Morgunblaðið - 15.07.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.07.1988, Blaðsíða 36
36 MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 T Mótun réttarríkis á sósíalískum grunni Viðtal við Júríj Reshetov, aðstoðardeildarstjóra við deild velferð- ar- og menningartengsla í utanríkisráðuneyti Sovétríkjanna í tilefni leiðtog’afundarins i Moskvu í lok maimánaðar ósk- aði Morgnnblaðið eftir viðtali við Júríj Reshetov, aðstoðar- deildarstjóra við deild velferð- ar- og menningartengsla í ut- anríkisráðuneyti Sovétríkjanna. Reshetov starfaði á árum áður í sovéska sendiráðinu í Reykjavík en hélt héðan til Dan- merkur. Skrifstofa APN-frétta- þjónustunnar á Islandi hafði milligöngu um að koma spurn- ingunum á framfæri við Res- hetov og rúmum mánuði siðar bárust svör hans. Eftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir Júríj Reshetov: 1. Þér störfuðuð í Reykjavík á árum áður. Hvað er yður minnisstæðast frá þeim tima sem þér dvölduð á Islandi? 2. Vilduð þér rekja í stuttu máli feril yðar frá því þér fóruð frá íslandi þar til þér tókuð við stöðu yfirmanns deildar vel- ferðar- og menningartengsla við sovéska utanríkisráðuneyt- | ið? 3. Okkur skilst að staða þessi sé ný af nálinni. í hveiju er starf yðar fólgið. Takið þér t.a.m. þátt i viðræðum við erlenda embættismenn og gildir hið sama um fundi leiðtoga risa- veldanna? 4. Hvaða áhrif hafa hinar nýju hugmyndir, sem Míkhail Gorbatsjov, aðalritari Komm- únistaflokks Sovétríkjanna, hefur kynnt á undanförnum árum, haft á stefnu ríkisstjórn- ar Sovétríkjanna á sviði mann- réttindamála? 5. Gætuð þér í almennum orð- um lýst helstu hindrunum í vegi aukins skilnings milli austurs og vesturs á sviði mannréttinda- mála? Sjáið þér fyrir einhveijar grundvallarbreytingar á næst- unni? 6. Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra ís- lands, hitti Míkhaíl Gorbatsjov, aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, að máli í Moskvu í marsmánuði 1987. Hann kvað Gorbatsjov hafa tjáð sér að brátt myndu ibúar Sovétríkj- anna njóta meira frelsis en íbú- ar Vesturlanda. Teljið þér þetta rétt og ef svo er hvaða ráðstaf- anir getið þér nefnt, sem gripið hefur verið til í heimalandi yð- ar, til að tryggja aukið frelsi? Eins og sést á meðfylgjandi samtali, sem Vladislav Balashov skráði, eru nokkrar spurningar hans ekki alveg samhljóða þeim sem Morgunblaðið sendi. En hér birtist samtalið frá APN í heild: Spurning: Þér voruð í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Hvað er yður minnisstæðast frá þeim tíma sem þér dvölduð á íslandi? Svar: Einhvern tíma stakk kennari minn, M. Steblin-Kam- enski, patríarki norrænna fræða í Sovétríkjunum, upp á því við mig að ég helgaði mig íslenskunámi. Því miður tókst mér ekki að Iáta þessa ósk hans. rætast að fullu. En ég verð að segja að ísland hefur alltaf verið mér ofarlega í huga. Eg man landið vel, svo og fólk- ið, sem ég kynntist þar. Mér finnst ég enn vera nemandi Þórbergs Þórðarsonar og man tíða fundi mína með honum og Margréti, konu hans. Hann er í mínum huga hinn skýri persónugervingur al- heimssálarinnar og jafnframt hinnar íslensku sálar, sem er ein- stök. Bækur hans fylgja mér hvert sem ég fer. Mér fannst þjóðfélagsleg reynsla hins íslenska réttarríkis, þar sem mannlegir eiginleikar voru ætíð mest metnir, afar merki- leg. „Með lögum skal land byggja," segja Islendingar. Spurning: Gætuð þér sagt í stuttu máli frá ferli yðar frá því Júríj Reshetov þér fóruð frá íslandi og þar til þér tókuð við þeirri stöðu, sem þér gegnið í dag? Svar: Eftir að ég fór frá ís- landi, starfaði ég í Danmörku. Síðan var ég við nám við Dipló- mata-akademíuna og varði kandídatsritgerð um ijölskyldu- tengsl í Svíþjóð. Síðan lagði ég stund á þjóðréttarfræði og aðal- lega á mannréttindi. Á miðjum áttunda áratugnum var ég fulltrúi á ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. ís- lenska sendinefndin var fámenn og á öðru stigi ráðstefnunnar, sem haldin var í Genf, komst Einar Benediktsson, sendiherra Islands í Sviss, ekki yfir að sitja í öllum nefndum og undimefndum._ Þá fól hann mér að vera fulltrúi Islands á fundum fyrstu umræðunefndar um samstarfsreglur. Ég man líka að ég hitti Matthías Johannessen á lokastigi ráðstefnunnar. Við ræddum nokkur mál og síðan skrifaði hann um það í Morgun- blaðið. Frá 1975-1980 starfaði ég við Mannréttindadeild SÞ í Genf og síðan um sex ára skeið við Ríkis- og réttarstofnun Vísindaakademíu Sovétríkjanna. Ég varði doktors- ritgerð um alþjóðlega glæpi, sem ég tel vera hættulegustu mann- réttindabrotin. Spurning: Þér tókuð ekki alls fyrir löngu við þessari stöðu. í hverju er starf yðar fólgið? Tak- ið þér þátt í viðræðum við opin- bera gesti erlendis frá, t.d. á fundum leiðtoga stórveldanna? Svar: Ég er búinn að vera að- stoðaryfirmaður við deild velferð- ar- og menningartengsla í eitt ár. Þetta er ný deild við utanríkisráðu- neytið, sem á að framkvæma stefnu hins nýja hugsunarháttar og perestrojku á sviði mannlegrar velferðar innanlands og á alþjóða- vettvangi. Innanlands gengur þessi stefna út frá nauðsyn þess að þróa lýð-, ræði og glasnost, sjálfsstjórnun þjóðarinnar. Á alþjóðasviðinu er gengið út frá því að samstarf á sviði mannlegrar velferðar sé ein af undirstöðum friðar og alþjóða- öryggis. Deild þessi hefur með höndum endurbætur á sovésku löggjöfinni. Verið er að samræma hana al- þjóðlegum skuldbindingum okkar á sviði mannréttindamála. Deildin sér einnig um að þróa tengsl við erlenda mótaðila okkar, þar á meðal Bandaríkjamenn. Þegar haldnir eru fundir utanríkisráð- herra og leiðtogafundir, eru venju- lega settir á stofn starfshópar, sem fjalla um mannlega velferð og þar gegnir deildin leiðandi starfi. Hópganga íþróttafélaga á sumarhátíð ÚÍA. Morgunblaðið/Björn Sveinsson Sumarhátíð Úí A á Egilsstöðum Egilsstöðum. ÁRLEG sumarhátið Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands verður haldin á Eiðum dagana 15.—17. júlí. Sumarhátið UÍA er fyrst og fremst íþróttahátíð þó ýmislegt sé sér til gamans gert á hátið sem þessari annað en að keppa í íþróttum. Dansleikur verður í tjaldi á laugardagskvöld og á sunnudag er sérstök hátiðardag- skrá. Heiðursgestur á þessari sumarhátið verður Stefán Þorleifs- son frá Neskaupstað. Yngstu aldurshóparnir setja jafnan mikinn svip á þessa hátíð, en keppt er í flestum greinum frjálsra íþrótta, knattspyrnu, sundi og fleiri greinum. Einnig er keppt í starfs- íþróttum svo sem línubeitingu, dráttarvélaakstri, jurtagreiningu og að leggja á borð. Þetta er í þrettánda skipti sem sumarhátíð UIA er haldin, og seg- ir Hrafnkel! Kárason, formaður sambandsins, að hún hafi augljós- lega sannað gildi sitt, því sífellt fleiri taki þátt í henni, bæði sem keppendur og áhorfendur og nú stefni í metþátttöku. Hér sé um íþróttahátíð unga fólksins að ræða. Hér fái það tækifæri til að reyna sig við jafnaldra sína. í öðru lagi sé þetta samvera þeirra eldri með æskunni í gleði og leik, og það sé foreldrunum nauðsynlegt að vera með börnunum nú á tímum þegar fólk er sífellt matað á af- þreyingarefni án nokkurrar fyrir- hafnar. UÍA vinnur sífellt að því að bæta aðstöðuna á íþróttasvæði sínu á Eiðum og undanfarin þrjú ár hafa verið gróðursettar þar 1.300 tijáplöntur til að gera meira skjól á svæðinu og gera það meira aðlaðandi til hverskonar útiveru og mótahalda. Nú í vor var sam- bandinu færð rausnarleg gjöf er hjónin Sigríður Kjerúlf og Einar Pétursson á Egilsstöðum afhentu skógræktarráði UÍA 140 aspir sem gróðursettar voru á Eiðum. Trén voru um meters há og höfðu hjónin ræktað þau í gróðurreit sínum hér á Egilsstöðum. Laus- lega áætlað má gera ráð fyrir að verðmæti þessarar gjafar sé um 65.000 kr., en fyrir æskuna, sem á eftir að njóta skjóls af þessum trjám í keppni og leik um ókomin ár, er hún ómetanleg. - Björn Savvas í Lækjartungli DANSARINN og skemmtikraft- urinn Sawas Kyriakou frá Bret- landi er nú staddur á íslandi. Hann kemur fram í Lækjartungli og Biókjallaranum dagana 15.-24. júlí. Sawas sýnir nokkurskonar vél- mennadans og leikræn atriði, sem fengin eru að láni úr kvikmyndum um njósnarann 007, James Bond. Sýninguna nefnir hann „Robotic Danee 007“. Sawas hefur áður kom- ið hingað til lands, en hann ferðast víða með sýningar sýnar, bæði til borga í Evrópu og Japan. Þá vann hann hæfileikakeppnina „National Welch Telent Contest" í ágúst á síðasta ári. Auk sýninga Sawas Kyriakou sýnir sænskur flokkur, Guys’n’dolls svokallað „drag show“ í Lækjar- tungli og Bíókjallaranum. Skemmti- staðurinn Lækjartungl ákveðið að haga því þannig í sumar, að þegar einn aðgöngumiði er keyptur fær viðkomandi annan miða fríann, sem hann getur notað hvenær sem er fram til 1. september nk. Sawas Kyriakou.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.