Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.06.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988 43 Nesti onur hafa verið Iiðtækar í blóma- og trjárækt. Árið 1940 gaf ísafoldar- prentsmiðja út ljóðabók eftir Höllu Eyjólfsdóttur á Laugabóli við ísafjörð, heitir Kvæði II. í bók þessari er æfiágrip Höllu og segir þar: „A sem en þebta er ástin frá viði til viðs. KHér vil ég a& eilífu standa. K: S _ þessum árum, 1912, kom Halla sjer upp blómagarði við íbúðarhúsið; var það sá fyrsti á sveitabæ við ísafjarðardjúp, 1872x16 álnir og ijeði hún gerð hans og niðurröðun sjálf og gróðursetti þar strax algengustu íslenska runna og tijátegundir, og auk þess íslenskar blómjurtir — um eitt skeið, 1924, hafði hún þar yfir 150 tegundir íslenskra blóma — og svo að auki nokkrar útlendar skrautjurtir. Blómagarðurinn hennar, „Gleym mér ei“ var hennar helgidómur. Þar komst öll hennar nákvæmni og kærleikur að, að hlúa að hinu veikgeða foldarskarti. Þar eyddi hún flestum stundum, er hún gat sjeð frá öðrum störfum, jafnvel stytti svefntímann. Hjartamyndaða beðið í miðj- um garðinum hefur eflaust átt að minna á kærleikshug þann, er hún bæri til hinna fögru en veikbyggðu íbúa hans. — í blómsturgarðinum leið henni alltaf vel, enda festi hún skilti upp yfir hlið- inu, er hún hafði lokið við garðinn 1912, með áletrun- inni: „Hér býr ánægjan.“ Halla hafði einnig girt stór- an matjurtagarð og ræktaði þar, auk rófna, ýmsar teg- undir af kartöflum og kál- tegundir, t.d. hvítkál, grænkál og rauðkál o.fl. og fjekk vel þroskuð kálhöfuð og auk þess rabarbara. — Hvatti hún nágranna sína til garðræktar og hjálpaði þeim um útsæði, tilsögn og upp- örvun í starfinu. Hún var æfifjelagi í Garðyrkjufjelagi íslands, meðlimur í búnaðar- félagi hreppsins og heiðurs- fjelagi 1917 í UMF „Huld“ og orti í blað þess og við skógarskemmtun." Það heitir Engidalur, þar sem beygt er inn á Álftanesveginn við bæjarmörk Hafnarfjarðar. Hér á árum áður var dansað þar á palli, sem sleginn var upp á grasflöt- inni. Þetta var Hollywood og Bro- adway síns tíma. Á hraunkambinum, sem skýlir þessari litlu gróðurvin fyrir vest- anáttinni, hafa kvenfélagskonur í Garðabæ komið sér upp skóg- ræktargirðingu, og í vikunni sem leið voru nokkrar þeirra ásamt bömum sínum að huga að tiján- um. Þegar ég fór þar um, hafði hópurinn sest í hraunbolla og tek- ið fram nesti sitt. Kom mér þá í hug, að margir slíkir hópar ættu eftir að taka sig upp úr bæ eða borg á næstu vikum og fara í reitinn sinn til þess að planta tijám og hlynna að þeim sem koma undan vetri. Útiveran og erfiðið við gróðursetninguna gera hvem mann lystugan og þá er gott eins og konurnar í Garðabæ gerðu, að tylla sér niður og maula nestið sitt meðan látið er líða úr sér. En hvað ætti að vera í nesti- spakkanum? Það ætti að vera lyst- ugt og orkuríkt og hér eru nokkr- ar tillögur um það. Eitt ættum við að varast en það er að nota plastfilmu utan um feitan mat. Mýkingarefnið í plastfilmunni leysist upp um 20% þegar það kemst í snertingu við fitu. Hins vegar er annað mál með þann mat sem engin fita er í, t.d. ávexti og grænmeti. En ekki er heppilegt að leggja plastfilmu ofan á ost, kæfu eða kjötmeti. Skonsur bakaðar á pönnu 12 stk. 3 egg Vz bolli sykur 5 bollar hveiti 1 bolli heilhveiti 5 tsk. lyftiduft 1 lítri mjólk 3 msk. matarolía Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON aö standa í stat5 át ígeim'inn,— Eg meina þó ekki og stara sem fífL___........, ij\ \ nei,göfga hið smáa, ef gæti ég það, 1 r-0?. 9erð S0m h®r""allan heiminn. ^ Ég hefi’ ekki skap fcil að Itita svo a& leita brestunum hinna, en kærleikans heista ég hefja vil hátt í hæ<5ir-til átthaga sinna. Halla EyjótfSdóttir lágt á Laugabóli. 1. Hrærið egg og sykur vel saman, í hrærivél. 2. Sigtið saman hveiti, heil- hveiti og lyftiduft. 3. Setjið mjölið og mjólkina á víxl út í eggjahræruna og hrærið á milli. 4. Setjið matarolíu út í deigið. 5. Hitið pönnukökupönnu. Haf- ið miðlungshita. Bakið sfðan 12 skonsur úr deiginu. Hæfílegur tími er 5 mínútur á hvorri hlið. Skonsur bakaðar á hellu 5 stk. 250 g hveiti 250 g heilhveiti 3 tsk. lyftiduft 100 g smjörlíki 2 egg 2 dl mjólk 1. Setjið hveiti, heilhveiti og lyftiduft f skál. 2. Myljið smjörlíkið út f hveitið. 3. Setjið eggin og mjólkina út í og hnoðið deig. 4. Skipið deiginu í 5 hluta. Búið til kúlu og fletjið út þannig að þetta passi á stóra hellu. 5. Hitið helluna. Hafið minna en hálfan hita. Bakið kökumar beint á hellunni, u.þ.b. 5—7 mfnútur á hvorri hlið. Flatkökur 10 stk. 200 g hveiti 400 g heilhveiti 50 g hveitiklíð IV2 tsk. salt IV2 tsk. lyftiduft 6 dl sjóðandi vatn 1. Setjið hveiti, heilhveiti, hveitiklfð, salt og ljrftiduft í skál. Blandið vel saman. 2. Sjóðið vatnið og hellið út í mjölið. Hnoðið saman. Best er að gera það í hrærivél, þar sem deig- ið er heitt og ekki gott að hnoða það með höndunum. 3. Skiptið deiginu f 10 hluta. Fletjið síðan út í kringlóttar kök- ur. Skerið undan diski. Pikkið kökumar. 4. Setjið fullan straum á hell- una. Bakið sfðan kökumar beint á hellunni í 3—5 mínútur á hvorri hlið. 5. Bleytið diskaþurrku. Setjið utan um kökumar jafnóðum og þær em bakaðar. Setjið síðan í stóran pott og hlemm yfír. 6. Gætið þess að hreinsa af hellunni um leið og þið takið flat- kökumar af. Skafið lauslega af hellunni með hníf. Eggjakaka með hangikjöti eða silungi og flatbrauði 3 egg 2 msk. mjólk eða vatn V4 tsk. salt nýmalaður pipar 1—2 tsk. matarolía 1. Þeytið saman mjólk/vatn, salt og sykur. Hægt er að slá þetta saman með gaffli í skál. egg. 2. Setjið pönnukökupönnu á hellu og hitið. Hafið vægan hita. 3. Setjið matarolíu á pönnuna. 4. Hellið eggjahrærunni á pönnuna. Setjið lok á pönnuna og látið eggjakökuna þoma að ofan. Hægt er að nota disk til að hvolfa yfir pönnuna þar sem fæstir eiga hlemm sem passar á pönnukökup- önnu. 5. Takið eggjakökuna af pönn- unni og kælið. 6. Leggið síðan kalda eggja- kökuna ofan á flatbrauðið. Setjið síðan hangikjöt eða reyktan silung ofan á. 7. Leggið aðra smurða flatköku ofan á. Skerið í bita og pakkið inn í smjörpappír eða nestispappír. Flatbrauð eða rúgbrauð með lifrarkœfu 2 flatkökur eða 3 sn. rúgbrauð 15 g smjörvi eða sólblóma 150 g lifrarkæfa smábiti fersk gúrka smjörpappír eða nestispappír 1. Smyijið brauðið eða flat- brauðið með sólblóma eða smjörva. 2. Smyijið lifrarkæfu yfír brauðið. 3. Skerið gúrkuna í sneiðar og setjið ofan á. 4. Skerið brauðsneiðamar í tvennt og hvolfið saman eða ske- rið flatkökumar í 4 hluta og hvolf- ið saman. 5. Pakkið inn í smjörpappír eða nestispappír. Skonsur eða heil- hveitibrauð með skinku og ijómaosti 2 skonsur eða 4 heilhveitibrauð- sneiðar 1—2 msk. ijðmaostur án bragð- efna 6 sneiðar skinka fersk steinselja nokkur salatblöð smjörpappír eða nestispappír 1. Smyijið skonsumar eða brauðsneiðarnar með ijómaosti. 2. Leggið skinkusneiðamar jafnt ofan á. 3. Skerið skonsumar í femt eða hveija brauðsneið í tvennt. 4. Þvoið salatið og steinseljuna. 5. Leggið salatblað og steinse- ljugrein ofan á helming brauð- sneiðanna/skonsanna. Leggið hinn helminginn yfir. 6. Pakkið inn í smjörpappír eða nestispappír. Skonsur eða flatkökur með osti og papriku 2 flatkökur eða skonsur (eða ann- að brauð) 20 g smjörvi eða sólblóma 8—10 sneiðar ostur 1 lítil paprika, rauð eða græn smjörpappír eða nestispappír 1. Smyijið flatkökumar/skons- umar. 2. Skerið ostinn í sneiðar og leggið ofan á. 3. Takið stilkinn úr paprikunni, fjarlægið steina. Skerið síðan í sneiðar. 4. Setjið papriku á aðra flatkök- una, leggið hina yfír. Skerið síðan í bita. 5. Vefjið bitunum í smjörpappír eða nestispappír. Skonsur eða flatkökur með smurosti og tómötum 2 flatkökur eða skonsur (eða ann- að brauð) 3 msk. smurostur, t.d. sveppa- eða paprikuostur 2 meðalstórir tómatar nokkur strá graslaukur smjörpappír eða nestispappír 1. Smyijið flatkökumar eða skonsumar með ostinum. 2. Leggið tómatsneiðar ofan á aðra kökuna. 3. Klippið graslaukinn og stráið yfir. 4. Leggið smurða flatköku yfir. 5. Skerið i bita. Vefjið hveija bita í smjörpappír eða nestis- pappír.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.