Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 58 Minning: Haukur Sigurðs- son skipsíjóri Fæddur 26. september 1922 Dáinn 8. maí 1988 Látinn er Þorgils Haukur Sig- urðsson, fyrrum skipstjóri, 65 ára að aldri. Það er ekki lítið sem þjóðin hefur að þakka mönnum eins og Hauki. Hann sótti sjó í fulla fjóra tugi ára og hefur hreint ekki fært lítil verð- mæti að landi. Verður slíkt seint fullþakkað. Haukur fæddist á Hnausi í Flóa í Amessýslu. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Þorgilsson frá Reykjum á Skeiðum og Vilhelmína Einksdóttir frá Votumýri í sömu sveit. Þau giftu sig árið 1919 og eignuðust sjö böm. Dóu þijú þeirra mjög ung en ljögur náðu fullorðins- aldri: Bjami, fyrrum prestur á Mos- felli, Haukur, sem hér er kvaddur, Eiríkur, sjómaður á Suðureyri við Súgandafjörð og Steingerður, gjaldkeri, sem býr í Kópavogi. Móðirin unga veiktist af berklum og fór á Vífilsstaðahælið 1928 og varð það til þess að heimilið tvístraðist um sinn. Bömunum var komið fyrir sínu á hverjum bænum, hjá r.ágrönnum, Hauki á Urriða- fossi. Sigurður seldi allt búið og fór að vinna í Reykjavík. Þá var það að hann hitti þar ein- hvem dag Bjama Bjamason, er orðinn var skólastjóri á Laugarvatni en átti myndarbú á Straumi við Straumsvík. Þekktust þeir lítillega frá unga aldri og vom báðir góðir glímumenn. Sigurður gerðist ráðs- maður Bjama í Straumi 1930 og tók til sín böm sín íjögur. Þetta gerði hann til að fjölskyldan gæti verið í nánd við eiginkonu og móð- ur á Vífílsstaðahæli. En í nóvember um hausið lést Vilhelmína og voru bömin þá öll innan við tíu ára ald- ur. Þarf ekki að fara í grafgötur um hvílíkur harmur hefur verið kveðinn að föður og bömum. Er Sigurður kom að Straumi með böm sín og ráðskonu var þar ein- göngu sauðfj'árrækt, þetta 400—500 fjár sem Bjami átti en Sigurður kaus að hafa blandaðan búskap og hafði kýr, sem hann átti sjálfur. Flestar urðu þær 6—8. Hey- skapur var ákaflega erfiður því allt varð að vinna með gömlu amboðun- um, orfí og ljá. Bjami hafði keypt nokkur eyðikot og lagt undir Straum og landið var svo stórt að girðingin var um 20 km að um- máli. Fjöguira manna far, sem Bjami átti, var í Straumi og reri Sigurður á því til fískjar ásamt nágrönnum eða sonum sínum. Sig- urður var afburða duglegur maður og ósérhlífínn og svo sterkur að fyrir kom að hann reri einn til fískj- ar á hinum þunga báti. Árið 1931 réðst Guðrún Elís- dóttir frá Borgarfírði eystra ráðs- kona að Straumi. Varð hún seinni kona Sigurðar og saman áttu þau einn son, Vilhjálm, er býr á Miðja- nesi í Reykhólasveit. Faðir Hauks lést 1971 en stjúpa hans lifir í hárri elli. Ellefu ára gömul fóru bömin í Straumi í bamaskólann í Hafnar- fírði en höfðu notið kennslu heima áður. Stóðu þau sig síst verr en önnur börn í skólanum, þótt þau sæktu skólann þrjá vetur í stað fjög- urra. Sex km leið var frá Straumi í skólann og varð að koma bömun- um fyrir hjá fjölskyldum í Hafnar- fírði um háveturinn, þá daga er kennt var, en heim komu þau um helgar. Systkinin í Straumi gengu á kú- skinnsskóm öll bemskuárin en í skólann fóm þau á gúmmískóm, sem skósmiður í Hafnarfirði gerði. Sem ungingur vann Haukur utan heimilis til að ná í aura, sem mnnu í búið, var í girðingarvinnu og vega- vinnu. í þá daga stungu ungiingar ekki aflafé sínu á sig. Haukur var tvo vetur í Laugar- vatnsskóla og tók þaðan burtfarar- próf 1942. Burtfararprófí frá Stýri- mannaskólanum lauk hann 1947. Þann 1. júlí 1950 steig Haukur mikið gæfuspor er hann kvæntist fágætri mannkostakonu, Hólmfríði Bjamadóttur hárgreiðslumeistara, dóttur Bjama Jónssonar yfirverk- stjóra í Hamri og konu hans, Ragn- heiðar Einarsdóttur. Frá 1955 hefur heimili þeirra staðið á Hlíðarvegi 55 í Kópavogi og hafa þau eignast sex böm, fímm dætur og einn son. Þau em: Ingunn Guðrún, gift Valdi- mar Emi Sverrissyni, Sigurður, kvæntur Guðrúnu Svövu Pálmars- dóttur, Guðrún, gift Liljari Sveini Heiðarssyni, Sif, gift Gísla Karls- syni, Steingerður, trúlofuðuð Guð- jóni Magnússyni og Ragnhildur Bima. Fyrir hjónaband eignaðist Haukur Sigríði Valdísi sem gift er Ómari Sigurðssyni. Em bamaböm Hauks 17 talsins og eitt bama- bamabam átti hann. Haukur var hagmæltur vel og átti létt með að yrkja. Er Ingunn, elsta dóttir þeirra Fríðu, fæddist, orti hann yndislegt kvæði; sem þessi erindi em í: Eg bið að drottis líknarhönd þig leiði, svo lendir þú ei út á eyðihjam; ég bið að ávallt götu þína hann greiði, gæfu svo þú verðir ávallt bam. Trúðu ávallt á hinn tigna drottin, treystu því að hann hugsar um sitt; minnstu þess hvar manngæskan er sprottin, mundu að þú ert jólabamið mitt. Það er fágætt að horfa upp á jafnsamrýmda fjölskyldu og fjöl- skyldan á Hlíðarvegi 55 var. Hjónin bám falslausa ást í bijósti hvort til annars, leið best saman og um þau safnaðist fjölskyldan. Alltaf var á heimilinu rúm fyrir unga fjölskyldu einhvers bama þeirra, svo auðveld- ara yrði henni „að eignast þak yfír höfuðið í rólegheitum". Það var sannarlega hollt veganesti bömum þeirra, tengda- og bamabömum að sitja við þann heimilisarin. Á heimilinu var ekki aðeins rúm fyrir nánustu fjölskyldu, heldur vom fjölskyldubönd við systkini hjónanna beggja og þeirra íjöl- skyldna rækt af mikilli alúð. Yfir dymm heimilisins á Hlíðarvegi 55 í Kópavogi hefðu vel mátt standa þessi orð úr Biblíunni: „Kærleikur- inn gjörir ekki náunganum mein, þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins." (Rómveijabréf 13.10.) Fríða og Haukur vom vinir mínir og minna í þess orðs sönnustu merkingu. Við Haukur vom skyld að langfeðgatali, áttum sameigin- legan langalangafa í Ófeigi ríka Vigfússyni á Fjalli á Skeiðum og fann ég til mikils andlegs skyldleika við Hauk er við ræddum saman um þjóðmál t.d., og í fari hans skynjaði ég karimennskuna, æðmleysið, ró- lyndið, fumleysið og hina skörpu greind sem mér fínnst einkenna ýmsa menn af Fjalls- og Reykjaætt. Foreldrar okkar Fríðu vom í hópi fmmbyggja í Kópavogi, reistu sér sumarbústaði á svæði sem nú af- markast af Hlíðar- og Fífuhvamms- vegi og var ekki sjaldan sem við bömin í bústöðunum við lækinn fómm í „kýló“ á fögm sumarkvöld- um. Hauki kynntist ég þegar foreldr- ar mínir lánuðu mér og mínum bústað sinn að sumarlagi fyrir og um 1960. Böm okkar vom á líku reki, svo fjölskyldumar féllu vel saman. Frá 1942—62 var Haukur á tog- uram. Hann fór 19 ára gamall sem háseti á togarann Venus frá Hafn- arfírði sem Vilhjálmur Ámason var skipstjóri á og var þar í fímm ár. Tvö ár var hann háseti og 2. stýri- maður á bv. Keflvíkingi hjá Hall- dóri Gíslasyni en fór svo á síld. Hinn 8. nóvember 1950 réðst hann til Júpítersfélagsins í Reykjavík, fór háseti til Bjama Ingimarssonar á Neptúnusi og vann sig upp í að taka við skipinu af Bjama þegar hann fór á nýja Júpíter. Haukur ofkældist eitt sinn í fískitúr til Grænlands og fékk berkla upp úr því. Hann fór veikur í land í sepember 1960 en tók við skipstjóm á bv. Úranusi af Helga Kjartanssyni vorið 1961 og var með skipið við góðan orðstír á annað ár. Eftirfarandi er haft eftir Ólafí Bjömssyni, skipstjóra í Keflavík, sem var náinn vinur Hauks: „Fyrstu kynni mín af Hauki vom þau að hann kom 19 ára gamall á Venus vorið 1942 og þar héldu menn plássi aðeins með því að vera duglegir. Það var ekki algengt að unglingar hefðu þrek og dugnað til að halda slíku plássi. Okkur varð strax mjög vel til vina. Hann var þeirrar gerðar að hann var fámáll og komust ekki allir inn að beini á honum en ég naut þess að komast það og við urðum njög nánir vinir og vomm það alla tíð þó við höfum ekki oft verið í sambandi hvor við annan hin seinni ár. Hann fór hefð- bundna leið duglegra togaramanna og fór í Stýrimannaskólann. Hann var sérstakur lánsmaður í hjóna- banndi sínu og það var honum mik- ill styrkur þegar hann veiktist af berklum, því auðvitað er það mikið áfall að fá slíkan sjúkdóm og verða að gefa upp það ævistarf sem stefnt var að. Haukur var dæmigerður maður til þess að uppfylla þær hörðu kröfur sem gerðar vom og em til þeirra manna sem ætla að verða togaraskipstjórar. Eftir veik- indin hafði hann ekki þrek til að stunda þetta lífsstarf. Þann stutta tíma sem hann var togaraskipstjóri var hann sérdeilis farsæll, bæði hvað afla og annað varðaði. Hann átti fyrir sér ömggt starf hjá þessu mæta fyrirtæki, því hann hafði unnið sér traust og tiltrú ráða- manna þess, en þeir gerðu meiri og .strangari kröfur til manna en almennt gerðist. Ég efast ekki um að sjálfur hefði hann kosið að vera þar áfram. Ég á mjög góðar minn- ingar um Hauk. Hann var skarp- greindur og á allan handa máta vel gerður maður.“ Eftir að Haukur lét af skipstjóm á Úranusi var hann skipstjóri á ýmsum bátum. Hann keypti ásamt öðmm bátinn Hilding VE 3, sem gerður var út frá Reykjavík, veiddi vel á hann en varð fyrir því tjóni að vegna þurrafúa varð að brenna á bátinn á rúmsjó. Tvö ár, 1974—76, dvaldist fjöl- skyldan á Suðureyri við Súganda- fjörð. Fór Haukur þangað til að leiðbeina Súgfírðingum við troll- veiðar. Einnig fékkst hann við við- gerðir á veiðarfæram o.fl. Árið 1979 fór hann stýrimaður á Keflavíkurtogarann Bergvík, sem Kristinn Gestsson er skipstjóri á og var þar á fimmta ár en kom þá í land og fór að vinna í BYKO. Tengdasonur Hauks, Gísli Karls- son, var með honum á Bergvíkinni. Honum segist svo frá: „Ég gleymi aldrei atviki, sem gerðist er við vomm á siglingu út af Straum- nesi í vonskuveðri. Við fengum á okkur brotsjó er lagði skipið á hlið- ina. Ég sat í borðsal ásamt öðmm skipveijum en Haukur var á frívakt t Jarðarför KRISTfNAR JÓHANNSDÓTTUR frá Mýrartungu verftur gerð frá Fossvogskirkju miftvikudaginn 18. maíkl. 15.00. Jóhann Jónsson. t Kveftjuathöfn um föftursystur okkar, SOFFÍU PÁLMADÓTTUR MAINOLFI fyrrum kaupkonu á Laugavegi 12, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 13.30. Auður Ingvarsdóttir, Sigurður Ingvarsson. Pálml Ingvarsson. Lokað Lokað eftir hádegi miðvikudaginn 18. maí vegna útfarar JÓNASAR GUNNARSSONAR kaupmanns. Kjötborg, Ásvallagötu, Kjötborg, Stórholti. Lokað Skrifstofur okkar verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR. Lögmannsstofan Hverfisgötu 50, Ásgeir Þór Árnason hdl., Óskar Magnússon hdl. í koju. Þar sem skipið lá á hliðinni og hurð í borðsal var gegnt þeirri hlið sem skipið lá á, gekk okkur mjög erfíðlega að komast upp gólf- ið að hurðinni. Greip mikil örvænt- ing um sig. Mér tókst að komast fyrstur að hurðinni og sá ég þá Hauk koma aftur eftir ganginum, brúnaþungan en yfirvegaðan. Er við komum upp á dekk var ljóst að við höfðum misst bæði belg og poka útbyrðis og hafði hleri fyrir flot- troll farið í sjóinn en hékk í skipinu á vírstroffu, sem gat slitnað þá og þegar. Það gengu boðaföllin yfir skipið og afar erfitt var að athafna sig. Þá komu vel í ljós þeir eðliskost- ir sem mér fundust ætíð einkenna þennan vitring og höfðingja. Með fáum orðum, yfírvegaður og ákveð- inn, sagði hann mönnum hvað hver ætti að gera og framkvæmdi sjálfur öll vandasömustu og erfíðustu verk- in til að bjarga þessu verðmæta stykki úr sjó. Er við höfðum gengið frá því sem aflaga hafði farið, sagði hann okkur að fara undir þiljur. Sjálfur kom hann síðastur, tók af sér yfírhöfnina, drakk með okkur kaffí og spjallaði um daginn og veginn eins og ekkert hefði í skor- ist. Þar fór fyrir heill, sannur og trúr höfðingi sem aldrei gleymist." Eftir að Haukur lagðist banaleg- una seint á síðasta ári hafði hann orð á því við mig hve dásamlegrar aðhlynningar hann nyti á deild A6 í Borgarspítalanum. Glaðastur var hann samt er af honum bráði og hann gat farið heim og legið þar. Tók Fríða sér frí frá vinnu til að geta sinnt honum. Hann lést í Borg- arspítalanum þann 8. þ.m. Þau em falleg orðin, sem nafni hans, 7 ára gamall, sagði eftir að afí hans var orðinn rúmfastur: „Ég vildi að ég ætti óskabmnn, þá gæti ég óskað mér að afa myndi batna.“ Hauk, vin minn, kveð ég með söknuði og Fríðu og fjölskyldunni allri sendi ég einlségar samúðar- kveðjur. Rannveig Tryggvadóttir Þann 8. maí bámst mér fréttir af andláti Hauks fóðurbróður míns. Þetta vom fréttir sem komu að vísu ekki að óvömm en mann setur hljóðan og minningamar hrannast upp. Þennan dag skein sól í heiði, golan var hressandi og vorið og sumarið innan seilingar. Minningar mínar um Hauk vom í svipuðum anda — tengdar birtu og sólskini, ferskleika og vori. Sól ég sá svo þótti mér sem ég sæi göfgan guð; henni ég laut hinsta sinni alda heimi í. (úr Sólarljóðum) Við Þóra vottum elsku Fríðu og öllu frændfólki mínu innilegar sam- úðarkveðjur. Bjarki Bjarnason Mig langar til að minnast tengda- föður míns, Hauks' Sigurðssonar, sem í dag er kvaddur hinstu kveðju. Útför hans fer fram frá Kópavogs- kirkju. Ég kom fyrst inn á heimili Hauks og Fríðu fyrir tæpum átta ámm og ekki tók langan tíma að sjá að þama var mikill maður, traustur og hjartahlýr. Haukur varði mest allri starfsævi sinni til sjós og margar góðar og skemmtilegar minningar átti hann frá þeim ámm. Þegar hann sagði sögur af sjónum, þá var frásagnar- hæfileiki hans þannig, að það var unun að hlusta á. Árið 1982 hætti Haukur til sjós, eftir rúmlega fjögurra áratuga starf, og tók að starfa hjá BYKO. Þá gat hann verið meira heima hjá fjölskyldu sinni, sem var honum svo mikils virði. Síðastliðið haust þurfti Haukur að hverfa frá vinnu sinni, sökum sjúkdóms þess, sem nú hefur bugað þennan sterka mann. Eftir að Haukur veiktist kom enn betur í ljós að sjálfsstjóm hans var með eindæmum. Aldrei skipti hann skapi þessa mánuði sem hann var rúmliggjandi, þó að kvalir hans væm óbærilegar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.