Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
EB-markaðurinn:
Bönkum utan EB
settar skorður
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
WILLY De Clercq, framkvæmda-
stjóri utanríkismála innan EB,
sagði f London í vikunni að
óhugsandi væri að bankar frá
löndurn utan bandalagsins nytu
sömu réttinda og bankar í aðild-
arríkjunum nema til kæmu samn-
ingar við viðkomandi ríkisstjórn-
ir um gagnkvæm réttindi handa
bönkum innan EB.
Samkvæmt heimildum í Brussel
munu reglur um þessi efni á ís-
landi ekki líklegar til að auðvelda
samskipti við EB á þessu sviði í
framtíðinni. Það hefur legið í loftinu
að EB muni setja sérstök skilyrði
fyrir lánveitingum til landa, sem
ekki heimila bönkum frá bandalag-
inu starfsemi. Þetta gæti þýtt að
íslendingar yrðu að leggja fram
hærri tryggingar fyrir lánsfé sem
aflað væri innan EB eða mjög auk-
ið eigið áhættufjármagn.
De Clercq sagði að þær banka-
stofnanir frá löndum utan banda-
lagsins, sem þegar hefðu starfsleyfí
í einhveiju aðildarríkja þess, myndu
ekki sjálfkrafa fá starfsleyfi um
allt bandalagið. Líklegast væri að
sett yrðu skilyrði um gagnkvæm
réttindi, þannig að bankar í EB-
löndunum nytu sömu réttinda í
ríkjum utan bandalagsins og bank-
ar þaðan innan þess. Ljóst er að
þessi krafa mun skapa umtalsverða
Ungverjaland:
Skulda-
bréfakaup-
in tryggja
nýjan síma
r
Búdapest. Reuter.
UNGVERJAR, sem láta sig
ekki muna um að snara út
nokkurra mánaða launum,
geta nú tryggt sér nýjan síma
innan þriggja ára. Aðrír
verða að gera sér að góðu að
bíða í 15 ár.
Af77-fréttastofan ungverska
sagði í gær, að póstmálayfírvöld
ætluðu brátt að bjóða út skulda-
bréf fyrir upphæð sem svarar
til rúmlega 370 milljóna ísl kr.
og nota féð til að koma fyrir
13.000 nýjum símum í landinu.
„Með því að kaupa skuldabréf
að andvirði 500 dollara (23.000
ísl. kr.) getur fólk losnað við
biðröðina að mestu og fengið
símann eftir þijú ár í stað 10
eða 15 ára eila,“ sagði í frétt-
inni. Fyrir ungverska meðal-
manninn samsvarar þessi upp-
hæð þriggja mánaða launum.
í Ungverjalandi eru nú aðeins
15,18 símar á hveija 100 íbúa,
allmiklu minna en í nágrann-
aríkinu Tékkóslóvakíu þar sem
þeir eru 22,6. í Sviss eru þeir
aftur á móti 81 á hveija 100.
Með skuldabréfaútboðunum,
sem hófust árið 1985, er stefnt
að því að tengja 31.000 nýja
síma fyrir árslok 1990 en eftir-
spumin er hins vegar margfalt
meiri. Sagði MTI, að í raun
þyrfti að bæta við tveimur millj-
ónum símtækja í landinu.
Astandið er raunar svo hrikalegt
í þessum efnum, að ungverska
kommúnistastjómin hefur al-
varlega hugleitt að afnema ein-
okunaraðstöðu póst- og síma-
málastofnunarinnar.
erfíðleika í samskiptum við Banda-
ríkin vegna þess að EB væri í raun
að fara fram á að EB-bankar nytu
meiri réttinda innan Bandaríkjanna
en bandarískir bankar.
Gert er ráð fyrir því að bankar
innan EB geti eftir 1992 opnað
útibú og rekið starfsemi um allt
bandalagssvæðið án þess að sækja
sérstaklega um leyfí hjá ríkisstjóm-
um eins og nú tíðkast. í tillögum,
sem þegar hafa verið lagðar fram,
er framtíð og staða banka frá lönd-
um utan EB, sem þegar hafa kom-
ið sér upp aðstöðu í fleiri en einu
aðildarríki EB, óljós. Reiknað hafði
verið með því að þeir fengju að
njóta markaðarins í heild og héldu
óbreyttri stöðu. Þeir bankar, sem
ekki hafa fengið starfsleyfí í ein-
hveiju aðildarríki EB, yrðu sam-
kvæmt tillögunum að sækja um
slíkt til Brussel og leyfi yrði einung-
is veitt ef skilyrðunum um gagn-
kvæm réttindi yrði fullnægt.
Reuter
Eiturbál
Hér sjáum við hvar thailenskur lögreglumaður
ber eld að rúmlega þremur tonnum af maríúana
sem gerð voru upptæk þjá eiturlyfjasmyglurum
í apríl síðastliðnum. Thailenska lögreglan berst
hart gegn eiturlyfjaframleiðslu í landinu sem
að mestu er fjármögnuð af bandarískum aðilum.
Sænskir jafnaðarmenn:
Iniiaiiflokksdeilm* vegna
Ebbe Carlssons-málsins
Stokkhólmi. Reuter.
Alvarlegar deilur eru komnar
upp á yfirborðið í sænska jafnað-
armannaflokknum og snúast þær
um framkomu stjórnarínnar í
Ebbe Carlsson-hneykslinu, leyni-
legrí og ólöglegri rannsókn á
morðinu á Olof Palme. Er ágrein-
ingurínn ekki síst bagalegur
flokknum fyrir það, að nú eru
aðeins tveir mánuðir í almennar
þingkosningar.
í síðasta mánuði neyddist Anna-
Greta Leijon dómsmálaráðherra til
að segja af sér eftir að hafa játað,
að hún hefði heimilað Ebbe Carls-
son, bókaútgefanda, sem á innan-
gengt í jafnaðarmannaflokkinn,
leynilega rannsókn á morði Palmes.
Komst upp um það þegar lífvörður
Carlssons var handtekinn við að
smygla hlerunartækjum til Svíþjóð-
ar.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra segist hins vegar ekki munu
hika við að skipa Leijon ráðherra
að nýju sigri jafnaðarmenn í kosn-
Anna-Greta Leijon, fyrrum dómsmálaráðherra, á blaðamannafundin-
um þar sem tilkynnt var, að hún segði af sér embætti.
ingunum 18. september nk. Lýsir
hann henni sem krossfara í stríðinu,
við hryðjuverkamenn og segir af-
sögn hennar vera að kenna
„pólitískri hentistefnu" stjómar-
andstöðunnar.
A miðvikudag kom hins vegar
annað hljóð í strokkinn þegar Birg-
Sovéskur geimvísindamaður:
SaMiarov verði skil-
að aftur verðlaunum
- sem hann var sviptur er hann féll í ónáð
itta von Otter, upplýsingafulltrúi í
fjármálaráðuneytinu og eiginkona
Kjell-Olofs Feldts fjármálaráðherra,
skrifaði grein í Aftonbladet, sem
styður jafnaðarmenn. „Hvemig
gastu þetta Ingvar?" hét greinin
og þar spyr von Otter hvemig for-
sætisráðherrann hafi getað kennt
stjómarandstöðunni um afsögn Lei-
jons.
„Hvemig má það vera, að reynd-
ir stjómmálamenn skuli aldrei geta
lært þá lexíu, að hálfsannleikur og
vífíllengjur koma yfirleitt þeim
sjálfum í koll fyrr eða síðar?" spyr
von Otter einnig og undir þetta
hafa margir áhrifamiklir jafnaðar-
menn tekið og einnig blöð, sem
flokkinn styðja.
„Margir flokksmenn hafa unað
þessum málum illa en ekki þorað
að láta það í ljós,“ sagði Hans-
Göran Franck, einn þingmanna
jafnaðarmanna, „og að undanförnu
hafa þeir verið að hringja í mig til
að lýsa hneykslun sinni yfír fram-
komu forsætisráðherrans."
Jafnaðarmenn hafa farið með
völd í Svíþjóð næstum stanslaust í
hálfa öld en búist er við, að kosning-
amar í haust verði tvísýnar. í skoð-
anakönnunum hafa þeir þó haft
3-5% umfram borgaraflokkana
þijá.
Bretland:
Moskvu. Reuter.
KUNNUR sovéskur vísindamað-
ur krafðist þess á þriðjudag að
eðlisfræðingnum og mannrétt-
indafrömuðinum Andrei Sak-
harov yrði skilað aftur öllum
þeim verðlaunum og viðurkenn-
ingum, sem hann hafði hlotið,
áður en hann féll í ónáð og var
dæmdur í útlegð árið 1980.
Roald Sagdejev, forstöðumaður
Geimvísindastofnunar Sovétríkj-
anna, sagði í viðtali við vikuritið
Moskvutíðindi, að ákvörðuninni um
að leysa Sakharov úr útlegðinni í
desember 1986 hefði verið fagnað
um heim allan sem „sigri nýs hugs-
unarháttar".
„Vísindamaðurinn fékk aftur
starf sitt, en þeim viðurkenningum,
sem hann hlaut í gegnum tíðina,
hefur enn ekki verið skilað til hans,“
sagði Sagdejev í viðtalinu.
Meðal þeirra viðurkenninga, sem
þama er um að ræða, eru þijár
orður, sem veittar eru „hetjum sós-
íalísks verkalýðs", Lenínorðan og
Lárviðarorða ríkisins. Æðsta ráð
Sovétríkjanna svipti Sakharov öll-
um þessum viðurkenningum árið
1980, áður en hann var sendur frá
Moskvu til Gorkí.
„Á þessum tíma var æðsta ráðið
undir forsæti manns, sem skartaði
fímm stjömum á einkennisbúningi
sínurn," sagði Sagdejev og átti við
Leonid heitinn Brezhnev Sovétleið-
toga.
„Þar sem við erum að bæta sið-
ferðið á meðal okkar, ættum við
að sjá til þess, að þessar stjörnur
fái aftur sess á bijósti vísinda-
mannsins Andrejs Sakharovs,"
sagði Sagdejev.
Atvinnuleysi
minnkar
London. Reuter.
ATVINNULEYSI í Bretlandi er
nú 8,4% en það hefur ekki verið
minna síðan í ágúst 1981.
Útlánsvextir em nú 10% en það
voru þeir síðast í október sl. áður
en hrunið varð á verðbréfamarkaðin-
um. Stöðug uppsveifla hefur verið í
bresku efnahagslífí síðustu sex árin
og ekkert bendir til að hún sé í rén-
un. Yfir ein milljón atvinnulausra
hafa fengið vinnu á síðustu tveimur
og hálfu ári.