Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 38

Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, ÁrniJörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Askriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 60 kr. eintakið. Landgrunnslög - verndun fiskimiða Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra: Samstaða um aðger forsenda stjóraarsan Framsóknarflokkurinn með óraunhæfar tillögur Um þessar mundir eru fjöru- tíu ár liðin frá setningu laga nr. 44/1948 um vísinda- lega vemdun fískimiða land- grunnsins. Það var ríkisstjóm Stefáns Jóhanns Stefánssonar (1947-1949), samstjóm Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, sem stóð að þeirri lagasetningu. Óvíst er hvort nokkur önnur lagasmíð hefur markað önnur eins tíma- mót í samfelldri baráttu þjóðar- innar fyrir efnahagslegu sjálf- stæði. Með setningu landgmnns- laganna 1948 var lagður hom- steinn að framtíðarstefnu ís- lendinga í fískvemd og hagnýt- ingu fískimiðanna. Allar út- færslur fískveiðilandhelginnar; í fjórar mílur 1952, í 12 mílur 1958, í 50 mflur 1972 og loks í 200 mílur 1975 vóm byggðar á landgmnnslögunum. Sama má segja um flestar aðrar stjómunaraðgerðir, sem fram- kvæmdar hafa verið í því skyni að vemda fískistofna og físki- mið. Sýnir þetta bezt hve lögin vóm sett af mikilli framsýni. Lokasigurinn vannst með út- færslu fískveiðilandhelginnar í 200 mflur 1975. Það var Matt- hías Bjamason, sjávarútvegs- ráðherra í ríkisstjóm Geirs Hallgrímssonar, samstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks, sem undirritaði reglu- gerð um útfærsluna. Með henni var landhelgin færð út í 200 mflur frá og með 15. október 1975. Með útfærslu í 200 mflur hurfu erlendir fískveiðiflotar að mestu af íslandsmiðum. Þegar þess er gætt að árið 1959 — eftir útfærslu í 12 mílur — veiddu íslendingar aðeins 52% af heildarbotnfískafla við landið, og 1974, eftir útfærslu í 50 mílur aðeins 63%, má ljóst vera, hveija þýðingu síðasta útfærslan hafði fyrir íslenzkan þjóðarbúskap og íslenzk lífskjör. Engum blöðum er um það að fletta að auðlindir sjávar em meginundirstaða efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar og lífskjara í landinu. Þessar auð- lindir hafa hinsvegar nýtingar- mörk sem ekki má fara yfir. Veiðisókn umfram veiðiþol rýrir viðkomandi nytjastofn og getur leitt til hmns tegundarinnar þegar verst gegnir. Hmn Norð- urlandssfldarinnar, sem var ein gjöfulasta tekjulind þjóðarinnar á fyrri helmingi aldarinnar, þarf uð vera okkur víti til vamaðar. Æskilegt er að helztu nytja- stofiiar nái þeirri stærð, sem aðstæður í lífríki sjávar frekast leyfa, — og gefí hámarksaf- rakstur í þjóðarbúið. Brottvísun erlendra veiðiflota af ísland- smiðum og innlend veiðistýring hafa ekki nægt enn sem komið er til að ná þessu marki. Þorsk- stofninn — og stofnar ýsu og karfa — hafa minnkað, að dómi fískifræðinga, þrátt fyrir margs konar veiðitakmarkanir á liðn- um ámm. Ólafur Karvel Pálma- son, fískifræðingur, sagði í við- tali við Morgunblaðið fyrir fáum dögum, að mikil umskipti hafí orðið í nýliðun þorsks og að árgangamir 1986 og 1987 virð- ist mjög slakir. „Við gefum okk- ur að afli minnki," sagði físki- fræðingurinn, „en ekki hversu mikið því það em fleiri árgang- ar sem spila inn í en þessir tveir". Þrátt fyrir ítrekaðar viðvar- anir fískifræðinga virðist veiði- sókn hafa verið umfram veiði- þol. Rétt er að vísu að taka verður tillit til fleiri hliða sjávar- útvegsdæmisins en þeirrar físki- fræðilegu. Atvinnusjónarmið, byggðasjónarmið og önnur þjóð- hagssjónarmið koma sterklega inn í myndina og fram hjá þeim verður ekki horft. En dæmið gengur hinsvegar ekki að fullu upp — í leikmannsaugum — ef fískvinnsla er víðast rekin með tapi, ef offramboð á ferskfíski leiðir til verðfalls erlendis, á sama tíma og gengið virðist á höfuðstól þorskstofnsins. Spuming er hvort ekki sé betra að geyma fisk óveiddan, þar sem hann vex að stærð og verð- mæti, en stuðla að offramboði og verðfalli. Það skiptir máli hvem veg veiðiréttur útgerðar- aðila er nýttur. Fagna ber á hinn bóginn lokun veiðisvæða þar sem smáfískur heldur sig og aðgerðum til að koma í veg fyrir veiðar á ókynþroska físki. Tryggja verður sjávarútvegs- greinum rekstrarskilyrði. Að hluta til kunna þau skilyrði að felast í endurskipulagningu. Að hluta til í því að halda tílkostn- aði þeirra [verðbólgu] innan þeirra marka sem söiuverð framleiðslunnar setur. Til lengri tíma litið byggist rekstrar- grundvöllur sjávarútvegsins og þjóðarbúsins, sem og lífskjör í landinu, fyrst og fremst á því, að standa órofa vörð um undir- stöðuna, fískimiðin, lífríki sjáv- ar. Lögin um vísindalega vemd- un fiskimiða landgmnnsins frá í apríl 1948 mættu gjaman verða okkur umhugsunarefni nú þegar fjörutíu ár eru liðin frá setningu þeirra. ÞORSTEINN Pálsson forsætis- ráðherra segist ekki hafa áhuga á að sitja í forustu fyrir ríkis- stjórn sem ekki nái saman um nauðsynlegar aðgerðir og ef grundvöllur eigi að vera fyrir áframhaldandi stjórnarsam- starfi verði á næstunni að nást samstaða um brýnustu aðgerðir og áframhaldandi aðhald í efna- hagsmálum og uppbyggingu atvinnulífsins. Hann segir að óraunhæfar tillögur Framsókn- arflokksins hafi orðið til þess að ekki hafi um helgina náðst samstaða í ríkisstjórninni um brýnustu aðgerðir samhliða gengisfellingunni sem ákveðin var á sunnudagskvöld. STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin hafi verið „tekin í bólinu“ og alls ekki ver- ið tiibúin til þess að ákveða hlið- arráðstafanir með gengisfelling- unni sem ákveðin var á sunnu- dagskvöld. Hann segir að ríkis- stjórnin hafi veikst vegna þessa og ef hún nái ekki saman um tillögur fyrir 1. júní, eins og stefnt er að, sé komið i mikið óefni. Steingrímur segir að þing- flokkur Framsóknarflokksins hafi þó ákveðið að samþykkja tiUögu forsætisráðherra um að fresta aðgerðum til 1. júní þar sem í tiUögunni sé jafnframt tekið af skarið með að höggva skuli á víxlverkun verðlags, gengis, launa og fjármagns- kostnaðar. Steingrímur hefur boðað miðstjómarfund í Fram- sóknarflokknum f byrjun júní tU að meta stöðu mála . Steingrímur Hermannsson boð- aði til blaðamannafundar í gær vegna ummæla Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra í fíölmiðlum á sunnudag um tillögur sem Fram- sóknarflokkurinn lagði fram í ríkis- stjóminni. Steingrímur sagðist ekki geta setið undir þeim ummælum að þessar tillögur væru óábyrgar og hefðu staðið í vegi fyrir því að samkomulag náðist um efnahagsr- áðstafanir yfir helgina. Tillögumar era í 22 liðum um ráðstafanir í efnahagsmálum og sagðist Steingrímur hafa lagt þær fram á fundi í ráðherranefnd á föstudagskvöldið til að stuðla að umræðugranvelli á fundinum. Al- þýðuflokksmenn hefðu einnig lagt fram ýtarlegar tillögur en Sjálf- stæðisflokkurinn hefði lagt fram almennar ábendingar í 6 liðum. Steingrímur sagði að um þessar - tillögur hefðu orðið málefnalegar umræðum og að sínu mati hefði komið fram veralegur grandvöllur til samkomulags. Steingrímur fór yfír tillögur framsóknarmanna og sagði þunga- miðju þeirra vera að koma í veg fyrir víxlhækkanir í kjölfar gengis- fellingar, draga úr þenslu og koma Þegar Morgunblaðið spurði Þor- stein Pálsson hvort helgin hefði í raun verið árangurslaus, sagði hann svo ekki vera þar sem ákvörðun hefði verið tekin um gengisbreytinguna. „Ég var og er hinsvegar þeirrar skoðunar að henni hefðu þurft að fylgja brýn- ustu stuðningsaðgerðir um leið. Ég lagði til á föstudagskvöld að teknar yrðu ákvarðanir um þessar aðgerðir og mínar tillögur voru þær að rauð strik yrðu afnumin, kaupmáttur lægstu launa yrði tryggður með sérstökum aðgerð- um og lífeyrisþegum yrði bætt kaupmáttarskerðingin. Jafnframt var það okkar tillaga að samning- ar láglaunafélaganna yrðu varðir atvinnuvegunum til aðstoðar með öðram hætti en gengisfellingu en í tillögunum er talað um t.d. 15% gengisfellingu. Þar er meðal annars lagt til að rauð strik verði afnumin en um leið verði vísitölubinding lána og verðlags afnumin. Steingrímur sagði að ekki væri unnt að þvinga launþega til að hverfa frá rauðum strikum nema afnema vísitölubindingu á langtum breiðari grandvelli og ekki síst á fjármagninu til að koma í veg fyr- ir m.a. það misgengi sem varð 1983 á launum og fjármagnskostn- aði. Sú tillaga sem forsætisráðherra deildi aðallega á er að lánskjaravísi- tala af eldri húsnæðislánum verði afnumin en vextir hækki í 5% á almennum lánum og 3% á félags- þannig að þau félög sem hafa hærri laun og eiga eftir að semja, taki ekki meiri hækkanir en lág- launafélögin. Loks lagði ég til að tillaga Seðlabanka um hækkun bindi- skyldu bankanna úr 13% í 15% yrði samþykkt og við voram til- búnir til að semja við ávöxtunar- sjóðina um að þeir tækju þátt í þeim aðgerðum með kaupum á ríkisskuldabréfum. Við töldum þannig nauðsynlegt að ákvarðanir í peningamálum yrðu ákveðnar til að vega á móti innspýtingaráhrifn- um gengisbreytingarinnar og koma í veg fyrir þenslu. Samhliða þessu lögðum við til aðhaldsað- gerðir í ríkisfjármálum. legum lánum. Steingrímur sagði, að samkvæmt útreikningum um verðbólguþróun í kjölfar efna- hagsráðstafananna í heild, myndi þetta kosta 7 miiljarða ef breyting- in kæmi til framkvæmda miðað við núverandi verðbólgu. Ef breytingin kæmi til framkvæmda 1. september myndi hún kosta 3 milljarða en 1. desember væri kostnaðurinn 2 milljarðar ef miðað væri við að verðbólgan yrði 5% á næsta ári. Steingrímur sagðist leyfa sér að vera svo bjartsýnn að segja að ef tekið yrði einu sinni á efnahagsmál- unum af kjarki þá væri hægt að ná verðbólgu niður í það sem væri í nágrannalöndunum. Ef það tækist ekki væri vonlaust að reyna að taka þátt í því Evrópusamstarfí sem stefnt væri að. Ríkisstjórnin hefur veikst vegna atburða helgarinnar -segir Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins Morgunblaöið/Ólafur K. Magnússon Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, á blaða- mannafundinum sem hann boðaði til í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.