Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988
Kræsilegar veitingar voru á boðstólum eftir skemmtiatriðin
SUMARBÚSTAÐUR
í SJÓNMÁLI
SVNINGARHBGI
ASBfOSSI
4. OG 5. JÚNÍ
KL. 14-19
Um helgina sýnum viö marga einingaframleidda sumarbústaði á
mismunandi byggingarstigum viö verksmiðju okkar að Gagnheiði
1, Selfossi. Einingahús gefa þér kost á stærð og innréttingum að
eigin ósk og þau er fljótlegt og auðvelt að reisa.
Núna er einmitt tíminn til að láta drauminn um sumarbústað
rætast - komdu því og kynntu þér þá ótal möguleika sem eininga-
framleiðslu fýlgja.
Athugaðu að við höfum opið virka daga kl. 9-17, en þú getur einnig
komið og skoðað sumarbústaðina á kvöldin - látirðu okkur vita í
tíma.
SAMTAKfpq
HUSEININGAR LJ
GAGNHEIÐ11 - 800 SELFOSSI
SÍMI 99-2333
Morgunblaðið/Þorkell
Það var margt um manninn i íþróttahúsinu við Strandgötu. Hér
biða nokkrir heiðursmenn eftir veitingunum
Hafnarfjörður 80 ára:
Aldraðir Hafn-
firðingcir gera
sérdagamun
HÁTÍDAHÖLDIN i Hafnarfirði
i tilefni af 80 ára kaupstaðaraf-
mæli bæjarins halda áfram og á
fimmtudaginn var öldruðum
Hafnfirðingum haldin afmæli-
sveisla i íþróttahúsinu við
Strandgötu þar sem borð svign-
uðu undan kræsingum. Það var
glatt á hjalla og var sönglistin
óspart iðkuð við undirleik hins
kunna hljóðfæraleikara Kjartans
Magnússonar. Ellert Borgar Þor-
valdsson, formaður Málfundafé-
lagsins Magna, söng gamlar perl-
ur og fékk viðstadda til að syngja
með.
Vistmönnum á Hrafnistu og Sól-
vangi og sjúklingum á St. Jósefss-
pítalnum var boðið upp á sömu
skemmtun seinna um daginn.
í tilefni dagsins færði bæjar-
stjómin öllum jafnöldrum bæjarins
blóm.
Hér er
gott fólk
- segir Sigur-
björg Gísladóttir
„Eg hef búið hér í 27 ár á þrem-
ur stöðum. Á Selvogsgötu, Kölduk-
inn og núna bý ég í Lækjar-
hvammi," sagði Sigurbjörg Gísla-
dóttir, 75 ára.
„Það var stórsniðugt að flytja í
Hvammana því þar fallegt og veður-
sæld er mikil. Þar er líka allt svo
nýtt, hús og götur. Ég á eina gifta
dóttur og ég bý hjá henni, tengda-
syni mínum og þremur barnaböm-
um í Lækjarhvammi.
Það er ágætt fyrirkomulag því
þegar allir eru úti að vinna er amma
til staðar.“
Ert þú það sem sumir kalla
„sannur Gaflari?"
„Eg er reyndar fædd í Dalbæ
I Gaulveijabæjarhreppi en hér
hef ég verið i 27 ár og ég flyt
ekki héðan í bráðina. Hér er
gott að vera. Umhverfið er svo
Morgunblaðið/Þorkell
Sigurbjörg Gísladóttir hefur
búið í 27 ár í Hafnarfirði og
ætlar sér ekki að flytja þaðan í
bráðina.
sérstakt, hraunið og gróðurinn í
því og hér er gott fólk. En ég
tel mig þó ekki vera Gaflara,"
sagði Sigurbjörg.
Miklar
breytingar
hafa orðið
- segir Ingimund-
ur Guðmundsson
ÖLDRUÐUM Hafnfirðingum var
boðið til veislu í íþróttahúsinu á
Strandgötu.
Ingimundur Guðmundsson hefur
búið í Hafnarfirði í 65 ár. Hann
sagði að sér liði prýðilega í Hafnar-
fírði. Hann á fímmtán barnabörn
sem búa viða um veröld en sjálfur
býr hann á Hringbrautinni.
„Það hafa orðið miklar breyting-
ar á þessum árum sem liðið hafa
og margt er til góðs,“ sagði Ingi-
mundur. „Eg var vörubílstjóri hér
áður fyrr en nú er maður órðinn
heldur framlágur."
Hvernig líst þér á veisluna?
„Veisian er ágæt. Maður sér hér
Morgunblaðið/Þorkell
Ingimundi Guðmundssyni leist
prýðilega á veislukostinn
fólk sem maður hefur ekki séð í
§öldamörg ár.“