Morgunblaðið - 15.07.1988, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988
Faðir okkar. t OLGEIR SIGURVINSSON,
lést 12. júli sl. Erla G. Olgeirsdóttir, Guöborg K. Olgeirsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
BENEDIKT J. BENEDIKTSSON,
Dalbraut21,
Reykjavík,
lést þann 11. júlí sl. Hann veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju,
þriöjudaginn 19. júlí kl. 13.30.
Magdalena Guðmundsdóttir,
Þóra Björk Benedlktsdóttir, Lúövík Einarsson,
Gerður Benediktsdóttir, Magnús Pálsson,
Rósmarfa Benediktsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓREY A. J. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Stórholti 29,
Reykjavfk,
er lést í sjúkradeild á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 8. júlí sl.,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 15. júlí,
kl. 15.00.
Jóna Sveinsdóttir, Sigurður Jóelsson,
Jón G. Sveinsson, Elfnborg Pálmadóttir,
Unnur Sveinsdóttir, Guðmundur R. Ingvason,
barnabörn og barnabarnabarn.
ÞóreyAJ. Guðmunds-
dóttir—Minning
Fædd 16. ágúst 1904
Dáin S.júlí 1988
Hún amma okkar elskuleg er dá-
in. Hún lést á sjúkradeild á Elli- og
hjúkrurarheimilinu Grund, en þar
hafði hún dvalið síðustu fimm árin.
Amma hét fullu nafni Þórey
Arndís Jóhanna og var fædd á Am-
arstapa í Tálknafírði 16. ágúst 1904.
Foreldrar hennar voru Guðrún Odds-
dóttir Hallgrímssonar prests í Guf-
udal á Barðaströnd, og Guðmundur
Sturluson Ólafssonar bónda á Bakka
í Tálknafirði.
Amma fluttist árið 1915 með for-
eldrum sínum og systkinum að Suð-
ureyri við Súgandafjörð. Að loknu
skyldunámi fór hún að vinna fyrir
sér eins og þá var siður, en seinna
fór hún í húsmæðraskólann á
Isafírði.
Maki Þóreyjar og afí okkar var
Sveinn Kristinn Jónsson frá Innri-
Veðraá í Önundarfírði. Hann var
fæddur 21. desember 1900 í Tungu
í Önundarfírði. Afi lést 21. júlí 1981
í Reykjavík.
Þau afí og amma hófu búskap
árið 1931, byggðu þau séríbúðarhús
á Flateyri við Önundaríjörð, og
fluttu þau í það í desember 1933
þar sem þau svo bjuggu allt þar til
að þau fluttu til Reykjavíkur haustið
1960.
Afí var skipstjóri á ýmsum bátum
sem hann ýmist átti sjálfur eða í
félagi við aðra menn allt til ársins
1944, en þá gerðist hann verkstjóri
við frystihúsið á Flateyri og var við
það állt þar til þau fluttu suður.
Amma og afí eignuðust 3 böm,
en þau eru: Jóna, fædd 9. desember
1932, kennari í Rvk., búsett í Kópa-
vogi, hennar maður er Sigurður Jó-
elsson kennari, þau eiga eina dótt-
ur; Jón Guðmundur, fæddur 8. apríl
1940, vinnur á skrifstofu Lands-
virkjunar í Rvk., búsettur í Garðabæ,
hann er kvæntur Elínborgu Pálma-
dóttur, þau eiga 5 böm, en eitt er
látið; Unnur, fædd 3. júlí 1946,
framkvæmdastjóri, búsett í Hafnar-
fírði, hennar maður er Guðmundur
R. Ingvason forstjóri, þau eiga 5
böm. Samtals eru bamabörnin því
11 og eitt barnabamabam.
Við minnumst þess sérstaklega
nú, hversu alltaf var gott að koma
í heimsókn í Stórholtið til ömmu og
afa. Allt var gert til að taka sem
best á móti okkur og alltaf flýtti
amma sér að baka handa okkur
pönnukökur sem okkur fannst þær
Björn G. Sigurbjörns-
son vélstjóri - Minning
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
ÓSKAR ÓLAFSSON,
Iðjumörk 1,
Hveragerðl,
veröur jarösunginn frá Hverageröiskirkju laugardaginn 16. júlí nk.
kl. 14.00.
Kristín Þórðardóttir,
Eyþór Ágústsson,
Ólafur Óskarsson, Adda Hermannsdóttir,
Steinunn Óskarsdóttir, Helgi Ársælsson,
Ingibjörg Óskarsdóttir, Erlendur Óli Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Systir okkar,
GUÐRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Nýjabæ,
Garði,
verður jarðsett frá Útskálakirkju laugardaginn 16. júlí kl. 14.00.
Addbjörg Sigurðardóttir,
Sigríður Sigurðardóttir.
t
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir, amma og langamma,
JÓNÍNA SIGURJÓNSDÓTTIR
húsfreyja,
Byggðarhorni,
Sandvikurhreppi,
Árnessýslu,
sem lést 10. júlí sl., verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag-
inn 16. júlí kl. 13.30. Jarðsett veröur aö Laugardaelum.
Geir Gissurarson,
Gissur Geirsson, Ásdís L. Sveinbjörnsdóttir,
Úlfhildur Geirsdóttir, Sigvaldi Haraldsson,
Hjördfs Geirsdóttir, Þórhallur Geirsson,
Gfsli Geirsson, Ingibjörg K. Ingadóttir,
Brynhildur Geirsdóttir, Kristján Einarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
í dag verður til moldar borinn
Bjöm Guðmundur Sigurbjömsson,
elskulegur afi okkar.
Hann var fæddur 8. júní 1913 á
Ökrum, Haganeshreppi, Fljótum.
Foreldrar hans voru Friðrika
Símonardóttir og Sigurbjöm Jós-
epsson. Fluttust þau síðár að Lang-
húsum í Fljótum. Friðrika og Sigur-
bjöm eignuðust sjö böm en létust
tvo þeirra í bemsku'.
Afi var tekinn ungur í fóstur til
hjónanna Guðrúnar Símonardóttur
og Bjöms Sölvason, sem bjuggu á
Hamri í sömu sveit. Afí var oft
kenndur við þann stað, þ.e. Bjöm
frá Hamri. Guðrún var móðursystir
afa. Guðrún og Bjöm eignuðust
böm, sem öll létust við fæðingu.
Var það því blessun fyrir þau að
fá þennan litla dreng, ásamt fleiri
bömum, sem þau gengu í foreldra-
stað. Bjöm og Guðrún fluttust til
SigluQarðar 1918 og þar ólst afi
upp í húsi, sem fóstri hans byggði
við Suðurgötu 39. Geta má þess,
að móðir okkar er fædd í þessu
húsi og var hún mikið hjá gömlu
hjónunum sem barn.
Afi fór ungur til sjós. Hann var
vélstjóri á fískiskipum í mörg ár
og fer til Sambandsins eftir 1965
'og var lengst af á ms. Mælifelli og
ms. Hvassafelli þangað til hann lét
af störfum árið 1978.
Hann kvæntist Bergþóru Bald-
vinsdóttur árið 1936 og eignuðust
þau þijú böm, þau Sigríði, Fjölni
og Matthías, en Matthías lést af
slysforum aðeins þrettán ára gam-
all. Var það þeim mikill harmur.
Amma og afí slitu samvistir árið
1949.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR,
Hrfsatelg 35,
lést af slysförum 13. júlí. Jarðarförin hefur verið ákveðin þriðjudag-
inn 19. júlí kl. 10.30 frá Fossvogskirkjugaröi.
Magnús Jónsson,
Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Andrésson,
Áslaug Kolbrún Jónsdóttir, Gunnar Harðarson,
Sigrfður Magnúsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega vottaöa samúð við fráfall og útför
MARGRÉTAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
frá Syðra-Langholti,
Rauðarárstfg 28,
Reykjavfk.
Vandamenn.
t
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför móður minnar,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Hátúnl 10,
Reykjavfk.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pálmi Pátursson.
bestu í heimi. Ekki má heldur
gleyma kleinubakstrinum, því að
síðustu ár afa hjálpuðust þau hjónin
að við hann, og best þótti okkur að
fá kleinumar heitar og nýjar.
Amma var einstaklega minnug á
alla afmælisdaga og merkisdaga hjá
fjölskyldu sinni, og er okkur minnis-
stætt, er hún hringdi heim til okkar
snemma dags til að óska okkur til
hamingju með afmælin okkar.
Að síðustu viljum við þakka elsku-
legri ömmu okkar fyrir allt sem hún
var okkur og biðjum henni Guðs
blessunar.
Hvíli hún í friði við hlið afa.
Barnabörnin
Eftir að Sigríður móðir okkar og
pabbi giftu sig árið 1956 fluttist
afí til Reykjavíkur og átti heimili
hjá okkur allt til hann lést, þann
7. júlí.
Mamma og pabbi reyndust afa
mjög vel öll árin og eftir að þau
fluttu í Fossvoginn bjó hann í
séríbúð í sama húsi og gerði sér
þar fallegt heimili.
Við kveðjum afa með þesum fáu
orðum. Það var oft mikill spenning-
ur þegar afí var að koma heim frá
útlöndum með sælgæti og ýmislegt
annað handa okkur og það var
gaman að geta gefíð útlenskt gott-
erí, sem margir höfðu aldrei séð
áður. Þegar bamabömin fóru að
koma, þá var gott að geta bankað
á dymar hjá langafa og fá eina
heimabakaða köku, en afí var dug-
legur að baka.
Veikindi sín bar hann með mikl-
um kjarki, og ró var yfír lífi hans.
í sálmi 121 í Biblíunni em eftirfar-
andi orð: „Drottinn mun vemda þig
fyrir öllu illu, hann mun vemda sál
þína. Drottinn mun varðveita út-
göngu og inngöngu héðan í frá og
að eilífu."
Við þökkum afa allar stundirnar,
sem við fengum að eiga með hon-
um. Blessuð sé minning hans.
Nú legg ég augun aftur
ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engií, svo ég sofi rótt.“
Systkinin Geitlandi 37,
Bergþóra, Biraa Guðrún og Matthias.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóra blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins i Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar fmmort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Samá gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafíii höfundar.