Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
21
Allur hópurinn samankominn í bolum sem Rauði krossinn lét gera af þessu tilefni. Fremst á myndinni
standa þrír verksljóranna, þeir Jón Geir Pétursson og Björgvin Eggertsson frá Skógræktinni og Davíð
Pálsson frá Landgræðslunni.
þátttakenda, alls 26 af 30 en þeir
voru á aldrinum 15-30 ára. Komu
7 þeirra frá íslandi og Finnlandi,
6 frá Danmörku og Svíþjóð auk 4
Norðmanna. Fæstir höfðu nokkuð
komið nálægt gróðursetningu áður
en verkið tókst þó með miklum
ágætum og lýstu umsjónarmenn
þess mikilli ánægju með vinnu ung-
mennanna.
Dvalist var í skála Austurleiða í
Húsadal og unnið í hlíðunum fyrir
ofan skálann í glampandi sól og
hita allan tímann. Davíð Pálsson
frá Landgræðslunni sagði staðinn
mjög heppilegan til að vinna á fyr-
ir svo stóran hóp. Þá væri svæðið
fyrir ofan skóginn í Húsadal illa
farið af völdum uppblásturs auk
þess sem umgengni ferðamanna
um dalinn væri oft á tíðum
óskemmtileg. „íslendingar þekkja
ekki annað en að stórir hlutar
landsins séu illa famir af völdum
uppblásturs og lofsyngja fegurð
þess. En ef menn opna augun, sjá
þeir hvað það er illa farið og það
á ekki síst við um Þórsmörk," sagði
Davíð.
Alls var plantað á 7. þúsund
trjám; rúmlega 4000 birkitijám í
Þórsmörk og rúmum 3000 lerkitrj-
ám í Þjórsárdal, sáð túnvingli og
áburði í 10 hektara svæði í Þórs-
mörk, stungin niður verstu rofa-
börðin og lagfærðir göngustígar í
Húsadal. Davíð sagði lífslíkur gróð-
ursins góðar ef fénaður kæmist
ekki í hann.
Þáttakendurnir voru ákaflega
ánægðir með dvölina hérlendis.
Sögðust þeir vissulega hafa verið
lúnir í lok hvers vinnudags en fé-
lagsskapurinn og fegurð landsins
hefði bætt þreytuna upp. „Nátt-
úrfegurðin er ótrúleg. Við stefnum
að því að koma hingað aftur eftir
nokkur ár til að sjá hvemig tijánum
reiðir af og skoða meira af
landinu,“ sagði Edit Pedersen frá
Danmörku.
| INDtÁN
TonicWater
COKIABÖQOIMNE
'CMVr'EPPESSINCEI»3
BÍV*
BOtt
ULTRA
GLOSS
endist langt umfram
heföbundnar bóntegundir.
HVERSVEGNA?
Ultra Gloss er „paint sealant" með glergrunni og gufar þvt ekki
upp í sumarsólinni og eyðist, eins og vaxbón gera. Ultra Gloss
ver lakkið upplitun af völdum sólarljóss. Ultra Gloss styrkir
lakk bílsins gegn steinkasti.
Útsölustaðir:
ESSO
- stöðvarnar
_______ Brids____________
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids
Spilað var (að venju) i þremur
riðlum sl. þriðjudag í Sumarbridsi,
samtals 45 pör. Úrslið urðu (efstu
pör);
A-riðill
Jón Stefánsson —
Sveinn Sigurgeirsson 302
Gunnar Þórðarson —
Sigfús Þórðarson 251
Björn Arnarson —
Stefán Kalmannsson 239
Eyjólfur Magnússon —
Steingrímur Þórisson 237
Rannveig Lund —
ValgerðurEiríksdóttir 233
Aldís Schram —
Júlana Isebarn 222
B-riðill
Freyja Sveinsdóttir —
Sigríður Möller 196
Ásthildur Sigurgísladóttir —
Lárus Arnórsson 195
Sigurður B. Þorsteinsson —
Páll V aldimarsson 177
Valgerður Kristjónsdóttir —
Bjöm Theodórsson 174
Murat Serdar —
Þorbergur Ólafsson 165
Alfreð Kristjánsson —
Eiríkur Jónsson 165
C-riðill
Steingrímur Jónasson —
Þorfinnur Karlsson 255
Anton R. Gunnarsson —
Jörundur Þórðarson 243
Ríkarður Steinbergsson —
Steinberg Ríkarðsson 228
Jacqui McGreal —
Þorlákur Jónsson 227
Baldvin Valdimarsson —
Guðmundur Hansson 223
Hjálmar S. Pálsson —
Sveinn Þorvaldsson 217
Og eftir 20 spilakvöld er staða
efstu spilara þessi: Sveinn Sigur-
geirsson 280, Ánton R. Gunnarsson
232, Guðlaugur Sveinsson/Magnús
Sverrisson 189, Hjálmar S. Pálsson
160, Láms Hermannsson 154, Jak-
ob Kristinsson 152 og Jömndur
Þórðarson 133.
Mátt þú sjá af
369 krónum
á dag?*
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.____________________________________
* LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr.
Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
er ekki innifalinn. ________(Gengisskr. 23.6.88)
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKTJTLU!
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5.