Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
JS4
drillur
Litir: Hvítt, svart,
rautt, gult, dökkblátt,
kakí, beige.
Stærð: 24-46.
Póstsendum.
5% staðgreiðsluafsláttur.
KRINGWN
KblHeNM
Sími 689212.
Súnar 35408 og 83033
UTHVERFI | KOPAVOGUR
Síðumúli o.fl. Laufbrekka
Rauðagerði_______
AUSTURBÆR
Barónsstígur
Stórholt
Stangarholt
SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI / Ólafur Ormsson
„Eg ætla í hnattferð
með fjölskylduna“
Þá er komið sumar og söngur
fuglanna í ttjánum svo heillandi að
jafnvel verkfallsverðir leggja við
eyrun í miðri stéttarbaráttunni.
Smáfuglamir veita óvænta
skemmtun í görðum húsa hér í
Norðurmýrinni árla morguns. Það
eru heilu konsertamir og æfðar
ýmsar raddir, ijöldasöngur og vor-
sónatan hefur verið á dagskrá,
líklega þriðja dag verkfalls Verslun-
armannaféíags Reykjavíkur sem
einn félagsmanna orðaði svo í mín
eym að væri heilagt stríð fýrir
mannsæmandi kjömm. Fuglamir
hafa ástæðu til að gleðjast hvem
morgun þegar komið er sumar,
enda gera þeir ólíkt minni kröfur
til lífsgæða en t.d. mannfólkið.
Síðasta vetrardag var andrúms-
loftið þannig hér í borginni að engu
var líkara en að styrjöld væri í að-
sigi. Vaxandi spenna vegna yfírvof-
andi verkfalls VR. Fréttir að berast
af því hingað í Norðurmýrina, hið
rótgróna, virðulega og íhaldsama
hverfí, að í úthverfunum, í stór-
mörkuðunum, væri fólkið tekið að
hamstra, safna að sér matvælum
og annarri vöm sem heimilin kom-
ast ekki af án. Nýr og glæsilegur
amerískur fólksbíll ók um Miklu-
brautina og Rauðarárstíginn og sá
varla í bílstjórann fyrir salemis-
pappír og eldhúsrúllum, margra
mánaða birgðir. í mjólkurbúðinni á
homi Rauðarárstígs og Háteigsveg-
ar var svo aftur engin örtröð
skömmu fyrir hádegi síðasta vetrar-
dag, fjórar konur og svo greinar-
höfundur. Inn í búðina kom kona á
miðjum aldri, frekar hávaxin, í
glæsilegum fatnaði og hafði einmitt
verið að koma ofan úr Breiðholti
þar sem hún ætlaði að versla í stór-
markaði en varð frá að hverfa, það
var fullt út úr dymm.
— Ég hef bara aldrei séð neitt
slíkt áður, sagði hún og tíndi til
mjólkurvörumar og setti á borðið
fyrir framan afgreiðslustúlkuna.
— Það er hamstrað, það er öng-
þveiti. Hvemig fólkið getur látið.
Eins og sé yfirvofandi heimsstyijöld
eða hungurvofan komin í dyragætt-
ina.
Önnur kona þama í mjólkurbúð-
inni taldi laun verslunarfólksins á
lægstu töxtunum ekkert öfunds-
verð, með innan við fjömtíu þúsund
krónur í mánaðarlaun.
í matvöruversluninni við Rauðar-
árstíg var yfírvofandi verkfall einn-
ig til umræðu.
— Þetta em ósköp sanngjamar
kröfur, heyrði ég að ungur piltur á
að giska sautján, átján ára sem var
að versla sagði við mann sem hafði
áhyggjur af verkfallinu.
— Já, en þjóðarbúið skuldar 85
Dalasýsla:
Margft óffert í vegamálum
Hvoli, Saurbæ. —* '—*
ÞEIM sem mikið þurfa að ferð-
ast um Dali dylst ekki, að margt
er þar ógert i vegamálum, sem
brýna nauðsyn ber til að koma
í framkvæmd.
Ekki ber þó að lasta það, sem
gert hefur verið og bætt hefur
ástandið. Þannig er komið einfalt
bundið slitlag á veginn frá Búðar-
dal og í vestur að Laugaskóla og
sunnan Búðardals er komið bundið
slitlag að svonefndu Skógstagli og
þaðan út í Hörðudal. Á sl. ári var
einnig lagt bundið slitlag á veginn
frá Skógstagli að Gröf í Miðdölum,
á 12 km kafla. mest er þetta mjótt
slitlag, ólíkt því sem víðast er ann-
ars staðar, þannig að þeir, sem
vanir em tvíbreiðu slitlagi átta sig
ekki ávallt nógu vel á því, hversu
mjótt þetta er. En allt um það var
þetta mikil og góð vegabót. Áætlað
mun í sumar að halda áfram með
slitlagið frá Gröf og að Breiðabóls-
stað í Miðdölum, á nýjan vegar-
kafla, sem þar var lagður í fyrra,
og er það fagnaðarefni. En þar
mætti helst ekki nema staðar, því
kaflinn frá Breiðabólsstað og að
Bröttubrekku er slæmur og þyrfti
vemlegrar styrkingar við, svo og
brekkuvegurinn sjálfur að vestan-
verðu. Þar er ástandið svo slæmt,
að það fer oft ofan í 2ja tonna
leyfílegan öxulþunga vegna þess
hversu vegurinn er veikur orðinn.
Á sl. ári var vegurinn á Bröttu-
brekku sunnanverðri styrktur
vemlega og því þyrfti að gera hið
sama vestan megin svo samræmið
héldist og aðgerðimar kæmu að
tilætluðum notum, en vesturhluti
brekkunnar yrði ekki áfram þrö-
skuldur á þessari leið vegna þess
hversu lélegur hann er.
Óskalistinn er langur um það,
sem eftir er, og þörfín brýn á að
halda áfram á sömu braut. En þar
er ekki bjart framundan, að sögn
Sigvalda Fjeldsted, vegaverkstjóra
í Búðardal. Nýbyggingarfé er af
skomum skammti, að því er virð-
ist, þó stjómvöld teyni að telja
okkur trú um, að framlög til vega-
mála aukist í ár að raungildi miðað
við það sem verið hefur.
Að sögn vegaverkstjóra er mik-
ill hugur í mönnum að halda áfram
með slitlag fram Laxárdal, og brýn
þörf er á vegabótum í Haukadal
og í efri byggð á Fellsströnd og
einnig á Tjaldaneshlíð. Þá er veg-
urinn- í Saurbænum ekki sérlega
greiður yfirferðar. Þar vom þó
gerðar all miklar framkvæmdir á
sl. hausti, keyrt ofan í veginn um
20 sm grófu malarslitlagi, og á
því máttu menn svo hossast og
hristast í allan vetur og fram á
þennan dag, en þar er þó von á
fínni ofaníburði áður en langt um
líður. Þá kvað verkstjóri mikla
þörf á því að laga veginn við
Neðri-Brunná í Saurbæ og víðar
þar í sveit. Er þá eftir, þar sem
mest er þörfín, en það er sjálfur
farartálminn á aðalleiðinni, Svína-
dalur, sem oft er æði erfíður, og
þar þarf að byggja nýjan veg í
vestuhluta dalsins. Er það verkefni
orðið afar brýnt og var vonast til
þess, að í það yrði farið á þessu
ári. Að sögn vegaverkstjóra em
uppi hugmyndir um það, að bjóða
verkið út í haust, þannig að fram-
kvæmdir yrðu á næsta ári. Það em
vissulega vonbrigði ef það dregst
svo lengi, þó betra sé að horfa fram
á það, að svo verði gert á næsta
ári, ef ömggt reynist.
Versti kaflinn á þessari leið er
frá svonefndum Víði að Bersa-
tungu — og þarf að byggja þar
upp nýjan veg - sem stendur upp
úr snjó, en um slíkt er ekki að
ræða eins og verið hefur. Það er
full ástæða til að óska þess, að
allt verði gert, sem unnt er, til
þess að gerð vegar um Svínadal
verði hraðað svo sem kostur er.
UH