Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 KNATTSPYRNA / 2. DEILD Baráttaá Sauðárkróki Tindastóll fékk þijú dýrmæt stig í gærkvöldi eftir sanngjaman sigur gegn Eyjamönnum. Leikurinn bar þess augljós merki að hvorugt aaaamam íiðið mátti við að Frá tapa stigum, barátt- Bimi an var geysileg, en Bjömssyni 3-1 sigur heima- á Sauðárkróki manna hefði gefið réttari mynd af viðureigninni. Tindastóll átti mun meira í fyrri hálfleik og sótti stíft. Leikmennim- ir sköpuðu sér fjögur mjög hættuleg marktækifæri, sem öll fóm forgörð- um, en eitt mark sá dagsins ljós. Eftir hlé tóku Eyjamenn völdin, vom mun meira með knöttinn, en Gísli Sigurðsson, markvörður, kom í veg fyrir að þeir skomðu. Tindastóll - IBV 2 : 1 (1:0) Mörk Tlndastóls: Guðbrandur Guð- brandsson (10.) og Eyjólfur Sverrisson Maður leiksins: Gísli Sigurðsson, Tindastóli. „ _ Morgunblaðið/Sverrir Orn Valdimarsson átti ágætan leik með Fylki í gærkveldi. Hann var samt ekki eins lánsamur nú og á móti Víði, en þá skoraði hann fjögur mörk. Fylkir með 11 stiga forskot á Víði Árbæingarnir hafa staðið sig vel í sumar og eru nær öruggir með sæti í 1. deild FYLKISMENN eru nú sama sem komnir upp í 1. deild eftir nauman sigur á Þrótti, sem nú gerist þaulsetið á botni deild- arinnar. Frammistaða Fylkis- liðsins hefur svo sannarlega verið glæsileg f sumar, og hef- ur það nú 11 stiga forskot á Víði, sem er í þriðja sæti. I að var hins vegar ekki að sjá á leiknum í gær að þar væri KristinnJens Sigurþórsson skrífar tilvonandi fyrstu deildar lið að leika gegn þriðju deildar kandídötum. Framan af leiknum áttu Þróttarar jafn mikið, ef ekki meira, í leiknum, en tókst samt ekki að skapa sér afgerandi marktækifæri, þrátt fyrir góða baráttu. Leikmenn Fýlkis voru ekki eins sannfærandi í leik sínum, og gegn Víði á dögunum, þegar þeir sigruðu þá 5:1. Sóknaraðgerðir þeirra voru fálmkenndar og ómarkvissar. Þeir fengu þó eitt dauðafæri um miðbik fyrri hálfleiksins, er Jón Bjami Guðmundsson komst einn inn í víta- teiginn, lék á markvörðinn, en skaut síðan himinhátt yfír. Sigurmark Fylkis kom svo á 70. mínútu, og var það Jón Bjami Guð- mundsson, sem fylgdi góðri fyrir- gjöf vel eftir, og hamraði knöttinn upp í netið. Eftir þetta mark lifnaði svolítið yfír leik liðsins, sem verið hafði fremur daufur fram að þessu. Þriðja deildin blasir nú við Þrótt- umm, sem hafa verið alveg einstak- lega lánlausir í mörgum leikja sinna í sumar. Þeir hafa verið yfír í léikj- um lengi vel, en síðan hefur and- stæðingunum tekist að jafna, eða sigra með eins marks mun. Geta liðsins er því kannski ekki alveg í samræmi við stöðu þeirra í deild- inni, en svo virðist, sem falldraugur- inn svonefndi hafí ákveðið að fylgja þeim eftir, og gæti reynst þeim erfitt að hrista hann af sér. KORFUKIMATTLEIKUR / URVALSDEILD Grindavík gerir stér- samning við Atlantik „Þetta er stærsti auglýsinga- samningur sem gerður hefur verið innan körfuknattleiks- ins,“sagði Ægir Ágústson formaður körfuknattleiksdeild- ar UMFG eftir að hann undirrit- aði í gær auglýsingasamning við Ferðaskrifstofuna Atlantik, sem felur í sér merkingar á öllum búningum deildarinnar bæði karla og kvenna í öllum aldursflokkum auk þess sem skilti verða sett upp í íþrótta- húsinu í Grindavík og fánar utan dyra. Ægir sagði að þessi samningur skipti sköpum fyrir deildina þar sem fjárhagurinn hefði oft ver- ið í jámum og allar fjáraflanir þung- Krístinn Bene- diktsson skrífar frá Gríndavik ar. „Við erum að fá toppþjálfara á næst- unni og bindum við miklar vonir við hann svo það er mikill hugur í okk- ur hér í Grindavík. Við byijum vertíðina með körfu- knattleiksskóla 1. september þar sem tveir þekktir bandarískir þjálf- arar leiðbeina, þeir Jim Dooley fyrr- um þjálfari landsliðsins og ÍR og Dick Ross fyrrum þjálfari Grindavíkur. Þeir munu kenna öll- um aldurshópum auk þess sem þjálfarar munu fá góða tilsögn og verður þáttökugjaldinu stillt mjög í hóf en slíkt er mögulegt þar sem þeir munu gefa deildinni alla vinnu sína.“ Morgunblaóið/Kr. Ben. Eftlr undirskrift samningsins tókust þeir í hendur Ægir Ágústson formaður körfuknattleiksdeildar UMF_G og Böðvar Valgeirsson framkvædastjóri Atlant- ik.Til vinstri er Sigurður Ágústson umboðsmaður Atlantik í Grindavfk sem hafði forgöngu um samninginn og Guðjón Jónsson framkvædarstjóri körfuknatt- leiksdeildar UMFG. FráJóni Halldórí Garóarssyni iÞýskalandi íÞtémR FOLK JEAN Maríe Pfaff, sem er samningsbundinn hjá Bayern Munchen til næsta árs hefur verið á höttunum eftir nýju liði til að leika með. Það hefur þó ekki gengið eins vel hjá honum og hann bjóst við. Uli Höe- ness, framkvæmda- stjóri, Bayern, og forseti félagsins Scherer, höfðu lofað honum að- stoð, en nú hafa þeir sagt honum að hann þurfí að mæta á næstu æfingu með Bayern, sem verður á þriðjudag. Leikmenn Bayern eru hins vegar mjög óhressir með þetta, og hefur fyrirliðinn Klaus Augent- haler, sagt að best væri fyrir Pfaff, að láta ekki sjá sig á æfíng- um. Pfaff hefur gagnrýnt liðið og sagt að það sé ekki sama toppliðið og það var. Þá hafði þjálfari Bay- ern, Jupp Haeynckes, hins vegar lýst því yfir að Pfaff, yrði bara varamarkvörður í vetur, og það vildi hann ekki sætta sig við. Aðalmark- vörður liðsins verður hins vegar Raimond Aumann og hefur hann sagt að Pfaff sé velkominn á æÚ*' ingar, hann ógni sér ekkert. ■ ROLF Schafstall, þjálfari Bayern Uerdingen, og þar með Atla Eðvaldssonar áður fyrr, var tekinn ölvaður undir stýri á dögun- um. Hann var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, sviptur ökuleyfi í 9 mánuði og sekt- aður um 10 þúsund mörk. ■ Erích Ribbeck, framkvæmda- stjóri HSV er farinn að gagnrýna þjálfara liðsins, Reimann, og er greinilega óánægður með stöapn hans. Hann segir þjálfarann ekki ná þvf besta út úr liðinu. Bendir hann til dæmis á, að stjömur liðs- ins, Manni Kaltz og Von Heesen, fyrirliði, sýni ekki það sem í þeim býr. ■ PILLULÆKNIR v-þýska landsliðsins, Heinz Liessen, er hættur. Ástæðan er sú að hann segir leikmenn ekki fara að ráðum sínum, og taki ekki inn þau lyf og vítamín, sem hann ráðleggi þeim. Littbarski sagðist til dæmis bara henda þessum töflum, og það eru ekki beint meðmæli með Liessen, sem þá er mjög virtur á sínu sviði. ■ Dassajev, sovéski landsliðs- markvörðurinn frægi, er nú sagðuf^— vera með tilboð frá HSV, og hljóð- ar það upp á 1.9 milljón þýskra marka UKNATTSPYRNULIÐ Kölnar er nú á keppnisferðalagi á Ítalíu, og í fyrradag kepptu þeir við AS Roma, sem Rudi Völler, leikur með. Köln sigraði með tveirnur mörkum gegn einu,' og skoruðu Povlsen og Allofs mörk Þjóð- veija. Fyrir Roma skoraði Völler. ■ JURGEN Kohler, landsliðs- bakvörðurinn þýski, getur tekið gleði sína á nýjan leik, því vinkona hans er á batavegi, eftir að botn- langinn sprakk í henni. KNATTSPYRNA / 2.DEILD „Fengum engar viðvaraniru - segir Hörður Júlíusson, formaður knattspymudeildar KS Hfl ér skilst, að aganefnd KSÍ ■VI hafi ákveðið bannið á okkur vegna kvartana eftirlitsdómara um um ólæti á öllum heimaleikjum okkarí sumar. Þetta eru yfirleitt smáatriði, sem gert er mikið úr. Það er hins vegar ekki fyrr en nú, sem við erum látnir vita af þeim umkvörtunum og þá með þessum hætti. Okkur finnst skorta samband af hálfu KSÍ, því að 'við fengum engar viðvaranir", sagði Hörður J úlíusson, formaður knattspymudeildar KS, i samtali við Morgunblaðið. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær, dæmdi aganefnd KSÍ 2. deildar lið KS til að leika næsta heimaleik sinn, sem er gegn UBK, í meira en 100 km fjarlægð frá Siglufírði vegna ósæmilegrar hegðunar áhorfenda þar undan- farið. Hörður Júlíusson sagði, að KS-ingar hefðu óskað þess, að fá frekari gögn frá KSÍ um málið en ekki fengið nema að takmörk- uðu leyti. KS tekur ákvörðun um það á mánudag, hvar leikurinn gegn UBK fer fram en að sögn Harðar hefur Siglfirðingum þegar verið boðinn völlur í umræddri fiarlægð. Mikill hugur er í Siglfirðingum vegna þessa máls og er búist við, að hundruð manna fylgi KS-liðinu þangaö, sem leikurinn við UBK fer fram. Jafnframt þykir mörg- um Siglfirðingum súrt í broti, að þetta leiðindamál skuli koma upp einmitt um þessar mundir þegar í hönd fer hátíðarvika vegna 70 ára afmælis bæjarfélagsins. % Körfuknattleiks- ' skóliHauka Körfuknattleiksdeild Hauka verður með körfuknatt- leiksskóla fyrir drengi og stúlkur 7-14 ára. Kennsla fer fram í Haukahúsinu 15.-20. ágúst sem hérsegir: 7,8og9áradrengir.........kl. 9.00-10.30 11 áraogyngri, stúlkur...kl. 10.30-12.00 lOoglláradrengir.........kl. 13.00-14.30 12,13ogl4ára.............kl. 14.30-16.00 Innritun fer fram í Haukahúsinu 15. ágúst i fýrstu tímum hvers aldursflokks. IngvarS. Jónsson, iþróttakennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.