Morgunblaðið - 19.05.1988, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
MorgunblaAið/PPJ
Douglas A-26 Invader-flugvélin hefur sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli sl. þriðjudag.
Douglas Invader á
Reykjavflairflugvelli
Morgunblaðið/PPJ
Hér sést í nærmynd hið nýja nef Invader-flugvélarinnar með til-
heyrandi „byssum" en án þeirra yrði aðdráttarafl vélarinnar á flug-
sýningum minna.
GAMLAR herflugvélar á leiðinni
frá Bandaríkjunum til Evrópu
hafa að undanfömu verið tíðir
gestir á Reykjavíkurflugvelli. í
aprílmánuði höfðu m.a. viðdvöl
hér gömul sprengjuflugvél af
gerðinni B-25 Mitchell sem var á
leiðinni til Bretlands og fyrrver-
andi herþjálfunar- og æfingaþota
af gerðinni T-33 Shootin Star sem
var á leiðinni til Basel f Sviss.
í síðustu viku lenti enn ein
„stjama" fyrri tíma, en það var göm-
ul árásar- og sprengjuflugvél af
gerðinni Douglas A-26 Invader. Hér
hafði vélin næturdvöl á leið sinni frá
Colorado í Bandaríkjunum til Osló í
Noregi en síðasti viðkomustaður
áður en hún kom hingað var Syðri-
Straumfjörður á Grænlandi.
Invader-flugvélar komu fyrst
fram á vígstöðvum í Kyrrahafínu
vorið 1944, en um haustið það ár
voru þær komnar í notkun í Evrópu
í átökum við „þriðja ríkið". Síðar
meir voru flugvélar af þessari gerð
talsvert notaðar í Kóreustríðinu og
gerðu þær m.a. fyrstu sprengjuárás
Bandaríkjamanna á Norður-Kóreu í
júní árið 1950. Ennfremur voru In-
vader-vélar notaðar í Víetnam-stríð-
inu, en þær síðustu voru teknar úr
notkun flughers Bandaríkjanna árið
1969. Meðal þeirra þjóða sem notuðu
Invader-flugvélar voru Frakkar, í
nýlendustríðum sínum í Indó-Kína
og Aisír, og Bíafrabúar í tilgangs-
lausu frelsisstríði sínu.
Mörgum Invader-flugvélum var
breytt í einkaflugvélar eftir stríð,
m.a. þóttu þær henta vel sem „for-
stjóravélar" sökum þess hvað þær
voru hraðfleygar. Nú á dögum eru
Invader-flugvélar mjög 'vinsælar á
flugsýningum víða um lönd og verð-
ur vélin sem hér hafði viðkomu ein-
mitt notuð til þess að ferðast milli
flugsýninga í Evrópu. Það sást
greinilega að flugvélinni sem hér
hafði viðkomu hafði einhvemtíma
verið breytt í „forstjóraflugvél" en
þegar hún var gerð upp fyrir hina
norsku kaupendur var rejmt að færa
ýmislegt í fyrra horf og m.a. sett á
hana nýtt nef með tilheyrandi „byss-
um“ þannig að hún verði líkari því
sem flugsýningagestir vilja sjá.
Þess má geta að flugstjóri In-
vader-flugvélarinnar í þessari ferð
var Jan Skjöldhammer, en faðir
hans, Conrad Skjöldhammer, var
flugmaður í norsku flugsveitinni sem
staðsett var hér á íslandi á árum
síðari heimsstyrjaldar og er íslend-
ingum að góðu kunnur. - PPJ
Dash 7-flugvél London City Airways við brottför frá Reykjavík í vorrigningunni. Morgunblaðið/PJJ
I jakkafötum, hvítri
skyrtu og með bindi
London City Airport — einu sinni bryggja en nú alþjóðaflugvöllur
á miðju hafnarsvæði.
FJÖGURRA hreyfla flugvél af
gerðinni de Havilland Canada
Dash 7, sem var á leiðinni frá
verksmiðjunum í Kanada til
kaupenda í Bretlandi, lenti á
Reykjavíkurflugvelli siðdegis
þriðjudaginn 3. maí.
Flugvél þessi, sem var í engu
frábrugðin öðmm vélum af þessari
gerð, vakti athygli manna fyrir þær
sakir að stél hennar var mjög frum-
lega málað, rétt eins og það væri
í teinóttum jakkafötum, hvítri
skyrtu, með rautt hálsbindi og silki-
klút í sama lit. Ástæðan fyrir því
að stélfjaðrir vélarinnar em svona
skrautlegar er sú að flugvélin er í
eigu breska flugfélagsins London
City Airways, sem hefur bækistöðv-
ar sínar á nýjasta flugvelli Lund-
únaborgar, London City Airport.
Flugvöllur þessi, sem er staðsettur
á aflagðri bryggju í miðju hafnar-
svæðis í austurhluta Lundúna ör-
skammt frá fjármálahverfínu City,
var tekinn i notkun sl. haust og er
þegar orðinn vinsæll meðal kaup-
sýslumanna og fjármálaspekinga
sem erindi eiga til og frá borginni
við Thames.
London City Airways er annað
tveggja flugfélaga sem stunda
áætlunarflug frá London City-flug-
velli. Flugfélögin fljúga þaðan til
nærliggjandi borga á meginlandi
Evrópu s.s. Parísar, Brussel og
Amsterdam en tímaspamaður
þeirra farþega sem annars þyrftu
að nota flugvellina Heathrow eða
Gatwick, sem em í dágóðri Qarlægð
sunnan og vestan við borgina, er
mikill. Bæði flugfélögin nota flug-
vélar af gerðinni de Havilland
Canada Dash 7 en þessi flugvélar-
tegund, sem er mjög hljóðlát, getur
athafnað sig á mjög stuttum flug-