Morgunblaðið - 13.08.1988, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
33
Kerfisbreytíngu en
ekki gengi sbreytingn
eftirSigiirð
Tómas Garðarsson
Um störf Seðlabanka
og Veðurstofu
Vægi erlendra mynta í efna-
hagslífí íslands hefur slík áhrif á
afkomu byggða og atvinnulífs í
sjávarplássum að fyllilega er sam-
bærilegt við aðra örlagaþætti eins
og veðurfar eða aflabrögð. Sú
mæling sem gengi Seðlabanka ís-
lands sýnir um efnahag sjávar-
plássa úti á landi er á sinn hátt
ekkert ósvipuð og mælingin væri á
veðurfari í sjávarplássunum, ef að-
eins væri tekið tillit til loftvogarinn-
ar á Veðurstofunni í Reykjavík.
Veðurstofan og Seðlabanki íslands
stunda að þessu leyti svipaða starf-
semi. Báðar stofnanirnar eru stöð-
ugt að fást við hæðir og lægðir.
Önnur í veðurfari landsins, en hin
í efnahag landsins.
Ef við hugleiðum skipuleg og
vísindaleg vinnubrögð Veðurstof-
unnar í upplýsingaöflun sinni um
allt landið, þá er augljóst að ef
þeirra nyti ekki við væri ásjóna
landsbyggðarinnar allt önnur. Þér,
lesandi góður, finnst samanburður-
inn kannski fráleitur, en svo er
ekki ef nánar er skoðað. Alveg eins
og Seðlabankanum er ætlað að gefa
út upplýsingar, halda utan um hin-
ar ýmsu efnahagslegu stærðir og
segja til um orsakir og afleiðingar
þeirra, þá gerir Veðurstofan það
sama um veðurfar og þykir öllum
sjálfsagt.
Eins og fyrr segir er gengi er-
lendra gjaldmiðla, sem nú á tímum
eru „framleiddir" allt í kringum
landið, eitt af megin atriðum efna-
hagslífsins. Hæðir og lægðir í efna-
hag byggðarlaganna ráðast ekki
síður af magni og verði þeirra en
af lönduðum afla og hvemig vinnst
úr honum, svo ekki sé nú talað um
veðurfar. í fomeskju sinni neitar
Seðlabankinn að viðurkenna þessa
staðreynd. í stað þess að fylgjast
með og skrá með skipulögðum
hætti allan feril gjaldmiðlanna eru
þeir stöðvaðir í Reykjavík og seldir
þar á föstu verði, sem ákvarðast
af héntistefnumælikvarða ríkjandi
stjómmálamanna og aldrei rétt. I
samanburði við vinnubrögð veður-
fræðinga em vinnubrögð efna-
hagshagfræðinga okkar aðeins
kukl.
í hlutfalli af meðal-
loftþrýstingi Evrópulanda
Nýjasta hugmynd nokkurra hag-
fræðinga er að tengja krónuna við
Evrópugjaldmiðla. Margir hafa
gripið þessa hugmynd á lofti og sjá
hér gott tækifæri til að taka með
þessari ráðstöfun hentistefnumæli-
kvarðann úr höndum stjómmála-
mannanna. Hugmyndin er í mínum
huga jafn fráleit og að skikka Veð-
urstofima til að skrá loftþrýstinginn
í landinu í einhveiju hlutfalli af
meðalloftþrýstingi Evrópulanda.
Auðvitað dettur ekki nokkrum
manni slíkt í hug.
Eitt af núverandi vandamálum
efnahagslífsins em offjárfestingar
á ýmsum sviðum. Sjávarútveginum
hefur ekki síst verið núið þessu um
nasir og oft ekki af ástæðulausu.
Annar vandi í hagkerfinu er lang-
varandi verðbólga og þar af leið-
andi brenglað verðmætamat. Þetta
Sigurður Tómas Garðarsson
„Ég geri það að tillögn
minni til ríkisstjórnar-
innar að hún færi geng-
isákvörðun til allra
banka og sendi Seðla-
bankann í kerfisbreyt-
ingu en ekki gengis-
breytingu.“
tvennt þ.e. verðbólgan og offjárfest-
ingin eiga að læknast með tengingu
krónunnar. Þetta má vera rétt en
áföllin aukast einnig. Atvinnuleysi
færist einnig á Evrópustig og mark-
aðsstaða framleiðsluafurða okkar
takmarkast á sama hátt og annarra
Evrópuþjóða.
Ég legg til að hagfræðingar sem
mæla með tengingu krónunnar við
myntkerfi Evrópugjaldmiðla fari í
læri hjá Veðurstofunni.
ÁSKIRKJA: Vegna safnaðarferð-
ar verður guðsþjónustan í
Strandarkirkju, Selvogi kl. 11. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Sigríð-
ur Jónsdóttir. Sr. Gisli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Prestur sr. Ólaf-
ur Jens Sigurðsson. Sóknar-
nefndin.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn Hunger Friðriksson. Sr.
Hjalti Guðmundsson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
13. Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Anders Jó-
sefsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr.
Hreinn Hiartarson.
HALLGRIMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbœnaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðiðfyrirsjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Sr. Árni Páls-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Ólöf Ólafs-
dóttir. Organisti Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESSÓKN: Laugardag
13. ágúst: Guðsþjónusta í Hátúni
10b, 9. hæð, kl. 11. Sóknarprest-
ur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Ólafur Jóhanns-
son. Miðvikudag: Fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Ólafur Jó-
hannsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Sighyat-
ur Jónasson. Sr. Guðm. Örn
Ragnarsson.
KAPELLA HÁSKÓLA ÍSLANDS:
Fríkirkjufólk. Guðsþjónusta í kap-
ellu Háskóla íslands kl. 11. Sr.
Gunnar Björnsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Stuðnings-
menn.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum þá kl. 14. Á laugardögum
er ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíla-
delfía: Almennt guðsþjónusta kl.
20. Ræðumaður Garðar Ragn-
arssonn.
Guðspjall dagsins:
Lúk. 18.: Farisei og toll
heimtumaður
KFUM & KFUK: Samkoma á
Amtmannsstíg 2B: Samkoma á
vegum SÍK kl. 20.30. Söngur
Anders Jósepsson. Þáttur um
Bjarna Eyjólfsson í umsjá Árna
Sigurjónssonar. Ræða Páll Frið-
riksson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Útisam-
koma á Lækjartorgi kl. 16. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30. Flokks-
foringjarnir stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa á Lágafelli kl. 11. Sóknar-
prestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Vestur-íslending-
ar eru sérstaklega boðnir vel-
komnir. Þar mun sr. Bragi Frið-
riksson og sr. Harald S. Sigmar
þjóna fyrir altari og sr. Jón Bjarm-
an prédika. Stólvers fíytja Vest-
ur-íslendingarnir Svava og Erik
Sigmar. Organisti Þröstur Eiríks-
son.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Einar Eyjólfsson
messar. Sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjá
Víðistaðakirkja.
KAPELLA ST. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
KAPELLA ST. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10. Rúmhelga daga
messa er lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl 8
KIRKJUVOGSKIRKJA, Höfnum:
Messa kl. 11. Gönguferð að
henni lokinni. Gengið fyrir Ósa-
botna og í Hvalsnes. Sr. Örn
Bárður Jónsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Bæna-
samkomur alla þriðjudaga kl.
20.30. Lofgjörð, fyrirbænir, kaffi
og umræður. Sr. Örn Bárður
Jónsson.
Gengisákvörðun í alla
banka
Ég hef ekki heyrt annan hag-
fræðing en Vilhjálm Egilsson viðra
þá skoðun að erlendir gjaldmiðlar
væru eins og hver önnur verslunar-
vara, sem eðlilegast væri að gengi
kaupum og sölum eins og önnur
verðmæti f hagkerfínu. Er verðlags-
höft réðu lögum og lofum í efna-
hagslífínu var ekki óeðlilegt að er-
lendir gjaldmiðlar væru þar með.
Nú er það frjálst verðlag sem ræð-
ur lögum og lofum og því er jafn
eðlilegt að gjaldmiðlar faili þar und-
ir.
Rökin sem helst heyrast á móti
ftjálsri gjaldeyrissölu eru hræðsla
við aukna verðbólgu, einhverskonar
spákaupmennska með erlenda
gjaldmiðla og einnig öfugmælin um
að þá geti þeir sem skulda erlend
lán ekki greitt þau. Þetta eru auð-
vitað engin rök, en erfítt er að koma
mönnum í skilning um það. Afleið-
ingamar verða væntanlega tals-
verðar, bæði til góðs og ills. Nokkr-
ar sem mér koma í hug eru t.d. að
verðskyn muni breytast og almenn-
ingur geri sér betri grein fyrir
ríkjandi viðskiptalgörum. Þeir sem
nú skulda stórar fúlgur erlendis
verða af pólitísku vemdinni sem
þeir hafa hingað til getað treyst á
og braskaramir færa eitthvað af
starfsemi sinni frá skuldabréfa- eða
verðbréfamarkaðinum og yfír í
gjaldeyriskaup. En þetta em minni-
háttar atriði í samanburði við rétt-
lætið sem fylgja mun slíku við-
skiptafrelsi. Þá fá byggðalögin á
landsbyggðinni aukið vægi í hag-
kerfinu, útflutningsgreinar fá jafn-
vægisstöðu á við innflutnings- og
þjónustuatvinnuvegina og sfðast en
ekki síst þá fá bankamir í landinu
nýtt hlutverk og verðugt verkefni
að sinna.
FVamkvæmd svona kerfísbreyt-
ingar er ekki eins erfíð og fyrst
sýnist. Með bankaútibú út um allt
land, tölvunet milli þeirra og sér-
staka miðstöð fyrir bankana, er
hægðarleikur að færa gengisskrán-
inguna út 5 efnáhagslífið. Þetta er
raunvemlega ekkert meira mál en
fyrir Sól hf. að setja á markað nýja
vömtegund, eða fyrir Veðurstofuna
að fylgjast með loftvogunum á veð-
urathugunarstöðvunum.
Ég geri það að tillögu minni til
ríkisstjómarinnar að hún færi geng-
isákvörðun til allra banka og sendi
Seðlabankann í kerfisbreytingu
en ekki gengisbreytingu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
ÍKeflavik.
DRATT ARVELAR
Mest seldar
í V-Evrópu
G/obust
LÁGMÚLA6.S.681555.
tilbreyting...
ÞÓRSC/HFB-
ÁS-TENGI
gaL
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál
Sftupta&DgRjiir cJ®va®ss®<ra <& ©<®
VESTURGOTU 16 SÍMAR 14680 21480
Sölustaðir:
Reykjavík: Allar helstu bókaverslanir
Akureyri: Allar helstu bókaverslanir
Siglufjoröur: Aöalbúðin, bókav. Hannesar
Bokapantanir f sima 96-71301.
777 hamingju
Siglfiröingar,
þökkum móttökurnar
MylluKobbi
F0RLAG
rÖRFUFELLI 34-111 REYKJAVÍK - S: 72020
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!