Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
félk í
fréttum
Jón Gíslason næringarfræðinffur g-efur Sigfurði Helgasyni
forstjóra Flugleiða góð ráð áður en yfirmenn fyrirtækisins
hófu að hnykla vöðvana á sumarnámskeiði í Heilsugarðinum
í Garðabæ.
Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir ræðir við Halldór Vil-
hjálmsson forstöðumann fjármálasviðs Flugleiða.
Ólafur Gíslason íþróttakennari og Björn Theodórsson for-
stöðumaður þróunarsviðs Flugleiða ræða um hentugan út-
búnað til líkamsræktar.
Flestir ætla í unglingaviimuna
Þeir Kári Halldórsson, Ólafur
J. Einarsson og Reynar Ell-
urp komu í Borgartún síðastliðinn
föstudag til að láta skrá sig við
Vinnuskólann eða í unglingavinn-
una sem kölluð er. Þeir eru að
ljúka námi í sjöunda bekk Haga-
skóla og sögðu flesta bekkjarfé-
laga sína ætla f unglingavinnuna
í sumar.
Strákamir reyndu ekki að fá
vinnu annars staðar og kváðust
gera ráð fyrir „þokkalegu" kaupi.
Ekki vissu þeir hvar í borginni
þeir myndu vinna en sögðust þó
vita að þeir fengju bara að vinna
fjóra tíma á dag og fannst það
heldur súrt í broti. Krakkar sem
lokið hafa áttunda bekk grunn-
skóla vinna hins vegar venjulegan
átta stunda vinnudag. Hjá þeim
sem aðeins vinna hálfan daginn
er vinnan fyrir hádegi eina viku
og eftir hádegi hina næstu.
Morgunblaðið/KGA
Kári Halldórsson, Ólafur J. Einarsson og Reynar Ellurp ætla í
unglingavinnuna í sumar. Þeir eru i Hagaskóla og ljúka prófum
í vikulokin.
HREYSTI
Yfirmenn Flugleiða
1 líkamsrækt
C lugleiðir gáfu gott fordæmi I ins og senda þá í heilsurækt. Sex
■ er ákveðið var að bæta líkam-
legt ástand yfírmanna fyrirtækis-
vikna sumamámskeið í Heilsu-
garðinum í Garðabæ varð fyrir
valinu. Um er að ræða alhliða
líkamsþjálfun, en tiigangur nám-
skeiðsins er að bæta úthald þátt-
takenda og styrk auk þess aið ná
af þeim nokkmm kílóum.
Að sögn Gríms Sæmundsen,
eins af eigendum Heilsugarðsins,
er öll áhersla lögð á fagmennsku
og öryggi í þjálfuninni. Næringar-
fræðingur veitir ráðgjöf og læknir
skoðar þátttakendur áður en nám-
skeið hefst og í lok þess. „Fólk fær
mjög ítarlegar upplýsingar," segir
Grímur, „hver og einn færir það
sem hann aðhefst hér inn í æfínga-
bók auk staðreynda um líkams-
ástand fyrir og eftir námskeið.
Æft er þrisvar í viku og oftar ef
vill."
Fimm hópar hressa nú upp á
líkama og sál á sumamámskeiði
og líklegt er að annað námskeið
hefjist í lok mánaðarins. Yfírmenn
Flugleiða bjuggu sig undir átök
síðastliðinn sunnudag og höfðu
samráð við lækni og næringar-
fræðing. Meðfylgjandi myndir eru
teknar við það tækifæri.
Morgunblaðið/KGA
Undirbúningur fyrir starf sumarsins stendur sem hæst í bækistöðvum Vinnuskóla Reykjavíkur við
Borgartún. Skráningu 13-15 ára unglinga til vinnn lýkur á föstudaginn. Á myndinni eru f.v. Amfinnur
Jónsson skólastjóri Vinnuskólans, Guðrún Jónsdóttir sem vinnur á skrifstofu skólans og Sigurðúr Lyngd-
al yfirkennari.
VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR
Sumarstarfið framundan
Liðlega þúsund reykvískir ungl-
ingar taka til starfa hjá Vinnu-
skóla Reykjavíkur, ungiingavinn-
unni, í byijun næsta mánaðar.
Skráning stendur til föstudagsins
20. maí í bækistöðvum Vinnuskól-
ans við Borgartún 3, en unglinga-
vinnan er ætluð krökkum sem lokið
hafa sjöunda og áttunda bekk
grunnskóla. Starfstimi Vinnuskól-
ans er júní og júlí en til að forvitn-
ast um verkefnin sem bíða ungling-
anna var haldið inn í Borgartún á
fund Amfínns Jónssonar skóla-
stjóra og Sigurðar Lyngdal yfír-
kennara skólans.
„Vinnuskólinn hirðir fyrst og
fremst um umhverfí skóla, íþrótta-
svæði og ýmis opin græn svæði sem
tilheyra boiginni eins og í Laugar-
dal, Hljómskálagarði og Miklatúni.
Þá srjá sjö hópar um að snyrta garða
ellilífeyrisþega sem um það biðja.
Nokkrir hópar mála leiktæki á leik-
völlum borgarinnar og sömuleiðis
verða flokkar unglinga við gróður-
setningu í Heiðmörk. Einn hópur
heldur áfram að byggja vinnuskúra
fyrir skólann en þegar eru til fjórir
skúrar sem svipar til gömlu gulu
skúranna nema hvað þessir eru
litríkari og bera ótrúlegustu nöfn.
Loks munu vinnuhópar að líkindum
skiptast á um að hreinsa til í Viðey
til að fá dálitla tilbreytingu."
Hvað um félagsstarf?
„Nemendur Vinnuskólans eiga
samkvæmt starfsreglum skólans
rétt á tveimur launadögum á
starfstímanum til félagsstarfa. Þeir
eru skipulagðir af okkur í samvinnu
við íþrótta- og tómstundaráð. Þetta
eru hópdagar, þar sem hver hópur
fyrir sig gerir eitthvað skemmtilegt
í samráði við leiðbeinanda sinn, og
hverfadagar, þar sem allir hópar
hverfís hittast og sprella."
„Undanfarin ár hefur hver hópur
farið út úr bænum einn dag sumars-
ins í náttúruskoðunarferð. Þess í
stað verður borgin kynnt ungling-
unum f sumar, ýmsar stoftianir
hennar og fyrirtæki, og svo Vinnu-
skólinn sjálfur. Úr því minnst er á
félagsstarfíð sem greinir skólann
frá öðrum vinnustöðum má ekki
gleyma lokaferðinni sem orðin er
fastur liður. Tvö síðustu sumur
hefur þorri nemenda ásamt starfs-
mönnum skólans farið til Þingvalla
í lok júlímánaðar og haldið hátíð.
Þá hefur skólanum verið slitið að
lokinni gönguferð, leikjum, þraut-
um og grillveislu."
Gerist eitthvað á ykkar vegum
utan vinnutíma?
„Já, tómstundastarf á vegum
Vinnuskólans hefur reynst vinsælt.
Leitað hefur verið tilboða í sam-
vinnu við íþrótta- og tómstundaráð
um sitthvað sem unglingamir geta
aðhafst utan vinnutíma. I fyrrasum-
ar bauðst krökkunum að fara á
okkar vegum í keilu, badminton,
golf, á hestbak og í veiðiferðir. Jafn-
framt var haldið knattspymumót
fyrir þá sem vildu og farið í sigling-
ar með vélbátnum Jónasi feita."
Guðrún Jónsdóttir vinnur á skrif-
stofu Vinnuskólans í Borgartúni en
þar er opið virka daga frá átta til
fjögur. Hún sagði að í sumar yrðu
leiðbeinendur við skólann 75 tals-
ins. Kaup er greitt á hálfs mánaðar
fresti og tekur mið af unglinga-
taxta Dagsbrúnar. Þá metur verk-
stjóri í samráði við yfirmenn skól-
ans hvort greiða skuli kaupauka
fyrir vel unnin störf. Unglingamir
vinna ekki endilega næst heimili
sínu, heldur þar sem mest þörf er
fyrir þá, enda er þeim séð fyrir
strætisvagnamiðum eða akstri í og
úr vinnu.