Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 29

Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 29 gangi að gefa honum kost á að tala máli sínu vegna hugsanlegrar eða yfírvofandi brottvikningar úr starfí. Af framburði ráðuneytis- manna fyrir dóminum verður að líta svo á að þeim hafí sjálfum ekki verið fyllilega ljóst að af þessum fundi myndi ráðast hvort stefnanda yrði vikið úr starfí eða ekki eða hvort ráðherra hefði þegar tekið slíka ákvörðun. Þykir fundurinn því ekki fullnægja kröfum laga um að opinberum starfsmanni, sem á yfír höfði sér brottvikningu, sé gefínn kostur á að tala máli sínu. Ekki hefur verið sýnt fram á, að stefn- andi hafí að öðru leyti fengið ótví- ræða áminningu vegna þess sem ámælisvert hefur þótt í starfi hans. Það vekur athygli að stefnandi var aldrei kvaddur á fund ráðherra, né honum gefínn kostur á að segja af sér.“ Ætla mætti að dómurinn væri ekki að fjalla um sama mál og ráð- herrann í þingræðu sinni. En lítum aftur í þingtíðindi. Undir lok ræð- unnar segir ráðherrann: „Ekki ætla ég að liggja undir því að vera borinn þeim sökum að hafa brotið lög á manni og á starfs- manni ríkisins og beitt valdníðslu, kemur ekki til nokkurra mála.“ í framhaldsumræðum daginn eft- ir segir ráðherrann: „En til mín hafa leitað menn úr mörgum stjómmálaflokkum þeirra erinda að spyijast fyrir um hvort þrátt fyrir réttmæti brottreksturs- ins sé ekki fært að koma málum svo fyrir vegna fjölskylduaðstæðna mannsins, Sturlu Kristjánssonar, að hann standi ekki uppi algjörlega tekjulaus meðan hann er að finna sér nýtt starf. Þetta atriði var mér töluverð hugraun í sambandi við ákvörðun mína um brottvikning- una. Hin köldu lög tilkynntu mér að hjá því yrði ekki komist að nema nafn Sturlu af launaskrá þegar í stað og skýring ríkislögmanns var sú að ella, ef ég héldi honum og mælti með að halda honum á launa- skrá, sem ég hélt nú að væri mann- eskjulegt, yrði það e.t.v. notað í málarekstrinum sem rök þess efnis að ég hefði ekki talið mig alveg vissan upp á mínar hendur að hún væri á fullkomnum rökum reist, þessi ákvörðun um brottvísun. Þetta er álit lögfræðinganna og ríkislög- manns í þessu falli. Ég hef þess vegna mikla samúð með þessum aðstæðum þó ég standi fast á þeirri skoðun minni að gerð- ir mínar hafi í hvívetna verið lög- mætar og réttmætar og óhjákvæmi- legar þar sem ég fékk engu um þokað í afstöðu fyrrv. fræðslustjóra til málanna. Því mun ég nú beita mér fýrir því við fjármálaráðherra að sérstök ijárveiting fáist til að greiða manninum, Sturlu Kristjáns- syni, fjárhæð sem svarar u.þ.b. þriggja mánaða launum, án þess þó og það tek ég skýrt fram, að í því felist nokkur viðurkenning á að brottvikningin hafí ekki í hvívetna verið lögmæt." Ráðherra segir okkur þama að ríkislögmaður hafí varað við mann- eskjulegum vinnubrögðum, þau gætu komið sér illa síðar. Þrátt fyrir hugraun og samúð ráðherrans beygir hann sig fyrir hinum köldu lögum og áliti lögfræðinganna og ríkislögmanns. Og slíkt er miskunn- arleysi hinnar köldu lögvísi að þrátt fyrir mannúð og.mildi menntamála- ráðherrans fyrrverrandi þá hefur maðurinn, Sturla Kristjánsson, enga fjárveitinguna fengið og bíður íþjóðmálaum- ræðunni á vett- vangi kvenna Baráttumál á vettvangi kvenna var eitt af fundarefnum Kjördæmisráðs Sjálfstæðis- fiokksins á Suðurlandi í funda- herferð fyrir skömmu þótt erfitt kunni að vera að greina á milli baráttumála á vettvangi kvenna og þjóðmála yfirleitt. Fundurinn , sem var haldinn í Hótel Selfossi, var fjölsóttur og fjör- ugar umræður urðu eftir framsögu- erindi kvennanna fimm á meðfylgj- andi mynd. enn eftir því að fá greitt orlofíð sitt fyrir orlofsárið 1. maí 1986 til 13. janúar 1987. Og enn mælir ráðherrann á Al- þingi 22. janúar 1987: „Ég get ekki gengið öðruvísi til leiksins en að ég fái uppreisn æru því að ég er borinn þeim sökum að bijóta lög og beita valdníðslu. Við það get ég ekki búið. Og hvemig má það vera að þeir sem í hlut eiga skuli ekki leita réttar síns eftir lög- varinni leið? Hvemig má þetta vera? Það stendur skýmm stöfum hvemig með skuli fara. Hvaða bögglingur er þetta eiginlega? Vantreysta menn íslenskum dómstólum? Ég hef enga löngun til þess að standa yfír höfuðsvörðum eins eða neins. En ég gef ekki mannorð mitt laust baráttulaust. Hef ég brotið lög eða hef ég beitt valdníðslu? Um þetta verður að fást úrskurð- ur.“ Og síðar í sömu ræðu: „Eg bið að lokum um aðeins eitt því engan hef ég heyrt væna íslenska dómstóla um sérdrægni. Engan hef ég heyrt halda því fram enn sem komið er að við getum ekki fullkomlega treyst réttsýni þeirra. Ég bið um að þetta mál gangi þá leið og ég skal taka við mínum dómi ef það fellur á mig. Það kostar auðvitað stöðuna mína en það skiptir engu máli. Það kemur ekki til nokkurra mála. Ekki eitt einasta andartak mundi ég silja á þeim stól eftir að dómstóll hefði fellt þann úrskurð að ég hefði brot- ið lög á einstaklingi og beitt hann valdníðslu, ekki eitt einasta andar- tak.“ Nú er úrskurðurinn fenginn, nú hefur dómstóll fellt úrskurð er hljóðar svo: „ ... í hvorugu tilviki þykja sak- ir hins vegar nægilega alvarlegar til að réttlæta fyrirvaralausa brott- vikningu að fullu. Framkvæmd frávikningarinnar að formi til þykir og hafa verið ábótavant, sbr. fyrirmæli laga nr. 38/1954. í ljósi þeirrar meginreglu að starfsmanni sé fyrst vikið úr stöðu um stundarsakir, að sakir þær sem bomar voru á stefnanda voru ekki nýtilkomnar og að stefnandi var ekki sakaður um refsivert atferli, þykir aðferð ráðherra við frávikn- ingu stefnanda úr starfí fræðslu- stjóra Norðurlands eystra hafa ver- ið of harkaleg og fyrirvaralaus og verður ekki talin lögmæt í skilningi laga nr. 38/1954.“ í ljósi þessara tilvitnana í þær upplýsingar er ráðherrann gaf Al- þingi á sínum tíma um framgöngu sína i þessu máli og samráð sitt við ríkislögmann þá skil ég bréfkom þeirra félaga í DV 12. apríl á þann veg að ríkislögmaður hafi fengið ráðherrann fv. til þess að gangast við því, að hann hafí farið full fijáls- lega með staðreyndir sér til halds og trausts þegar að honum var sótt á þingi forðum. „AUra lagaákvæða var gætt í fyllsta samráði við ríkislögmann um brottvikningu þessa," sagði ráð- herrann í þingræðu 20. janúar 1987, en nú 11. apríl skrifar hann: „Ríkislögmaður eða samstarfs- menn hans vom ekki spurðir um það hvort skilyrði væm fyrir því að lögum að veita Sturlu lausn, hvorki um stundarsakir né að fullu." Skyldi þetta vara eina veilan í málflutningi ráðherrans í þingræð- um í þessu máli? Væri ekki full ástæða til að athuga það, þingmenn góðir? Illt hefði það verið ef ríkislög- maður hefði fullvissað ráðherra um lögmæti brottvísunarinnar, varið gjörðina fyrir dómi og tapað málinu. En hvemig má það vera að ríkis- lögmanni tókst ekki að rata leið samninga og sátta í þessu máli í nafni hagsýni, ráðdeildar og mann- úðar? Á öllum stigum málsins hefur undirritaður leitað sátta og samn- inga og á Sjallafundinum 29. jan- úar 1987 hafði ráðherrann þetta að segja um þann möguleika: „Það barst bréf til fjármálaráð- herra í dag frá lögmanni Sturlu Kristjánssonar þar sem boðið er upp á að leitað verði sanngjamra samn- inga. Fjármálaráðherra, það er leit- að til hans eftir okkar reglum, um sókn í slíku máli, og ég mælti með því við fjármálaráðherra að sest yrði þegar í stað niður til þess að reyna að sættast í málum, vegna þess að hér á landi eigum við aldr- ei helst að taka öðruvísi á málum en að reyna að sætta þau, sætta þau þannig að báðir og allir megi vel^við una.“ í sömu ræðu segir ráðherrann: „Ekkert, engin króna getur orðið til ráðstöfunar í gegnum hendur menntamálaráðherra nema með samþykki og skriflegri uppáskrift fj ármálaráðherra sem síðan fer inn á fjáraukalög og er samþykkt af Alþingi sjálfu. Enginn eyrir er til ráðstöfunar fyrir mig utan við fjár- lög með öðrum hætti." Hvers vegna var aldrei sest niður og reynt að sættast? Hver hindraði það? Hver keyrði málið af hörku fyrir dóm? Hver tók ráðin af menntamálaráðherra og hver fékk íjármálaráðherra til þess að skrifa upp á milljóna kostnað mennta- málaráðuneytisins af öllu brambolt- inu sem forða mátti með samning- um? Kostnaður af Ólafsævintýrinu er einn sér milljónatala, hann er enn á launaskrá sem fræðslustjóri Norð- urlandsumdæmis eystra. Norður- ferðir lögmanna, skrifstofustjóra, deildarstjóra og fulltrúa ráðuneytis og ríkisendurskoðunar á tímabilinu frá því í janúar 1987 til mars 1988 til ávirðingaleitar kosta hundruð þúsunda fyrir utan alla heimavinnu þeirra við málatilbúnað. Og hver varð heildarkostnaður ríkisins (fyrir utan hlut sveitarfélaga landsins) af samanburðarúttekt á fjárhag, starfsháttum og samskiptum fræðsluskrifstofa landsins við ráðu- neytið, úttekt sem samkvæmt ráð- herrabréfi frá 18. febrúar 1987 átti að verða sáttagrunnur. í úttektamefndina voru skipaðir alls 19 aðilar og var hún að störfum fram á sumar 1987. Kostaði sú úttekt milljónir? Hvers vegna var ekki sest að samningum og sáttum að þessari úttekt fenginni? Hver hindraði það að þessi út- tekt, sem er tímabær og upplýs- andi, yrði opinber gerð og lög fram sem málsgagn fyrir dómi? Naumast sá er fyrirskipaði úttektina. Nú að gengnum dómi í héraði er enn rúm til sátta og samninga. Hvemig væri að líta á samanburð- arúttektina, læra af reynslunni og bera í brestina, því „bót er oss heit- ið ef bilar ei dáð“. Akureyri í apríl 1988. ■ Höfundur er fyrrverandi fræðslu- stjóri Norðurlandskjördæmis eystra. Taylor ísvélar lofyrirliggjandi Hagstætt verd. Góð kjör. Eiríkur Ketilsson Heildverslun, Vatnsstíg 3. Símar: 23472, 25234, 19155. STUDENTA- STJARNAN 14 karata gull hálsmen eða prjónn Verð kr. 2400.- Jón Sigmundsson, skartgripaverslun, Laugavegi 5, sími 13383. MAI TILBOÐ Xlvi GÆÐA DISKLINGAR I Tvíhliða 51/4,f í plastboxi. Þú kaupir 20 stk. en færð afhent 30 stk. Frá vinstri: María E. Ingvadóttir viðskiptafræðingur , séra Hanna María Pétursdóttir , Drífa Hjartardóttir bóndi , Sigríður Þórðardótt- ir oddviti og Arndis Jónsdóttir kennari. Morgunblaðið Arni Johnsen STÆKNIVAL Grensásvegi 7, 108 Reykjavlk, Box 8294, S: 681665 og 686064

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.