Morgunblaðið - 15.07.1988, Page 39

Morgunblaðið - 15.07.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 39 Aformum um hækkun olíuverðs mótmælt STJÓRN Útvegsmannafélags Suðurnesja samþykkti á fundi sínum þann 12. þessa mánaðar, mótmæli við áformum um hækk- un olíuverðs um 10%. Enginn grundvöllur geti verið fyrir slíkri hækkun á sama tíma og olíuverð lækki erlendis. Ályktun fundarins hljóðar svo: „Stjórn Útvegsmannafélags Suður- nesja mótmælir harðlega þeim áformum, sem virðast vera uppi um hækkun á olíuverði til fiskiskipa. Stjórn Útvegsmannafélags Suður- nesja sér ekki að raunhæfur grund- völlur sé fyrir 10% hækkun á olíu hér heima þegar lækkun á sér stað á sama tíma á Rotterdammarkaði úr 144 dollurum tonnið í 125 doll- Stjórn Útvegsmannafélags Suð- umesja bendir á að olíufélögin hag- ræði í rekstri sínum á sama hátt og krafa er gerð um gagnvart sjáv- arútveginum. Að öðru leyti tekur stjóm Útvegsmannafélags Suður- nesja undir þau sjónarmið, sem fram koma í Morgunblaðsviðtali við Kristján Ragnarsson, formann LÍÚ þann 9. júlí síðastliðinn.“ INNLENT Fimm mismunandi gerðir af ljúffengum pylsum. Opiðí kvöld til kl. 20 laugardag 8-18 og sunnudag 11-18^ KJÖTMIÐSTÖÐIN GARÐABÆS. 656400 næstu mánuðum. Nafnvextir út- lána hafa hækkað um 8% á síðustu sjö vikum. Raunvextir óverð- tryggðra skuldabréfalána voru að meðaltali 8,4% á fyrstu sex mánuð- um ársins og 9,5% af verðtryggðum skuldabréfalánum. Samsvarandi tölur í fyrra vom 4,7% og 7,7%. Það er nánast óhugnanleg þróun að raunvextir sem þegar em orðnir um 10% skuli halda áfram að hækka á næstu mánuðum vegna óstjómar- innar í ríkisíjármálum og peninga- málum. Erlend skuldasöfnun mun halda áfram. Samkvæmt endurskoðaðri lánsfjáráætlun eiga erlendar lán- tökur að nema 12 milljörðum króna og vantar þá 5 milljarða til að fjár- magna minn mikla viðskiptahalla. Þjóðhagsstofnun bendir á að það verði ekki gert nema ganga á gjald- eyrisforðann — er hann þó orðinn ærið rýr — eða með nýjum skamm- tmalánum erlendis. Það er því ljóst að skuldastaðan gagnvart útlöndum fer á árinu yfir 100 milljarða og nálgast nú óðum mörk sem ógna efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinn- ar. Þjóðhagsstofnun vekur athygli á því að kaupmáttur ráðstöfunar- tekna mun minnka á árinu. I þjóð- hagsspánni og viðbrögðum forsæt- isráðherra við henni er látið í það skína að enn frekari kjaraskerðing komi til geina á næstu mánuðum. Einnig er ljóst að þjóðhagsspáin gefur vísbendingar um að til við- bótar við hinar miklu skattahækk- anir sem orðið hafa á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar verði enn frekari skattahækkanir á dagskrá ríkisstjórnarinnar á næstu mánuð- um. I þjóðhagsspánni er að finna ítar- legar upplýsingar um horfur í af- komu útflutnings- og samkeppnis- greinanna og er niðurstaða Þjóð- hagsstofnunar að hún fari versn- andi á árinu. Á grundvelli þessara upplýsinga og umfjöllunar um gengismálin í þjóðhagsspánni er ljóst að fæðingarhríðir þriðju geng- isfellingar ríkisstjórnarinnar eru þegar hafnar. Líkur benda til að hún verði knúin fram fyrir lok árs- ins eða í síðasta lagi í upphafi næsta árs. Engin ríkisstjóm hefur þá fellt jafn oft gengið á jafn skömmum tíma og var þó „fastgengisstefnan hornsteinn stjórnarsamstarfsins“ að sögn forsætisráðherra í þing- byijun 1987. Hin nýja þjóðhagsspá sýnir því glögglega mikið öngþveiti á öllum sviðum. Á undanförnum vikum hef- ur vöxtur verðbólgunnar vaxta- hækkanir, viðskiptahalli og aukning erlendra skulda verið að koma æ skýrar í ljós. Nú bætir þjóðhags- stofnun milljarðamistökum í meðferð ríkisfjármála inn í þessa mynd. Þar með er brostin síðasta réttlæting ríkisstjómarinnar. Það er því ljóst að ríkisstjórnin hefur misst öll tök á stjóm efna- hagslífsins og er þó ekki tekið mið af vaxandi deilum og sífelldum ágreiningi innan ríkisstjórnarinnar í þeirri niðurstöðu. Sú ófriðarsaga er efni í sérstaka frásögn. I greinar- gerð þjóðhagsstofnunar birtast hins vegar hinar köldu staðreyndir efna- hagslífsins og þær fela í sér ótví- ræðan dóm. Það er því nauðsynlegt að ráð- herramir horfist í augu við vemleik- ann: Ríkisstjórnin á að biðjast lausnar og síðan þarf að efna til kosninga svo að þjóðin geti veitt nýrri ríkisstjóm umboð til að hefja hið mikilvæga endurreisnarstarf. Greinargerð frá Ólafi Ragnari Gríms- syni formanni Alþýðubandalagsins vegna niðurstaðna í nýrri þjóðhagsspá Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi gTeinargerð fráÓlafi Ragnari Grímssyni for- manni Alþýðubandalagsins: Þegar ríkisstjómin hefur setið í eitt ár sýnir ný þjóðhagsspá að öll efnahagsleg markmið ríkisstjórnar- innar em hmnin og afleiðingar óbreyttar stjómarstefnu verða á næstu mánuðum: — vaxandi verðbólga og veru- legar vaxtahækkanir — hrikaleg mistök og millj- arðagat í ríkisfjármálum — þriðja gengisfelling ársins er á leiðinni — viðskiptahalli eykst um 30% og erlendar skuldir fara yfir 100 milljarða • — alda nýrra skatthækkana og enn frekari kjaraskerð- ing verða innan tíðar dag- skrárefni ríkisstjórnarinn- ar. Á undanfömum áratugum er ekki hægt að finna hliðstæðu slíkrar óstjómar í efnahagsmálum. Þessi niðurstaða er enn dapurlegri fyrir þá sök að áfram ríkja óvenjulega hagstæð ytri skilyrði í efnahagslífi íslendinga. Aflaverðmæti og út- flutningsframleiðsla sjávarafurða verði um 15% meiri að raungildi en árið 1985 og útflutningsframleiðsla í heild verður meiri en á síðasta ári. Rýmun viðskiptakjama nemur aðeins 1% og efnahagsþróun í helstu viðskiptalöndum okkar er hagstæð. Það em því ekki óhagstæð ytri skilyrði sem skapa hinn mikla efna- hagsvanda. Þau em áfram íslend- ingum í hag. Vandinn er algerlega heimatilbúinn. Hann er afleiðing rangrar stjómarstefnu. Þegar ríkisstjómin var mynduð vom helstu markmið hennar í efna- hagsmálum: minnkandi verðbólga, stöðugt gengi, lækkandi vextir, hallalaus ríkisbúskapur, jafnvægi í viðskiptum við útlönd og minni er- lend skuldasöfnun, traustur rekstr- argmndvöllur atvinnuveganna og batnandi lífskjör almennings. Hin nýja þjóðhagsspá sýnir að í öllum þessum höfuðþáttum efna- hagsstjómarinnar blasa við þveröf- ugar niðurstöður. Markmið ríkisstjómarinnar var að ná verðbólgunni niður fyrir 10% strax á fyrsta árinu. í síðustu þjóð- hagsspá var talið að verðbólgan yrði 16% á árinu 1988 en nú hefur sú spá verið hækkuð í 25%. Miðað við að verðbólguhraðinn er um þess- ar mundir mun meiri, eða 50—60%, og þjóðhagsspáin gefur til kynna áframhaldandi óstöðugleika í geng- ismálum og veruleg þensluáhrif vegna hinna hrikalegu mistaka í stjóm ríkisfjármála, þá em veruleg- ar líkur á því að verðbólgan haldi enn áfram að vaxa og árshraðinn geti orðið 35—45% eða jafnvel enn meiri. Við afgreiðslu fjárlaga og hvað eftir annað í allan vetur tilkynnti fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis- stjómarinnar að hallálaus rekstur ríkissjóðs væri kjamaatriðið í efna- hagsstefnu ríkisstjómarinnar. Þessi rök vom notuð til að réttlæta hinn illræmda matarskatt og stórfellda hækkun almennra skatta. Hlutfall skatta af landsframleiðslu óx í 25,3% og ný þjóðhagsspá sýnir að skattatekjur ríkissjóðs verði auk þess 4,4 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Þrátt fyrir þessa miklu aukningu almennra skatta greinir Þjóðhags- stofnun nú frá því að hrikaleg mis- tök hafa orðið í stjóm ríkisfjármála og milljarðagat blasir við. Þjóð- hagsstofnun upplýsir að á fyrstu fimm mánuðum ársins hafi tekju- halli A-hluta ríkissjóðs verið um 3,7 milljarðar króna sem er 1,3 milljörð- um meira en hann var á sama tíma í fyrra. Þessum halla ríkissjóðs hefur verið mætt með yfirdrætti í Seðla- bankanum sem nemur tæpum 4,3 milljörðum króna. Tekjuhalli ríkis- sjóðs í mailok var um 3,2 millj- örðum króna umfram það sem áætlað var að hann yrði í árslok og fyrstu fimm mánuði ársins hefur ríkissjóður aukið eftir- spurnina í hagkerfinu um 2,9 miiljarða króna og þar með orðið verulegur verðbólguvaldur. í áætlun ríkisstjórnarinnar var hins vegar stefnt að því að ríkissjóður dragi úr eftirspuminni á árinu um rúmlega 4 milljarða króna. Þjóð- hagsstofnun bendir síðan á það með kurteislegu orðalagi að „veruleg umskipti þurfa því að verða á síðari hluta ársins til þess að áætlanir standist"!! Það er því ljóst að hrikaleg mis- tök sem nema mörgum milljörðum hafa orðið í meðferð og stjóm ríkis- fjármála. Grundvöllur ijárlaganna er hmninn og óbreytt stefna mun leiða til þess að í árslok verður stórt gat í fjármálum ríkisins. í stað þess að ríkissjóður væri tæki til að draga úr verðbólgunni hefur hann í höndum núverandi fjár- málaráðherra orðið hreinn verð- bólguvaldur. Hinn mikli halla- rekstur frá fjármálaráðherratíð Þorsteins Pálssonar heldur áfram hjá nýjum fjármálaráðherra. Þrátt fyrir yfírlýsingar ríkis- stjórnarinnar um vaxtalækkun og jafnvægi í stjórn peningamála þeg- ar efnahagsaðgerðimar í maí vom tilkynntar sýnir Þjóðhagsstofnun að vemlegar vaxtahækkanir blasa við á síðari hluta ársins. Halla- rekstur ríkissjóðs er að dómi Þjóðhagsstofnunar ein helsta orsök hækkandi raunvaxta á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.