Morgunblaðið - 17.05.1988, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
Brottflutningnr sovéska innrásarliðsins frá Afganistan
Skæruliðar ætla
að hefna grimmd-
arverka herliðsins
- segja talsmenn skæruliða
Peshawar, Pakistan, Reuter.
TALSMENN afganskra skæruliða segja að grimmdarverka sovéska
innrásarliðsins og kommúnistastjórnarinnar í Kabúl verði hefnt en
kveðast jafnframt vera reiðubúnir til að „náða“ óbreytta hermenn
þegar að brottflutningi sovéska innrásarliðsins frá landinu lýkur.
Skæruliðum ber ekki saman um hvort ráðgert er að gera árásir á
herflutningalestir Sovétmanna á leið út úr landinu en leiðtogi sam-
taka sjö hreyfinga skæruliða kveðst hlynntur slíkum aðgerðum.
Gulbuddin Hekmatyar, leiðtogi
heildarsamtaka sjö skæruliðahreyf-
inga, hefur hvatt til þess að ráðist
verði á brynvagnalestir Sovétmanna
á leið út úr landinu en fyrsta lestin
hélt í gær frá Kabúl áleiðis til so-
vésku landamæranna. Talsmenn
annarra hópa skæruliða segja hins
vegar að einungis verði gerðar árás-
ir á sovésku hermennina telji skæru-
liðar þá ógna sér. Að öðrum kosti
hyggist skæruliðar beina kröftum
sínum að þeim stöðvum afganska
stjómarhersins sem ekki njóta lengur
hervemdar Sovétmanna. Vestrænn
embættismaður í Pakistan kvaðst í
gær telja að skæruliðar biðu þess
að brottflutningurinn væri vel á veg
kominn áður en þeir létu til skarar
skríða. „Hví skyldu þeir fóma
mannslífum í tilgangslausum bar-
dögum nú þegar sigur er í augsýn?“.
Ekki kveðið á um vopnahlé
Í Genfar-sáttmálanum um brott-
flutning sovéska innrásarliðsins frá
Afganistan, sem undirritaður var í
apríl, er ekki kveðið á um vopnahlé
í bardögum innrásarliðsins, stjómar-
hersins og skæruliða. Fulltrúar
kommúnistastjómarinnar í Kabúl og
stjómvalda í Pakistan, sem skotið
hafa skjólshúsi yfir skæruliða og
gífurlegan flölda flóttamanna, undir-
rituðu samkomulagið sem og fulltrú- '
ar risaveldanna. Bandaríkjamenn
hafa veitt skæruliðum hemaðarað-
stoð og er gert ráð fyrir að bæði
stórveldin haldi áfram Jafnri og
gagnkvæmri" hemaðaraðstoð við
bandamenn sína í landinu. Skærulið-
ar hafa á hinn bóginn lýst yfir því
að þeir hyggist hundsa samkomulag-
ið þar sem gengið hafí verið framhjá
réttum fulltrúum afgönsku þjóðar-
innar. Hafa þeir heitið því að koma
stjóm Najibullahs frá og em frétta-
skýrendur almennt þeirrar skoðunar
að búast megi við harðvítugum átök-
um í landinu eftir að sovéska innrás-
arliðið hefur haft sig á brott. Raunar
hefur innanlandsófriður öldum sam-
an sett mark sitt á sögu afgönsku
þjóðarinnar. Til marks um þetta má
geta þess að frá árinu 1901 hefur
öllum þjóðhöfðingjum landsins ýmist
verið steypt af stóli eða þeir myrtir.
Glæpaverk Najibullahs
Gulbuddin Hekmatyar sagði í gær
að þeir sem barist hefðu „gegn lönd-
um sínum" á tilteknum landsvæðum
gætu farið fram á náðun svo framar-
lega sem þeir gerðu það einum mán-
uði eftir að sovéska herliðið hefði
verið kallað heim frá þeim stöðum.
Játuðu viðkomandi mistök sín og iðr-
uðust þeirra hefðu þeir ekkert að
óttast. Talsmaður samtaka Hek-
matyars, „Jamiat-i-lslami“, sagði
það alkunna að margir Afganar
Reuter
Sovéskir hermenn fagna heimkvaðningunni skömmu áður en haldið
var af stað áleiðis til sovésku landamæranna frá Kabúl í gær.
hefðu verið neyddir til samstarfs við
kommúnistastjómina í Kabúl og
þessu fólki yrði þyrmt. „En þeir sem
gerðust sekir um morð og glæpi
munu taka út sína refsingu," bætti
hann við.
Skæruliðar hafa einkum hug á að
hafa hendur í hári embættismanna
stjómar Najibullahs, forseta Afgan-
istan, og ráðamanna innan hersins
og öryggislögreglunnar. „Vilji þessir
menn halda lífí verða þeir að fara
til Sovétríkjanna," sagði einn tals-
maður skæruliða í Peshawar í Pakist-
an. „Þegar Najibullah stýrði öryggis-
lögreglunni lét hann drepa allt of
marga," sagði sá hinn sami.
Getum sjálfir varið
afgönsku byltinguna
- sagði Najibullah forseti er hann kvaddi sovéska herliðið
Kabúl, Reuter.
BROTTFLUTNINGUR sovéska herliðsins, sem gerði innrás í Afganist-
an árið 1979, hófst á sunnudag þegar um 1.300 sovéskir hermenn
héldu þá frá borginni Jalalabad í austurhluta landsins til höfuðborgar-
innar Kabúl. 1 gær héldu hermennirnir ásamt 270 skriðdrekum og
brynvörðum bílum í norðurátt áleiðis til sovésku landamæranna. Sov-
éska herliðið í landinu, sem telur um 115.000 menn, mun hafa sig á
brott á niu mánuðum, samkvæmt samkomulagi sem gert var fyrir
tilstilli Sameinuðu þjóðanna.
Sovésku hermennimir voru kvadd-
ir í útjaðri Kabúl og þakkaði Naji-
bullah, forseti Afganistan og leiðtogi
kommúnistastjómarinnar í landinu,
þeim unnin störf. Lúðrasveitir léku
hergöngulög er bryndrekalestin hélt
af stað. Þúsundir afganskra her-
manna og óbreyttra borgara kvöddu
Sovétmennina og héldu margir fán-
um ríkjanna tveggja á lofti. I Kabúl
■mfr
Afgönsk kona, klædd samkvæmt boðum Kóransins, gengur framhjá
veggspjaldi í Kabúl þar sem segir: „Sovésku hermenn! Afganska
þjóðin þakkar ykkur og kveður".
hefur gífurlegum fjölda veggspjalda
verið komið fyrir þar sem sovéska
herliðininu er þökkuð aðstoðin í bar-
dögum stjómarhers og skæruliða
undanfarið átta og hálft ár.
Er Najibullah flutti kveðjúávarp
sitt heyrðust skothvellir í Hindu
Kush-íjöllum skammt norður af höf-
uðborginni og töldu menn víst að þar
væru skæruliðar á ferð. Najibullah
sagði það rangt vera að sovéska
herliðið hefði gert innrás í landið
eins og fullyrt hefði verið í erlendum
fjölmiðlum þvert á móti hefði það
komið til hjálpar „afgönsku bylting-
unni" þegar brýna nauðsyn bar til.
Nú gætu stjómvöld í Afganistan hins
vegar sjálf „varið byltinguna“ án
aðstoðar Sovétmanna.
Allt var með kyrrum kjörum í
Kabúl en á laugardag týndu 16
manns lífí í sprengjutilræði í mið-
borginni og fjórir til viðbótar létu
lífið í eldflaugaárásum skæruliða.
Ottuðust árás skæruliða
Að sögn Helenar Womack, frétta-
ritara /íeuíers-fréttastofunnar, sem
er í för með sovéska herliðinu, gekk
ferðin frá Jalalabad til Kabúl að ósk-
um. Kvaðst hún hafa heyrt skot-
hvelli kveða við í hæðunum fyrir ofan
veginn sem ekið var eftir og einu
sinni sagðist hún hafa heyrt skothríð
nærri veginum. Leiðin frá Jalalabad
til höfuðborgarinnar er um 140 kíló-
metra löng og tók ferðin átta klukk-
stundir. Akveðið var að heimiia 20
erlendum fréttamönnum, þar af fjór-
um konum, að fylgjast með brott-
flutningnum en sovéskir embættis-
menn lögðu á það ríka áherslu að
ferðin kynni að reynast hættuleg
ákvæðu frelsissveitir afganskra
skæruliða að gera bryndrekalestinni
fyrirsát. Að sögn Helenar Womack
ríkti mikil spenna bæði í röðum
blaða- og hermanna á leiðinni til
Kabúl og létti öllum mjög er til borg-
arinnar var komið. í fréttum sovéska
sjónvarpsins á sunndagskvöld sagði
að skæruliðar hefðu gert þijár mis-
heppnaðar árásir á bílalestina.
Kallaðir heim í nafni
„perestrojku“
Fjölmenni mikið var viðstatt
kveðjuathöfn í Jalalabad á sunnudag.
Sovésku hermönnunum voru færð
blóm en sumum var þó augljóslega
annað en þakklæti i huga því nokkr-
ir stjómarandstæðingar ötuðu so-
vésku skriðdrekana auri. Nokkrir
sovéskir herforingjar lásu samtímis
tilkynningu frá miðstjóm sovéska
kommúnistaflokksins þar sem sagði
að þörf væri á kröftum hermannanna
á heimaslóðum til þess að unnt yrði
að hrinda áætlun sovéskra ráða-
manna um endurreisn efnahagslífs-
ins (perestrojku) í framkvæmd.
Að sögn Helenar Womack var
greinilegur léttir og fögnuður í röð-
um sovésku hermannanna yfír því
að brottflutningurinn skyldi vera
hafínn. „Margir okkar hafa hrifíst
mjög af þessu landi. En nú er kom-
inn tfmi til að fara, okkur fínnst við
hafa gert það sem við gátum,“ sagði
einn þeirra. Annar sem varð eftir í
Jalalabad kvaðst vera leiður yfír því
að sjá á bak félögum sínum. „Ég
verð kominn heim eftir mánuð, ég
held éggeti þraukað eilítið lengur,".
Að sögn sovésks herforingja,
Vladimírs Bogdanovs, er gert ráð
fyrir því að brottflutningi herliðsins
frá Jalalabad verði lokið innan
tveggja vikna fyrir fund þeirra
Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleið-
toga og Ronalds Reagans Banda-
rílqaforseta f Moskvu sem hefst þann
29. þessa mánaðar. Samkvæmt
ákvæðum Genfar-sáttmálans um
heimkvaðningu sovéska herliðsins
skulu hermennimir allir hafa snúið
til síns heima eftir níu mánuði og
er gert ráð fyrir því að helmingur
heraflans hafa verið fluttur til Sov-
étríkjanna fyrir 15. ágúst.
Súdan:
Sjö menn
myrtir
Khartoum. Reuter.
FIMM útlendingar og tveir Súd-
anir voru myrtir í Khartoum,
höfuðborg Súdan í fyrradag, er
vopnaðir menn réðust inn í hótel
og veitingastað, þar sem útlend-
ingar, einkum starfsmenn hjálp-
arsamtaka, venja komur sínar.
Þrír menn með líbönsk vegabréf
hafa verið handteknir vegna
málsins.
Mennirnir skutu af vélbyssum og
vörpuðu jafnframt handsprengjum
á Acropole-hótelið og Sudan Club-
veitingahúsið. Atvikið átti sér stað
aðeins hálftíma áður en ný ríkis-
stjóm sór embættiseið í forsetahöll-
inni, sem er steinsnar frá morð-
staðnum.
Fjögurra manna brezk fjölskylda
var meðal þeirra, sem myrtir voru
á Acropole-hótelinu, en um 20
manns sátu að snæðingi er sprengju
var varpað inn í matsal hótelsins.
Auk þeirra sem biðu bana særðist
21 maður í árásinni á hótelið og
veitingastaðinn. Að sögn sjónar-
votta voru þrír menn að verki, hin-
ir sömu og hafa verið handteknir.
Maður var handtekinn er hann
fleygði frá sér vélbyssu fyrir utan
hótelið skömmu eftir árásina. Fimm
menn til viðbótar, allt Palestfnu-
menn, sem bjuggu á öðru hóteli,
voru einnig teknir til yfirheyrslu.
Ríkisstjórnin, sem tók við völdum
á sunnudag, er þjóðstjórn. Forsæt-
isráðherra er Sadeq al-Mahdi, leið-
togi Umma-flokksins, en hann veitti
einnig fráfarandi stjórn forstöðu. í
stjóminni sitja 29 ráðherrar. Hass-
an al-Tourabi, leiðtogi hinnar her-
skáu fylkingar múhameðstrúar-
manna, NIF, sagðist hafa gengið
til samstarfs við al-Mahdi eftir að
hafa verið lofað að löggjöf Kórans-
ins yrði að landslögum fyrir júnílok.
Þau munu þó aðeins ná yfír múha-
meðstrúarmenn. Refsingar i anda
Kóransins voru látnar niður falla
eftir að herinn steypti Jaafar Ni-
meiri, forseta, í byltingu í apríl
1985.
ísrael:
Tveir Pal-
estínumenn
drepnir
Tel Aviv, Reuter.
ÍSRAELSKAR hersveltir skutu
tvo Palestínuaraba til bana í gær
og særðu nokkra til viðbótar.
Mennirnir höfðu gert aðsúg að
ísraelum, en ofbeldisalda braust
út að nýju á hernumdu svæðun-
um í gær.
Talið er að ofbeldisaldan standi
í tengslum við trúarhátíðina Eid
Al-Fitr, en með henni lýkur helgi-
mánuðinum Ramadan. Að undan-
förnu hefur lítið verið um óeirðir
eða blóðsúthellingar á hemumdu
svæðunum og hefur verið bent á
að Arabar séu lítt til ófriðar líkleg-
ir þegar þeir fasta frá sólarupprás
til sólseturs í heilan mánuð.
Óttast er að ofbeldi kunni að
bijótast út af fullum krafti að nýju,
nú þegar Ramadan er lokið. Hafa
Israelar þegar hert varúðarráðstaf-
anir til þess að reyna að hamla
gegn slíku.
ERLENT
r