Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 45
: L
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
MADONNA
Sögð ástfangin
af John
Kennedy yngri
Þessa dagana verður söng- og
leikkonan Madonna þrítug.
Fregnir herma að hún sé ekkert
alltof ánægð með það hvað tíminn
flýgur hratt, né sé allt í toppstandi
í ástamálum hennar. Hún er gift
leikaranum Sean Penn, en er sögð
mjög ástfangin af engum öðrum
en John Kennedy yngri.
Hún hitti fyrst Kennedysoninn á
diskóteki í New York árið 1981,
þá óþekkt söngkona, og er sögð
hafa kolfallið fyrir honum. Síðan
þá hafa þau hitst í ófá skiptin, en
fjölskylda hans er ekki sögð hrifin
af henni. Þar fyrir utan sem hún
lfkist Marilyn Monroe vill Kennedy-
slektið ekki að sagan endurtaki sig.
Það er enda alvitað að hin dáða
Marilyn Monroe og John Kennedy
eldri áttu í sambandi, sem reyndar
er óvíst ttvers eðlis var.
Madonna er sögð gera ítrekaðar
tilraunir til þess að ganga í augun
á Kennedy yngri, og staðurinn sem
hún oftast velur til þess er líkams-
ræktarstöð sem þau bæði stunda.
Heimildir koma frá Lauru Montez
sem vinnur við þessa líkamsræktar-
stöð, og er ein sagan þessi: Ma-
donna fer í leyfisleysi inn í karla-
klefann þar sem John Kennedy
yngri er fáklæddur á leið í sturtu.
Hún leggur báða lófa sína á bríngu
kappans og segir: „Veistu Johnny,
þú gætir breytt góðri stúlku... í
vonda." Andrúmsloft þrungið
ónefndri spennu, varð víst að engu
þegar hann sagði: „takk, en nei
takk."
Heimildir herma að ef eitthvað
hefði átt að gerast milli þeirra hefði
það gerst þarna. Eftir þetta atvik
hafi Madonna orðið súr, en síðan
verið í vegi fyrir Kennedy yngri
hvar og hvenær sem henni gæfist
tækifæri, og þegar Sean Penn er
ekki nálægur. Hjónabandið er sagt
ekki of gott, og Madonna farin að
halda að hún sé ekki ómótstæðileg.
Tilraun hennar til þess að líkjast
Marilyn Monroe hafi meðal annars
verið gerð fyrir John, í þeirri trú
að synir feti í fótspor feðranna. Hún
hafi í raun aldrei elskað Sean og
hafi gifst honum vegna þess að ef
ekki fengi hún það besta yrði það
næst besta að duga.
Laura sem þekkt hefur Madonnu
í sjö ár kann fleiri sögur. „Kennedy
fólkið hefur alltaf hatað hana, en
það hefur ekki stöðvað Madonnu.
Hún hefur oft truflað samkvæmi
sem haldin hafa verið í íbúð
Kennedyömmunnar við Central
Park. Ef hún komst ekki í sam-
kvæmin, hringdi hún þangað á
tveggja mínútna fresti, þar til hann
kom sjálfur í sfmann. Þegar Ma-
donna var spurð af hverju hún gerði
þetta sagði hún að ef hún fengi
hann ekki skyldi heldur engin önnur
fá hann."
Madonna á einnig að hafa boðið
honum baksviðs á tónleikum í New
York. Hún gaf honum kampavín
og kyssti hann mömmukossum og
síðar fóru þau saman í límósínu á
diskótek, þar sem þau hittu Lauru.
Hann kyssti Lauru á kinnina og
Madonna æstist mjög við það. Þau
hurfu þaðan stuttu síðar, en John
vildi þó ekki fara heim með Ma-
donnu. í kjölfarið af þessum fundi
þeirra sagði Madonna opinberlega
að hún og Sean væru hætt saman.
Hinsvegar viðurkennir Madonna
ekkert i fjölmiðlum, og aðspurð
segist hún elska Johnny sem vin,
en bætir við að hann sé algjört æði.
Sean Penn er jú ennþá eigin-
maður Madonnu. Hann er sagður
ekki hafa grunað neitt um samband
hennar og John Kennedy yngri fyrr
en á þeim tíma sem hann fðr til
Thailands til þess að leika í kvik-
myndinni „Casualities of War" með
Michael Fox. En Madonna notaði
þá tækifærið og hitti John eina ferð-
ina enn. Þau skokkuðu saman á
ströndinni og sýndust góðir vinir.
Mynd náðist af þeim saman, var
birt í tímarit vestra og Sean rak
auðvitað augun í þegar heim kom.
Það er einnig sagt að John
Kennedy eigi erfítt með sig í þessu
sambandi. Það sé ekki bara Ma-
donna sem elti hann. Hann rekst
víst stundum á hana „af tilviljun",
hann hringi f vini sína sem hafa
reynslu, til þess að spyrja hvernig
það sé að vera ástfanginn af giftri
konu, og að hann hafi tilhneigingu
til þess að klæða sig svolítið í
pönkstfl! Vinir segja að hann hafi
verið starandi síðan Madonna kyssti
hann fyrir framan alla á samkomu
til styrktar eyðni, nú í júlí. En það
er svo margt sagt um frægt fólk.
Laura segir að lokum: „Gæinn
(John Kennedy yngri) er jafn blóð-
heitur og gengur og gerist. En þetta
er platónsk ást, enn sem komið
er." Þessi er sagan sem nú gengur
og þvi miður, því miður, er engin
mynd henni til sönnunar.
Móður Johns, Jackie Onassis, og fjölskyldunni líkar ekki við Ma
donnu.ersagt.
Það var þessi númer 2 frá vinstri, eða kannski þessi númer 3
f rá vinstri.