Morgunblaðið - 15.07.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
27
1 hc Namc In Laughtcr FromThc Hcrcaftcr
Manstu eftir hinni frá-
bæru mynd GHOST-
BUSTERS? Ef svo er þá
munt þú líka muna lengi
eftir mér. Það sem er
líkt með mér og Ghost-
busters er að þið getið
velst um af hlátri lengi
vel á eftir.
Hann Kevin Thomas hjá
L.A. Times sagði, að
Beetlejuice væri brjál-
æðisleg gamanmynd.
BEETLEJUICE SEGIR
GÓÐA SKEMMTUN!
SYND KL. 5-7-9
- 11
PG PARENTAL GUIOANCE SUGGESTEO
J SOMI MATi MlAt MAV NOT Bf SUITABli »OB CHILDREN
Kjarnorkuver í Sovétríkjunum:
Hönnunargallar og
vafasamt staðarval
Moskvu. Reuter.
VERIÐ er að reisa kjarnorkuver á Krím-skaga á landsvæði þar sem
jarðskjálftahætta er mikil, að því er sagði i grein i dagblaðinu Sos-
ialistítseskaja Industria i gær. Fram kom að rúmlega 20.000 manns,
óbreyttir borgarar og sérfræðingar, hefðu undirritað áskorun þar
sem hvatt væri til þess að vinna við kjarnorkuverið yrði stöðvuð.
Vikuritið Moskvufréttir skýrði frá því á miðvikudag að sovéskur
kjarneðlisfræðingur, sem framdi sjálfsvíg í apríl, hefði varað við
fleiri slysum af sama tagi og varð í Tsjemobyl 1986.
í frétt dagblaðsins sagði að í Léleghönnun
Á miðvikudag skýrði sovéska
vikuritið Moskvufréttir frá því að
sovéskur vísindamaður, Valerí Leg-
asov að nafni, hefði varað við því
að alvarlegir hönnunargallar væru
á kjamorkuverum af sömu gerð og
í Tsjemobyl en þau eru alls 14 í
Sovétríkjunum.
Rithöfundurinn Ales Adamovítsj
sagðist hafa hitt Legasov á sjúkra-
húsi á síðasta ári. Vísindamaðurinn
var þar í rannsókn vegna geislunar
er hann varð fyrir í Tsjernobyl en
hann var einn af fyrstu sérfræðing-
um sem þangað komu eftir slysið
og varð fyrir mikilli geislun. Að
sögn lækna var hann þó við góða
líkamlega heilsu en þjakaður af
þunglyndi vegna kjamorkuslyssins
sem hann taldi sig bera nokkra
ábyrgð á.
„Aðalorsök Tsjernobylslyssins
hefur ekki verið íjarlægð, reyndar
er það ekki hægt,“ hafði Ad-
amovítsj eftir Legasov. „Vandinn
er léleg hönnun. Fram til þessa
höfum við ekki uppgötvað og mun-
um aldrei uppgötva viðunandi ör-
aprílmánuði 1987 hefði jarð-
skjálftavirkni komið fram á mælum
Jarðvísindastofnunar Úkraínu.
Upptök skjálftans hefðu verið í
nágrenni borgarinnar Kertsj á norð-
austurhluta Krímskaga en skammt
þar frá er verið að reisa kjamorku-
ver. Forstöðumaður Jarðvísinda-
stofnunarinnar hefði ritað miðstjóm
sovéska kommúnistaflokksins bréf
í ágústmánuði og bent á að stað-
setning kjamorkuversins gæti ekki
talist heppileg með tilliti til þessa.
Ráðamenn hefðu látið fara fram
rannsóknir en niðurstöður þeirra
hefðu enn ekki verið birtar. „Af
einhveijum sökum var ákveðið að
birta ekki niðurstöður þessar mikil-
vægu skýrslu," sagði í blaðinu.
Bandarískar her-
stöðvar á Grikklandi:
Ný samn-
ingalota
að hefjast
Aþenu. Reuter.
KAROLOS Papoulias, utanríkis-
ráðherra Grikklands, segir að
ný samningalota, sú áttunda
síðan í nóvember, um framtíð
bandarískra herstöðva í landinu
hefjist í Aþenu í næstu viku.
Gríska stjómin sagði Bandaríkja-
stjóm á miðvikudag að öllum
bandarískum herstöðvum í landinu
yrði lokað um miðjan næsta áratug.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna segist líta á þessa
hótun sem formsatriði af hálfu
Grikkja til að flýta fyrir samning-
um. Núgildandi samningur tekur
til fímm ára og rennur hann út í
desember. Náist ekki samkomulag
um áfrámhaldandi vamar- og efna-
hagssamstarf hafa Bandaríkja-
menn 17 mánuði til að yfírgefa
landið.
Papoulias ítrekaði í gær þá stefnu
stjómar sinnar að leggja nýtt sam-
komulag undir atkvæði almennings.
Sovétríkin:
Dæmdur
fyrir lélega
kímnigáfu
Moskvu. Reuter.
IGOR Kukushkin hefur verið
gert að greiða 2000 rúblur (um
150.000 isl. kr.) i sekt fyrir að
setja á svið rán á sovéskri far-
þegaþotu.
Kukushkin, sem er frá Vladivo-
stok, var á leiðinni til Kiev, höfuð-
borgar Úkraínu. Flugið þangað
tekur níu tíma og Igor ákvað að
stytta ferðafélögum sínum stund-
ir með því að þykjast ræna flug-
vélinni og heimta að flogið yrði
með sig til útlanda. Vélinni var
lent í Kazakhstan en þar tók lög-
reglan á móti Kukushkin og leiddi
hann á brott. Fjölskylda hans
hélt hins vegar áfram sumarleyf-
isferð sinni.
London. Reuter.
FULLTRÚAR frá Kína og Sov-
étríkjunum munu að öllum
líkindum taka þátt í keppninni
um titilinn Ungfrú heimur sem
haldin verður í London í nóvem-
ber. Það verður í fyrsta sinn sem
fulltrúar þessara landa eru með-
al þátttakanda í keppninni.
Þetta kom fram í viðtali sem
talsmaður fíeuíer-fréttastofunnar
átti við framkvæmdastjóra fegurð-
arsamkeppninnar í gær. Viðtalið fór
fram á Heathrow flugvellinum í
London skömmu áður en fram-
kvæmdastjórinn, Julia Morley, lagði
upp í ferð til Póllands þar sem hún
mun ræða við pólsk stjórnvöld.
yggiskerfí fyrir þessa gerð af afl-
stöðvum.“
Mikil andstaða
Á Krímskaganum og víðar er
fyrirhugað að reisa kjamorkuver
af sama tagi og Tsjemobyl-verið
og er andstaða mikil gegn þeim
áformum meðal íbúa á svæðunum
að sögn embættismanna. í maí'
skýrði flokksmálgagnið Pravda
lauslega frá ábendingum Legosovs
er hann ritaði skömmu fyrir dauða
sinn. Þar sagði hann einnig að kast-
ast hefði í kekki með honum og
yfírmönnum kjamorkumála er
hefðu vísað tillögum hans um aukið
öryggi á bug.
neuier
Rætt um vopnasölu Kínveija
Georges Shultz, utanríkisráðhera Bandaríkjanna, skálar við Qian
Qichen, kínverskan starfsbróður sinn. Shultz er nú staddur í
Peking þar sem hann ræðir við kinverska leiðtoga um alþjóðleg
vopnaviðskipti. Þeir tóku vel í tillögur Shultz um viðræður tíl
að hefta útbreiðslu langdrægra eldflauga. Kínveijar fullvissuðu
Shultz um að þeir hefðu einungis selt Saudi-Aröbum slíkar flaug-
ar en sá orðrómur gengur nú fjöllunum hærra i Miðausturlöndum
að kinversk stjórnvöld bjóði hveijum, sem hafa vill, langdrægar
flaugar til kaups.
• •
Oldungadeild Bandaríkjaþings:
Hótar Sandinistum auk-
inni aðstoð við kontra
Washington. Reuter.
SAMSKIPTI Bandaríkjanna og Nicaragua fara nú hriðversnandi. Öld-
ungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með miklum meirihluta
að hóta stjórn Sandinista i Nicaragua þvi að kontra-skæruliðum verði
veitt hemaðaraðstoð ef stjórnin gerist brotleg við friðarsamkomulag
það í Mið-Ameríku sem samþykkt var fyrir tæpu ári. Tilefni sam-
þykktar öldungadeildarinnar var það að Daniel Ortega, forseti Nic-
aragua, hefur kallað saman neyðarfund i Samtökum Amerikurikja
vegna „yfirvofandi innrásar Bandaríkjamanna { Nicaragua1*.
Ortega vill einnig að á fundinum aragua, ásamt sjö samstarfsmönnum
verði tekin fyrir sú ráðstöfun Banda- úr landi á sunnudag fyrir að „kynda
ríkjamanna frá því á þriðjudag að undir mótmæli gegn stjóminni".
vísa Carlos Tunnermann .sendiherra
Nicaragua í Bandaríkjunum, og sjö
samstarfsmönnum hans úr landi. Til
þessa greip Bandaríkjastjóm er
Sandinistar ráku Richard Melton,
sendiherra Bandarílqanna í Nic-
BrTTTTT
Stjóm Nicaragua segir að ekki sé
rétt að víkja Tunnermann úr landi
því hann sé einnig sendiherra Nic-
aragua hjá Samtökum Ameríkuríkja
en höfuðstöðvar þeirra em í Was-
Það var Robert Byrd úr Demó-
krataflokknum sem lagði til við Öld-
ungadeildina að Sandinistum yrði
hótað því að kontra-skæruliðum yrði
veitt hemaðaraðstoð. Fram til þessa
hefur Byrd barist hatrammlega gegn
hemaðaraðstoð við kontra-skæruliða
og var hún felld niður snemma á
þessu ári. Byrd segist hafa lagt til-
löguna fram vegna meðhöndlunar
stjómar Nicaragua á þeim sem tóku
þátt í mótmælafundinum á sunnudag
auk þess sem útgáfa La Prensa,
málgagns stjómarandstöðunnar,
hefði verið stöðvuð í tvær vikur og
útsendingar útvarpsstöðvar kaþólsku
kirlq'unnar um óákveðinn tíma.
hington.
..........................
Fegurðarsamkeppni:
Kínveijar og Sovétmenn
meðal þátttakenda
Fulltrúar frá Póllandi hafa áður
tekið þátt í keppninni en fegurð-
ardísir frá Kína og Sovétríkjunum
hafa aldrei verið meðal þátttak-
enda.
„Það eina sem við höfum áhyggj-
ur af er að héraðskeppni í Sovétríkj-
unum ljúki ekki í tæka tíð til að
ungfrú Sovétríkin geti tekið þátt í
keppninni," sagði Morley m.a. við
talsmann Reuters í gær. í för með
framkvæmdastjóranum til Póllands
er núverandi ungfrú heimur, Ulla
Weigerstorfer, sem mun krýna
ungfrú Pólland.
Fegurðardrottning íslands Linda
Pétursdóttir tekur þátt í keppninni
í London.
BMHMI