Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 24
4
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
Umbótastefna Gorbatsjovs Sovétleiðtoga:
Vinnuálagið skýtur for-
ystunni skelk í bringu
Moskvu, Reuter.
Umbótastefna Gorbatsjovs og
vinnuálagíð sem af henni hlýst
skýtur sumum forystumönnum
kommúnistaflokksins á lands-
byggðinni skelk i bringu, að því
er málgagn sovéska kommúni-
Mannréttindanefnd SÞ til Kúbu:
Pyntingaklefar faldir
fyrir fangelsisheimsókn
- að sögn fulltrúa Bandaríkjanna í nefndinni
Washington. Reuter.
BANÐARÍSKUR embættismaður
sagði á miðvikudag að kúbönsk
yfirvöld væru að reyna að breiða
yfir pyutingar f fangelsum lands-
ins. Fyrirhuguð er heimsókn
sendinef ndar á vegum mannrétt-
indanefndar Sameinuðu þjóðanna
f september til að skoða aðstæður
Gaza-svæðið:
Palestínu-
maður
skotinn
Tel Aviv, Jerúsalem. Reuter.
ENN einn Palestínumaður hefur
látið lffið f óeirðum á Gaza-svœð-
inu.
ísraelskir hermenn skutu Pa-
lestfnumann til bana og særðu annan
f flóttamannabúðum á hernumdá
Gaza-svæðinu, þegar flóttamennirnir
réðust á hervörð, að sögn talsmanns
hersins. Maðurinn sem lést hét Riad
Suleiman Abu Mandil og var 23 ára
gamall. Að sögn hersins hafði hann
tekið þátt í motmælum gegn ísrael
og árásum á hergæslumenn í flótta-
mannabúðunum. A síðustu átta mán-
uðum hafa 250 aðrir Palestínumenn
fallið í óeirðum á herteknu svæðun-
um.
Bandarískur gyðingur sem aflar
upplýsinga fyrir jafhréttisnefhd
araba f Bandaríkjunum fékk ekki að
fara inn á Vesturbakkann frá Jórdan
á fimmtudag. Hann var stöðvaður
af fsraelskum hermönnum sem sögð-
ust hafa fundið and - ísraelskan áróð-
ur f fórum hans. Að sögn talsmanns
nefndarinnar var maðurinn einungis
með blaðaúrklippur á sér sem fjöl-
luðu um átök fsraela og araba. EU-
efu öðrum starfsmönnum nefndar-
innar var leyft að fara til Vestur-
bakkans og þar munu þeir dvelja hjá
palestfnskum fjölskyldum.
f fangelsum á Kúbu.
Armando Valladares, fulltrúi
Bandaríkjamanna f mannréttinda-
nefnd SÞ, greindi frá þvf að á ljós-
myndum sem smyglað hefði verið
út úr Combinado del Este-fangelsinu
í Havana megi sjá hvar unnið sé við
að hylja inngöngudyr pyntingaklefa.
Segir hann að á myndunum, sem
teknar voru i mars á þessu ári, sjá-
ist hvar verið er að fjarlægja hurðir
og múra upp I götin á pyntingaklef-
um fangelsisins.
Valladeres, sem sat f fangelsi á
Kúbu fram til ársins 1982, sagði að
mannréttindanefndin yrði að reyna
að afla sér upplýsinga um breytingar
sem gerðar hefðu verið á fangelsum
á Kúbu áður 'en farið yrði til Kúbu
í september. „Þeir geta reynt að
hylma yfir pyntíngar en þeim tekst
ekki að fela þjáningar almennings á
Kúbu," sagði Valladeres, sem telur
heimsókn sendinefndarinnar vera
sigur fyrir mannréttindahreyfingar
um allan heim.
staflokksins, Pravda, skýrði frá
í gær.
Pravda nefnir sem dæmi um
þetta að hugmyndafræðingar átta
flokksráða hafi sagt af sér f
Prfmorskíj, austast í Sovétríkjun-
um, vegna ótta við umbæturnar. í
forystugrein á forsíðu blaðsins seg-
ir að fregnir hafi borist frá nokkrum
svæðum Sovétríkjanna um að um-
bætur, sem komið hafi verið á að
undanförnu, séu að buga starfs-
menn flokksins.
„í skýrslum frá landsbyggðinni
kemur berlega í ljós að nýjar kröfur
skapa óvissu og ráðaleysi meðal
starfsmanna flokksins, þar á meðal
Ieiðtoga hans," segir Pravda. Blaðið
segir að í nokkrum tilvikum hafi
starfsmenn flokksins sýnt að þeir
„hræðist umfang komandi verk-
efna."
í Prövdu segir ennfremur að
ástandið sýni hversu mikilvægt það
sé að velja rétta menn til forystu-
starfa innan flokksins til að koma
umbótastefnu Míkhafls Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga í framkvæmd. Um-
bótastefna Gorbatsjovs hefur þegar
leitt til breytinga í forystu flokks-
ins. Fréttastofan Tass skýrði frá
því í síðustu viku að leiðtogi komm-
únistafiokksins i Novosíbfrsk-hér-
aði, Aleksander Fflatov, hefði verið
vikið úr stárfi, en Leoníd Brezhnev,
fyrrum Sovétleiðtogi, skipaði hann
í starfið fyrir tíu árum. Tass skýrði
ekki frá ástæðunni fyrir brottvikn-
ingu Pílatovs en andófsmenn í
Moskvu segja að hann hafi verið
afturhaldssinnaður og andsnúinn
umbótum.
Ólympíuleikarnir í Seoul:
Gerðarleg bjórfíaska
Tuborg-flaskan fræga, sem er 26 metra há og vegur 27 tonn,
hefur um langt skeið staðið við Tuborg-verksmiðjurnar í Heller-
up í Kaupmannahöf n. Flaskan var sett upp á Ráðhústorginu fyr-
ir réttum hundrað árum tíl að minna á mikla iðnaðar- og land-
búnaðarsýningu sem þá var haldin f borginni en sfðar flutt tíl
Hellerup. Fyrir skömmu var hún flutt um stundar sakir aftur á
torgið í tílefni af 150 ára afmæli sambands danskra iðnrekenda.
Það tók fimm daga að flytia flöskuna.
S-Kóreumenn vilja ganga
ínn með Norðanmönnum
Lausanne, Seoul. Reuter.
SUÐUR-Kóreumenn samþykktu f gær að ganga samhliða Norður-
Kóreumönnum við setningu ólympíuleikjanna þar í borg eftír
mánuð ef Norðanmenn breyta ákvörðun sinni um að hundsa leik-
ina. Alþjóðaólympíunefndin (IOC) lagði í fyrradag til að gengju
saman við setningar- og lokaathöfn leikjanna f Seoul.
IOC lagði til að íþróttamennirn- nefndanna í fyrradag og barst já-
ir gengju inn undir fánum beggja
ríkja en að fyrir göngunni færi
fánaberi með öíympíufánann.
Hugmyndinni var komíð á fram-
færi við formenn köresku ólympíu-
kvætt svar frá Sunnanmönnum í
gær.
Norður-Kóreumenn hafa sagst
ætla að sniðganga leikina þar sem
IOC hefði ekki komið til móts við
kröfu þeirra um skiptingu leikj-
anna milli kóresku ríkjanna. Höfn-
uðu þeir lokatilboði IOC snemma
á árinu en að því búnu sagði Juan
Antonio Samaranch að IOC og
Suður-Kóreumenn hefðu teygt sig
miklu lengra en eðlilegt gæti talizt
í þeirri von að Norðanmenn tækju
þátt í leikunum. Lokaboðið stendur
enn, sagði í tilkynningu IOC f
fyrradag, en það gerir ráð fyrir
Sovétríkin:
Minningar eiginkonu skáldsins
Mandelshtam birtar opinberlega
Moakvu, Reuter.
MINNINGAR Nadezhdu Mandelshtam, þar sem lýst er hörm-
ungunum sem hún eiginmaður hennar urðu að þola á Stalín-
tímanum, voru í fyrsta sinn birtar opinberlega f Sovétrfkjunum
f gær. Bókin var gefin út á Vesturlöndum árið 1970.
I ágústhefti tfmaritsins Júnost \ heild á næsta ári.
eru birtir fyrstu 24 kaflarnir úr
bók Nadezhdu „Von gegn von"
(Hope against Hope), þar sem
segir frá lífi hennar og eigin-
manns hennar, skáldsins Osíps
Mandelshtams, frá því þau kynnt-
ust árið 1919 þar til hann var
handtekinn árið 1938. Bókin hef-
ur gengið leynilega milli manna í
Sovétríkjunum en þetta er f fyrsta
sinn sem kaflar úr henni eru birt-
ir opinberlega. Sovéskir útgefandi
hefur í hyggju að gefa bókina út
Osíp Mandelshtam er talinn
vera eitt af fremstu skáldum
sinnar kynslóðar. Hann lést í
fangabúðum í grennd við Vladívo-
stok í desember árið 1938, sjö
mánuðum eftir að hann var hand-
tekinn. Nadezhda (nafnið þýðir
von á rússnesku), kona hans,
varðveitti verk Osíps eftir að soy-
éska öryggislögreglan handtók
hann og rak hana á brott frá
Moskvu. Hún starfaði sem ensku-
kennari í skólum úti á landi og
lifði alla tíð í þeirri von að geta
gefíð út verk manns síns í Sov-
étríkjunum.
Nadzedhu var leyft að snúa til
Moskvu árið 1964, þar sem hún
hóf að rita minningar sínar. Fyrra
bindið „Von gegn von" kom út á
vesturlöndum árið 1970, og hið
síðara, „Brostnar vonir", árið
1974. Nadezhda Iést árið 1980.
Tímaritið Júnost nefnir ekki
síðara bindi æviminninganna.
Birting úr verkum Nadezdhu
þykir marka tímamót í Sovétríkj-
unum og er talið vera stórt skref
í átt að auknu ritfrelsi. Birtingin
er talin vera enn eitt dæmið um
árangurinn af „glasnost"-stefnu
Míkhafls Gorbatsjovs.
Inngang að minningarköflun-
um sem birtust í Júnost ritar
stærðfræðingurinn, Mfkhaíl Polf-
vanov, sem hitti höfundinn árið
1962, þegar hún var enn í útlegð
í bænum Tarúsa. Hann dregur
upp fagra mynd af Iffi Nadzedhu
og lofar hana fyrir að geyma verk
skáldsins sem hann segir að hafi
ritað ljóð sem kostuðu hann lífið
vegna þess að honum hafi ekki
verið gerlegt að rita á annan veg
við þær aðstæður sem honum
voru búnar í heimalandi sínu.
því að keppni Ólympíuleikanna í
bogfími, borðtennis og að hluta til
í knattspyrnu og fleiri greinum,
færi fram í Pyongyang, höfuðborg
Norður-Kóreu.
Kóresku ríkin hafa ákveðið að
setja á laggirnar sameiginlega
þingnefnd, sem kemur saman í
landamæraþorpinu Panmujon 17.
ágúst næstkomandi til þess að
gera uppkast að griðasáttmála og
ræða um hugsanlega þátttöku
Norðanmanna í Ólympíuleikun-
unm.
Stærstu fyr-
irtæki EB
Bruuel. Frt Kriatófer M. KrutuMgyni,
fréttarítara Morgunblaðsins.
ÞÝSKA viðskiptablaðið Handels-
blatt birti nýlega lista yfir 100
stærstu fyrirtæki innan Evrópu-
bandalagsins. í samanburði við
bandarísk fyrirtæki þykir þau
evrópsku skorta sérhæfingu sem
talið er stafa af sérstökum mark-
aðsaðstæðum þeirra.
Tvö stærstu fyrirtækin eru Shell
í Hollandi og BP á Bretlandi. í hópi
tfu stærstu fyrirtækjanna eru þrjár
bílarverksmiðjur, Daimler-Benz,
Volkswagen og Piat. Af öðrum fyrir-
tækjum í tíu efstu sætunum má
nefna Póst og Síma í Þýskalandi,
Siemens og Unilever. Einungis fyrir-
tæki frá sjö af tólf aðildarríkjum EB
komast á listann yfir 100 stærstu
fyrirtækin, flest eru frá Vestur-
Þýskalandi, Bretlandi og Prakklandi.