Morgunblaðið - 25.05.1988, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988
Costa Rica:
Farþegar o g áhöfn
sluppu er þota fórst
Reuter
Leifar Boeing-727 farþegaþotunnar sem fórst eftir að flugmenn hennar hættu við flugtak frá flugvell-
inum í San Jose á Costa Rica i gærmorgun.
San Jose, Costa Rica. Reuter.
MESTA mildi þykir að allir skyldu
komast lífs af þegar Boeing-727
farþegaþota fórst i flugtaki á
flugvellinum i San Jose á Costa
Rica i gærmorgun.
Þotan brunaði eftir flugbrautinni
þegar flugmennimir hættu skyndi-
lega við flugtak. Snerist hún í hálf-
hring, rann útaf brautinni og hafn-
aði á stálþili. Varð þá sprenging í
þotunni, sem brotnaði í þrennt, og
eldur braust út.
Um borð í þotunni voru 17 far-
þegar og níu manna áhöfn. Gekk
þeim greiðlega að komast út og er
það talið eiga sinn þátt í að ekki fór
verr. Fimm úr hópnum sluppu
ómeiddir en 21 slasaðist. Flestir
þeirra hlutu aðeins lítilsháttar
áverka.
Þotan, sem nú er gjörónýt, var í
eigu flugfélagsins LACSA á Costa
Rica. Hún var að leggja upp í áætl-
unarflug til Managua í Nicaragua
og Miami í Flórída. Meðal farþega
voru átta Bandaríkjamenn, tveir
Kúbumenn, Austurríkismaður og
Tékki. Farþegi að nafni Eladio
Salazar sagði við fréttamenn að
flugmennimir hefðu hætt við flugtak
vegna einhverrar bilunar.
Sovétmenn hafa gersem-
ar á brott frá Afganistan
Zilrich, frá önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SOVÉTMENN fara ekki tóm-
hentir frá Afganistan, sam-
kvæmt frétt franska blaðsins Le
Monde. Blaðamaður þess, Laur-
ents Zecchini, varð vitni að því
er Sovétmenn völdu muni úr
þjóðminjasafni Afganistans.
mjög fágæta muni allt aftan úr
steinöld. Starfsmaður safnsins að-
stoðaði sovéska sérfræðinga við að
velja muni úr safninu þegar Zecc-
hini sá til. Þeir höfðu þá aðallega
áhuga á munum frá Kuschan-
tímabilinu á 1.-3. öld.
Yfírmaður ríkissafnanna í Afg-
anistan er flokksbundinn kommún-
isti sem hefur takmarkaða þekk-
ingu á listum. Hann er þó sagður
hafa tárfellt þegar hann gaf út leyfí
sem heimilaði Sovétmönnum að láta
greipar sópa um arfleifð afgönsku
þjóðarinnar.
Danmörk:
Selir drep-
astúr
lungnaveiki
Kaupmannahöfn. Reuter.
UM 200 dauða seli hefur
rekið á Eyrarsundsstrendur
Sjálands síðustu vikur. Að
sögn talsmanns dönsku
landverndarsamtakanna
drápust selimir úr lungna-
veiki.
Líffræðingar óttast að veik-
in breiðist út og segja að allur
selastofninn við strendur Dan-
merkur, um 10 þúsund dýr,
sé í hættu. Lungnaveikin er
rakin til bakteríu að nafni
Bordella Bronchiseptica, sem
er skyld herpes- og flensuveir-
um. Unnið er að athugunum
á því hvemig bakterían hefur
komist í selina, hvort þar sé
um að ræða óvenjulegar að-
stæður í umhverfinu eða
mengun.
Sovéski herinn yfirgefur Afganistan:
Hugmyndafræðilegir loft-
fimleikar án öryggisnets
Kabúl-stj órnin berst fyrir lífi sínu
KOMMCNISTARNIR i Kabúl losa sig nú við siðustu leifar byltingar-
innar til þess að bjarga eigin skinni. Þeir sitja eftir með sárt ennið og
i höfuðborginni hefur kommúnisminn breyst í andstæðu sína. Allt
sem áður var byltingarsinnum heilagt gildir ekki eftir að Sovétmenn
ákváðu að ljúka hinu misheppnaða Afganistan-ævintýri.
Sovétmenn taka m.a. stóran
hluta Telatapa-gullsins með sér.
Það fannst fyrir tæpum áratug og
þykir ævintýralegur fjársjóður.
Verð og listrænt gildi gullmunanna,
sem eru tuttugu og eitt þúsund
talsins, er ómetanlegt. Sovétmenn
flytja fleiri hundruð hlutanna á
brott með sér í herlestum og hrifsa
þannig til sín hluta af sögulegri
arfleifð Afganistans.
Telatapa, sem einnig er kallað
Tilya Tepe, er f norðurhluta Afgan-
istans. Sovéskir og afganskir fom-
leifafræðingar unnu þar við rann-
sóknir á árunum 1978-79 og grófu
upp grafír frá öldunum fyrir og
eftir fæðingu Krists. Þeir fundu
minjar sem bera vitni um gífurlegt
ríkidæmi svæðisins til foma og
grísk áhrif á menningu þess. Gull-
skálar, gullvasar, gullarmbönd,
gullspennur, gullbeltisnælur og aðr-
ir gullskrautmunir leyndust í fjár-
sjóðnum. Hann hefur aðeins verið
sýndur opinberlega einu sinni. Nú
er hann geymdur í kjallara forseta-
hallarinnar í Kabúl. Þar er listasafn
sem aðeins ráðamenn í afganska
kommúnistaflokknum og sendifull-
trúar Sovétmanna hafa aðgang að.
Sovéskir sérfræðingar hafa skoð-
að Telatapa-munina gaumgæfílega
undanfamar vikur og valið úr fjög-
ur hundruð muni sem verða fluttir
til Moskvu fyrir lok maf. Þeir völdu
meðal annars óvenjulega geit með
löng, margsnúin hom og hringlaga
fætur; armband með ljónynjuhöfði
úr tyrkjasteinum; bijóstnælu með
mynd af Kúbid, ríðandi höfrungi
og einstaklega vel unnið belti úr
skfragulli. Það er ómögulegt að
verðleggja beltið en sérfræðingar
telja að geitin, sem er ekki nema
13 cm há, sé að minnsta kosti 5
milljóna dollara (215 milljónir ísl.
kr.) virði.
Grípir úr þjóðminjasafninu
Sovétmenn láta sér ekki nægja
að hirða munina frá Telatapa. Þeir
hafa einnig tekið um 200 muni úr
þjóðminjasafninu sem franskir
fomleifafræðingar hjálpuðu afgön-
Þess þekkjast engin dæmi að
gagnbylting innan kommúnista-
flokks hafí gengið jafn hratt fyrir
sig. Kommúnistaflokkur Afganist-
ans hélt upp á tíu ára afmæli apríl-
byltingarinnar með því að ryðja
burt öllum „ávinningum byltingar-
innar".
Þjóðnýtingu f landbúnaði hefur
verið snúið við. Jafnvel stórbændur
fá jarðir sínar aftur. Flóttamenn
sem snúa heim frá Pakistan eða
íran fá allar sínar eigur aftur í
hendur hvort sem um er að ræða
hús, fyrirtæki eða banka.
Ffyrir skemmstu lét stjómin eitt
af opinberum sveitasetrum sínum,
Höll númer fjögur, hinum fyrri eig-
anda í té. Það var meira að segja
búið að gera húsið upp á glæsilegan
hátt.
Kommúnistar hafa boðið Banda-
ríkjamönnum vinsamlegast að taka
aftur við eignarhlut sínum í Inter-
conti, glæsilegasta hóteli Kabúl,
sem í millitíðinni hafði verið skírt
Mf.'lmah Pall. Að minnsta kosti
áttu þeir endilega að taka að sér
hótelstjómina. I apríl síðastliðnum
tók stjómin á móti nokkrum tugum
kaupsýslumanna úr hinum vest-
ræna heimi og hvatti þá til að fjár-
festa f landinu.
Kaupmenn á hinum frægu mörk-
uðum í Kabúl, sem reyndar fengu
að starfa að mestu f friði undir
stjóm kommúnista, hafa nú fijálsar
hendur um viðskipti sfn. Þessir
frægustu kaupahéðnar Suður-Asíu
mega nú kaupa og selja og flytja
vörur inn og út að vild. Engin
skriffínnska eða þreytandi hömlur
á gjaldeyrisviðskiptum tefja nú
kaupmennskuna. Nú verður í reynd
hægt að skipta afganskri mjmt í
erlendan gjaldeyri því öll viðskipti
miðast við svartamarkaðsgengið.
Svartimarkaðurinn við Kabúl-fljót
hefur fyrir löngu tekið við hlutverki
ríkisbankanna.
Á veggjum húsa og á opinberum
skrifstofum hangir ekki lengur
mynd flokksformannsins. Hann
kallar sig nú Najibullah á ný. Á
meðan hann var byltingarsinnaður
kallaðist hann Najib því sfðustu
atkvæðin minntu um of á Allah.
Allah snýr aftur
Já, Allah er snúinn aftur. í mál-
gagni flokksins er eiður svarinn við
vilja Allah. Rúmlega tuttugú þús-
und Múllar (prestar) þiggja nú laun
frá ríkinu. Til þess að renna stoðum
undir trúna hafa kommúnistamir í
Kabúl meira að segja stofnað
fslamskan háskóla. Slíkur mennta-
stofnun var ekki einu sinni fyrir
hendi þær aldir sem múhameðstrú-
armenn réðu yfír Afganistan.
Pílagrímar geta nú ferðast til
Mekku á kostnað hins opinbera.
Nýja stjómarskráin — þar sem
fjölflokkakerfí er ein af undirstöð-
unum — bannar lög sem „sært geta
hin helgu lögmál íslams". Fjölkvæni
er ekki lengur bannað, hver múha-
meðstrúarkarlmaður má taka sér
Qórar eiginkonur. Stjómin hefur
beint því til starfsmanna hins opin-
bera að neyta ekki matar né drykkj-
ar á meðan dagsbirtu gætir í föstu-
mánuðinum Ramadan af tillitssemi
við tilfinningar hinna trúuðu.
Þó stjómin leggi mikið á sig til
þess að vinna hylli múhameðstrú-
aðra þá slær vinsemdin við pólitíska
andstæðinga öll met. Stjómin hefúr
um að stofna árið 1922. Safnið á