Morgunblaðið - 25.05.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988
DÖMUR OG HERRAR
Nú drífið þið
ykkur í leikfimi!
* Síðasta námskeið fynr sumarfrí
Tímar við allra hæfí
3ja vikna námskeið hefjast
30. maí.
Leikfimi fyrirkonurá öllum aldri.
Hressandi, mýkjandi, styrkjandi
ásamt megrandi æfingum.
Karlmenn
Hinir vinsælu herratímar eru í hádt
inu.
Þarftu að missa 15 kíló?
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast
um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir
eldri dömur og þær, sem þjást af
vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, nýinnréttuð gufuböö og
sturtur. Kaffi ogsjónvarp í heimilis-
legri setustofu.
Innritun
og frekari upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 ísíma 83295.
m
(O co lO co Góðan daginn!
V angaveltur um Iþrótta-
kennaraskóla Islands
eftirBjörn
Hilmarsson
Ég var að velta fynr mér stöðu
ÍKÍ í menntakerfinu. Ég hef reynt
að afla mér upplýsinga víða en
fundist svör fremur óljós og því
gerist ég svo djarfur að varpa fram
spumingum til Árna Guðmundsson-
ar, skólastjóra ÍKÍ, hér og nú.
Mér hefur skilist á íþróttakennur-
um sem útskrifast hafa frá ÍKÍ, að
nauðsynleg undirstaða verklegra
greina sé að mestu leyti kennd á
1. námsári. Þessir kennarar hafa
kvartað yfir ónógri þekkingu á und-
FRANCE .
Merkingar
á glös og postulín
Borðbúnaður
fyrir veitingahús.
Allt á einum stað.
Glös eða postulín.
Merkt eða ómerkt.
MERKING
ÁGLER OG
POSTULÍN
HE
„Nú þarf skóli sem
þessi að tileinka sér all-
ar helstu nýjung-ar á
sviði íþrótta og því sem
þeim við kemur, og
sporna þannig við
stöðnun.“
irstöðatriðum flestra íþróttagreina.
Þeir eru því í fyrstu illa í stakk
búnir til að takast á við kennslu í
grunnskólum landsins. Er það ekki
staðreynd að meira sé lagt upp úr
líkamlegri fæmi nemenda, en hæfi-
leikinn til kennslu sé ekki ræktaður
með nemendum sem skyldi? Ég,
sem leikmaður, á erfitt með að
horfa upp á fríska og tápmikla nem-
endur útskrifast og flykkjast út á
vinnumarkaðinn með mikla þekk-
ingu en allt of litla kennsluæfíngu
undir leiðsögn. Er þetta ekki ástæð-
an fyrir því hve margir nýútskrifað-
ir íþróttakennarar gefast fljótt upp
á starfinu?
Nú hef ég heyrt að nemandi úr
sjúkraþjálfun (sem reyndar er sonur
þinn) hafí verið metinn inn í skól-
ann og stundi nú nám á 2. ári og
sleppi því öllu verklegum grunni af
1. ári, auk nokkurra bóklegra
greina og fjölda námskeiða. Er
þetta satt? Hvemig má þetta vera?
Það keyrir um þverbak að hann
skuli síðan stunda nám í þeim grein-
um sem hann hefur þegar háskóla-
próf í s.s. líffærafræði, lífeðlisfræði
o.þ.h. Er þetta ekki kaldhæðnis:
legt? Hvað fínnst nemendum ÍKÍ
um þetta mál? Það segir sig sjálft
að nemandi, sem vantar allan verk-
legan grunn af 1. ári, getur ekki
útskrifast sem íþróttakennari. Þá
vaknar sú spuming hvort skólinn
sé að bjóða upp á nýjar leiðir fyrir
nemendur sem utskrifast úr lækna-
deild Háskóla íslands, þ.a. ÍKÍ út-
skrifi íþróttasjúkraþjálfa, íþrótta-
lækna o.s.frv. Þetta gleður mitt
hjarta er rétt er.
Nú þarf skóli sem þessi að til-
einka sér allar helstu nýjungar á
sviði íþrótta og því sem þeim við
kemur, og spoma þannig við stöðn-
un. Er þama ekki pottur brotinn?
Hefur skólinn kynnt nemendum
sínum greinar eins og keilu, vegg-
tennis, seglbretti o.fl.? Ég á nú
bágt með að trúa því að æðsta
íþróttastofnun landsins bjóði ekki
upp á námskeið í greinum sem þess-
um. „Aerobic" er nu sú grein sem
er hvað vinsælust af almenningi í
dag og hlýtur því að hafa töluvert
vægi í námi í ÍKÍ. Hvemig er þess-
ari kennslu háttað og hvaða kröfur
gerir skólinn til nemenda sinna í
aerobic-fræðum?
Nú gaf fyrrverandi menntamála-
ráðherra þá yfírlýsingu að gera eigi
Laugarvatn að framtíðarsetri ÍIU.
Á síðasta ári var tekið í notkun
nýtt og íburðarmikið íþróttahús sem
án efa var þörf á fyrir nemendur
IKÍ. En hvers vegna að ráðast í svo
dýrar framkvæmdir á þessum stað?
Skólar og félög staðarins koma
aldrei til með að fullnýta húsið, sem
hefur möguleika á þrískiptum sal
auk kraftþjálfunarherbergis. Hefði
ekki verði nær að staðsetja íþrótta-
aðstöðu skólans í Reykjavík og slá
þannig tvær flugur í einu höggi
þ.e. fullnýta dýr mannvirki og
tryggja nemendum bestu fáanlegu
kennara í hverri grein. NÚ er öll
önnur aðstaða við skólann ófull-
nægjandi þ.e. ónýtur grasvöllur,
léleg frjálsíþróttaaðstaða og sund-
laug staðarins að hruni komin. Á
þá að ráðast í enn dýrari fram-
kvæmdir sem nýtast fáum að stað-
aldri vegna staðsetningar?
Nú leikur mér forvitni á að vita
hvort nemendur skólans verði gef-
inn kostur á valáföngum og þar
með sérhæfíngu f ákveðnum grein-
um. Liggur fyrir að koma á fót
fyrir domur og herra.
40% afslattur á bolum, skyrtum, peysum, jökkum o.fl.
vorvörum frá CIAO 24. til 28. maí.
I V
Bankabréf Landsbankans eru traust og arðvænleg fjár
festing. Þau eru gefin út af Landsbankanum og aðeins seld
þar. Bankabréfin eru með endursölutryggingu sem
skuldbindur Landsbankann til að sjá um endursölu
innan ákveðins tíma.
Sé greiðsla fyrir gjaldfallin Bankábréf ekki sótt strax, bera þau
almenna sparisjóðsvexti þar til greiðslu er vitjað.
Bankabréf Landsbankans eru eingreiðslubréf með gjalddaga eftir eitt til
fimm ár. Þau fást í 50.000,-, 100.000,- og 500.000,- króna einingum.
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfavið-
skiptum, Laugavegi 7 og hjá verðbréfa-
deildum í útibúum bankans um land allt.
ti
Landsbanki
fslands
Banki allra landsmanna