Morgunblaðið - 04.06.1988, Page 1

Morgunblaðið - 04.06.1988, Page 1
76 SIÐUR B OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 125. tbl. 76. árgf. LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ráðstefna sovéska kommúnistaflokksins: Umbóta- sinnum bætt við Moskvu, Reuter. NOKKRIR af helstu stuðnings- mönnum MíkhaUs Gorbatsjovs, leiðtoga Sovétríkjanna, voru í gær kosnir sem fulltrúar á mikil- væga ráðstefnu þar sem fyrir- hugað er að móta stefnu komm- únistaflokksins. Áður höfðu íhaldssamir embættismenn kommúnistaflokksins hafnað þessum mönnum. Fréttastofan Tass greindi frá þvi að á fundi, þar sem fulltrúar komm- únistaflokksins í Moskvu á ráð- stefnunni voru kosnir, hefði verið samþykkt að bæta nokkrum „at- kvæðamiklum vísinda- og mennta- mönnum" við á listann yfír fulltrúa. Meðal þeirra sem bætt var við á listann voru hagfræðingamir Tatj- an Zaslavskaja og Gavrííl Popov, ritstjórinn Jegor Jakovlev, sagn- fræðingurinn Júríj Afanasjev og leikskáldið Míkhaíl Shatrov. Ákvörðunin um að bæta þessum mönnum við á listann virðist hafa verið málamiðlun. Reuter Greintfrá gangi leiðtogafundarins Ronald Reagan tekur hér í hönd Margaretar Thatch- ers í Guildhall í gær, en á milli þeirra situr Nancy Reagan. Myndin var tekin eftir að hann flutti ræðu um framtíð samskipta austurs og vestur og sagðist hann vera vongóður um að í hönd færi nýtt tímabil samskipta hins ftjálsa heims og kommúnistaríkjanna. Á fundinum skýrði forsetinn frá gangi Moskvufundar- ins og kvað hann hlýlegar móttökur í Moskvu og umfang umbótastefnu Míkhafls Gorbatsjovs Sovétleið- toga hafa komið sér mikið á óvart. Þá hrósaði hann Thatcher fyrir skarpskyggni, en hún lýsti því yfír fyrst vestrænna leiðtoga, að unnt væri að eiga við- skipti við Gorbatsjov. Forsetahjónin héldu heim til Washington í gær. Sjá ennfremur fréttir á siðu 30. Biaðamannafundur í sovéska utanríkisráðimeytinu: Sakharov krefst tafarlauss frelsis allra pólitískra fanga Hoskvu, frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara ANDREJ Sakharov sagði á blaðamannafundi í gær að fund- ur nm mannréttindarnál i Moskvu myndi vera nyög mikilvægur, en það þyrfti að uppfylla tvær kröf- ur áður en hægt væri að halda hann. „Það þarf fyrst að sleppa öllum samviskuföngum úr haldi og brottflutningi sovéskra her- manna frá Afganistan verður að vera lokið áður en slikur fundur er haldinn. Fyrr á mannréttinda- fundur í Moskvu ekki að vera til umærðu.“ Hann las upp nöfn tuttugu pólitiskra fanga og krafðist að þeim yrði tafariaust sleppt úr haldi. Blaðamannafundurinn var hald- inn vegna óska fjölda fréttamanna um viðtal við Sakharov, sem er Nóbelsverðlaunahafí og þekktasti andófsmaður Sovétríkjanna. So- véska utanríkisráðuneytið léði hon- uhi sama sal og Míkhafl Gorbatsjov kom fram í eftir leiðtogafundinn á miðvikudag. Gennadíj Gerasímov, talsmaður stjómarinnar, sem sat við hlið Gor- batsjovs á fundi hans fyrir þremur dögum, tók á móti Sakharov og eiginkonu hans, Jelenu Bonner þeg- ar þau komu í byggingu ráðuneytis- ins og vísaði þeim í salinn. Sakharov hafði orð á að hann væri á yfírráðasvæði stjómvalda í Morgunblaðsins. upphafí stutts ávarps og gerði síðan meðal annars glögga grein fyrir skoðunum sínum á mannréttinda- og afvopnunarmálum og dró ekkert undan. Hann gagnrýndi sovéska fjöl- miðla fyrir „neikvæðar og fordóma- fullar frásagnir" af fundi Ronalds Reagans með sovéskum andófs- mönnum á mánudag og sagðist meta fund forsetans með þessu fólki mikils. Hann tók afstöðu með Gorb- atsjov varðandi fækkun kjamav- æddra stýriflauga á hafí úti. Sovét- menn vilja láta hugsanlegan START-sáttmála ná til þeirra en Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir Gennadij Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, vísar þeim Andrej Sakharov og Jelenu Bonner inn í salinn þar sem blaða- mannafundurinn var haldinn. Bandaríkjamenn vilja það ekki. Þessi skoðun Sakharovs varð til þess að fréttamenn spurðu hvort hann hefði fengið sal utanríkisráðuneytisins lánaðan með vissum skilyrðum. Jelena Bonner reiddist þessum spumingum mjög. Hún stóð upp og tók orðið af eigin- manni sínum: „Þið spyijið þessara andstyggilegu spuminga um hvort Sakharov hafí skipt um skoðun eða ekki, hvort hann hafí verið keyptur eða ekki. Hvorugt okkar hefur ver- ið keypt og hvorugt okkar verður keypt.“ Sakharov sagði að perestrojka- stefna Gorbatsjovs væri eina leið þjóðarinnar frá stöðnun og spillingu efnahagslffsins. Hann sagði að henni væri framfylgt í fyllstu alvöru og að hún myndi hafa mjög víðtæk áhrif, innan lands sem utan í fram- tíðinni. Hann sagði að aukið traust erlendra ríkja á landinu og stjóm þess myndi styrkja perestrojku- stefnuna og stuðla að auknum mannréttindum. Hann sagði aðspurður að hann mætti ekki ferðast til útlanda, en kvaðst þó ekki telja sig vera fanga. „Mér leið eins og fanga í Gorkí en ekki hér í Moskvu," sagði Sak- harov. Hann sagðist vona að ritverk sín, gömul eða ný, yrðu birt í Sov- étríkjunum innan tíðar. Danmörk: Schluter myndar stjórn Kaupmannahöfn, Reuter. POUL Schlilter myndaði nýja stjórn í gær, tæpum fjórum vik- um eftir þingkosningamar í Dan- mörku. í stjórninni eru þrir flokkar, íhaldsflokkurinn og Venstre-flokkurinn, sem hafa verið í stjóm síðan árið 1982, og Radikale venstre. Stjómarand- stæðingar sögðu að stjórnin yrði ein sú veikasta sem mynduð hefði verið í Danmörku. „Þetta verður ein veikasta stjóm sem við höfum fengið. Óstöðugleiki mun einkenna hana," sagði Svend Auken, leiðtogi jafnaðarmanna, sem tókst ekki að mynda stjóm með Radikale venstre. Pia Kjaers- gárd, leiðtoga Framfaraflokksins, spáði því að nýja stjómin ætti „erf- iða sjóferð" fyrir höndum og sagði að stjómin gæti beðið lægri hlut tæki flokkur hennar sömu afstöðu og jafnaðarmenn í einhveiju máli. Nýja stjómin, sem nýtur stuðn- ings 67 þingmanna af 179, tekur við af fjórflokkastjóm undir forystu Pouls Schluters, sem hafði verið við völd frá árinu 1982. Radikalir, sem hafa ttu þingsæti á þinginu, koma í stjómina í stað miðdemókrata og Kristilega þjóðarfíokksins. Níu ráðherrar stjómarinnar eru úr íhaldsflokknum, sjö úr Venstre, og fimm úr Radikale venstre. Uffe Ellemann-Jensen, formaður Vens- tre, verður áfram utanríkisráðherra og Palle Simonsen, úr íhaldsflokkn- um, heldur áfram sem íjármálará- herra. Knud Enggaard, úr Venstre, verður vamarmálaráðherra í stað fhaldsmannsins Bemts Johans Col- lets. Sjá ennfremur frétt á bls. 30-31. Offjölgnn sela gæti hafa valdið faraldri Kiel, Reuter. Vísindamenn sögðu í gær að ör fjölgun sela gæti hafa valdið því að hundruðir sela hefðu drep- ist í Norður-Evrópu siðan í byij- un apríl. Sven Tougárd, danskur haffræð- ingur, sagði að lífsskilyrði selsins hefðu verið góð fyrir norðan Dan- mörku, þar sem sjórinn væri lítt mengaður. „Við í Danmörku teljum að útilokað sé að mengun hafi vald- ið faraldrinum. Offjölgun gæti hafa valdið honum," sagði Tougárd með- al annars. Að minnsta kosti 387 selir hafa drepist vegna faraldursins við Danmörku sfðan í byrjun apríl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.