Morgunblaðið - 25.05.1988, Page 51
s«í>r Uk straarriviv<írw ■ -
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988
FRANKFURT
2xíviku
daglegt tengiflug
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Grillað á teini
Glóðarsteiktur matur nýtur
mikilla vinsælda, og í góða
veðrinu má víða sjá húsráðend-
ur, karla og konur, standandi
við útigrillin í görðum og á
svölum. Aðrir grilla inni þar
sem flestir bakaraofnar eru nú
með grillbúnaði. Þeir sem ætla
að grilla eiga margra kosta
völ. Það má til dæmis grilla
steikur, hamborgara, fisk,
kjúkling o.fl., en svo má einnig
blanda ýmsu saman og steikja
á teini eða „spjóti“. Hér fara á
eftir nokkrar uppskriftir af
blönduðum teinamat.
Kínverskur grillréttur
375 g nautalundir,
Vi dós af stórum sveppum,
4 meðalstórir laukar, soðnir,
1 meðalstór laukur, saxaður,
4 matsk. sojasósa,
2 matsk. púðursykur,
1 matsk. ólífuolía,
V2 tesk. engifer,
Pipar.
Búið til lög úr sojasósunni, púð-
ursykri, ólífuolíu, saxaða lauknum
og kryddinu. Skerið lundimar í
allþykka bita og látið bitana liggja
í leginum í 1-2 tfma. Þræðið svo
kjötbitana upp á teina eða spjót
til skiptis við sveppi og soðnu
laukana, hálfa eða heila eftir
stærð. Grillið í 10-15 mínútur og
penslið við og við með leginum.
Lifur á teini
375 g lifur,
125 g beikon,
8 laukar, soðnir,
Ólífuolía.
Þræðið lifrarbita upp á teina
til skiptis við beikonræmur og
soðna lauka. Penslið með ólífuolíu
og grillið í um 10 mínútur.
Spánskar kjötbollur
250 g nautahakk,
1 egg,
2 matsk. smátt söxuð agúrka,
Brauðmylsna, salt og pipar,
Fylltar ólífur.
Sósa: N
35 g smjör, 1 laukur, 2V2 dl
tómatsósa, 6 matsk. edik, 2
matsk. púðursykur, 1 dl vatn, 2
tesk. sinnepsduft, 1 matsk. Worc-
estersósa.
Hnoðið saman nautahakk, egg,
agúrku, brauðmylsnu, salt og pip-
ar. Mótið bollur úr deiginu og
þræðið þær upp á teina til skiptis
við ólífumar.
Sósan: Brytjið laukinn niður og
brúnið í smjöri. Hrærið öllum hin-
um efnunum saman við og sjóðið
í lokuðum potti í 10 mínútur.
Penslið bollumar og ólífumar með
sósunni við og við frá öllum hlið-
um meðan á glóðarsteikingu
stendur.
Smábitasteik
375 g smábitasteik (lamba-
kjöt),
2 stk. græn paprika,
4-8 soðnir laukar (eftir stærð),
1 dl rauðvín,
2 matsk. edik,
V2 tesk. salt,
Pipar, saxaður laukur.
Búið til lög úr rauðvíni, ediki
og kryddi. Látið kjötbitana liggja
í leginum í 1-2 tíma. Hreinsið
paprikuna og skerið hvora þeirra
í femt, látið liggja í sjóðheitu
vatni í 5 mínútur. Þræðið kjöt-
bitana upp á teina til skiptis við
pipar og lauka. Penslið með legin-
um við og við meðan þið grillsteik-
ið.
Látum þetta nægja í bili. Verði
ykkur að góðu!
Jórunn
REYKJAVlK
-að minnsta kosti ekki veiðisögur- og nú ber vel í
veiði- því stóri sannleikurinn er að maí er sextándi
mánuðurinn í röð stöðugs verðlags í verslun okkar, því
það var í febrúar í fyrra (1/2 1987) sem við breyttum
síðast verðlagsgrundvelli í Húsgagnahöllinni.
Þegar gengið var fellt í mars um rúm 6% hækkuðum
við ekki -og núna þegar gengið hefur verið fellt um
tæp 11%
HÆKmwmmm
Þetta eru stórkostlegar fréttir fyrir hagsýnt fólk
- því við tökum stórar vörusendingar í hús
á hverjum degi sem eru seldar í einu
verðbólgulausu verslun landsins.
Maí
er sá sextándi
Júní
verAur sá sautjándi
Það á aldrei
*a þeim
sögur sem engu