Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
182.tbl.76.árg.
LAUGARDAGUR 13. AGUST 1988
Prentsmiðja MorguDblaðsins
Bandaríkin:
Eldurj
háhýsi
New York. Reuter.
ÞRÍR slösuðust í gær þegar eldur
braust út í Empire State-bygg-
ingunni, einni af hæstu bygging-
um heúns.
Homer Bishop slökkviliðsstjóri
sagði að eldurinn hefði brotist út á
86. hæð byggingarinnar og borist
upp á efstu hæðina, þá 102. Á báð-
um þessum hæðum eru vinsælir
útsýnisstaðir.
Bishop sagði að enginn hefði
slasast alvarlega. Eldurinn hefði
brotist út frá stokk fyrir kapla sjón-
varps- og útvarpsstöðva sem eru í
byggingunni. Eldurinn hefði borist
upp stokkinn en ekki komist á
ganga byggingarinnar.
i t
\z t^-t -^ *ysrf -$%r>?*: %
Reuter.
Skipta sov-
éskir millj-
ónamæringar
þúsundum?
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA neðanjarðarhag-
kerfið hefur gert þúsundir
Sovétmanna að mujjónamær-
ingum að sðgn háttsetts sov-
ésks hagfræðings, Tatjanas
Korjagínas.
í viðtali við dagblað sovésku
verkalýðshreyfíngarinnar, Trud,
segir Korjagfna að Sovétmenn
hafi greitt 14-16 mUljarða rúbla
(1-1,2 billjónir ísl. kr.) á ári fyrir
þjónustu sem einstaklingar veita.
45 milljarðar rúbla (3,3 billjónir
ísl. kr.) eru greiddir fyrir þjón-
ustu innan hins opinbera hag-
kerfis.
Korjagína segir að innanhús-
arkitektar, viðgerðarmenn, fata-
hönnuðir, læknar, leigubflstjórar
og útfararstjórar séu á meðal
þeirra sem veita þjónustu innan
neðanjarðarhagkerfisins. Þegar
hún var spurð hversu margir
þeirra væru milljónamæringar
svaraði hún: „Að mínu mati eru
þeir nokkur þúsund."
Á vinstri myndinni fylgjast þrjár sovéskar konur með 300 sovéskum hermönnum koma yfir landamærin tíl Sovétríkjanna í gær frá
suð-vestur héruðum Afganistans. Á hægri myndinni fagnar gömul kona hermanni i fjöldagöngu sem haldin var til heiðurs sovésku
hermönnunum sem börðust í Afganistan. Á mánudag á helmingur sovéskra hermanna að hafa yfirgefið Afganistan og fyrirhugað er
að brottflutningunum Ijúki 15. febrúar á næsta ári.
Afganistan:
Skæruliðar ná mikilvægri borg
Termez i Sovétruqunum. Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar náðu í fyrsta
skipti mikilvægri borg á sitt vald í gær,
er þeir tóku höfuðborg Kunduz-héraðs í
Norður-Afganistan meðan sovéskir her-
menn drógu sig til baka, að þvi er heimiíd-
ir frá Sovétrikjunum herma.
Heimildarmennirnir, þar á meðal háttsettir
embættismenn, sögðu að skæruliðarnir hefðu
misst borgina í eina klukkustund í gærmorg-
un, en náð henni síðan aftur.
„Þetta er í fyrsta sinn sem þeir ná mikil-
vægri borg," sagði einn heimildarmannanna
í Termez, þar sem um þúsund sovéskir her-
menn komu í gær frá Kunduz-héraði. Skæru-
liðarnir hafa sótt mjög á víðs vegar um Afgan-
istan að undanförnu, en samkvæmt Genfar-
samkomulaginu sem tók gildi 15. maí á helm-
ingur sovéskra hermanna að hafa yfirgefið
landið á mánudag.
Heimildarmenn f Termez sögðu að her Afg-
anistanstjórnarinnar héldi enn flugvellinum í
Kunduz, 60 kflómetrum sunnan við landa-
mæri Sovétríkjanna. Þeir sögðu að sovésk
hersveit sem hefði yfírgefið Kabul í þessari
viku hefði frestað för sinni til Sovétríkjanna
til að aðstoða stjórnarhersveitir við að verja
flugvöllinn.
Sein Lwin forseti Burma segir af sér:
Allt að þúsund manns tald-
ir hafa fallið í óeirðunum
Bangkok. Reuter.
SEIN Lwin sagði í gær af sér sem
forseti Burma eftir aðeins átján
daga við stjórnvölinn. Grímmúð-
ug mótmæli höfðu staðið yfir í
Eiffel-turninn málaður
Nú er verið að mála Eiffel-turninn i Paris fyrir tveggja alda
afmæli frönsku stjórnarbyltingarinnar. Eiffel-turninn, sem
réistur var árið 1899, er málaður sjðundá hvert ár og fara í
það 45 tonn af málningu.
fimm daga víða um landið og
vestrænir stjórnarerindrekar
segja að um 500 til 1.000 manns
hafi fallið.
Lwin hefur verið óvinsælasti
stjórnmálamaðurinn í Burma vegna
26 ára þjónustu hans við fyrirrenn-
arann, Ne Win, og baráttu hans
gegn stjórnarandstöðunni. Vest-
rænir stjórnarerindrekar höfðu sagt
að óhjákvæmilegt væri að Lwin
segði af sér, en fæstir bjuggust við
afsögn hans svo fljótt. Aðeins einum
degi áður, á fímmtudag, hafði hann
sagt á neyðarfundi að herinn væri
fær um að bæla mótmælin niður.
Stjórnarerindrekar segja að ekki
sé vitað hvort afsögn Lwins merki
að burmísk stjórnvöld séu reiðubúin
að slaka til og koma til móts við
kröfur almennings um frelsi í efna-
hagslífinu og lýðræði. Að sögn út-
varpsins í Rangoon verður ekki
ákveðið fyrr en á fundi miðstjórnar
flokksins 19. ágúst hver taki við
af Lwin. Flokkur landsins, sem hef-
ur verið einn við völd í áratugi, og
hernefndir hafa einnig boðað til
fundar 18. ágúst. Talið er að Ne
Win, fyrrum leiðtogi Burma, muni
gegni lykilhlutverki í forystu lands-
ins á næstu dögum.
Að sögn sjónarvotta, sem rætt
var við í síma, héldu óeirðirnar
áfram í úthverfum Rangoon í gær
og gekk fjöldi manna berserksgang
um skrifstofur flokksins, auk þess
sem þúsundum poka af hrísgrjónum
var stolið úr kornmyllum. Nokkrir
hermenn í Rangoon og fleiri borg-
um eru sagðir hafa gengið til liðs
við mótmælendur eða neitað að
fylgja skipunum um að skjóta á
óbreytta borgara.
Austur-Þýskaland:
Pólitískir fangar eru
taldir minnst þúsund
Ve§tur-Berlfn. Reuter.
AÐ MINNSTA 'kosti þúsund
Austur-Þjóðverjar hafa verið
hnepptír í fangelsi af stjórn-
málaástæðum síðan austur þýsk
fangelsi tæmdust næstum eftír
ahnenna sakaruppgjöf fyrir ári,
að því er mannréttindahreyfing
í Vestur-Berlín skýrði frá á
fimmtudag.
Mannréttindahreyfingin nefnist
13. ágúst samtökin, en þann dag
árið 1961 var bygging Berlínar-
múrsins hafin. Hreyfingin heldur
því fram að 400 manns hafí verið
dæmdir í fangelsi fyrir að reyna
að flýja land. Um 90 prósent hinna
fanganna 600 hafí reynt að knýja
á um að fá leyfi til að flytjast úr
landi með því að dreifa bæklingum
eða taka opinberar byggingar á sitt
vald. Hreyfingin byggir þessar tölur
á viðtölum við fyrrverandi fanga í
Austur-Þýskalandi.
Austur-þýska fréttastofan ADN
sendi frá sér stutta fréttatilkynn-
ingu í gær þar sem segir að stað-
hæfingar mannréttindahreyfingar-
innar séu „uppspuni frá rótum."
Sjá ennfremur frétt á bls. 26.