Morgunblaðið - 04.06.1988, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988
64
■>—
KORFUBOLTI / NBA-DEILDIN
Heima
erbest
Jafnt hjá Dallas
og LA Lakers
SJÖTTI leikur Dallas Mavericks
og Los Angeles Lakers í úrslit-
um Vesturdeildarinnar fór fram
á fimmtudagskvöld í Dallas og
sigruðu heimamenn með 105
stigum gegn 103. Þar með hafa
bœði liðin unnið alla sína
heimaleiki í þessari viðureign.
Sjöundi og síðasti leikurinn fer
fram um helgina í Los Angeles
og er ár og dagur síðan meist-
ararnir hafa þurft að spila sjö
leiki, tvær umferðir í röð, í úr-
slitakeppninni.
rátt fyrir tapið spilaði Los
Angeles mun betur í þessum
leik en í fyrri leikjunum tveimur í
Dallas, en það dugði ekki til. Liðin
tvö hafa ekki náð
Gunnar sér upp á útivelli í
Valgeirsson þessari keppni og
skrifar verður að telja Los
Angeles sigur-
stranglegra í sjöunda leiknum.
Það var Los Angeles sem var yfír
allan fyrri hálfleik með 3-5 stigum
þar til síðustu tvær mínútumar
þegar Dallas náði góðum leikkafla.
Heimaliðið hafði 53:50 forystu í
hálfleik og hélt forystunni allan
síðari hálfleik, en lengst af munaði
um 3-5 stigum. Los Angeles tókst
ekki að jafna leikinn og þegar fímm
sekúndur voru eftir var staðan
104:102 fyrir Dallas. James Worthy
reyndi þá sniðskot en miðherji Dall-
as, James Dpnaldson, varði skotið
Og náði sjálfur frákastinu. Brotið
var á honum þegar tvær sekúndur
voru eftir. Hann hitti úr fyrra skot-
inu, en mistókst það síðara og kom
Dallas í 105:102. Leikmenn Lakers
náðu frákastinu og tóku þegar í
stað leikhlé. Úr innkastinu eftir
James Donaldson varði sniðskot
James Worthy á lokasekúndum og
tryggði Dallas sigur gegn Los Ange-
les.
leikhléið fékk „Magic“ Johnson
knöttinn og reyndi þriggja stiga
skot. Brotið var á honum og hann
fékk tvö vítaskot. Hann skoraði úr
því fyrra (105:103) en lék sér að
mistakast í hinu siðara í þeirri von
að samheijar hans næðu að blaka
knettinum í körfuna. Það mistókst
og Dallas vann leikinn.
Maður leiksins var Mark Aguirre
hjá Dallas, sem skoraði 23 stig og
tók 13 fráköst. Bakverðimir Ro-
lando Blackman (22 stig) og Derek
Harper (17 stig) áttu einnig góðan
dag hjá heimaliðinu. Hjá Los Ange-
les báru þeir James Worthy og
Byron Scott nokkuð af, skoruðu
báðir 27. stig.
Um helgina fæst úr því skorið hvaða
lið keppa til úrslita um NBA-titil-
inn. Sigurvegarinn í lokaleik Dallas
og Los Angeles keppir við sigurveg-
arann úr Austurdeild, en þar hefur
Detroit 3:2 foiystu gegn Boston og
á næsta heimaleik.
KNATTSPYRNA / 1.DEILD
Lárus með gegn
Fram á morgun
LÁRUS Guðmundsson mun
leika fyrsta deildarleik sinn
með Víkingum í sjö ár, gegn
Fram, á morgun. Hann hefur
loks fengið leyfi frá Kaisers-
lautern og ekkert því til fyrir-
stöðu að hann geti leikið með
Víkingum.
Eg er alveg tilbúinn, eða svona
eins og við er að búast. Mig
vantar kannski ieikæfíngu," sagði
Lárus. „Ég hefði viljað byija fyrr,
en staðfestingin kom svo seint. Að
sjálfsögðu stefni ég að því að skora.
Það er markmiðið í hverjum leik
og ég vona að það takist.“
Þá mun Stefán Halldórsson líklega
leika sinn fyrsta deildarleik með
Víking í nokkur ár. Hann meiddist
í öxl í vor, en er búinn að ná sér.
TENNIS
Islendingar í al-
þjóðasambandið
TENNISSAMBAND íslands
hefur sótt um inngöngu í al-
þjóðjega tennissambandið,
ITF. í sambandinu eru nú um
80 þjóðir og þátttaka íslend-
inga gæti breytt miklu fyrir
íslenskt tennisfólk, bæði hvað
varðar þjálfun og mót erlendis.
að munu þó líða a.m.k. tvö ár
þar til íslendingar geta tekið
þátt í heimsmeistarakeppninni í
tennis, Davis-bikamum. Aðeins
fullgildir meðlimir fá að keppa í
Davis-bikamum, en það þurfa að
líða tvö ár þar til íslendingar geta
talist fullgildir meðlimir í ITF.
„Ég held að þetta komi til með að
breyta miklu fyrir okkur. Ekki bara
hvað varðar alþjóðleg samskipti
heldur munum við einnig fá aðstoð
við þjálfaramál og fleira," sagði
Guðný Eiríksdóttir, formaður tenn-
issambandsins. „Öll alþjóða sam-
skipti eiga sér stað f gegnum al-
þjóðsambandið og það má kannski
segja að með aðild að ITF komust
við á landakort tennismanna."
■ TONY Schumacher fyrmrn
landsliðsmarkvörður Vestur-
Þýskalands hefur ákveðið að skrifa
undir tveggja ára samning við tyrk-
neska liðið Fenerbahce. Tyrkneska
liðið hefur tíu sinnum orðið meistar-
ar í sínu heimalandi og að sögn
umboðsmanns Schumachers eru
allar aðstæður þar til fyrirmyndar.
Schumacher lék með Schalke í
vestur-þýsku deildinni, en fór að
hugsa sér til hreyfíngs eftir að ljóst
varð að liðið féll í aðra deild í vor.
Samningurinn sem Fenerbahce
bauð hinum 34 ára gamla mark-
verði hljóðar upp á 500.000 dollara
auk ýmissa fríðinda.
■ BRESKU meistaramir Se-
bastian Coe og Steve Cram standa
nú frammi fyrir þeim möguleika
að aðeins annar þeirra verði fulltrúi
Englands í 1.500 m hlaupi á
ólympíuleikunum í Seoul. Ástæðan
er sú að Coe sem er ólympíumeist-
ari í greininni og Cram sem er
Evrópumeistari hafa neitað að
keppa á móti sem breska frjálsí-
þróttasambandið gengst fyrir í
ágúst. Samkvæmt reglum sam-
bandsins eiga þrír fremstu hlaupar-
ar Iandsins að keppa þar í 1.500 m
og fara tveir fyrstu til Seoul. Ef
þeir félagar hlaupa ekki segjast
talsmenn sambandsins ekki eiga
annars úrkosta en að hleypa þriðja
hlauparanum að. Coe og Cram
hafa hugsað sér að keppa bæði í
800 og 1.500 m á ólympíuleikunum.
Þeir segja það of mikla áhættu að
hlaupa bæði 800 og 1.500 m á
mótinu í ágúst þar sem stutt sé í
ólympíuleikana, og hafa báðir tekið
þá ákvörðun að leggja þar áherslu
á 800 m. Talsmenn breska fijálsí-
þróttasambandsins eru ákveðnir í
að halda reglumar þrátt fyrir þetta,
en vonast þó til að þeim köppum
muni snúast hugur.
Unglingar
- KEILUIMÁMSKEIÐ
Öll ungmenni á aldrinum 10-16 ára eru velkomin tii þátttöku. Nám-
skeiðið kostar aðeins kr. 330,- hvert sinn (með skóm). Frekari upplýs-
ingar veittar í síma 621599, Keilusalnum, Öskjuhlíð.
í framhaldi af námskeiðinu verður Flugleiðamótið haldið síðsumars.
Þeir, sem standa sig vel á því móti, fá ferðaverðlaun til Englands í
keilukeppni o.fl. verðiaun.
Keilunámskeið
verðaísumará
laugardögum frá
kl. 11-13.
LEIÐBEINENDUR VERÐA:
Keiluunglingar eftir sigurför tll Englands
Um helgina
Knattspyma
Laugardagur
1. deild
Leiftur-Þór..........ÓlafsQarðarv. kl. 14
2. deild
KS-ÍR................SigluQarðarv. kl. 14
3. deild kl. 14
ÍK-Njarðvík..................Kópavogsv.
UMFG-Stjaman..............Grindavíkurv.
Víkveiji-Leiknir R..........Gervigrasv.
Magni-Dalvík...............Grenivíkurv.
Huginn-Hvöt..............SeyðisQarðarv.
Þróttur N.-Reynir Á.....Neskaupstaðarv.
4. deild
Ægir-Árvakur.....Þorlákshafnarv. kl. 14
Snæfell-Skotf. R.Stykkishólmsv. kl. 14
Skallagr.-Fyrirtak...Borgamesv. kl. 14
Hafnir-Hveragerði...Keflavíkurv. kl. 14
Léttir-Víkinguró........Gervigrasv. kl. 17
Bíldudalur-Geislinn..Bíldudalsv. kl. 14
Höfrungur-BÍ............Þingeyrarv. kl. 14
Efling-Æskan................Laugav. kl. 14
Vaskur-UMSEb............Akureyrarv. kl. 14
Neisti-HSÞ-b...............Hofsósv. kl. 14
KSH-Valur Rf.........Staðarborgarv. kl. 14
Leiknir F.-Höttur......Fáskrúðsfjv. kl. 14
Neisti-Au8tri...........Djúpavogsv. kl. 14
1. deild kvenna
ÍBÍ-LA.................ísaflarðarv. kl. 17
Stjaman-ÍBK................Stjömuv. kl. 14
2. deild kvenna
Þór A.-FH....................Þórsv. kl. 14
Sunnudagur
1. deild
Fram-Víkingur..........Laugardalsv. kl. 20
4. deild
Augnabl.-Haukar..........Kópavogsv. kl. 14
1. deild kvenna
Valur-KA.....................Valsv. kl. 14
Mánudagur
2. deild
Þróttur-Fylkir.........Laugardalsv. kl. 20
Golf
Laugardagur
Opna Selfossmótið verður haldið í dag á
Svarfhólsvelli. Þetta er 18 holu punkta-
keppni.
Sunnudagur
Golfklúbbur Reykjavfkur heldur fláröflunar-
mót á golfvellinum í Grafarholti á morgun
og verður ræst út frá klukkan 9. Leikið
verður 18 holu punktamót með fullri forgjöf.
Opið mót í Hvaleyrarholtinu
Opið mót Keilis og B. Magnússon (Kays)
fer fram á Hvaleyrarholtsvelli á morgun,
sunnudag. Ræst verður út frá kl. 8.30 og
leikinn höggleikur, með og án forgjafar.
Vinningar eru tvö golfsett, tvær golfkerrur
og tveir golfpokar. Þá verða veitt aukaverð-
laun á par 3 holum vallarins. Sérstök auka-
verðlaun verða einnig veitt fyrir þijú bestu
skor hjá konum með forgjöf.
Kaila
Laugardagur
Kl. 20 Kyndilkeilumót 1 Öskjuhlíð.
Sunnudagur kl. 20.
Sumarmót Sigga frænda í Öskjuhlíð.
Mótin eru öllum opin og skráningu lýkur
fimmtán mínútum fyrir keppni.
NorAurlandamót fatlaðra
Norðurlandamót fatlaðra í Boccia fer fram
í íþróttahúsinu Digranesi. Mótssetning verð-
ur klukkan 10 í dag, en hálftíma síðar hefj-
ast undanrásir í sveitakeppni og úrslitin
byija klukkan 14.45. Á morgun kl. 10 verða
undanrásir í einliðaleik og úrslitin heQast
klukkan 13.15.
Á Selfossi verða norrænir leikar fatlaðra.
Kk 10 í dag verður mótið sett á íþróttavellin-
um og kl. 11 hefst keppni í fijálsum íþrótt-
um. Kl. 16 verður keppt í boccia í íþróttahús-
inu. Á morgun kl. 9 er innanhúss hokkí á
dagskrá og klukkan 13.30 hefst keppni í
sundi.
Gódandaginn!