Morgunblaðið - 13.08.1988, Side 2

Morgunblaðið - 13.08.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 Norrænt geðlæknaþing: Lyfjanotkun eykst mikið með aldrinum ÞINGI norrænna geðlækna, sem staðið hefur yfir í Reykjavík, lýk- ur í dag. Á þinginu hafa verið haidnir 230 fyrirlestrar á yfir 40 fundiun og fjalla þeir allir um þunglyndi og kvíða eða mál því tengd. Yfir 5% íslendinga þjást af þunglyndi á hveijum tíma og um 1% þeirra fá lyf i Reykjavík. Lyfjanotkun eykst verulega eftir þvi sem fólk eldist, en lítill munur Evrópumót í brids: Islendmgar í 17. sætinu ÍSLENSKA liðið á Evrópumóti yngri spilara í brids var enn í 17. sæti eftir 18 umferðir. Frakk- ar eru i efsta sætinu en útlit er fyrir mikla baráttu i lokaum- ferðunum. Mótinu lýkur i dag. ísland tapaði 11-19 fyrir Frökk- um í 16. umferð. Að sögn Jóns Páls Siguijónssonar fyrirliða liðsins áttu Matthías Þorvaldsson og Hrannar Erlingsson mjög góðan leik í opna salnum en það dugði ekki til sigurs enda voru Frakkam- ir þá nýkomnir í efsta sætið á mót- inu og ætluðu ekki að Iáta það baráttulaust eftir. í 17. umferð tapaði ísland fyrir Ungveijaiandi, 12-18 og í 18. um- ferð tapaði liðið fyrir ísrael 14-16. ísland var með 225 stig eftir 18 umferðir en í gærkvöldi spilaði íslenska liðið gegn Belgum. I dag spilar ísland við Bretland og Svíþjóð. Frakkar voru með 348 stig eftir 18 umferðir en Norðmenn áttu 332 stig og Svíar 331. ítalir voru með 229 stig f 4. sætinu. er á tíðni sjúkdómsins eftir aldri. Þetta kom fram á þinginu i gær og jafnframt að þunglyndiskvart- anir hér á landi eru ekki breytileg- ar eftir árstíðum. Þingið hófst á miðvikudag og lýk- ur á hádegi í dag. Haldnir hafa ver- ið daglegir yfirlitsfundir í Há- skólabíói þar sem fjallað er um það helsta sem komið hefur fram, en síðdegis hafa verið í gangi margir fundir í einu á háskólalóðinni. Á yfir- litsfundinum á fimmtudag var fjallað um þunglyndissjúkdóma og um kvíðasjúkdóma í gærmorgun og það hversu algengir þeir eru. 5% fólks á Vesturlöndum þjáist af þunglyndis- og kviðasjúkdómum á hveijum tíma og er svipað hlutfall hér á landi. Líkumar á því að fólk fái þessa sjúk- dóma einhvemtfma á ævinni eru 14% fyrir karla og 21% fyrir konur. Af þeim 5% sem haldnir eru þung- lyndis- og kvíðasjúkdómum á hveij- um tíma fá 1% fullorðinna lyf í Reykjavík. Þetta kom fram f erindi sem Tómas Helgason, geðlæknir, flutti á sí^degisfundi í gær. Hann sagði að þó lítill munur væri á tfðni þunglyndis eftir aldri þá ykist fyöldi þeirra sem fær lyf þegar komið er upp í eldri aldurshópa. Af þeim sem eru á aldrinum 20-30 ára fá 0,3% lyf við þungiyndi og 0,8% kvfðalyf, en 1,4% á aldrmum 50-60 ára fá þung- lyndislyf og 7,6% kvíðalyf. Þetta var fiindið út frá athugun sem gerð var á lyfseðlum gefnum út á einum mán- uði í Reykjavík. Vetrarþunglyndi, sem svo er nefiit, virðist vera meira f Norður-Noregi en í suðurhluta landsins að því er kom fram í erindi sem norskur lækn- ir flutti á þinginu. Andrés Magnús- son, læknir, hefur borið saman tíðni á árstíðabundnu þunglyndi og komist að raun um að tíðninni hér á landi svipar meira til þess sem er í Flórída en New York, þar sem tíðnin er mest. Högni Oskarsson kynnti at- hugun sem gerð var fjórum sinnum hérlendis á síðasta ári um hvort tíðni á þunglyndiskvörtunum væri breyti- leg eftir árstíðum, en hún reyndist vera sú sama. Alkóhólismi var eitt þeirra mál- efna sem fjallað var um á þinginu, en þó svo helmingi fleiri konur þjáist af þunglyndi er það oftar ástseðan fyrir of mikilli drykkju hjá körlum. Meðferð við þunglyndis- og kvíða- sjúkdómum var einnig rædd og bent á að einungis innan við þriðji hluti þeirra sem hafa þessa sjukdóma fá fullnægjandi meðferð. Ástæðumar fyrir því geta verið margar, m.a. skortur á þekkingu heilbrigðisstarfs- manna og almennings á sjúkdómun- um. Meðferð við þunglyndi felst oft- ast í lyfjagjöf eða viðtölum, sem hvorutveggja hefur reynst vel, að sögn Tómasar Helgasonar. En veru- legur hluti sjúklinga þyrfti samt á sjúkrahúsþjónustu að halda. AP Uppseltá alla tónleika Sykurmolanna Sykurmolamir eru nú á ferð um Bandarfldn og hefur hljómsveitin leikið á ellefu tónleikum í jafn mörgum borgum. Þessi mynd var tekin á tónleikum híjómsveitarinnar í Cabaret Metro í Chicago í fyrra- kvöld. Hljómplata Sykurmolanna, Life’s too Good, er nú í 82. sætí á bandaríska breiðskífulistanum, á uppleið. Hafa selst af plötunni um 170.000 eintök og seljast af henni um 7.000 eintök á dag. Tónleikaað- sókn hefur verið slík að margir hafa þurft frá að hverfa og hefur hljómsveitin bætt við einum tónleikum i Los Angeles og öðrum í New York, en heldur fast við það áform að lengja ekki tónleikaförina frá þvi sem ákveðið var í upphafi. Þegar er orðið uppselt á aukatónleik- ana, lflct og alla aðra tónleika ferðarinnar. Nafnvextir lækka síð- ar í þessum mánuði JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði að loknum fundi með aðilum á fjármagnsmarkaði i gær, að nafnvextir myndu lækka eftir 20. ágúst nk. i kjölfar þjaðnandi verðbólgu. lakkun raunvaxta myndi síðan væntanlega sigla í kjölfarið og væri samkomulag rfldsins við viðskiptabanka um sölu spariskírteina skref i þá átt. Fundinn í gær sóttu fulltrúar allra þeirra aðila sem starfa með formleg- um hætti á fjármagnsmarkaðinum, m.a. Seðlabanka, viðskiptabanka, lífeyrissjóða, Húsnæðisstofnunar, verðbréfasjóða og kaupleigufyrir- tækja. A fundinum var rætt um skýrslu verðtryggingamefndar, vaxtaþróun að undanfömu og hvemig best mætti ná því markmiði að lækka verðbólgu og vexti og gera lánskjör sambærileg því sem gerðist á erlendum lána- mörkuðum. Jón Sigurðsson sagði að loknum fundinum að með hliðsjón af skýrslu verðtryggingamefndar væri form- lega fátt því til fyrirstöðu að breyta grundvelli lánskjaravísitölu. Hann ítrekaði þó að varlega þyrfti að fara í allar slíkar breytingar. Breytingar á þessu mikilvæga tæki á lánamark- aðinum mætti ekki gera breyting- anna vegna. Það mætti eingungis gera ef eitthvað betra væri í sjón- máli og samhliða víðtækari aðgerð- um. Jón taldi vel koma til greina að auka vægi gengis í verðtryggingunni til dæmis þannig að gengisvísitala tæki við af lánskjaravísitölu í áföng- um eða yrði notuð samhliða henni. Þá væri einnig til staðar markaðs- leiðin, þ.e. að auðvelda Qármagns- flutninga milli landa. ÍSLAND Hugsanleg sameiginleg krafa Norðurlanda til Norðurslóða: Auðveldar þjóðun- um að vemda hafið Á FUNDI utanríkismálanefndar Alþingis með samstarfsnefnd Norðurlandaráðs i alþjóðamál- um, sfðastliðinn miðvikudag, kynntí Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanrfldsmálanefnd- ar, hugmyndir um hveraig Norð- urlöndin gætu gert kröfu til svo til alls hafsvæðis á Norðurslóð- um, sem nú er fyrir utan efna- hagslögsögu ríkjanna. í samtali við Morgunblaðið sagði dr. Man- ik Talwani, sem verið hefur ráð- gjafi íslendinga f hafsbotnsmál- um, að ef það yrði gert myndi það auðvelda þjóðunum veru- lega að verada svæðin gegn mengun. í þessari viku var haldinn f Reykjavík fiindur samstarfsnefnd- ar Norðurlandaráðs í alþjóðamálum en hún fjallar um umhverfismál og önnur sameiginleg hagsmunamál Norðurlandanna í samskiptum við önnur ríki. Þar kynnti Eyjólfur Konráð Jónsson hugmynd um að Norðurlöndin nýttu sér 76. grein hafréttarsáttmálans og gerðu sam- eiginlega kröfu til hafsvæða á Norðurslóðum sem eru utan efna- hagslögsögu ríkjanna. Sagði Ey- jólfur að með þessu væri hægt að vinna markvissar að því að stöðva mengun á þessu svæði þar sem um fullveldisréttindi væri að ræða. Dr. Manik Talwani, prófessor við Houston-háskólann í Bandaríkjun- um, hefur unnið að þvi, fyrir ís- Morgunblaðið/KGA Eyjólfur Konráð Jónsson og dr. Manik Talwani skoða kort af Norðurslóðum. lands hönd, undanfarin sjö ár, að kanna rétt íslands til hafsbotnsins utan efnahagslögsögunnar. Morgunblaðið náði tali af dr. Talwani og spurði hann hvemig löggjöf um mál af þessu tagi væri háttað. „Alþjóða hafréttarsáttmál- inn er mjög ákveðinn varðandi það hversu stórra hafsbotnssvæða hver þjóð getur gert kröfu til," sagði dr. Talwani. „Allar þjóðir hafa rétt til að krefjast 200 mílna efnahags- lögsögu en í sumum tilvikum ná hafsbotnssvæðin út fyrir efnahags- lögsöguna. Því voru við gerð haf- réttarsáttmálans settar reglur um það hversu langt hver þjóð getur fært út lögsögu sína út fyrir 200 mílumar. Það sem ég hef verið að vinna að er að finna út til hvaða svæða íslendingar geta gert kröfu. Eftir að hafa komist að niðurstöðu varð- andi Reykjaneshrygginn og síðar Hatton-Rockall svæðið vaknaði sú spuming hvort ekki væri hægt að gera samsvarandi kröfur á Norður- slóðum og hversu stórs svæðis væri hægt að gera kröfu til ef Norðurlöndin ynnu sameiginlega Á þessu korti af Norðurslóðum má sjá hafsvæðin sem um er að ræða. Skyggðu svæðin á kortínu eru fyrir utan efnahagslögsögu rikjanna og hefur Eyjólfur Konráð lagt til að Norðurlöndin geri sameiginlega tilkall til þeirra. Þau svæði sem merkt eru með spurningamerki er ójjóst hvaða ríki á mest tilkall til. að málinu. Ég kannaði því dýptarkort yfír þetta hafsvæði, að ósk Eyjólfs Konráðs, og reiknaði dæmið með hliðsjón af reglum hafréttarsátt- málans. t ljós kom að Norðurlöndin geta gert kröfu til Norðurslóða nánast í heild sinni. Þetta getur haft marga kosti í för með sér til dæmis varðandi náttúruauðlindir sem kunna að finnast á þessu svæði, en ekki síður vegna náttúru- vemdarsjónarmiða. Ef Norðurlönd- in gerðu kröfu til alls þessa svæðis væri mun auðveldara fyrir þau að koma í veg fyrir að ýmsum úr- gangi væri komið fyrir í hafínu á Norðurslóðum." Talwani taldi mikilvægt að gerð yrði krafa til þessa svæðis sem fyrst og fagnaði því að islensk stjómvöld hefðu haft frumkvæði að því að koma af stað umræðu um málið á vettvangi Norðurland- aráðs. SVALBARÐI - Jan Maycn FÆREYJAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.