Morgunblaðið - 15.07.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
7
Sama stórveiðin í Kjósinni.
Mikil og góð veiði er enn í
Laxá í Kjós og hefur hasarinn
dreifst um alla á í stað þess að
fara allur fram á stuttu svæði
eins og fyrr í sumar. Geysimikili
lax er í ánni og hún varð fyrst
til að ijúfa 1000 laxa múrinn.
Eftir því sem komist verður
næst, munu komnir um 1100
laxar á land og ef mið er tekið
af hve dijúgur tími er enn til
stefnu, þá sýnist sem svo að það
verði leikur einn að fara í 2000,
e.t.v. meira. Vanir menn hafa
sagt, að á einstökum veiðistöð-
um, eins og t.d. við Króarhamar,
í Pokafossi og Bugðufossi, skipti
laxamir mörgum hundruðum.
Vatn er enn gott, en byijað að
minnka. Laxinn er þó enn að
ganga og litlar horfur á því að
hægist um að neinu ráði í veið-
inni.
Sjaldan betra í Haukunni.
Tæplega 400 laxar hafa veiðst
það sem af er í Haukadalsá og
er það einhver besta veiði miðað
við tíma sem komið hefur í árar-
aðir. Mikill lax er í ánni, dreifður
vel, og bæði vænn og smár í
bland. Heldur meira af smálaxin-
um eins og víðar á Vestur- og
Suðvesturlandi. Þeir stærstu 18
punda.
Athyglisvert svæði....
nt bærilega á hinu athyglisverða
svæði Norðlingafljóti, en þar
kasta menn fyrir vilita hafbeitar-
laxa sem leigutakar árinnar hafa
ekið til hennar allar götur frá
Lárósi. Veiði hófst á fjórar
stangir um síðustu mánðamót
og í gær voru komnir eitthvað
um 40 laxar á land. Veiðisvæðið
er bæði langt og feiknafallegt
og bunkar laxinn sig ekki, heldur
dreifír sér um allt. Er leit að
laxi og óvíða margir saman, en
um 250 laxar voru enn í ánni
er þetta var ritað. Væntanlegir
voru 100 nýir fiskar af Snæfells-
nesinu um helgina. Talsvert er
að stórum fískum í ánni, 12 til
20 punda og einn meira að segja
25 punda eða svo. Algengastir
eru þó 6 til 10 punda fískar.
Þeir segja sem reynt hafa, að
þessi veiðiskapur gefi ekki öðrum
eftir, enda á ferðinni villtur físk-
ur í fallegri á. Þá er aðstaða góð
og verði mjög í hóf stillt.
Álftá hin líflegasta.
í Álftá á Mýrum það sem af
er eru komnir nærri 60 laxar á
land sem er þeim mun betra
þegar að er gáð, að veiði var lítil
í júní vegna flóða. Veiðimenn
sem komu í ána um helgina
veiddu vel og kunnugir töldu sig
sjaldan eða aldrei hafa séð annað
eins af laxi svo snemma á veið-
itíma, en yfirleitt hefur Álftá
verið talin „síðsumarsá“. Laxinn
er yfirleitt fallegur 6 til 8 punda
fiskur, en laxar allt að 20 pund
eða meira eru þama líka á
sveimi.
Horfir heldur illa í
Laxá............
„Þetta lítur eiginlega ekki
nógu vel út, þessi þráláta sunn-
anátt ásamt leirlosinu í Mývatni
hefur valdið því að áin hefur
lengst af verið meira og minna
gruggug og erfíð til veiða, sérs-
taklega í efri ánni. Þegar svona
blæs í 3 til 4 daga, er áin annan
eins tíma að hreinsa sig. Nú
hefur þetta verið svona sleitulítið
í hart nær mánuð og meiri hluti
veiðinnar hefur verið tekinn fyrir
neðan Æðarfossa. Stundum er
eins og áin sé að lagast og þá
koma strax skot, en svo hefíir
alltaf sótt í sama farið,“ sagði
Þórður Pétursson á Húsavík í
gær, en veiðin í Laxá hefur ver-
ið treg það sem af er og er þó
talið að all mikill fískur sé geng-
inn i ána. Á hádegi í gær voru
komnir 608 laxar á land, sá
stærsti 26 punda fískur sem
veiddist fyrsta daginn. Aflinn er
vænn fiskur og smár í bland.
Áslaug Magnúsdóttir
Lést í um-
ferðarslysi
Konan, sem lést í bilslysi á
Hrútafjarðarhálsi siðdegis á mið-
vikudag, hét Áslaug Magnús-
dóttir.
Áslaug var 71 árs gömul og til
heimilis að Hrísateig 35 í Reykjavík.
Hún var ekkja en lætur eftir sig
þijú uppkomin börn.
Slysið varð með þeim hætti að
hjól fór undan bflnum sem konan
var farþegi í þannig að hann fór
út af veginum og valt. Tveir aðir
voru í bílnum en meiðsli þeirra voru
ekki alvarleg.
Ölvaður féll
fjóra metra
ÖLVAÐUR maður féll fjóra
metra niður af iðnaðarhúsnæði
i Kópavogi í fyrrinótt og slasað-
ist töluvert við fallið. Lögreglan
fann manninn liggjandi í blóði
sínu morguninn eftir og kom
honum undir læknishendur.
Er starfsmenn iðnaðarhúsnæðis-
ins mættu til vinnu í gærmorgun
sáu þeir að sá ölvaði hafði farið þar
inn og fiktað eitthvað við vélar sem
þar voru en í húsnæðinu er smíða-
verkstæði.
Talið er að maðurinn hafi farið
inn í húsnæðið og villst þar inni.
Hann fór síðan út úr húsinu um
dyr þar sem fjögurra metra fallhæð
er fyrir neðan með fyrrgreindum
afleiðingum.
har-Broil verksmiðjurnar sem fundu upp útigasgrillið kynna í dag mestu framför
í 30 ár, þ.e. Char-Broil gasgrillkolin. ■ í stað þess að nota hraunmola, eru notuð sérstök
viðarkol, sem gefa “e/cta viðarkolabragð“ í allt að 10 klst. þ.e. 10 - 20 grillskipti.
Eftir það nýtast þau eins og steinar eða hraun, en einnig má skipta þeim út fyrir ný.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 “S* 91-691600
Öllum grillunum fylgir:
* Emaljeruð grillgrind.
* Gler á loki
* Vinnuborð til hliðar og að framan
* Hitamælir í gleri (dýrari gerðir)
* Upphækkuð grillgrind fyrir kartöflur og grænmeti
* Gaskútur
* Góðar leiðbeiningar
Verð á CHAR-BROIL frá:
12.900.-
Char-Brail
EINA
GASGRILLIÐ
MEÐ GAMLA
GÓÐA
GRILLBRAGÐINU