Morgunblaðið - 15.07.1988, Page 56

Morgunblaðið - 15.07.1988, Page 56
e EINKAfíEIKNINGUR Þ/NN í IANDSBANKANUMg FOSTUDAGUR 15. JULI 1988 VERÐ I LAUSASOLU 70 KR. m, Alagninga- seðlar í lok mánaðarins ir» SKATTSKRÁ vegna álagðra skatta ársins 1988 verður lögð fram í Reykjavík í lok mánaðar- ins, að sögn Gests Steinþórssonar skattstjóra. Að þessu sinni verð- ur tilgreind álagning eigna- skatts, skatts af eignatekjum, tekjum af atvinnurekstri og tekj- um lögaðila en ekki af venjuleg- um launatekjum. Þrátt fyrir þessa breytingu verða nöfn allra sem skattskyldir eru í skránni en aftan við nöfn gjaldenda verður auð lína ef einungis er um hreinar launatekjur að ræða, sem greiddir hafa verið af skattar sam- kvæmt staðgreiðslukerfí. „Gj aldendur fá senda álagningar- seðla sem skýra álagninguna þó r engin gjöld séu innheimt samkvæmt þeim,“ sagði Gestur. „Álagningin er framkvæmd með venjulegum hætti en er síðan felld niður af launatekjum eða reiknuðu endur- gjaldi hjá sjálfstæðum atvinnurek- endum. Sú niðurfelling kemur fram á álagningarseðlinum og hafí menn ekki önnur gjöld eða aðrar skatt- skyldar tekjur þá er álagningin og niðurfellingin sama talan.“ Ólíklegt að henda þurfi kindakjöti í ár EKKI HEFUR þurft að henda kindakjöti á haugana í ár og er slíkt ekki fyrirsjáanlegt, að sögn Jóhanns Guðmundssonar, deild- arstjóra í landbúnaðarráðuneyt- inu. Sagði hann að þrátt fyrir að sala á kjötinu væri nokkru betri en í fyrra, teldist hún alls ekki nógu góð. „Töluvert hefur verið selt af kindakjöti í loðdýra- fóður en fyrir það kjöt fæst svo lágt verð að það er litlu betra en að henda því,“ sagði Jóhann. Nokkur tonn eru enn til af 2 ára gömlu kindakjöti sem telst eðlileg rýmun, um '/2% framleiðslunnar. „Við hentum kjöti á haugana aðeins í fyrra og þá ekki í heilum skrokk- um,“ sagði Jóhann. Aðspurður sagði hann litlar líkur á að efnt yrði til útsölu á gömlu kindakjöti, svipað og gert var síðastliðið vor. Þá hafí allt selst en ekki hafí fengist fjármagn til að setja kjöt á aðra útsölu. Amljótur Davíðsson fagnar sigurmarki Fram en Guðmundur Baldursson markvörður Vals kemur engum vöraum við. MorKunblaðlð/JÚIIus Framarará sigurbraut FRAM styrkti stöðu sína á toppi 1. deildar í knattspymu með 1:0 sigri yfír Val á Valsvellinum í gærkvöldi. Eina mark leiksins skoraði Orm- arr Orlygsson í fyrri hálfleik. Framarar hafa 11 stiga forskot á Val og íslandsmeistaratitillinn blasir við liðinu. Sjá íþróttasíðu. Dr. Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor: Hannes velkominn að Háskól anum á réttum forsendum Dómnefnd vísar ásökunum ráðherra á bug DÓMNEFND um lektorsstöðu í stjóramálafræði við félagsvís- indadeild Háskólans vísar ásök- unum menntamálaráðherra um vanhæfi og hlutdrægni til föður- húsanna. Ráðherra hafi ekki komið með efnislegar athuga- semdir við dóminn og standi dómsúrskurðurinn óhaggaður. Hann sé sjálfur ber að hlut- drægni og óeðlilegum vinnu- brögðum með því að hnekkja dómi nefndarinnar en leita að- eins umsagnar um einn umsækj- anda af fimm hjá aðilum sem höfðu hagsmuna að gæta. Þessar fullyrðingar komu fram á blaða- mannafundi nefndarinnar í gær. í samtali við Morgunblaðið í dag segir dr. Sigmundur Guðbjarna- son að hann hafi reynt að afstýra þessari deilu með því að bjóða ráðherra að stofnuð yrði staða í stjórnmálaheimspeki fyrir dr. Hannes H. Gissurarson. Dr. Sigmundur segir að dr. Eskfirðingur SU sökk á Héraðsflóa: Hef engar skýring- ar á því sem gerðist -segir Valdimar Aðalsteinsson skipstjóri „ÉG HEF engar skýringar á því sem í raun gerðist," segir Valdi- mar Aðalsteinsson skipstjóri á Eskfirðing SU sem sökk á Héraðs- flóadjúpi í gærmorgun. „Leki var kominn að skipinu er ég var ræstur út um klukkan hálf sex um morguninn en í fyrstu héldum við að við gætum ráðið við hann. Það var ekki fyrr en fremri lestarnar fóru að fyllast af sjó að við báðum Hólmaborgina um aðstoð og jafnframt önnur skip.“ í máli Valdimars kemur fram átta var öllum um borð skipað að að lekinn á skipinu hafi fljótlega fara í flotbúninga og undirbúning- orðið óviðráðanlegur enda aukist ur að því að yfirgefa skipið haf- jafnt og þétt. Rétt fyrir klukkan inn. „Ég vil að fram komi að áhöfnin hélt vel ró sinni meðan á þessu stóð,“ segir Valdimar. Eskfirðingur SU, sem var 275 brúttólestir, sökk síðan um kl. 8 um morguninn en þá var Hólma- borg SU komin að Eskfírðingi og tók skipveijana sex um borð. Sjá bls. 22: Sáu skipið sökkva er þeir voru á leið í Hólmaborg. Hannes hafí verið velkominn að skólanum á réttum forsendum. Hann lagði til við ráðherra að snið- in yrði staða í stjómmálaheimspeki að menntun Hannesar. Þessu hafn- aði ráðherra án umræðu. Sigmund- ur harmar að svona skuli hafa farið. Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra hafnaði til- lögu rektors og skipaði dr. Hannes lektor í stjómmálafræði þrátt fyrir að hann hafi ekki hlotið ótvíræðan hæfnisdóm í Háskólanum. Dr. Sig- urður Líndal lagaprófessor sem átti sæti í dómnefndinni segir að kenn- arar dr. Hannesar séu augljóslega ekki hæfir til að dæma í þessu máli. Þeir geti undir engum kring- umstæðum lagt hlutlaust mat á hæfni Hannesar, enda geti ráðherra þess hvergi hvaða forsendur hann lagði fyrir þá. Þá séu rök ráðherra um að kunningsskapur og óvild hafí gert dómnefndarmenn van- hæfa haldlaus í íslensku réttarfari. „Dómnefndin vann frá upphafi eftir skýrt afmörkuðum forsend- um,“ sagði dr. Svanur Kristjánsson formaður dómnefndarinnar. „Ráð- herrann heldur því fram að lektor- inn eigi að geta kennt byrjendum almenn atriði greinarinnar. En það stangast algjörlega á við starfslýs- ingu þar sem segir að umsækjandi þurfí að vera hæfur til að annast kennslu í undirstöðugreinum stjóm- málfræðinnar." Dómnefndarmenn leggja áherslu á að ráðherra sýni ekki fram á það með rökum að dómnefndin hafi far- ið út af sporinu. Kjami málsins sé að dómnefndin hafi komist að niður- stöðu sem enginn ágreiningur var um. Vanhæfi dómnefndar fái ekki staðist og ásakanir um kunnáttu- leysi Sigurðar Líndal og Jónatans Þórmundssonar ekki heldur. Sjá nánari frásögn, viðtal og greinargerð á miðopnu. Feðgar réð- ust á lög- regluþjón FEÐGAR réðust á lögregluþjón í Mosfellsbæ í gærdag er lög- regluþjóninn stöðvaði soninn, 16 ára réttindalausan ungling, á vélhjóli föður síns. Þetta mun hafa farið í taugarnar á föðurn- um og átök urðu i millum þeirra þriggja. Lögregluþjóninn slapp úr átökunum með minniháttar meiðsl og skrámur. Að sögn lögreglunnar hefur hún oft þurft að hafa afskipti af hinum réttindalausa unglingi. Hann virðist geta fengið hjól föður síns lánað að vild og notar hann það til gá- láuss aksturs um götur Mosfells- bæjar og víðar. Sonurinn var síðast í fréttum fjölmiðla nú fyrir helgina er honum tókst í tvígang að sleppa á hjóli föður síns undan lögreglunni á Vesturlandsveginum. Mestur hraði hans á hjólinu þá mældist um 132 km á klukkustund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.