Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 33
íí'
'.'íWO!
MORGUNBLAÐIB, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
33
Kerfisbreytingu en
ekki gengisbreytingu
eftírSigurð
Tómas Garðarsson
Um störf Seðlabanka
og Veðurstofu
Vægi erlendra mynta i efna-
hagslífi íslands hefur slík áhrif á
afkomu byggða og atvinnulífs í
sjávarplássum að fyllilega er sam-
bærilegt við aðra örlagaþætti eins
og veðurfar eða aflabrögð. Sú
mæling sem gengi Seðlabanka ís-
lands sýnir um efnahag sjávar-
plássa úti á landi er á sinn hátt
ekkert ósvipuð og mælingin væri á
veðurfari í sjávarplássunum, ef að-
eins væri tekið tillit til loftvogarinn-
ar á Veðurstofunni i Reykjavík.
Veðurstofan og Seðlabanki íslands
stunda að þessu leyti svipaða starf-
semi. Báðar stofnanirnar eru stöð-
ugt að fást við hæðir og lægðir.
Önnur í veðurfari landsins, en hin
í efnahag landsins.
Ef við hugleiðum skipuleg og
vísindaleg vinnubrögð Veðurstof-
unnar í upplýsingaöflun sinni um
allt landið, þá er augljóst að ef
þeirra nyti ekki við væri ásjóna
landsbyggðarinnar allt önnur. Þér,
lesandi góður, finnst samanburður-
inn kannski fráleitur, en svo er
ekki ef nánar er skoðað. Alveg eins
og Seðlabankanum er ætlað að gefa
út upplýsingar, halda utan um hin-
ar ýmsu efnahagslegu stærðir og
segja til um orsakir og afleiðingar
þeirra, þá gerir Veðurstofan það
sama um veðurfar og þykir öllum
sjálfsagt.
Eins og fyrr segir er gengi er-
lendra gjaldmiðla, sem nú á tímum
eru „framleiddir" allt í kringum
landið, eitt af megin atriðum efna-
hagslífsins. Hæðir og lægðir í efna-
hag byggðarlaganna ráðast ekki
síður af magni og verði þeirra en
af lönduðum afla og hvernig vinnst
úr honum, svo ekki sé nú talað um
veðurfar. í forneskju sinni neitar
Seðlabankinn að viðurkenna þessa
staðreynd. í stað þess að fylgjast
með og skrá með skipulögðum
hætti allan feril gjaldmiðlanna eru
þeir stöðvaðir í Reykjavík og seldir
þar á föstu verði, sem ákvarðast
af héntistefnumælikvarða ríkjandi
stjórnmálamanna og aldrei rétt I
samanburði við vinnubrðgð veður-
fræðinga eru vinnubrðgð efna-
hagshagfræðinga okkar aðeins
kukl.
í hlutfallí af meðal-
loftþrýstingi Evrópulanda
Nýjasta hugmynd nokkurra hag-
fræðinga er að tengja krónuna við
Evrópugjaldmiðla. Margir hafa
gripið þessa hugmynd á lofti og sjá
hér gott tækifæri til að taka með
þessari ráðstöfun hentistefnumæli-
kvarðann úr höndum stjórnmála-
mannanna. Hugmyndin er í mínum
huga jafn fráleit og að skikka Veð-
urstofuna til að skrá loftþrýstinginn
í landinu í einhverju hlutfalli af
meðalloftþrýstingi Evrópulanda.
Auðvitað dettur ekki nokkrum
manni slíkt ( hug.
Eitt af núverandi vandamálum
efnahagslífsins eru offjárfestingar
á ýmsum sviðum. Sjávarútveginum
hefur ekki síst verið núið þessu um
nasir og oft ekki af ástæðulausu.
Annar vandi í hagkerfinu er lang-
varandi verðbólga og þar af leið-
andi brenglað verðmætamat. Þetta
Signrður Tómas Garðarsson
„Ég geri það að tillögn
minni til ríkisstjórnar-
innar að hún færi geng-
isákvörðun til allra
banka og sendi Seðla-
bankann í kerfisbreyt-
ingu en ekki gengis-
breytingu."
tvennt þ.e. verðbólgan og offjárfest-
ingin eiga að læknast með tengingu
krónunnar. Þetta má vera rétt en
áföllin aukast einnig. Atvinnuleysi
færist einnig á Evrópustig og mark-
aðsstaða framleiðsluafurða okkar
takmarkast á sama hátt og annarra
Evrópuþjóða.
Ég tegg til að hagfræðingar sem
mæla með tengingu krónunnar við
myntkerfi Evrópugjaldmiðla fari í
læri hjá Veðurstofunni.
Guðspjall dagsins:
Lúk. 18.:FariseiogtoII-
heimtumaftur
ÁSKIRKJA: Vegna safnaðarferð-
ar verður guðsþjónustan í
Strandarkirkju, Selvogi kl. 11. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Sigríð-
ur Jónsdóttir. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Prestur sr. Ólaf-
ur Jens Sigurðsson. Sóknar-
nefndin.
DÓMKiRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn Hunger Friðriksson. Sr.
Hjalti Gufimundsson.
LANDAKOTSSPÍTALl: Messa kl.
13. Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Anders Jó-
sofsson
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr.
Hreinn Hiartarson.
HALLGRIMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
ustakl. 10.30. Beöiðfyrirsjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón-
usta kl. 11 árdegis. Sr. Árni Páls-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsbjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Ólöf Ólafs-
dóttir. Organisti Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESSÓKN: Laugardag
13. ágúst: Guðsþjónusta í Hátúni
10b, 9. hæð, kl. 11. Sóknarprest-
ur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Ólafur Jóhanns-
son. Miðvikudag: Fyrirbaana-
messa kl. 18.20. Sr. Olafur Jó-
hannsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organistí Sighvat-
ur Jónasson. Sr. Guðm. Örn
Ragnarsson.
KAPELLA HÁSKÓLA ÍSLANDS:
Fríkirkjufólk. Guðsþjónusta í kap-
ellu Háskóla islands kl. 11. Sr.
Gunnar Björnsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Stuðnings-
menn.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum þá kl. 14. Á laugardögum
er ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delfía: Almennt guðsþjónusta kl.
20. Ræðumaður Garðar Ragn-
arssonn. ¦
KFUM & KFUK: Samkoma á
Amtmannsstíg 2B: Samkoma á
vegum SÍK kl. 20.30. Söngur
Anders Jósepsson. Þáttur um
Bjarna Eyjólfsson í umsjá Árna
Sigurjónssonar. Ræða Páll Frið-
riksson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Útisam-
koma á Lækjartorgi kl. 16. Hjálp-
ræöissamkoma kl. 20.30. Flokks-
foringjarnir stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa á Lágafelli kl. 11. Sóknar-
prestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Vestur-íslending-
ar eru sérstaklega boðnir vel-
komnir. Þar mun sr. Bragi Frið-
riksson og sr. Harald S. Sigmar
þjóna fyrir altari og sr. Jón Bjarm-
an prédika. Stólvers fiytja Vest-
ur-íslendingarnir Svava og Erik
Sigmar. Organisti Þröstur Eiríks-
son.
VfÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Einar Eyjólfsson
messar. Sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjá
Vífiistafiakirkja.
KAPELLA ST, Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
KAPELLA ST. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10. Rúmhelga daga
messa er lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
KIRKJUVOGSKIRKJA, Höfnum:
Messa kl. 11. Gönguferð að
henni lokinni. Gengið fyrir Ósa-
botna og í Hvalsnes. Sr. Örn
Báröur Jónsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Bæna-
samkomur alla þriðjudaga kl.
20.30. Lofgjöro, fyrirbænir, kaffi
og umræður. Sr. Örn Bárður
Jónsson.
Gengisákvörðun í alla
banka
Ég hef ekki heyrt annan hag-
fræðing en Vilhjálm Egilsson viðra
þá skoðun að erlendir gjaldmiðlar
væru eins og hver önnur verslunar-
vara, sem eðlilegast væri að gengi
kaupum og sölum eins og önnur
verðmæti í hagkerfinu. Er verðlags-
höft réðu lögum og lofum i efna-
hagslífinu var ekki óeðlilegt að er-
lendir gjaldmiðlar væru þar með.
Nú er það frjálst verðlag sem ræð-
ur lögum og lofum og því er jafn
eðlilegt að gjaldmiðlar falli þar und-
ir.
Rökin sem helst heyrast á móti
frjálsri gjaldeyrissölu eru hræðsla
við aukna verðbólgu, einhverskonar
spákaupmennska með erlenda
gjaldmiðla og einnig öfugmælin um
að þá geti þeir sem skulda erlend
lán ekki greitt þau. Þetta eru auð-
vitað engin rök, en erfitt er að koma
mönnum í skilning um það. Afleið-
ingamar verða væntanlega tals-
verðar, bæði til góðs og ills. Nokkr-
ar sem mér koma í hug eru t.d. að
verðskyn muni breytast og almenn-
ingur geri sér betri grein fyrir
ríkjandi viðskiptakjörum. Þeir sem
nú skulda stórar fúlgur erlendis
verða af pólitísku verndinni sem
þeir hafa hingað til getað treyst á
og braskararnir færa eitthvað af
starfsemi sinni frá skuldabréfa- eða
verðbréfamarkaðinum og yfír í
gjaldeyriskaup. En þetta eru minni-
háttar atriði í samanburði við rétt-
lætið sem fylgja mun slíku við-
skiptafrelsi. Þá fá byggðalögin á
landsbyggðinni aukið vægi í hag-
kerfinu, útflutningsgreinar fá jafn-
vægisstöðu á við innflutnings- og
þjónustuatvinnuvegina og síðast en
ekki síst þá fá bankarnir í landinu
nýtt hlutverk og verðugt verkefni
að sinna.
Framkvæmd svona kerfísbreyt-
ingar er ekki eins erfið og fyrst
sýnist. Með bankaútibú út um allt
land, tölvunet milli þeirra og sér-
staka miðstöð fyrir bankana, er
hægðarleikur að færa gengisskrán-
inguna út í efnáhagslífið. Þetta er
raunverulega ekkert meira mál en
fyrir S61 hf. að setja á markað nýja
vörutegund, eða fyrir Veðurstofuna
að fylgjast með loftvogunum á veð-
urathugunarstöðvunum.
Ég geri það að tillögu minni til
ríkisstjórnarinnar að hún færi geng-
isákvörðun til allra banka og sendi
Seðlabankann í kerfisbreytingu
en ekki gengisbreytingu.
Höfuadw er framkvæmdastjórí
fKeflavík.
DRÁTTARVÉLAR
Mest seldar
íV-Evrópu
Globuse
'lAGMÚLA 5. S. 681555.
þórsc/íféJ
ÁS-TENGI
*->
Allar gerðir
Tengíð aldrei
stál-í-stál
VESTURGOTU lfc SIMAR 14680 21*80
s
P0KIN
EIDBÐll
Sölustaðir:
Reykjavik: Allar helstu bókaverslanir
Akureyri: Allar helstu bókaverslanir
Sigluf jörður: Aðalbúðin, bokav. Hannesar
Bókapantanlr f síma 96-71301.
Tilhamingju
Siglfiröingar,
þökkum móttökurnar
MYLLUKOBBI
tOHLílG
rÖRFUFELLI 34-111 REYKJAVÍK - S: 72020
i
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháasemlága!