Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
75
Egilsstaðir:
Bjami Jónsson og Ast-
rid sýna í húsi RARIK
Egilsstöðum.
BJARNI Jónsson listmálari
opnaði málverkasýningu á Eg-
ilsstöðum á uppstigningardag.
Við opnun sýningarinnar flutti
Bjami stutt erindi um íslensk
áraskip, sögu þeirra og þróun
en Bjarni gjörþekkir það efni
eftir að hafa myndskreytt rit-
verk Lúðviks Kristjánssonar
um íslenska sjávarhætti. Sam-
hliða sýningu Bjarna sýnir
Astrid Ellingsen pijónahönnuð-
ur módelkjóla úr íslensku ein-
gimi.
Astrid Ellingsen hefur um ára-
raðir hannað pijónaflíkur og gerði
lengi uppskriftir fyrir Álafoss og
ýmis tímarit. Einnig hefur Astrid
haldið pijónanámskeið víða um
land. Uppskriftir eftir hana hafa
komið í norsku kvennablöðunum
KK og Alles.
Hér á Egilsstöðum stendur sýn-
ing Bjarna og Astrid fram yfir
helgi en um hvítasunnuna verður
sýningin sett upp á Seyðisfirði en
þaðan eru nokkrar myndir á sýn-
ingunni.
- Björn
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Bjami Jónsson og Astrid Ellingsen við verk sín í húsi RARIK á Egilsstöðum.
Myndimar sem Bjami sýnir nú
em akrýlmyndir, vatnslitamyndir
og teikningar. Myndefnið er mikið
sótt í þjóðhætti okkar en einnig
em þama óhlutlægar myndir.
Bjami hefur haldið margar sýn-
ingar hérlendis og tekið þátt í
samsýningum erlendis. Hann
teiknaði fyrir Ríkisútgáfu náms-
bóka um árabil og fyrir aðra út-
gefendur. Viðamesta verk hans
er skýringamyndir í hið mikla rit-
verk íslenskir sjávarhættir en við
það vann hann í 26 ár.
36 lista-
ménn hlutu
starfslaun
ÞRJÁTÍU og sex listamenn hafa
hlotið starfslaun, tveir til tólf
mánaða, 17 til sex mánaða og 17
til 3ja mánaða. í fréttatilkynn-
ingu frá menntamálaráðuneyt-
inu segir, að 138 umsóknir hafi
borist og að á fjárlögum ársins
séu tíu milljónir króna til umráða
í starfslaun. '
Tólf mánaða starfslaun hlutu:
Georg Guðni Hauksson, myndlistar-
maður, og Jónas Tómasson, tón-
skáld.
Sex mánaða starfslaun hlutu:
Eyjólfur Einarsson, myndlistarmað-
ur, Guðjón Ketiisson, myndlistar-
maður, Guðný Magnúsdóttir, mynd-
listarmaður, Guðrún Kristjánsdótt-
ir, myndlistarmaður, ína Salóme
Hallgrímsdóttir, myndlistarmaður,
Jakob Jónsson, myndlistarmaður,
Jenný E. Guðmundsdóttir, mynd-
listarmaður, Kristín Jónsdóttir,
myndlistarmaður, Kristján
Steingrímur Jónsson, myndlistar-
maður, Magnús Kjartansson,
myndlistarmaður, Messíana Tómas-
dóttir, leikmyndateiknari, Ragn-
hildur Stefánsdóttir, myndlistar-
maður, Selma Guðmundsdóttir,
píanóleikari, Sigurður Þórir Sig-
urðsson, myndlistarmaður, Svava
Bjömsdóttir, myndlistarmaður,
Sverrir Ólafsson, myndlistarmaður,
og Þuríður Fannberg, myndlistar-
maður.
Þriggja mánaða starfslaun hlutu:
Anton Helgi Jónsson, rithöfundur,
Ágústa Agústsdóttir, söngkona,
Björg Örvar, myndlistarmaður,
Finnur Torfi Stefánsson, tónskáld,
Grétar Reynisson, myndlistarmað-
ur, Guðlaugur Þór Ásgeirsson,
myndlistarmaður, Guðni Franzson,
tónlistarmaður, Guðrún Gunnars-
dóttir, myndlistarmaður, Harpa
Bjömsdóttir, myndlistarmaður,
Haukur Tómasson, tónskáld, Hulda
Hákon, myndlistarmaður, Kjartan <
Ólason, myndlistarmaður, Kristinn “
G. Jóhannsson, myndlistarmaður, 3
María Sigurðardóttir, leikari, Olga jr
Guðrún Ámadóttir, rithöfundur, g
Pétur Stefánsson, myndlistarmað-
ur, og Ragna Hermannsdóttir,
myndlistarmaður.
í úthlutunarnefnd áttu sæti: Arn-
ór Benónýsson, sr. Bolli Gústafsson
og Ámi Gunnarsson. —
Ef þú færð þér TA ofnloka
nnna, þarftn líklega aldrei að
hngsa meira nm ofnloka
W I
Fyrir alla húseigendur skiptir örugg og góð ending,
þægindi og minni orkukostnaður mestu máli við
val á ofnlokum.
• •
Oryggl . Nýi hitastýrði ofnlokinn frá TA er
úr sterkri bronsblöndu, AMETAL, sem kemur
í veg fyrir að sinkið í lokahúsinu og pakkdós-
inni tærist. AMETAL bronsblandan hefur
staðið sig mjög vel í íslensku hitaveituvatni og
eykur endingu lokans til muna og um leið
öryggi húseigandans.
Þægindi . Hitaneminn í TA ofnlokanum er
fylltur koparblönduðu vaxi, sem hefur það í för
með sér, að svörun lokans við andvara frá opn-
um glugga verður hægari. Ofninn fyllist því ekki
af vatni sem engin þörf er fyrir. Þetta kemur í veg
fyrir óreglu á hitastiginu og leiðir til sparnaðar og
þæginda.
Sveigjanleiki . TA ofnlokann er hægt að for-
stilla til að draga úr eða auka vatnsrennslið
í samræmi við hitaþörf hvers ofns.
Þannig er hægt að koma í veg
fyrir óþarfa vatnsrennsli með
tilheyrandi kostnaði. Sveigjan-
leiki lokans gerir það líka að
verkum, að sami lokinn hentar á
alla ofna, óháð stærð og staðsetningu.
• Yfir 40 ára góð reynsla af TA vörum á íslandi
• Við bjóðum 5 ára ábyrgð á pakkdósinni.
• Þú færð TA ofnlokann í öllum helstu byggingar
vöruverslunum.
Með þér í veitun vatns V ÍSLEIFUR JÓNSSON
HF.
Bolholti 4, Reykjavík, símar 36920 og 36921