Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 49 Morgunblaðið/Ingiberg J. Hannesson Skólakórinn söng undir stjórn Björns Guðmundssonar kennara. Dalasýsla: Fjölsótt árshá- tíð Laugaskóla Saurbæ, Dalasýslu. í M ARSLOK var árshátið Lauga- skóla haldin að venju og var boð- ið upp á langa og góða dagskrá. Samkoman var haldin í Dalabúð í Búðardal. Nemendur yngstu bekkjanna sáu um fjölbreytta sjónvarpsdagskrá, þá var söngur nemenda bæði yngri og eldri og flutt var leikritið „Rambo verður hreppsstjóri" eftir einn kennara skólans, Ragnar Inga Aðalsteinsson. Þá voru ýmsir grínþættir á dagskrá, tónlistar- flutningur yngri og eldri nemenda auk hljómsveitar skólans og fleira var til skemmtunar. Var haldið uppi góðri skemmtan, en að henni lokinni var borinn fram kvöldverður í umsjá nemenda og síðan stiginn dans. Þótti skemmtun þessi takast hið besta og vera nemendum skól- ans og starfsliði til hins mesta sóma. Vonast er til þess að næstu árs- hátíð skólans verði hægt að halda heima á Laugum í hinu nýja íþrótta- húsi, sem senn verður fullbúið, ef fram fer sem horfir. Verður það mikil breyting til batnaðar í öllu íþrótta- og félagslífí skólans. - IJH Morgunblaðið/ Ingibcrg J. Hannesson Veðurfregnir í sjónvarpi Laugaskóla voru á sínum stað með spá um blítt og sólbjart sumar. verksmiðjunum því margar smá- verzlanir og tóbaksbúðir kynnu að fara á hausinn. Samkvæmt áætlun Finks verða reykingar með öllu bannaðar í sjúkrahúsum, skólum, bamaheimil- um og leikvöllum. Einnig á lækna- stofum, í húsnæði sem notað er til kennslu- eða námskeiðahalds, í bið- stofum opinberra- og einkafyrir- tækja, í salarkynnum, sem starfs-. menn fýrirtækja nota til hvíldar, í matstofum, móttökusölum, salem- um og lyftum. Ennfremur er í ráði að banna reykingar í öllum öðrum opinbemm byggingum og stoftiunum, einnig skrifstofubyggingum þjónustufyrir- tækja og söluskrifstofum. Sagan er þó ekki öll sögð, því yfirvöld í Vestur-Berlín vilja einnig torvelda tóbakssölu. Sígarettusjálfsalar verða til að mynda fjarlægðir og bannaðir í þessum byggingum og framangreindu húsnæði. Loks gerir áætlun Finks ráð fyr- ir því að reykingamönnum og reyk- lausum verði stíað sundur á vinnu- stað, komi slík krafa fram hjá þeim síðamefndu. Það er ekki aðeins í Vestur- Berlín sem ákveðið hefur verið að grípa til rótttækra reykingavama. Yfirvöld í Baden-Wurttemberg hafa farið að fordæmi þeirra og sagt reykingamönnum stríð á hendur. Yfirvöld í Vestur-Berlín vonast til að ná fmmkvæði í heilsuverndar- málum í Vestur-Þýzkalandi. Höf- undar reykingavarnaáætlunarinn- ar, sem kennd er við Ulf Fink, segja að tími raunhæfra aðgerða sé mnn- inn upp og að hálfkák og ábending- ar um skaðsemi reykinga dugi ekki lengur. Þeir halda því fram að reykingamaður minnki raunvera- lega lífslíkur sínar um áratug. Einn- ig að þriðjung dauðsfalla af völdum krabbameins megi rekja beint til tóbaksneyzlu og að flestir þeirra, sem deyja úr hjartaslagi fái slag vegna þess að þeir reyktu. Tóbaksframleiðendur hafa vísað þessum fullyrðingum á bug og sagt andlátstölur af völdum hjartaslags og krabbameins falsaðar í pólitísk- um tilgangi. Skýrt hefur verið frá að árið 1985 hafi 23.614 menn dáið í Vestur-Berlín. Helmingur þeirra hafi fengið hjartaslag en 7.015 manns dáið af völdum krabbameins. Samkvæmt opinbemm skýrslum hefur sígarettusala staðið í stað í Vestur-Þýzkalandi um árabil. Hefur árssalan numið 23 milljörðum þýzkra marka, eða jafnvirði 529 milljarða íslenzkra króna. Víða í Bandaríkjunum hefur ver- ið gripið til reykingavarna. Vestur- þýzkur ferðamaður komst að því á dögunum að þar í landi em menn stórtækir. Hann hafði tæplega kveikt í sígarettu í veitingahúsi þegar lögreglumenn komu askvað- andi. Handtóku þeir nautnasegginn og stungu honum í steininn, þar sem hann fékk að dúsa í tvo daga. (Heimild: Frankfurter Rund- schau) 5 i i VATN gjörðu svo vel Hvort sem þú ætlar aö veita vatni um lengri eöa skemmri veg er varla til auðveldari og ódýrari leiö en gegnum rörin frá Reykjalundi. Rörin frá Reykjalundi eru viöurkennd fyrir gæði og auðvelda meöferö. Flestarstæröirvatnsröra, kapalröra, frárennslisröra og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og meö tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt að afgreiða sverari rör. Sérstök áhersla er lögö á mikla og góða þjónustu. Rörin frá Reykjalundi - rör sem duga. REYKIALUNDUR Söludeild • Sími 666200 i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.