Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.07.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 ~1 ffclk í fréttum ROD STEWART Fjölskyldan framar öllu KRISTÍN DAVÍÐSDÓTTIR Starfar á sjúkrahúsi íThaiIandi Nýlega lagði Kristín Davíðs- dóttir hjúkrunarfræðingur af stað til Thailands þar sem hún mun dvelja næstu sex mán- uði við störf á sjúkrahúsi. Þetta sjúkrahús er á vegum alþjóða- ráðs Rauða krossins og er í flóttamannabúðum í Khao-I- Dang við landamæri Kampútseu og Thailands. Kristín hefur áður fengist við hjúkrunarstörf við svipaðar að- stæður en þá fór hún til Eþíópíu á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar. Sjúkrahús Rauða krossins í Khao-I-Dang er skurðsjúkrahús og tekur u.þ.b. 100 sjúklinga. Auk erlendra sendifulitrúa, sem eru læknar og hjúkrunarfræð- ingar, er starfsfólkið flest úr hópi flóttamanna sem hafa hlot- ið þjálfun hjá sendifulltrúum sem eru frá ýmsum landsfélög- um Rauða krossins. Kristín er tuttugasti og fyrsti sendifulltrú- inn sem Rauði kross íslands i sendir til starfa á vegum Rauða krossins í Thailandi. Enn eru yfir 200 þúsund manns í flóttamannabúðum við landamæri Kampútseu og á annað hundrað þúsund flótta- menn eru annars staðar í Thail- andi. Af þessum fjölda eru 85 þúsund flóttamenn frá Laos, 27 þúsund frá Kampútseu og 7 þúsund frá Víetnam. Þessi gífurlegi fjöldi flóttamanna sem hafa fengið bráðabirgðahæli í Thailandi eru u.þ.b. 80% allra indó-kínverskra flóttamanna í Suðaustur-Asíu. Kristín Davíðsdóttír hjúkr- unarfræðingur er nú stödd í Thailandi þar sem hún vinn- ur á vegum Rauða krossins á sjúkrahúsi i flóttamanna- búðum. Flestir þeirra sem dvelja í flóttamannabúðunum við landa- mærin hafa verið þar um árabil og margir eygja ekki möguleika á því að komast burt. Thailand er fátækt land og á i erfiðleikum með að ráða fram úr málefnum flóttamannanna. Stjórnvöld í landinu hafa að undanfomu hótað að koma í veg fyrir frekari straum flótta- manna inn fyrir landamærin sín. Að sögn Hildar Magnúsdóttur hjúkrunarfræðings, sem hefur verið í Thailandi síðustu 6 mán- uði, hyggjast stjómvöld færa búðirnar nær hættusvæðinu. Það er því ljóst að erfiðleikar þessa fólks munu enn aukast á næstunni. Það hefur sjaldan verið logn í kringum Rod Stewart í gegn- um tíðina. Nú hefur karlinn hins- vegar róast nokkuð og hugsar fyrst og fremst um fjölskylduna og böm- in sín. Rod var lengi vel giftur Alönu Hamilton Stewart og eignaðist tvö böm með henni. Hjónabandið gekk ekki upp, þau skildu að borði og sæng og Alana fékk bæði bömin. Rod býr í Bandaríkjunum þrátt fyrir að hann hefði helst kosið að flytja heim til Englands. Alana býr í Los Angeles og þar em börnin an, í skóla. degi og fer með þau heim til Alönu. Hann getur ekki hugsað sér að flytja til Englands næstu 10 árin því að þá getur hann ekki hitt böm- in sín eins oft. Hann ætlar ekki að flytja fyrr en Kimberley og Sean eru komin af skólaaldri. í Englandi hefur Rod samt sem áður þegar fjárfest í stóm húsi sem hann hefur innréttað að eigin smekk. Hann kemur oft til Eng- lands til að hitta fjölskyldu sína sem honum þykir mjög vænt um. Eftir að Rod og Alana skildu, hitti Rod fyrirsætuna Kelly Em- berg. Þau eiga saman 11 mánaða dóttur sem heitir Ruby og Efri mynd: Rod Stewart ásamt Kelly Emberg og dóttur þeirra, Ruby. Neðri mynd: Rod er orðinn leiður á sukkinu og hugsar nú mest um börnin sín og tilvonandi eiginkonu, Kelly Emberg. UNGMENNASAMBAND VESTUR-SKAFTA-FELLSSÝSLU: Lengsta grinda- hlaup Islandssögunnar Félagar í Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu öfluðu §ár fyrir skömmu með því að hlaupa grindahlaup milli sýslu- marka í austri og vestri, eða um 180 km langa leið. Tilgangurinn var að safna áheitum til að kaupa grinda- hlaupsgrindur fyrir sambandið, en vegalengdin var 500 m á milli grinda. Aheitasöfnunin gekk vel og einnig var gefið út blað af sama tilefni. Páll Pétursson framkvæmda- stjóri USVS sagði í samtali við Morgunblaðið að blaðið hefði verið geflð út í 5.500 eintökum og dreift í öll hús á Suðurlandi. Sagði Páll að Ungmennasambandið hefði no- tið aðstoðar Ama Johnsens og Unnar Stefánsdóttur í þessu sam- bandi. Félagar úr hinum ýmsu ung- mennafélögum skiptust á að hlaupa, en bílar óku stöðugt með grindur fram fyrir hlauparana. Hlaupið hófst kl. 7 að morgni á miðjum Skeiðarársandi. Félagar úr UMF Ármanni hlupu fyrst, en vestan við Kirkjubæjarklaustur bættust við félagar úr Meðallend- ingi sem er minnsta félagið innan USVS. Veður var gott alla leið út í Skaftártungu, en þá fór að hvessa úr vestri. Var þá um sinn hlaupið í strekkingi og moldroki en það voru félagar úr Skafta sem hlaupu þá leið. A hluta Mýrdalssands var hlaupið í sandroki en síðan var renniblíða. Félagar úr Drangi hlupu að Hvammsá en endasprett- inn hlupu félagar úr Ungmennafé- laginu Dyrhólaey og luku þeir hlaupinu á Sólheimasandi í úða- rigningu þannig að flestar gerðir veðurs höfðu komið við sögu. Alls hlupu 65 í hlaupinu sem tók 12 klukkustundir. Páll sagði USVS vilja þakka Skaftfellingum fyrir aðstoðina og góðar undirtekt- ir því með þessu móti tókst að saftia fyrir nær öllum hlaupagrind- unum. COSPER Mér þykir þetta leitt, læknir, en konunni minni er batnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.