 22. 106 REYKJAVlK
ftorjptn-
í Kaupmannahöfn
FÆST
j BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Hugheilar þakkir til allra sem glöddu mig með
skeytum, blómum, gjöfum og heimsóknum á
75 ára afmœlisdegi mínum 13. þ.m.
Herdís FriÖriksdóttir,
Grænuhlíð 16.
Nýtt - Nýtt
Glæsilegt úrval af sumarvör-
um. Pils-blússur-peysur
Glugginn,
Laugavegi 40 (Kúnsthúsinu).
0RÐSENDING
TIL
DEUTZ EIGENDA
Það hefur orðið að samkomulagi milli Hf. Hamars
og Þórs hf. að frá og með 15. maí 1988 muni Þór
hf. yfirtaka umboð fyrir DEUTZ traktora á íslandi.
HF. HAMAR ÞÓR HF.
Skröksögur
í þingsölum
eftirSturlu
Kristfánsson
Það er a.m.k. ljótt að
skrökva eða fela sannleik-
ann sér til framdráttar og
öðrum til miska — jafnvel
refsivert
Sameiginleg yfirlýsing ríkislög-
manns og alþingismanns í bréfi til
ritstjóra DV dagsett 11. apríl sem
birt var í DV þriðjudaginn 12. apríl
á annarri síðu neðst til hægri vakti
furðu margra lesenda.
Ekki verða spumingar þær og
hugdettur, sem bréfkorn þeirra
fóstbræðra hafa vakið, til umfjöll-
unar hér en rétt þykir mér að reyna
að greiða nokkuð úr þeim vanda,
er ég hef nú valdið með meintri
vanstillingu minni, sem birtist í
stuttu viðtali í DV laugardaginn 9.
apríl.
Ég sé það auðvitað núna að ég
hefði átt að stilla skapsmuni mína
betur og láta það vera að láta um-
rætt dómsmál hafa nokkur áhrif á
líf mitt eða yfír höfuð að taka mark
á niðurstöðunum. Að vitna síðan í
ummæli fv. menntamálaráðherra,
svona eftir minni, er auðvitað óaf-
sakanlegt. En hvort tveggja er, að
öll þessi mál hafa fengið mikið á
mig og svo hitt að ég hef ekki verk
Sverris Hermannssonar við símann
og því verða tilsvör mín kannski
ónákvæm og vanstillt eða ómark-
viss þegar blaðamaðurinn hringdi í
mig.
Töluð orð verða ekki aftur tekin,
en gaman hefði nú verið ‘ef mér
hefði tekist að vera markviss og
yfirvegaður og afgreiða málið
ákveðið og kröftuglega, t.d. með
því að segja að ég léti ekki ein-
hveija kóna þarna fyrir sunnan
segja mér fyrir verkum og ef þetta
hyski ætlaði að halda áfram áróðri
og bumbuslætti þá myndi það ekki
leiða til annars en þess að allt þetta
mál yrði brotið til mergjar og þá
hlyti það að leiða til þess að engum
yrði hlíft og engu yrði eirt. Héðan
af get ég sem sagt ekki sparað mér
vanstillinguna en ég ætla að reyna
að bæta fyrir hana með því að fletta
upp í gögnum og fara háirétt með.
Lítum fyrst á Alþingistíðindi 12.
hefti 1986 - 87 bls. 2373. Þar
segir menntamálaráðherra í um-
ræðum utan dagskrár (brottvikning
fræðslustjóra) um brottvísunina:
„Allra lagaákvæða var gætt í
fyllsta samráði við ríkislögmann um
brottvikningu þessa. Því var það
að eftir áminningar skriflegar og
munnlegar tvívegis var með vísun
til laganna ákveðið að gefa Sturlu
Kristjánssyni kost á því að svara
fyrir sig eins og tilgreinir í lögunum
að eigi að gera ef kostur er. Þetta
var gert 9. jan.“
Um þessar fullyrðingar ráðherr-
ans kemst dómarinn að eftirfarandi
niðurstöðu:
„Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. 1.
38/1954 um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins skal veita
starfsmanni áminningu áður en
honum er vikið úr starfi. Líta verð-
ur svo á að slík áminning skuli
varða þær ástæður, sem brottvikn-
ing er síðan byggð á. Brottrekstr-
arástæður eru tvær samkvæmt
bréfí ráðherra frá 10. janúar 1987.
Annars vegar að stefnandi hafi
sniðgengið fyrirmæli ráðuneytisins
varðandi fjármálalega umsýslu í
fræðsluumdæminu og hins vegar
að hann hafí ítrekað brotið trúnað-
Sturla Kristjánsson
„Nú að gengnum dómi
í héraði er enn rúm til
sátta og samninga.
Hvernig væri að líta á
samanburðarúttektina,
læra af reynslunni og
bera í brestina, því „bót
er oss heitið ef bilar ei
dáð“.
arskyldu þá er á honum hvíli sem
starfsmanni ráðuneytisins. Að því
er fyrri brottvikningarástæðuna
varðar, verður ekki séð, að stefn-
andi hafi fengið formlega áminn-
ingu vegna hennar. Áminning sú
er stefnanda var veitt með bréfí
dags. 21. ágúst 1986 er vegna
þeirra upplýsinga, sem veittar voru
fjölmiðlum um áætlanagerð
menntamálaráðuneytisins til fjár-
laga 1987. Er í bréfinu vísað til 2.
mgr. 7. gr. 1. 30/2954. Ennfremur
er því haldið fram af stefnanda að
rætt hafi verið við stefnanda og
honum verið gefinn kostur á að
tala máli sínu á tveimur fundum,
annars vegar 26. september 1986
og hins vegar 9. janúar 1987. Það
verður ráðið af framburði vitna, að
fyrri fundurinn hafí verið árviss
sameiginlegur fundur fræðslustjóra
landsins og hafi ráðuneytisstjóri
rætt þar almennt stöðu fræðslu-
stjóraembættisins gagnvart
menntamálaráðuneyti. Komið hefur
fram að stefnandi hafi spurt hvort
skilja bæri orð ráðuneytisstjóra
þannig að stefnanda bæri að segja
af sér og hafí því verið neitað.
Að því er varðar þann fund sem
ráðuneytisstjóri og skrifstofustjóri
héldu með stefnanda einum hinn
9. janúar 1987, þykir upplýst að
stefnanda hafí ekki verið tjáð þegar
hann var boðaður til fundarins að
sá fundur væri haldinn í þeim til-
GAUTABORG
3xíviku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Frestun
oðalfundar
Vegna sérstakra aðstæðna og óvissu um framgang
efnahagsmála hefur framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambands íslands ákveðið að fresta áðurboð-
uðum aðaifundi, sem vera átti á morgun, 17. maí, til
þriðjudagsins 7. júnínk.