Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
11
Morgunblaðið/JúUus
Ólöglegt athæfi
í REGLUGERÐ um skráningu ökutækja er skýrt
kveðið á um að á hveiju skráningarskyldu vél-
búnu ökutæki skuli vera tvö skráningarmerki,
annað að aftan og hitt að framan. Þetta virðist
þó hafa farið framhjá sumum bifreiðaeigendum,
eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Að sögn
Ómars Smára Ármannssonar, aðalvarðstjóra
umferðardeildar, hafa verið nokkur brögð að
þvi að undanförnu að menn, einkum ungir menn,
hafi skrúfað annað númerið af bílum sínum
hver svo sem tilgangurinn er með því. Lögregl-
an mun nú taka fast á þessu máli og viðkom-
andi bifreiðar verða færðar til aukaskoðunar,
með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn sem þvi
fylgir fyrir eigendur bílanna. Þá verður einnig
gengið eftir þvi að bílar, skráðir á íslandi, séu
ekki með erlend þjóðareinkenni, enda einnig
óheimilt samkvæmt reglugerð.
KRINGLUNNI S. 685440
Islenskir kvikmyndagerðarmenn:
Vinna myndband með
Agnethu Fáltskog
„PROPAGANDA Film“, sem er í eigu Siguijóns Sighvatssonar og
„Saga Film“, fyrirtæki Egils Eðvarðssonar, hafa haft samvinnu um
vinnslu á myndbandi fyrir sænsku söngkonuna Agnethu Faltskog,
sem söng með ABBA-flokknum heimskunna hér í eina tíð. Hér er
um að ræða myndband með laginu „Let It Shine", sem væntanlegt er
á markað í Bandarikjunum innan tíðar.
Að sögn Egils hafði Siguijón
samband við hann og bað hann um
að annast leikstjóm á myndbandinu
og fóm upptökur fram í Stokkhólmi
dagana 16. og 17. júní síðastliðinn.
Framleiðandi myndabandsins er
„Propaganda Film“ en auk leik-
stjómar annast Egill og „Saga
Film" frágang myndbandsins,
klippingu og fleira.
Egill sagði að mjög ánægjulegt
hefði verið að vinna með þessari
þekktu söngkonu og kvaðst hann
ánægður með útkomuna. „Þetta
verkefni einkenndist mjög af því
að gera kúnnanum til hæfis. Það
var beðið þama um ákveðna hluti
og ég held að það hafí tekist að
uppfylla óskir hans eins og til var
ætlast og hafa allir hlutaðeigandi
lýst yfir ánægju sinni með útkom-
una. Með því er ég þó ekki að segja
að þetta sé það besta sem eftir mig
liggur í gerð myndbanda. Hins veg-
ar fannst mér ánægjulegast að fá
þama staðfest að við erum fyllilega
samkeppnisfærir við útlendinga á
þessu sviði," sagði Egill.
Reynimelur - einbýli
Þetta fallega hús á besta stað við Reynimel er til sölu.
Húsið er alls u.þ.b. 270 fm. Á neðri hæð er m.a. eld-
hús, wc, stór borðstofa og stór stofa með arni, þvotta-
hús, herb., o.fl. Á efri hæð eru 4 rúmgóð svefnherb.
og baðherb. Stór lóð mót suðri. Laust strax. Teikningar
á skrifst. Verð 15,0 millj.
EIGNAMIÐUMN
2 77 11
ÞINGHOLTS S T R Æ T I 3
Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum.
Þórólfur Halldórsson, lögfr.-Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320
Hella - Hvolsvöllur:
Höfum til sölu íbúöarhús af ýmsum geröum.
Sumarbústaðir - beitilönd:
Til sölu eru lóðir undir sumarbústaði úr jörðinni Þjóöólfshaga i Rangár-
vallasýslu. Á sama staö eru til sölu afmörkuð beitarhólf fyrir hross og
er hvert þeirra 5-6 hektarar.
Til leigu eru lóðir undir sumarbústaði úr jörðinni Skammbeinsstöðum
í Rangárvallasýslu. Heitt og kalt vatn er íeitt aö lóðunum.
Jardir í Rangárvallasýslu:
Þjóðólf shagi 1, Holtahreppi. Á jöröinni er nýlegt ibúöarhús, fjárhús
og nýtt fjós sem hentar auk þess mjög vel fyrir svín eða geldneyti. Tún
og útjörð ca. 70 hektarar.
Hábær 2, Djúpárhreppi. Á jörðinni eru 2 ibúöarhús, kartöflugeymsla
og gömul útihús. Landstærð ca. 250 hektarar. Gott garðræktar- og
beitiland. Gæti selst í tvennu lagi.
Þrúðvangi 18,850 Hellu
síman 98-75028 - 75228
Fannar Jónasson, Jón Bergþór Hrafnsson.
SJÓVÁ