Morgunblaðið - 15.07.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.07.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 Minning: Brynjúlfur Jóns- son prentari Fæddur 26. apríl 1914 Dáinn 7. júlí 1988 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tiða. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið“. (V.Briem) Margar minningar tengdar Binna frænda koma fram í hugann nú að leiðarlokum. Okkur systkinunum gleymast aldrei heimsóknirnar hans, honum var alltaf fagnað. Þegar við vorum krakkar stukkum við alltaf upp í fangið á honum þegar hann birtist í dyrunum og okkar böm fögnuðu honum með sömu gleði. Binna var alltaf mest í mun að gleðja aðra, sérstaklega böm. Hann settist á gólfíð og lék við okkur, las fyrir okkur eða sagði sögur. Hann sýndi okkur ótakmarkaða þolin- mæði og góðvild, síðar nutu bömin okkar sömu gæðanna og verður það aldrei fullþakkað. Ógleymanlegar em allar ferðim- ar með Binna frænda í bíó, í Ár- bæjarsafnið, Þjóðminjasafnið, myndlistarsýningar, leikhús og seinna ópemr. Margar ferðir vom famar í Hljómskálagarðinn að skoða blóm og mynda. Binni hafði áhuga fyrir ljósmyndun og efla myndimar hans minningamar. Aldrei féll skuggi á vináttuna og mun minningin um góðan dreng lifa. Með alúðarþakklæti frá okkur Sigga og dætmm okkar. Anna Guðný Árnadóttir Við fráfall Brynjúlfs Jónssonar, Binna frænda, sækja að fjölskyldu minni söknuður og ljúfar minningar um góðan dreng. Hann var fæddur í Reykjavík 26. apríl 1914, sonur hjónanna Jóns Helgasonar, prentara og fyrri konu hans Önnu Kristínar Sigurðardóttir. Vom þau hjón bæði ættuð af Bem- fyarðarströnd. Jón Helgason hóf prentnám í Félagsprentsmiðjunni 1897, lauk þar námi og hélt síðan til Noregs til starfa í rúm tvö ár, starfaði eitt sumar á Seyðisfírði og síðan aftur í Noregi til 1905, að hann hvarf heim og gerðist einn af stofnendum prentsmiðjunnar Gutenberg, rak með öðmm prentsmiðju í Hafnar- fírði og síðar á Eyrarbakka, starf- aði síðan í Reykjavík, setti þar á stofn eigin prentsmiðju á Berg- staðastræti 27 árið 1925, Prent- smiðju Jóns Helgasonar, er hann rak meðan starfsþrek entist. Móðir Brynjúlfs, Anna Kristín, 10ÁRAÁBYRGÐ ALSTIGAR ALLAR GERÐIR SÉRSMÍÐUM BRUNASTIGA O.FL. Kaplahrauni 7, S 651960 lést í spönsku-veikinni 1918 og hafði þeim Jóni orðið 7 bama auð- ið. Létust 4 í æsku, 2 drengir og 2 dætur. Upp komust synimir Bald- ur, Sigurður og Brynjúlfur, er fet- uðu allir í spor föðurins, lærðu hjá honum prentlist og störfuðu við þá iðn alla sína starfsæfí. Fjórum ámm eftir lát Önnu Kristínar gekk Jón að eiga Aðal- björgu Stefánsdóttur frá Möðmdal og átti með henni dótturina Helgu, húsfreyju í Reykjavík. Tengdamóðir mín, Rannveig Gunnarsdóttir, og Anna Kristín, móðir Brynjúlfs, vom bræðradætur. Var Rannveig vinnukona hjá frænku sinni í Reykjavík. Einhvem- veginn æxlaðist það svo að Brynj- úlfur litli hændist að þessari frænku sinni og hélt alltaf mikilli tryggð við hana og böm hennar. Fyrir nær hálfum fímmta áratug barst ég inn í fjölskyldu Rannveig- ar. Kynntist ég þá Brynjúlfí, sem þar á bæ gekk alltaf undir nafninu Binni frændi. Var hann aldrei öðm vísi nefndur af bamabömum Rann- veigar og okkur Guðnýju, tengda- bömum hennar, þótt óskyld væmm Binna. Þetta gilti líka um tengda- böm okkar og heyrt hefí ég þannig nafnið hjá tengdabömum frænd- fólks Binna austur í Bemfirði. Sama hefír gilt um Guðfínnu Gísladóttur frá Krossgerði, frænku Binna frænda, hana Finnu frænku. Binni frændi var sem sagt fædd- ur og uppalin í prentverki. Hóf nám í prentsmiðju föður síns strax og hann hafði aldur til, 1929, þá nýorð- inn 15 ára og vann þar óslitið til 1955 en síðan í ísafoldarprent- smiðju meðan starfsþrek entist. Hann bar virðingu fyrir starfí sínu og þoldi illa fúsk. Veit ég að hann var oft látinn setja vandasama texta og rithöfunda sem ekki létu sér lynda óvönduð vinnubrögð í prent- verkinu. Þykist ég þar til geta nefnt Thor Vilhjálmsson, en um hann sagði Binni frændi að þótt Thor hafí verið kröfuharður og fylgst grannt með setningu bóka sinna, hafí sér líkað vel að setja bækur hans, því Thor væri smekkmaður á frágang texta. Eg veit líka að Binni frændi var vel metinn af stéttarbræðrum og vinnufélögum. Ég kynntist því best þegar við hjónin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að standa fyrir afmælisveislu er hann hélt á heim- ili okkar fimmtugur. Mun okkur sá mannfagnaður seint úr minni líða. Binni var um margt gæfumaður, þótt stundum gæfí á bátinn eins og verða vill í lífsins ólgusjó. Hann var alinn upp í guðsótta og góðum siðum, hafði ekki áhuga á hagvaxt- arfætinum. Veraldarvafstur var takmarkað við að hafa þolanlega í sig og á, vissi af eðli sínu og trú að auðsöfnun er ekki vænleg til sáluhjálpar, hvorki þessa heims né annars. Trúmál hans voru mótuð af siðakenningu trésmíðasonarins frá Nasaret og pólitíkin af gamalli íhaldssemi. Einhvemveginn varð það þó svo að þótt við Binni frændi værum ekki alltaf á sömu bylgjulengd gát- um við alltaf rætt þessi mál í sátt og samlyndi. Þakka ég það mest öfgaleysi hans, sem lýsti sér m.a. í því að í upphafí var Þjóðviljinn prentaður hjá Jóni Helgasyni og minntist Binni þess tíma alltaf með glaðværð og góðvild í ummælum um starfsmenn blaðsins og mun þar í þrengslunum á Bergstaðastræti 27 hafa sannast hið fomkveðna að „þröngt mega sáttir sitja" enda þótt að óravegur virðist skilja lífsviðhorf. Binni frændi hafði yndi af góðum bókum og þó enn meir af hinu myndræna. Sótti kvikmyndahús ef góð mynd var á boðstólum, kunni vel að fara með myndavél og fylgd- ist með myndlistinni og iðkaði sjálf- ur hin síðustu ár, þegar tækifæri bauðst til að sækja slík námskeið fyrir áhugafólk. Þessu skylt áhuga- mál var náttúruskoðun og veit ég að hann átti gott safn ljósmynda er hann tók á ferðum sínum, ekki síst af blómum. Árið 1936 kvæntist Brynjúlfur Bryndísi Sigurðardóttur. Þau skildu. Þeim varð einnar dóttur auðið, Önnu Kristínar, konu Elísar Snælands Jónssonar blaðamanns. Hjá þeim og sonum þeirra átti Binni notalegt skjól og bjó hjá þeim síðustu árin, eftir að hjartasjúk- dómurinn, sem varð honum að ald- urtila, gerðist of svsðsinn til að hann gæti búið sínu búi á Berg- staðastræti 27. Að leiðarlokum er margs að minnast frá góðum kynnum. Margt af þeim á ekki erindi í blöð, en ekki get ég skilist við þessa grein án þess að þakka það sem aldrei verður fullþakkað, en það var sú vinátta sem hann rækti við bömin mín, allt frá því þau risu fyrst á legg og til lokadags. Mér eru ekki orð tiltæk að lýsa þessu nánar, en ég veit að bömin okkar Gínu gleyma ekki Binna frænda meðan þau geta munað. Árni Halldórsson Binni frændi er dáinn, því verður ekki breytt, en við eigum mikið að þakka sem fengum að njót sam- vista við hann-. Binni skipaði sér- stakan sess hjá okkur systkinunum. Hann var rólegur maður að eðlis- fari, yfirvegaður og naut sín best í góðum félagsskap, Góðmennska, þolinmæði þrátt fyrir at og amstur, aðlaðandi framkoma og fas, laðaði böm að honum. Yngstu systkini mín, Gunnar, Anna Guðný og Rann- veig, fengu ríkulega að njóta þess- ara mannkosta. Hann studdi þau til þroska og naut þess að sjá þau vaxa úr grasi. Eftir að þeir bræð- ur, Binni og Siggi, misstu móður sína vom þeir mikið hjá Rannveigu ömmu. Vináttu og skyldleikatengsl voru ætíð sterk milli þeirra og mömmu. Pabbi og Binni voru mikl- ir mátar. Þeir rökræddu oft um pólitík og voru yfírleitt á öndverðum meiði, en aldrei brá það skugga á vináttu þeirra. Frá því ég var smásnáði og þar til foreldrar mínir fluttu búferlum til Egilsstaða borð- uðu þeir Binni og Siggi alltaf heima á aðfangadagskvöld. Samveran á jólahátíðinni hefur örugglega mótað þá nánu vináttu sem var milli Binna og okkar systkinanna. Binni unni fögrum listum og fékkst sjálfur við myndlist. Síðustu árin stundaði hann myndlistamám sem varð hon: um uppspretta mikillar ánægju. í myndlistinni fékk hann útrás fyrir sköpunargleðina. Við krakkamir fómm ekki varhluta af þessu hugð- arefni Binna frænda. í jólagjöf fengum við áhöld og dúka til að skera í myndir, síðan þrykkti hann þær á pappír niðri í prentsmiðju. Það var ekki síst fyrir áhuga Binna og hvatningu að Gunnar bróðir lagði á listabrautina og nam högg- myndalist. Þeir bræður Binnni og Siggi vom prentarar að iðn. Nú em þeir báðir látnir, en heima bíður legsteinn sem Binni fékk Gunnar bróður til að gera á leiði Sigga. Legsteinninn, í mynd bókar, er táknrænn fyrir ævistarf þeirra bræðra. Ætlunin var að setja hann upp næst þegar Gunnar kæmi til landsins. Binna entist ekki aldur til þess, en verkið er tákn um þá um- hyggju sem hann sýndi þeim sem næst honum stóðu. Með þessum línum kveð ég Binna frænda með þakklæti í huga. Halldór Árnason í dag fer fram frá Kópavogs- kirkju útför Brynjúlfs Jónssonar prentara, sem lést 7. júlí. Hann var fæddur í Reykjavík 26. apríl 1914, sonur Jóns Helgasonar prentara og útgefanda, sem var þjóðkunnur maður, og fyrri konur hans, Önnu Kristínar Sigurðardóttur. 15 ára gamall hóf Brynjúlfur prentnám í prentsmiðju föður síns og vann þar til ársins 1955, er hann ræður sig sem vélsetjara til ísafoldarprent- smiðju og vann þar þangað til hann hætti störfum um sjötugsaldur. í ísafold tókust með okkur Binna, eins og hann var kallaður af okk- ur, vinum hans, góð kynni, sem þróuðust upp í einlæga vináttu milli okkar og fjölskyldu minnar. Hann var flestum þeim kostum búinn, sem best prýða hvem einstakling, einlægur, hreinskilinn og orðvar um menn og málefni. Það var auðvelt að umgangast hann, hvort sem var á vinnustað eða utan, því hann var sérstakt ljúfmenni. í öll þau ár, sem við unnum saman, sá ég hann aldr- ei skipta skapi. Oft dáðist ég að honum hvemig hann hélt sálarró sinni í öllum þeim starfserli og véla- hávaða, sem fylgir því að vinna á stómm, fjölmennum vinnustað. Það hlýtur að vera mikil guðsgjöf að vera þessum kostum búinn. Um verkkunnáttu Brynjúlfs er það að segja, að honum var prent- listin í blóð borin í fyllstu merkingu þess orðs, afbragðs góður setjari og átti auðvelt með að teikna og skapa fallega prentgripi. Hann var góður íslenskumaður og sóttust skáld sérstaklega eftir að hann setti þeirra verk. Á yngri ámm sótti hann námskeið í myndlist við Hand- íða- og myndlistarskólann í Reykjavík, því listsköpun var mikil í hans huga, sérstaklega myndlist og ljósmyndun, og síðustu árin gat hann sinnt þessu áhugamáli sínu að fullu í félagsstarfí aldraðra. Brynjúlfur ferðaðist breitt og vítt um landið og var mikill náttúm- skoðari, kunni góð skil á gróðri þess og varla var sú tijágrein til sem hann kunni ekki skil á. Af þessum sökum kunni hann að meta fegurð íslands fremur en almennt gerist. Tók hann margar mjög list- rænar ljósmyndir sem sumar hafa birst í bókum og tímaritum. Eina utanlandsferð fór Binni og þá til Færeyja fyrir allmörgum ámm og gaf þá út bók um það ferðalag. Hann hafði í handriti til- búna til prentunar bókina Bjartir sumardagar, ferðaþætti með eigin ljósmyndum og teikningumþ Sumarið 1973 fór ég undirritaður ásamt Brynjúlfi og tveimur sonum mínum norður á Strandir, alla leið í Ófeigsfjörð, í því fegursta veðri sem best getur orðið hér á landi. Þessarar ferðar naut hann í ríkum mæli, og ritaði grein í tímaritið Útilíf um þessa ferð. Brynjúlfur bjó um árabil í húsi föður síns á Bergstaðastræti 27; þar litu margir vinir og kunningjar inn til hans. Alltaf hafði hann eitt- hvað til að sýna gestum sínum, hluti sem hann var að föndra við. Gekk hann þá gjaman með manni út að stóru gluggakistunni, þar sem hann geymdi hluta af steinasafni sínu, og benti þá gjaman á síðustu stein- völuna sem honum hafði hlotnast. Svona kom Brynjúlfur fyrir í sínum einfalda lífsmáta. Árið 1936 kvæntist Brynjúlfur Bryndísi Sigurðardóttur, Sigurðar Brynjólfssonar og Dagnýjar Níels- dóttur. Bryndís og Brynjúlfur slitu samvistum. Dóttir þeirra er Anna Kristín Brynjúlfsdóttir, rithöfundur, BA í latínu og grísku, gift Elíasi Snæland Jónssyni, aðstoðarritstjóra og eiga þau þijá syni. Vil ég votta þeim hjónum, sonum þeirra og öðr- um skyldmennum samúð mína og fjölskyldu minnar. Guð blessi minn- ingu Brynjúlfs Jónssonar. Torfi Þ. Ólafsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. ~ Athygli skal á þvi vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort Ijóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Kjörbók Landsbankans L w Landsba Sömu háu vextirnir, óháð því hver innstæðan er. Islands Banki allra landsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.