Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
Flugstöð Leifs Eiríkssonar;
Tölvustýrt innrit-
unarkerfi væntan-
legt síðar á árinu
„ÁLAGIÐ í afgreiðslunni er mest
1-2 klukkustundir á dag, en slíkt
verður úr sögunni þegar Flug-
leiðir taka hið tölvustýrða innrit-
unarkerfi i notkun," sagði Asgeir
Einarsson skrifstofustjóri f
Leifsstöð i samtali við Morgun-
blaðið vegna fréttar i Morgun-
blaðinu á finuntudag uin langar
biðraðir i flugstöðinni. Aðspurð-
ur um hvort flugstöðin reyndist
of lit.il sagði Ásgeir að svo værí
ekki. Engin flugstðð væri svo
stór að hún fylltist ekki af far-
þegum þegar umferð væri sem
mest.
í frétt Morgunblaðsins kom m.a.
fram, að mikil örtröð væri á mestu
álagstímum við innritun farþega í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli og um það bil
VEÐUR
1000 manns afgreiddir á einni
klukkustund þegar mest væri að
gera. Flugleiðir hafa nýlega gerst
aðilar að Amadeusi, einu bókunar-
kerfi evrópskra flugfélaga. Þetta
nýja innritunarkerfí verður tilbúið
síðar á árinu og verður þá hægt
að innrita farþega til brottfarar á
öllum afgreiðsluborðum í brott-
fararsal flugstöðvarinnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bensínstöð Olís á Klöpp rifin
BENSÍNSTÖÐ Olís á Klöpp við
Skúlagötu i Reykjavik var rifin
i gær. Klöppin var elsta olíustöð
á landinu. Byrjað var að byggja
hana 1926, en þann 10. júní 1928
/ DAGkl. 12.00:
Heimild: Veöurstofa íslands
(Bygot á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFURIDAG, 13.AGUST1988
YFIRLIT í QÆR: Yfir Grœnlandi er 1018 mb hæð en milli fslands
og Noregs er 997 mb léegð. Heldur kólnar í veðri, einkum norðan-
lands.
SPÁ: Breytileg átt, viðast gola eða sífidegisskúrir á Suðurlandi en
annars bjart veður um sunnan og vestanvert landið. Norðaustan
gola eða kafdi og skýjað norðanlands og austan og sums staðar
þokuloft eða dálítil súld við ströndina. Hiti 9—16 stig, hlýjast suð-
vBiJtanlatiLte.-----------------------------------------------------------------¦------!
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG Norðaustan-átt. Skýjað norfianlands og
austan og sums staðar dálftil súld, hiti 6—10 stig. Bjart veður að
mestu sunnanlands og vestan og 10—15 stiga hití, þó ef til vill
síðdegisskúrir.
HORFUR Á MÁNUDAG Það lítur út fyrir svipað veður verði framan
af degi, en þykknar líklega upp meö austan- eöa suðaustan-átt
suðvestanlands þegar líður á daginn.
TAKN:
'C \ Heiðskírt
y. Norðan, 4 vindstig:
<y
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ /• / / Rigning
r r r
* r *
r * / * Slydda
/ * /
* # *
* * * * Snjókoma
¦\Q- Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir 5l
#
V E1
= Þoka
=z Þokumóöa
', ' Súld
OO Mistur
'—L Skafrenningur
(T Þrumuveður
' "Mr ^SSÍ m?
C 49 W
¦> T ^
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kt. 12:00 i 'gær að ísl. tíma
hiti vaður
Akureyrl 12 alskýjað
Reykjavik 13 hálfskýjað
Bergen 16 úrkoma
Helsinki 19 skýjað
Kaupmannah. 19 skýjað
Narssarssuaq 10 akýjað
Nuuk 8 rigning
ðsló 20 skýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn 12 alskýjað
Algarve 25 heiðskírt
Amsterdam 21 rignlng
Barcelona 29 letukýjað
Chicago 25 þokumóða
Feneyjar vantar
Frankfurt 28 skýjað
Glasgow 16 skúr
Hamborg 21 skýjað
Las Palmas 24 hálfskýjað
London 21 skýjaö
Los Angeies 18 alskýjað
Lúxemborg 23 skýjað
Madríd 31 heiðskírt
Malaga 27 rykmlatur
Mallorca 32 hoiðskírt
Montreal vantar
NewYork 28 mistur
París 23 skýjað
Róm 28 heiðskírt
San Diego 19 alskýjað
Wlnnipeg vantar
var opnuð þar birgðastöð Oliu-
verslunar íslands hf.
Olía var þá flutt inn með tank-
skipum og dælt í birgðatankana á
staðnum. Jafnhliða voru fluttir inn
skipsfarmar af oiíu í járn- og tré-
tunnum, til dreifingar á lands-
byggðinni. Þann 1. aprfl 1953 var
reist birgðastöð í Laugarnesi og
birgðastöðinni á Klöpp að hluta
breytt í bensínstöð. Frá Laugarnesi
til Klaþpar lá fjögurra tommu lögn
og um hana var dælt gasolfu og
svartolíu, sem var síðan dælt frá
Klöpp á nýsköpunartogarana og
önnur skip við Faxagarð.
Olís opnar í dag nýja bensfnstöð,
verslun og þvottastöð á Klöpp.
Frá Aðalgötiinni á Siglufirði. Átak hefur verið gert f fegrun bæjar-
ins i tilefni afmælisins.
Siglufjörður:
Afmælisvikan
hef st í dag
Á ÞESSU árí eru liðin 70 ár frá
þvf að Siglufjörður fékk kaupstað-
arrcttindi, auk þess sem bærinn á
170 ára verslunarafmæli. í tilefni
þessa er efnt tíl sérstakrar af-
mælisviku sem hefst i dag. Hátí-
ðarhöldin hefjast með þvi að
Vigdis Finnbogadóttír, forseti ís-
lands, kemur í heimsókn tíl Siglu-
fjarðar í boði bæjarstiórnar. Tekið
er á móti forsetanum á Siglufjarð-
arflugvelli klukkan 10.30 árdegis.
Hátíðarsamkoma verður í Siglu-
fjarðarkirkju klukkan 14, en að henni
lokinni verða þrjár sýningar opnaðar
í bænum. Málverkasýning f Ráð-
húsinu, ljósmyndasýning í Slysavarn-
arhúsinu og í grunnskólanum verður
nemendasýning. Brúðuleikhús verð-
ur á fjölunum við grunnskólann á
Norðurgötu klukkan 16, en fyrsta
degi hátfðarhaldanna lýkur með
unglingadansleik f Alþýðuhúsinu og
almennum dansleik á Hótel Höfn.
Boðið er upp á fjölbreytta afmælis-
dagskrá alla daga vikunnar. Hátíðar-
höldunum lýkur laugardaginn 20.
ágúst.
Svíþjóð:
Bubba er tekið vel
Bubbi Morthens er nú á tón-
leikaferðalagi um Svíþjóð með
sænsku rokkhljómsveitínni Im-
periet og hitar upp fyrir hljóm-
sveitina. Fyrir stuttu kom út
tveggja laga plata með Bubba i
Svfþjóð sem fengið hefur lofsam-
legar viðtökur sænskra blaða.
1 samtali við Morgunblaðið sagði
blaðafulltrúi útgáfufyrirtækisins
Mistlur að platan, sem á er lagið
Moon in the Gutter (Skapar fegurðin
hamingjuna?), hefði verið gefin út
til að kynna Bubba fyrir áheyrendum
Imperiet, því ekki hefði verið auglýst
að hann myndi leika með hljómsveit-
inni. Hann hermdi að platan hefði
fengið mjög góðar viðtökur gagnryn-
enda í sænskum blöðum, reyndar
mun betri viðtökur en menn hefðu
átt von á og að lagið hefði verið
valið lag vikunnar í þremur stórblöð-
um. Blaðafulltrúinn sagði og að stór
plata með Bubba væri væntanleg í
september og að þá yrði gefin út
önnur smáskífa. Þá væri einnig fyrir-
huguð tónleikaferð Bubba um
Svíþjóð með eigin hljómsveit.